Morgunblaðið - 07.07.1984, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLl 1984
26
Kópurinn — nýtt veit-
ingahús í Kópavogi
í síðustu viku var opnaö nýtt veit-
ingahús í Kópavogi að Auðbrekku
12, 3. hæð. Staðurinn sem hlotið hef-
ur nafnið Kópurinn mun bjóða upp á
margvíslega þjónustu og veitingar.
I aðalsal verða veitingar í há-
deginu og á kvöldin frá kl.
18.00—23.30. Sérréttir hússins
verða steikur hvers konar, en
þeirra geta gestir neytt í vistlegu
umhverfi og notið fagurs útsýnis
yfir Fossvogsdalinn, Skerjafjörð
og Öskjuhlíð.
Um helgar verður opið frá kl.
18.00—03.00 og geta gestir þá stig-
ið dans að loknum málsverði. í
hliðarsal sem verður opnaður inn-
an tíðar verður boðið upp á léttar
veitingar.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á húsnæði Kópsins frá því
að þar var starfræktur veitinga-
staðurinn Manhattan; m.a. hefur
gestum verið veittur aðgangur að
hinu góða útsýni sem þar er að
finna og grafíkmyndir eftir ís-
lenska listamenn prýða veggi
hússins.
Veitingamaður og rekstrarstjóri
hússins er Guðmundur Erlends-
son, en hann og starfslið hans
gera sér sérstakar vonir um að
Kópavogsbúar sjái sér hag í að
njóta þessarar nýju þjónustu í
bænum. (Frétutilkynning)
He.'ena Karusso
Kostas Paskalis
Kennsla í raddtækni
og sviðsframkomu
Söngnámskeið á vegum íslenzku
óperunnar hefst í óperunni miðviku-
daginn 11. júlí nk. þar sem kennd
verður raddtækni og sviðsfram-
koma, en kennarar verða prófessor
Helena Karusso frá Tónlistarháskól-
Skagaströnd:
Málverkasýning
og uppákomur
f Kántrýbæ
Skagaströnd, 7. júlí.
KLUKKAN 13 í dag, laugardag,
opnar Steingrímur Sigurðsson list-
málari, málverkasýningu í Kántrý-
bæ. Á sýningunni sem stendur að-
eins í tvo daga, eru 20 myndir.
Ýmsar uppákomur verða á með-
an á sýningunni stendur, Baldur
og Konni verða með dagskrá sem
þeir félagar kalla „Tal og töfrar",
Steingrímur Sigurðsson les úr
bókinni Ellefu líf og Hallbjörn
„kóngur" Hjartarson syngur lög af
nýjustu plötu sinni.
Að sjálfsögðu verða veitingar á
boðstólum í Kántrýbæ á meðan á
sýningunni stendur, sem endra-
nær.
Steingrímur bjó hér í Jórvík á
Skagaströnd fyrir fjórum árum og
hélt þá vel heppnaða sýningu á
Húnavöku, en nú sýnir hann og
selur nýjustu myndir sínar í
Kántrýbæ. ÓB
anum í Vín og Kostas Paskalis
óperusöngvari sem hefur verið
stjórnandi óperunnar í Aþenu síðan
1980. Helena og Kostas eru bæði
grísk. Þetta er fyrsta námskeið sinn-
ar tegundar á vegum íslenzku óper-
unnar, skipulagt af Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur og Má Magnússyni.
Námskeiðið stendur til júlfloka.
Meðal íslenskra söngvara sem
hafa notið leiðsagnar prófessors
Karusso eru Ólöf Kolbrún, Krist-
inn Sigmundsson og Már Magn-
ússon.
Kostas Paskalis fæddist i
Aþenu og stundaði þar söngnám.
Aðeins 22 ára gamall söng hann
Rigoletto í samnefndri óperu
Verdis, þegar söngvararnir við
óperuna í Aþenu gerðu verkfall.
Honum var upp úr því boðin staða
og hefur hann síðan sungið öll
helztu barintonhluverk í ítölskum
óperum.
1958 var hann ráðinn við Ríkis-
óperuna í Vín og var þar næstu tíu
árin. Eftir það söng hann á öllum
stærstu óperusviðum heims unz
hann ákvað að ljúka söngferli sín-
um og tók við stjórn Óperunnar í
Aþenu árið 1980.
Helena Karusso kom til Vínar
um tvítugt sem píanóleikari, en
gerðist óperusöngkona og söng að-
allega víða í Mið-Evrópu, sérstak-
lega Þýskalandi og Austurríki.
Hún hefur verið söngkennari sl. 12
ár. Hún hefur áður verið hér á
landi og kennt íslenzkum söngvur-
um.
