Morgunblaðið - 07.07.1984, Side 48

Morgunblaðið - 07.07.1984, Side 48
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Norðmenn semja við Dani án samráðs við íslendinga „í GÆR flutti sendiherra íslendinga í Noregi, Páll Ásgeir Tryggvason, norska utanríkisráðuneytinu mótmæli íslenskra stjórnvalda vegna samkomulags Norð- manna og Dana þar sem þeim síðarnefndu er leyft að veiða allt að tuttugu þúsund tonn af loðnu á Jan Mayen-svæðinu og mega Norðmenn veiða sama magn innan lögsögu Grænlands. Að sögn Ólafs Egilssonar, skrifstofustjóra í utanríkisráðu- neytinu, lýstu islensk stjórnvöld yf- ir óánægju sinni með umrætt samkomulag og vísuðu til réttinda íslands á svæðinu sem væru viður- kennd í Jan Mayen-samkomulaginu milli íslendinga og Norðmanna frá 1980. Þykir algjörlega óeðlilegt að Norðmenn skyldu ræða tvíhliða við Dani um loðnuveiðar á svæðinu án samráðs við íslendinga. í mdtmæl- unum var því lýst yfir að veiðimagn þriðja aðila, Dana í þessu tilfelli, hlyti að dragast frá veiðikvóta Norðmanna sjálfra. Þá komu einnig Benzíngjald: 20 aura hækkun RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær 20 aura hækkun á benzíngjaldi samkvæmt forsendum fjárlaga. Tekur hækkunin gildi síðar f þessum mánuði að sögn fjármála- ráðherra Alberts Guðmundssonar. Albert Guðmundsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að fé vegna þessarar hækkunar rynni í ákveðnum hlutföllum til Vega- sjóðs og ríkissjóðs. Hækkunin tæki lfklega gildi fyrir miðjan þennan mánuð og hefði hún í för með sér 20 aura hækkun á útsölu- verði hvers benzinlitra. Ríkið selur hlutabréf sín í Rafha RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi sínum í gær að bjóða stjórn og hlut- böfum Rafha að nýta sér forkaups- rétt á hlutabréfum ríkisins f því fyrirtæki. Fjármálaráðherra, Albert Guð- mundsson, sagði í samtali við Morgunblaðið, að hlutabréf Rafha hefðu verið endurmetin af Fjár- festingafélaginu og í kjölfar þess hefði ríkisstjórnin samþykkt að bjóða stjórn og hluthöfum, eins og lög gera ráð fyrir, forkaupsrétt að eignarhluta ríkisins. Hlutur ríkis- ins væri að nafnvirði 900.000 krón- ur, en honum væri ekki kunnugt hvert væri heildarhlutafé Rafha. Hins vegar væri hlutur ríkisins 11.250.000 krónur samkvæmt end- urmati hlutabréfanna. Albert sagði ennfremur, að þetta væri þáttur í sölu hlutabréfa ríkisins í hinum ýmsu fyrirtækj- um. Það hefði verið deilt á sig fyrir að selja ekki hlutabréfin á nafnvirði, þegar auglýst hefði ver- ið eftir tilboðum i þau. Hann teldi, að betra væri að láta fagmenn taka út eignir og verðmæti hiuta- bréfanna áður en þau væru boðin til sölu eins og nú hefði verið gert. fram áhyggjur fslendinga vegna þeirra ráðagerða norskra stjórn- valda að halda ekki uppi löggæslu með varðskipum á svæðinu og þar með ekki raunhæfu eftirliti með veiðunum. Samkvæmt upplýsingum Ólafs Egilssonar er loðnuveiðikvóti ís- lendinga á næsta veiðitímabili, sem hefst með sumarveiðum, á Jan Mayen-svæðinu 195 þúsund lestir og Norðmenn eiga rétt á 105 þúsund lestum, þar með taldar uppbætur vegna mikilla veiða íslendinga í lok síðustu vertíðar. í samtali við Morgunblaðið lýsti Tungulax hf. og norska fyrir- tækið A/s MOWI eiga ÍSNO hf. Eyjólfur Konráð Jónsson alþingis- maður, sem er stjórnarformaður Tungulax hf. og ÍSNO hf., sagði í samtali við blaðamann Mbl. í gær að þessir aðilar hefðu verið