Morgunblaðið - 07.07.1984, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLl 1984
13
Sextugur:
Benedikt Gröndal
sendiherra
Benedikt Gröndal er sextugur í
dag. Á þessum tímamótum
hvarflar hugurinn til hans, þar
sem hann dvelst á erlendri
grund, ásamt fjölskyldu sinni.
Margir minnast ágætra út-
varpsþátta, sem hann flutti hér á
árum áður, aðrir minnast rit-
stjórnar hans á Samvinnunni, en
flestir munu rifja upp stjórn-
málastörf hans fyrr og síðar, því
þar var aðalstarfssviðið árum
saman.
Benedikt hóf strax á ungum al-
dri að taka til hendinni í pólitík-
inni og var kominn í forustusveit
Alþýðuflokksins um þrítugt. Á
síðasta kjörtímabili átti hann sér
reyndar næstlengstan feril allra
alþingismanna.
Mér fer svo, að allt rifjast
þetta nú upp, hvernig ég á barns-
aldri drakk í mig Samvinnuna
hans, hvað ég beið spenntur eftir
hverjum nýjum útvarpsþætti og
hve hrífandi og snjallar mér
þóttu ræður hans og stjórnmála-
skoðanir.
Löngu síðar lágu leiðir okkar
saman í stjórnmálastarfi, við
áttum náið og ágætt samstarf
um árabil. Á því varð reyndar
hvellur fyrir fjórum árum og brá
mér þá víst ekkert síður en öðr-
um. En það leið hjá og síminn og
góðar samgöngur hafa gert kleift
að halda sambandinu, leita i
smiðju til Benedikts, þegar mér
hefur legið við eða eiga stöku
sinnum góða stund með þeim
hjónum, þótt höf og lönd skilji
dvalarstaði.
Allt rifjast þetta nú upp fyrir
hugskotssjónum mínum.
Benedikt ruddi nýja braut í út-
varpsmálum. Samvinnan varð
nýtt spennandi rit í höndum
hans og hann ritstýrði stjórn-
málaþætti Alþýðublaðsins á ein-
hverju mesta blómaskeiði þess.
Hann var þannig brauðryðjandi
nýrrar öldu í fjölmiðlum á sínum
tíma.
En þrátt fyrir þetta fellur það
í skuggan á stjórnmálastarfinu,
þar sem hann markaði mörg spor
og bar höfuð og herðar yfir
marga. Allt þetta er ærið, þó er
margt ótalið, svo sem bókarskrif,
löng formennska í útvarpsráði og
sendiherrastarf nú síðustu árin.
Benedikt getur nú litið yfir
mikinn og fjölbreyttan starfsfer-
il, þótt hann sé ekki nema sex-
tugur.
Eg held að Benedikt sé einhver
einlægasti jafnaðarmaður sem
ég hefi kynnst. Hugsjónin er skýr
og klár og hún mótar hann allan,
viðhorfin, málflutninginn og
framkomuna. Áratugum saman
lagði hann mikið að sér fyrir ís-
lenska alþýðu og Alþýðuflokkinn
til þess að þoka hugsjóninni í
framkvæmd. Þetta mikla starf
færir nú alþýðuflokksfólk Bene-
dikt einlægar þakkir fyrir á þess-
um tímamótum, um leið og við
óskum honum og fjölskyldu hans
heilla og farsældar í tilefni af
sextíu ára afmælinu.
Bestu hamingjuóskir, Bene-
dikt.
Kjartan Jóhannsson
Dregið í Happdrætti
Húnvetningafélagsins
DREGIÐ hefur verid í Happdrætti
Húnvetningafélagsins í Reykjavík
og komu vinningar upp á eftirtalin
Þriggja daga veiðiferð í Mið-
fjarðará kom upp á miða númer
6000, þriggja daga veiðiferð í
Vatnsdalsá kom upp á miða núm-
er 3231, tveggja daga veiðiferð í
Bladburóarfólk
óskast!
>1
I
Austurbær
Ingólfsstræti
Lindargata frá 1 —38
Skólavöröustígur
Bjarnarstígur
Laugavegur frá
101 — 171
Víðidalsá kom upp á miða númer
5252 og vöruúttektir, ýmist hjá
byggingavöruverzlun JL eða eftir
vali, komu upp á númer: 2218,
2217, 2825 og 760. Grafíkmyndir
eftir Lísu Guðjónsdóttur komu
upp á miða númer 350 og 499.
Vinninga skal vitjað hjá félag-
inu fyrir 1. ágúst. Ofangreind
númer eru birt án ábyrgðar.
Bústaðakirkja:
Gjafír og klukknaport
Bústaðakirkju hefur borist í
gluggasjóð vegna steindra
glugga í kirkjuna. Frú María
Arnadóttir færði kirkjunni gjöf
til minningar um mann sinn,
Gunnar Bjarnason frá Öndverð-
arnesi. Bústaðakirkja óskar eft-
ir að koma á framfæri þökkum
fyrir höfðingsskap og ræktar-
semi við kirkjuna.
Hafist hefur verið handa við
gerð klukknaports við kirkjuna
og er það teiknað af Helga
Hjálmarssyni, arkitekt, sem
teiknaði kirkjuna sjálfa.
Nokkrir einstaklingar hafa tek-
ið að sér að standa undir kostn-
aði af framkvæmdum og kaup-
um klukkna.
Úr rréiuiilk;nnin(u.
WYTT — WYTT — WYTT
Tabard
SKORDÝRAPENNI
Heldur skordýrum í burtu
Notast eins og filt penni. Boriö á rúöuna (opnanleg fög),
kringum brúnir á ruslafötum og á aöra staöi, sem
laöa aö sér flugur eða skordýr.
FÆST Á ÖLLUM HELSTU SHELL-STÖÐUM 0G
í FJÖLDA VERSLANA UM LAND ALLT.
SMÁVÖRUDEILD - S: 81722
Skeljungur h.f.
Laugardalsvöllur — 1. deild
KR
Heidursgestir okkar eru:
Phil Thompson, Liverpool
Brian Talbot, Arsenal
og allir þátttakendur í
PGL-knattspyrnuskálanum.
Víkingur
í dag kl. 2
KR
Lim og kitti fra
Tölvupappír
llll FORMPRENT
Hverfisgotu 78. stmar 25960 25566
^erO.isk ntvtoían
UTSYN
motel
þjönusta
SKULAGOTU 30
simar A 23 88 * 2 33 88
Þvottahusið
Auðbrakku 41. K6p
Simi 44799.
Sadolin
Pinotex
VERNDARVIÐINN
og góða skapið...