Uppsögn vagnstjóra:
„Málflutningur um
málið með ólíkindumu
sagði Davíð Oddsson m.a. á fundi borgarstjórnar
„Vagnstjóranum var sagt upp með
lögboðnum og réttum hætti og ástæð-
ur uppsagnarinnar skýrðar fyrir hon-
um í uppsagnarbréfinu. Ástæður upp-
sagnarinnar eru, eins og fram hefur
komið, samstarfsörðugleikar og brot á
starfsreglum vagnstjóra. Óskað var
eftir því á síðasta borgarstjórnarfundi
að málið yrði kynnt í borgarráði. Það
hefur verið gert og lít ég á þá skýrslu,
sem þar var kynnt, sem innanhúss-
plagg í umfjöllun stjórnenda borgar-
innar um málið,“ sagði Davíð
Oddsson borgarstjóri m.a. á fundi
borgarstjórnar á fimmtudag um þetta
mál.
Á fundi borgarráðs á þriðjudag
viku Sigurjón Pétursson (G) og
Guðrún Jónsdóttir (Kvf.) borgar-
ráösmenn af fundi þar sem þau
vildu ekki taka við skýrslu um
ástæður uppsagnar Magnúsar
Skarphéðinssonar úr starfi vagn-
stjóra hjá SVR sem trúnaðarmáli
og þar sem yfirlýst var af hálfu
borgarstjóra að Magnús fengi ekki
að sjá umrædda skýrslu sjálfur.
Gerði Sigurjón Pétursson tillögu
um það í borgarstjórn á fimmtudag
að Magnús Skarphéðinsson fengi
afhent afrit af skýrslu borgarstjóra
í borgarráði.
Uppsögn vagnstjórans hefur
tvisvar áður verið rædd á fundum
borgarstjórnar síðasta mánuðinn
og hefur fundi jafnoft verið lokað
þar sem um persónulegt mál var að
ræða. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Lokastígur:
Umferðartak-
markanir
ekki sam-
þykktar
Tillaga borgarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins um að komið
yrði upp umferðartakmörkunum
á Lokastíg til að koma í veg fyrir
óþarfa umferð um götuna fékk
atkvæði 8 borgarfulltrúa í borg-
arstjórn á fimmtudag og því
ekki stuðning. Tillagan fékk tvö
atkvæði í borgarráði á þriðjudag
og ekki stuðning.
(Kvf.) kvað það forkastanlegt að
Reykjavíkurborg skyldi með þess-
um hætti, að maðurinn fengi ekki
að sjá skýrslu borgarstjóra, svipta
hann þeim sjálfsagða rétti til að
bera hönd fyrir höfuð sér og sækja
rétt sinn ef honum sýndist svo.
Kristján Benediktsson (F) lagði
áherzlu á að Magnús fengi afrit af
skýrslu borgarstjóra en hann og
Sigurður E. Guðmundsson (A)
hlýddu á efni hennar á fundi
borgarráðs á þriðjudag. Sigurður
kvaðst telja það eðlilegt að hús-
bændur borgarinnar fengju trúnað-
arskýrslu um málið svo sem gert
hefði verið. En hann gerði tillögu
um að forstjóra SVR yrði falið að
vinna skriflega skýrslu til vagn-
stjórans um uppsögnina m.a. með
hliðsjón af skýrslu borgarstjóra.
Davíð Oddsson sagði alla umræð-
una um þetta mál hafa verið með
ólíkindum, manninum hefði verið
gerð grein fyrir ástæðum uppsagn-
arinnar í uppsagnarbréfi. Þetta mál
væri hins vegar mikið innanhúss-
mein hjá Alþýðubandalaginu en
málflutningur borgarfulltrúanna
þjónaöi í engu hagsmunum vagn-
stjórans.
Tillaga Sigurjóns fékk 7 atkvæði
og ekki stuðning og tillaga Sigurðar
7 atkvæði og ekki stuðning.
„Allgott samkomu-
lag um málið nú“
— sagði Davíð Oddsson borgarstjóri um
kerfisbreytingar á Borgarspítalanum
Á FUNDI borgarstjórnar á
fímmtudag var rætt um kerfis-
breytingar á ræstingum á Borg-
arspítalanum.