valdir til samstarfs í ÍSNO vegna reynslu þeirra og eins þætti eðli- legt að gefa þessum harðduglegu athafnamönnum kost á að fara út í fiskeldi vegna þeirra miklu erfið- leika sem væru nú í sjávarútveg- Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingis- maður og formaður utanríkisnefnd- ar Alþingis, yfir þungum áhyggjum vegna þessa máls: „Eg fagna því að utanríkisráðuneytið skyldi strax mótmæla þessum svokölluðum samningaviðræðum því það er alveg ljóst að Norðmenn hafa enga heim- ild til að semja við einn eða neinn fram hjá okkur fslendingum um nein fískveiðiréttindi á Jan Mayen- svæðinu því að eftir Jan Mayen- samkomulaginu hafa íslendingar nákvæmlega jafnmikinn rétt til hagnýtingar þessara auðlinda og Norðmenn. Þessum réttindum eig- um við að halda fram þannig að það geti engum dulist að þetta svæði sé sameign fslendinga og Norðmanna, en ekki þeirra eign. Þar að auki hef- ur verið samið um það að íslend- ingar eigi meiri réttindi en Norð- inum með þeirri von að fleiri at- hafnamenn í sjávarútvegi færu að þeirra dæmi. Aðspurður um framtíðaráform ÍSNO sagði Eyjólfur Konráð að í lok ágústmánaðar yrðu teknar ákvarðanir um hversu hratt kvia- eldi og hafbeit yrði byggt upp í Lónum og fyrri áætlanir um stóra sjóeldisstöð að Kistu á Reykjanesi yrðu teknar til athugunar að nýju. Þá kæmu háhitasvæðin í nágrenni Jóna ekki síður til greina. Sagði menn hvað varðar loðnuna, þar sem við getum einir ákveðið heildar aflamagn á loðnu. Við megum ekki glutra niður þessum rétti okkar með afskiptaleysi og við ættum bæði að senda fiskiskip og varðskip inná þetta svæði. Það er jafnósæmi- legt af Dönum og Norðmönnum að semja framhjá fslendingum í þessu efni. Dönum hlýtur að vera það ljóst að fslendingar eiga jafnmik- inn rétt og Norðmenn á þessu svæði hvað varðar fiskveiðar. Það er frá- leitt að Danir og Norðmenn tali ein- ir saman um breytingar á landhelg- islögsögu milli Grænlands annars vegar og Jan Mayen-svæðisins hins vegar, sem er í sameign Noðrmanna og fslendinga. En ég endurtek að ég fagna mótmælum utanríkisráðu- neytisins, en hefði kosið að hafa þau mun harðari. Eyjólfur að nú hefðu rúmlega 100 hafbeitarlaxar skilað sér í stöðina og gerðu þeir sér vonir um að heimtur f ár yrðu 5%. Ef þær von- ir yrðu að veruleika væri líklegt að farið yrði út í sleppingar á seiðum sem miðað við eðlilegar heimtur skiluðu eitt til tvö þúsund tonnum af laxi á ári. Einnig yrði kvíaeldið aukið fljótlega þannig að það skil- aði 540 tonnum af laxi til slátrun- ar á ári. Eyjólfur Konráð sagði að allt of hægt miðaði í uppbyggingu fisk- eldis hér á landi. Sagði hann að á næstu 5—10 árum mætti mjög auðveldlega tvöfalda þjóðartekjur með aukningu í fiskeldi einu sam- an. Með fimm af átta í úrslitum Reynir Aðalsteinsson er með fimm af átta gæðingum í úrslit- um í A-flokki á Fjórðungsmótinu á Kaldármelum. Á þessari mynd situr hann einn þeirra, Randver. Sjá frásögn á bls. 3. