Morgunblaðið - 07.07.1984, Síða 10

Morgunblaðið - 07.07.1984, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984 Kaupmannahöfn: Föt íslenzku nem- anna vöktu athygli JónNhúsi, 25. júní. FYRSTA námsári hins nýstofnaða tízkuskóla, Köbenhavns Mode og Design Skole, lauk með glæsilegri sýningu í síðustu viku. Meðal 14 nemenda skólans eru 3 íslenskar stúlkur, sem ekki létu sitt eftir liggja og var sérstak- lega hrósað fyrir frammistöðuna. Heita þ»r Ingibjörg Olafsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir og Þórdís Kristleifsdóttir. Tízku- og hönnunarskólinn er til húsa í Gothersgötu 175 og sagði skólastjórinn, Marianne Duch- waider sig lengi hafa dreymt um að koma á fót slíkum skóla, og er húsnæðið, sem hentaði, reyndist fáanlegt sl. haust, drifið sig í að stofna skólann. Hún var áður kennari við Margarethe-skólann, sem frá hefur verið sagt í pistlum undirritaðrar, og er annar sam- kennari hennar einnig þaðan, en hinn hefur numið í Herning. Nem- endur munu útskrifast eftir annað námsár og sagðist skólastjórinn varla hafa þorað að halda sýningu eftir aðeins eins árs nám, en nem- endur sótt það fast og verið dug- legir. Grundvallarfög í vetur voru snið, teikning og saumatækni, en klæðskerasaumur bíður næsta vetrar. Nemendur greiða sjálfir allan kostnað og eru efniskaup ár- eiðanlega dýr liður, svo afkasta- miklar sem stúlkurnar 14 voru. Á sýningunni i húsnæði skólans bauð Marianne Duchwaider gesti velkomna. Flestir nemendur sýndu sjálfir fatnað sinn og komu fram sem æfðar sýningarstúlkur, en fáeinar fengu dyggilega aðstoð samlanda og eiginmanna m.a. sýndi hver frá 5 og upp í 10 al- klæðnaði, sportfatnað margskon- ar, jakka, frakka, dragtir og sam- kvæmisklæðnað. Mikil hug- kvæmni var greinileg, sterkir litir og ýmiss konar skrýtin uppátæki. Var skólastjórinn sammála því, að þær Ingibjörg, Unnur og Þórdís væru bæði djarfar og sterkar í hönnun og hugmyndum. Hafa þær líka fengið tilboð í fatnað sinn. Eins og fram kom m.a. í Berl- ingske Tidende vakti tískusýning hins unga skóla töluverða athygli. Og nefna má nokkrar flíkur ís- lenzku nemendanna, sem fengu sérstaklega mikið klapp sýn- ingargesta, svo sem hvítur frakki og hattur Unnar með leðurborðum um hinar afarbreiðu axlir og á hatti og vínrauður veizlubúningur hennar með geysistórum vösum og víðum púffermum og belti úr þunnri messingplötu, brenndri og krumpaðri, sem Unnur hafði einn- ig unnið sjálf. Af vönduðum bún- ingum Ingibjargar, en hún hefur sveinspróf í kjólasaumi og bar af á því sviði, skal nefndur svartur kvöldkjólí með gráu fóðri og þröngu gráu pilsi undir víðri svartri slá, og glæsilegur köflóttur ullarfrakki með hettu og 4 spenn- um, sem um leið eru hneppslur, og leðurbryddingum. Og Þórdís gerði m.a. skemmtilega regnslá, svarta, bleika og glæra. Er hún köflótt um miðju, hetta svört og hliðar bleik- ar með svörtum bryddingum. Samkvæmisklæðnaður hennar vakti einnig athygli, blágræn buxnadragt úr satíni með svörtum jakka og hatti, sem hún saumaði sjálf, og mætast litirnir þannig, að önnur öxlin verður blágræn en hin svört. Verður gaman að fylgjast með framförum þeirra stallsystra í skólanum næsta vetur. G.L.Ásg. Bsf. Skjól Erum að hefja byggingu á þessum raðhúsum við Hverafold 2 til 30. Ca. 178 fm á einni hæö meö innbyggöum bílskúr. Kostnaöarverö til félagsmanna. Afhendast fokheldar, tilbúnar undir tréverk eöa fullbúnar, eftir óskum kaupanda. Félagiö er opiö öllum 16 ára og eldri. Upplýsingar á venjulegum skrifstofutíma alla virka daga og nk. laugar- dag og sunnudag frá kl. 10.00 til 17.00. Sími 68-55-62. Skrifstofan er á vinnusvæöi félagsins aö Neöstaleiti 5—13. Bsf. Skjól Regnslá Þórdísar Kristleifsdóttur. Frakki Lnnar Kristjánsdóttur. Kvöldkjóll Ingibjargar Ólafsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.