Morgunblaðið - 07.07.1984, Qupperneq 39
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984
39
Victoria
óttast
gigtina
+ Victoria Principal og Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseti,
eiga að minnsta kosti eitt
áhugamál sameiginlegt en það
er að styrkja samtök banda-
rískra gigtarsjúklinga og bar-
áttuna gegn gigtarsjúkdómum.
Þessi mynd var tekin af þeim í
Hvíta húsinu nýlega ásamt lít-
illi stúlku, Amy Smith að
nafni, og er Reagan hér að láta
eitthvað af hendi rakna fyrir
málefnið.
Algengt er, að frægt fólk ljái
einhverju góðu málefni lið og
stundum aðallega í auglýs-
ingaskyni en hjá Victoriu er
þar ekki bara um að ræða tóm-
an leikaraskap. Poreldrar
hennar báðir eru illa haldnir
af gigt og Victoria óttast, að
eins kunni að fara fyrir henni.
Hefner Playboy-kóngur
plataður upp úr skónum
+ í nóvember sl. var drepið á dyr
á glæsilegu húsi í Los Angeles.
Úti fyrir stóð ungur maður,
Mark Wilson að nafni, 26 ára
gamall, og kvaðst vera sonur
húsráðanda, Playboy-kóngsins
Hugh Hefners. Sagði hann móð-
ur sína vera fyrrum fyrirsætu,
sem Hefner hafði náin kynni af
skömmu fyrir 1960.
„Hefner mundi eftir móður-
inni. Hún var algjört æði, eins
konar tvífari Marilyn Monroe.
Hann hafði strax samband við
hana og hún staðfesti sögu
Marks," segir náinn kunningi
Hefners, sem ekki vill láta nafns
síns getið. „Aður en klukkutími
var liðinn frá komu Marks féll-
ust þeir í faðma hlæjandi og
grátandi á víxl yfir þessu krafta-
verki og ekki leið á löngu þar til
Hefner kynnti Mark alls staðar
sem „son minn".
Dóttir Hefners, Christie, sem
heita má að stjórni nú Playboy-
ríkinu, og móðir hans lék grunur
á að ekki væri allt með felldu og
stungu upp á því, að blóðrann-
sókn yrði látin fara fram. Hefn-
er tók því heldur treglega í
fyrstu en þegar það var loksins
gert kom í ljós, að þeir Mark
voru ekkert skyldir, hvað þá
Hugh Hefner.
feðgar. Hefner vildi ekki trúa því
og lét endurtaka blóðrannsókn-
ina í annað, þriðja og fjórða
sinn. Allt bar að sama brunni
með niðurstöðuna og þá varð
Hefner að viðurkenna, að hann
hafði verið hafður að ginn-
ingarfífli. Hann beið að vísu í
mánuð en sagði þá Mark, að
hann væri ekki lengur velkom-
inn.
Mark, sem e.t.v. hefur sjálfur
trúað því, að hann væri sonur
Hefners, hvarf á braut og hefur
ekki sést síðan þrátt fyrir mikla
eftirgrennslan blaðamanna.
„Hefner er hálfniðurbrotinn
eftir þetta. Honum var farið að
þykja vænt um Mark, en nú
skammast hann sín, finnst sem
hann hafi verið gerður hlægi-
legur og vill helst ekki láta sjá
sig á almannafæri," sagði kunn-
inginn áðurnefndi.
COSPER
COSPER
iC PIB
(MMMil
— Pabba hefur lengi langað til þess að
hitta þig.
V ...
POK
WKINN
HJÁ ESSO I
Þrír bráðskemmtilegir
útileikir fyrir fjörmiklar fjölskyldur.
Anægjuleg og góð hreyfing
hvar og hvenær sem er:
• í ferðalaginu
• í garðinum heima
• i sumarbústaðnum
Allt i einum, ótrúlega
ódýrum poka. Aðeins 298 kr.
Fjörpokinn fæst á bensínstöðvum
OLÍUFÉLAGIÐ HF
AUK hf Auglys ngastofa Knstmar ’5 112