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Forsætisráð- herra skipar trjáræktarnefnd Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa framkvæmdanefnd til að stuðla að þjóðarátaki í trjárækt, bæði í þétt- býli og strjálbýli, í tilefni fjörutíu ára afmælis stofnunar lýðveldis. Nefndin verður skipuð eftir til- nefningu þingflokkanna, Skógrækt- ar ríkisins, Skógræktarfélags Is- lands og Sambands íslenskra sveit- arfélaga. Nefndarmenn verða tíu og forsætisráðherra tilnefnir for- mann. Útflutningur á íslenskri þekkingu Undirbúningsfélag að stofnun ráðgjafafyrirtækis um útflutning á ís- lenskri þekkingu hóf nýlega starfsemi sína hér á landi og eru félagsmenn um fimmtíu talsins. Hér er um að ræða ráðgjöf er lýtur að sjávarútvegi og fiskveiðum og hefur félagið innan sinna vébanda fræðimenn, skipstjórn- armenn og fagmenn á sviði fisk vinnslu, auk rekstrarsérfræðinga, en formaður félagsins er Ingimar Hans- son, framkvæmdastjóri Rekstrarstof- unnar. í samtali við Morgunblaðið sagði Ingimar að félagið myndi bjóða upp á hvers konar ráðgjöf á sviði fisk- vinnslu og fiskveiða og einungis á því sviði. Hugmyndin að stofnun þessa fyrirtækis byrjaði að þróast síðastliðið haust og hefur verið unnið að fullu við undirbúning nú síðustu mánuði. Að sögn Ingimars eru tvö mál einkum í athugun hjá félaginu nú til að byrja með, en þau eru varðandi útgerð 1 Costa Rica og útgerð á Viktoríuvatni í Uganda. Mál þessi væru þó enn á byrjun- arstigi, en auk þeirra hefði verið leitað eftir verkefnum hjá Alþjóða- bankanum. Ingimar sagði að fá ráðgjafafyrirtæki í heiminum væru eingöngu á þessu sviði þótt mörg fyrirtæki væru að vísu með þetta svið ásamt öðrum, en vitað væri, að mikið og vaxandi starf væri á þessu sviði, einkum í þriðja heiminum og væri fyrirhuguð starfsemi hins ís- lenska ráðgjafarfyrirtækis miðuð við þörfina í þeim heimshluta. Auk Ingimars Hanssonar skipa stjórn hins nýja félags þeir Björn Dagbjartsson, Guðmundur G. Þór- arinsson, Árni Bendiktsson og Gunnar Ragnars. MorgunblaÖið/Friðþjófur John Turner gengur ásamt Steingrími Hermannssyni áleiðis að flugstöðvarbyggingunni í Keflavík. í bakgrunn má greina eiginkonu Turners, Geills (3. frá vinstri) og Geir Hallgrímsson. John Turner, hinn nýi forsætis- ráðherra Kanada, átti skamma viðdvöl á íslandi á leið sinni til Bretlands, þar sem hann verður f opinberri heimsókn hjá Elísabetu drottningu. Geir Hallgrímsson utanrikis- ráðherra og Steingrfmur Her- mannsson forsætisráðherra tóku á móti Turner, eiginkonu hans, Geiils, og fylgdarliði þeirra og áttu ráðherrarnir stuttar viðræð- ur um sameiginlega hagsmuni ís- lands og Kanada. í örstuttu spjalli við blm. sagði Turner að enn væri ekki búið að ákveða hvenær kosningar færu fram f Kanada, en þær verða að fara fram fyrir mars 1985. Hefur 27. ágúst verið nefndur sem hent- ugur kosningadagur. Turner kvað atvinnuleysið, sem er um 11,2%, vera helsta viðfangsefni nýju stjórnarinnar. Helst yrði að ráða bót á atvinnuleysi yngri kynslóð- arinnar, sem nú slagar hátt í 30% á sumum stöðum í Kanada. Nefndi hann iðnþjálfun á vegum hins opinbera sem eina lausn, en sagði að finna þyrfti nýjar leiðir til að mæta atvinnuleysinu. Þetta er ekki fyrsta heimsókn Turners til íslands, heldur sú fimmta eða sjötta. Hann hefur ferðast um landið og m.a. rennt fyrir laxi. Kvaðst hann hafa sér- stakt dálæti á íslandi. Tvö sjávarútvegsfyrirtæki gerast aðilar að ÍSNO hf. TVÖ STÓR sjávarútvegsfyrirtæki á ísafirði og í Vestmannaeyjum, Hrað- frystihúsið Norðurtangi hf. og ísfélag Vestmannaeyja hf., hafa gerst aðilar að laxeldisfyrirtækinu ÍSNO hf., sem rekur fiskeldisstöð í Lónum í Kelduhverfi. í sumar verða teknar ákvarðanir um áframhaldandi uppbyggingu ÍSNO, bæði í Lónum og á Reykjanesi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.