Borgarfulltrúar Kvennafram-
boðsins gerðu tillögu um að
nefnd yrði skipuð m.a. með full-
trúum starfsmanna, sem málið
snerti, til að endurskoða nýja
ræstingafyrirkomulagið, sem
tekið hefur verið í notkun á spít-
alanum. Guðrún Jónsdóttir,
borgarfulltrúi Kvennaframboðs-
ins sagði m.a. að kerfisbreyting-
in hefði leitt til fækkunar á 17
stöðugildum meðal Sóknar-
kvenna, aukins vinnuálags og
tekjurýrnunar vegna fækkunar
álagsvinnutíma. Sparnaður af
þessari breytingu á spítalanum
næmi um 283 þúsundum króna á
mánuði eða ‘á prósenti af mán-
aðarrekstrargjöldum spítalans,
sem eru rúmlega 57 milljónir
króna. Hún kvað lítil samráð
hafa verið höfð við starfsfólkið
um þessa breytingu þrátt fyrir
fullyrðingar yfirmanna í þá
veru. Sagði hún nokkra bragar-
bót hafa verið gerða í því efni frá
síðasta borgarstjórnarfundi þeg-
ar þetta mál kom á dagskrá.
Rætt hefði verið við starfsfólkið
síðan og kjörin bætt að nokkru.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði að nú væri allgott sam-
komulag um þetta mál eftir við-
ræður m.a. við formann Sóknar,
sem forráðamenn spítalans
hefðu tekið upp. Kerfisbreyting-
in leiddi til um 3 milljóna króna
sparnaðar í ár, eftirlit hefði ver-
ið aukið með yfirvinnu allra
starfsmanna spítalans og aukin
hagræðing mundi fylgja í kjölfar
þessara breytinga. Var tillaga
borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins um að borgarstjórn
samþykkti þessar breytingar
sem stjórn spitalans hefur unnið
að, en að lögð yrði áherzla á að
við framkvæmd þeirra verði haft
náið samstarf við starfsfólk,
trúnaðarmenn þess og stéttarfé-
lag samþykkt með 11 atkvæðum
gegn 9 atkvæðum borgarfulltrúa
minnihlutans. Margrét S. Ein-
arsdóttir (S) sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna. Tillaga
Kvennaframboðsins fékk 9 at-
kvæði og ekki stuðning.
Heimilisstörf met-
in til starfsreynslu
— eðlilegt þegar um sambærileg störf á vinnu-
markaðnum er að ræða, sagði Ingibjörg Rafnar
Á fundi borgarstjórnar á
fimmtudag var tillögu borgar-
fulltrúa Kvennaframboðsins um
að frá og með fyrsta þessa mánað-
ar verði starf kvenna við ólaunuð
heimilisstörf eingöngu, metin til
launa sem starfsreynsla á sama
hátt og gerist um önnur störf á
vinnumarkaðnum vísað til launa-
málanefndar borgarinnar til athug-
unar við gerð næstu kjarasamn-
inga.
Guðrún Jónsdóttir (Kv.fr.)
sagði m.a. að tvö sveitarfélög
hefðu samþykkt efnislega sam-
hljóða tillögu þessa. Hún væri
skref i átt að því að draga úr því
launamisrétti sem ríkti meðal
kynjanna. Hún væri bundin við
konur þar sem karlmenn hefðu
notið 1100 ára forskots fram yfir
konur á vinnumarkaðnum hér á
landi.
Guðrún Ágústsdóttir (G) lýsti
stuðningi við tillögu Kvenna-
framboðsins en bætti við að
karlar ættu að njóta sama réttar
ef þeir hefðu stundað vinnu á
heimili.
Ingibjörg Rafnar (S) sagði að
eðlilegt væri að meta heimilis-
störf til starfsreynslu þegar um
sambærileg eða hliðstæð störf á
vinnumarkaðnum væri að ræða.
Um þetta atriði bæri að semja í
kjarasamningum og skilgreina
þyrfti hver þau störf væru sem
væru hliðstæð eða sambærileg
við heimilisstörf á sama hátt og
gert væri í kjarasamningi
starfsmannafélagsins Sóknar.
Hins vegar væri það óréttlátt að
sínu mati að meta störf á heimili
til starfsreynslu við hvers konar
störf enda gæti það leitt til þess
að konum yrði innbyrðis mis-
munað á vinnustað að þessu
leyti. Karlar sem ynnu heimil-
isstörf ættu að njóta sama réttar
og konur í þessu efni.
„Ágætt fordæmi er að finna
um þetta mál í aðalkjarasamn-
ingi bæjarstarfsmanna á Sel-
fossi þar sem heimilisstörf skulu
metin í sambærilegum störfum
til allt að fjögurra ára starfs-
reynslu," sagði Ingibjörg m.a. og
gerði tillögu um að tillagan færi
til launamálanefndar borgarinn-
ar. Fékk það stuðning borgar-
fulltrúa sjálfstæðismanna gegn
atkvæðum 7 borgarfulltrúa í
minnihlutanum. Kvaðst Guðrún
Jónsdóttir greiða atkvæði gegn
þeirri tillögu þar sem tillaga
Kvennaframboðsins hefði ekki
áður verið samþykkt á fundin-
um.