Morgunblaðið - 07.07.1984, Side 23
MÖRGVNSlXÐID, TCAÚG’ÁRDAGUR'7. JÚLÍ 1984
23
Samstaða eflist þrátt
fyrir kúgun lögreglu
Á mvndinni er Zbigniew Bujak ásamt Lech Walesa.
Hér sjást nokkrir þýskir málmiðnadarmenn greiða atkvæði um kjarasamn-
inga sína sl. mánudag. í gær gerðu þýskir prentarar svipaöan samning við
vinnuveitendur svo að verkfollum þessara stétta, sem staðið hafa yfir undan-
farnar vikur, er nú lokið.
Verkfalli þýskra
prentara aflétt
ZBIGNIEW Bujak, einn helzti leið-
togi Samstöðu, sem hefur verið í fel-
um frá því herlög voru sett í Pól-
landi í desember árið 1981, segir að
samtökin séu að eflast á ný þrátt
fyrir ofsóknir öryggislögreglunnar.
í viðtali við Bujak, sem smyglað
var til Vesturlanda, segir hann að
einungis 60% kjósenda hafi greitt
atkvæði í kosningunum 17. júní í
stað 75%, eins og stjórnin hélt
fram. Hann viðurkenndi þó að
kosningar sýndu að Samstaða
væri veik í smábæjum, en nú væri
verið að endurskipuleggja neðan-
jarðarhreyfinguna á þeim stöðum
þar sem lögreglan hefði sundrað
henni.
„Næsta skrefið er að vinna að
því að sem flestir kjósendur
hundsi þingkosningarnar í land-
inu, sem stjórnin hyggst halda í
fyrsta lagi í árslok 1984,“ sagði
Bujak. Hann spáði því að a.m.k.
50% kjósenda mundu sitja heima.
„Það táknar að um 10 milljónir
greiði ekki atkvæði í kosningun-
um, sem staðfestir hið mikilvæga
hlutverk er Samstaða hefur að
gegna í Póllandi, og sannar að
mikill vilji er fyrir að samtökin
haldi áfram starfsemi sinni sem
óháð verkalýðshreyfing", sagði
Bujak.
„Til marks um þann meðbyr,
sem Samstaða hefur nú, starfa um
100 þúsund félagsmenn fyrir sam-
tökin á laun og um 200 þúsund
styðja þau með einum eða öðrum
hætti,“ sagði Bujak. Hann sagði
ennfremur að um það bil 30 félag-
ar Samstöðu væru enn í felum.
„Við höfum náð lengst í útgáfu
neðanjarðarblaða, en við teljum
að um 500 slík blöð og tímarit séu
nú gefin út í Póllandi," sagði Buj-
ak.
Frá því var skýrt í Varsjá í dag
að eldri bróðir Bujaks, Bogdan
Bujak, hafi verið ákærður fyrir að
taka þátt í ólöglegum aðgerðum
Samstöðu, og hvetja til óeirða.
Hann var handtekinn í desem-
ber í fyrra eftir að hafa sótt fund
þar sem setningu herlaga var mót-
mælt. Bujak-fjölskyldan hefur
sakað pólsk yfirvöld um að hafa
handtekið Bogdan til að freista
þess að bróðir hans gæfi sig fram
við lögregluna.
Verði Bogdan sekur fundinn á
hann yfir höfði sér allt að þriggja
ára fangelsi.
Oíisseldorf, 6. júlí. AP.
Samkoraulag náðist í
kjaradeilu vestur-þýskra
prentara og vinnuveitenda í
dag.
Þar meö lauk rúmlega
þriggja og hálfs mánaða
verkfalli prentara, en sam-
kvæmt samningunum fá þeir
3,3% launahækkun og vinnu-
vikan verður stytt úr 40 tím-
um í 38 og hálfan.
Samninganefndir beggja deilu-
aðilja komust að samkomulaginu,
en félagar í verkalýðsfélagi prent-
ara, sem eru um 165 þúsund,
greiða atkvæði um það í næstu
viku.
Áður en samningar tókust voru
um 12 þúsund prentarar í verkfalli
hjá 165 aðiljum. Af þeim sökum
hættu m.a. nokkur stærri dagblöð
að koma út nokkrar vikur.
Þessu samkomulagi svipar mjög
til samninga málmiðnaðarmanna
fyrr í vikunni, sem með verkfalli
sinu lömuðu þýska bílaiðnaðinn
tæpa tvo mánuði.
Samningur prentara um 38 og
hálfrar stundar vinnuviku tekur
gildi 1. október nk. og rennur út í
apríl 1987, en samið var um 3,3%
launahækkun frá 1. júlí og aftur
um 2% árið 1985.
Olíuverkfall
bannað í Osló
Osló, 6. júlí. Frá Jan Erik Laure, frétUriUrm
DÓMSTÓLL í Osló hefur
bannað aðgerðir hagsmuna-
samtaka bifreiðaeigenda,
sem miðast við að knýja fram
verðlækkun á benzíni.
Hefur hagsmunasamtök-
unum verið gert að afturkalla
áskoranir til bflstjóra að
kaupa ekki benzín af útlend-
um benzínfyrirtækjum, held-
ur eingöngu hjá benzínaf-
greiðslum í eigu ríkisfyrir-
tækisins Norsk Olje a/s.
Mbl.
Stóru oliufyrirtækin, sem eru
sex að tðlu, hafa lengi haft með
sér samtök um samræmt olíu- og
benzínverð, þrátt fyrir kröfur
stjórnvalda á hendur þeim um
frjálsa verðmyndun.
En hagsmunasamtökin hyggj-
ast ekki beygja sig undir þennan
úrskurð og munu áfrýja honum
til æðra dómstigs. Norsku neyt-
endasamtökin hafa lýst furðu
sinni vegna úrskurðar Oslóar-
dómstólsins og óttast að með
ákvörðunum af þessu tagi sé ver-
ið að taka frá neytendum réttinn
til skipulegra aðgerða.
Peter Alexander Matus
Bankaræningi
handtekinn í
Kaupmannahöfn
Kaupmannahöfn. AP.
HANDTEKINN hefur verið í Kaup-
mannahöfn Peter Alexander Matus,
tékkneskur flóttamaður, sem eftir-
lýstur er um alla Skandinavíu fyrir
bankarán.
Tveir óeinkennisklæddir lög-
reglumenn tóku Matus fastan á
aðaljárnbrautarstöðinni.
Sagði lögreglan, að hann ætti
samtals 14 ára óafplánaða dóma í
Danmörku og Svíþjóð, m.a. fyrir
að brjótast út úr fangelsi.
Auk þess væri hann eftirlýstur
bæði í Noregi og Svíþjóð fyrir
bankarán. Næmi ránsféð eigi
minna en jafnvirði 150 þús. doll-
ara.
Matus er grunaður um að hafa
verið viðriðinn ránið í Bergen-
banka í Osló, sem tekið var upp á
myndband og sýnt í sjónvarpi um
öll Norðurlönd.
BÍLVANGUR st=
!.. I ! I I II .
HOFÐABAKKA 9 124 R6YKJAVIK • SIMI 687300
öryggi — sparneytni
framhjóladrif
stórt farangursrými
hátt endursöluverö
Verö frá 390.000.-
Hagstæðir greiösluskilmálar