Morgunblaðið - 31.08.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984
Ekkert innlegg í
þessa kjaradeilu
Fri opnun tilboðanna ( gerð vélabúnaðar fyrir Blönduvirkjun í gær. Á myndinni má sji, að háir staflar bárust af
tilboðum og tók langan tíma að fara yfir þau. Síðar munu tilboðin könnuð nánar. LjAsm. Mbl./Árni Sæberg.
99 tilboð í sex verk-
þætti Blönduvirkjunar
„Þátttaka var mjög góð sem kemur Landsvirkjun að sjálf-
sögðu til góða,“ sagði Jóhann Már Maríusson, aðstoðarfor-
stjóri Landsvirkjunar, eftir að tilboð höfðu verið opnuð í sex
verkþætti við Blönduvirkjun í gærkvöldi, en 99 tilboð bárust.
— segir formaður
BSRB um tilboð fjár-
málaráðherra
„l>otta er langt frá því að vera
tilboð enda hefur það ekki verið
nefnt því nafni og ég fæ ekki séð
að þetta sé nokkurt innlegg í þessa
kjaradeilu," sagði Kristján Thor-
lacius, formaður BSRB, er hann
var spurður um viðbrögð þeirra
BSRB-manna við tilboði fjármála-
ráðherra um samkomulagsumleit-
anir er greint var frá í frétt Morg-
unblaðsins í gær. Kristján sagði að
boðað hefði verið til sameiginlegs
fundar stjórnar og samninga-
nefndar BSRB á mánudaginn
kemur þar sem staðan verður
rædd og ákvörðun tekin um hvort
boðað verður til verkfalU.
í tilboði fjármálaráðherra var
m.a. gert ráð fyrir grundvelli í
þremur liðum og um það hafði
Kristján Thorlacius m.a. þetta
að segja: „Það er talað um að
samningsaðilar kanni sameigin-
lega þróun verðlags og kaup-
máttar á þessu ári. Ef komi í ljós
umtalsverð frávik, eins og þar
stendur, frá forsendum þess
samnings, sem aðilar gerðu á
síðastliðnum vetri þá er fjár-
málaráðherra reiðubúinn að
ræða hvort þær kauphækkanir,
sem gert var ráð fyrir geti komið
til framkvæmda með öðrum
hætti. Þetta er auðvitað ekkert
nýtt tilboð. “
Varðandi þriðja liðinn í tilboði
fjármálaráðherra þess efnis, að
aðilar geri fyrir 1. apríl nk. sam-
eiginlegar tillögur um leiðir til
að auka hagkvæmni í opinberum
rekstri til hagsbóta fyrir báða
aðila og hugsanlega endurskoð-
un launakerfis ríkisstarfs-
manna, sagði Kristján Thorlaci-
us m.a.: „Eg vil taka það skýrt
fram, að við höfum margsinnis
rætt um og farið fram á það
meira að segja fyrir nokkrum
árum, að launakerfið verði
endurskoðað. Og við óskuðum
eftir því, að vísu fyrir nokkuð
mörgum árum síðan, að haldið
yrði áfram starfsmati sem við
sömdum um 1970. Þá var því
hafnað og við ítrekum það auð-
vitað nú, óháð þessu, að við erum
að sjálfsögðu reiðubúnir að
endurskoða launakerfið, það er á
margan hátt úrelt. Og við höfum
ekkert á móti hagkvæmni í
opinberum rekstri. En eins og ég
sagði er ekkert nýtt í þessu og
þetta er langt frá því að vera
nokkurt tilboð og því er í raun-
inni ekkert um þetta að segja,"
sagði Kristján Thorlacius.
Jóhann Már sagði, að fjár-
mála- og verkfræðilegir ráð-
gjafar Landsvirkjunar myndu
nú gefa sér góðan tíma til að
fara yfir alla þætti þessa máls
áður en ákvörðun yrði tekin. í
fyrsta útboð, sem voru vatns-
hverflar, vélalokar, rafalar,
fylgibúnaður véla og stjórnbún-
aður, bárust 25 tilboð. Lægsta
tilboðið var frá júgóslavnesku
fyrirtæki, Ingra Group. Það
hljóðaði upp á tæplega 329
milljónir króna og var 66,8% af
áætluðum kostnaði. Næstlægsta
tilboð var frá japanska fyrir-
tækinu Sumitomo upp á 393
milljónir króna. Hæsta tilboðið
var frá AEG Telefunken í
V-Þýskalandi og var það tæpar
676 milljónir, eða 37,1% hærra
en áætlaður kostnaður, sem var
um 493 milljónir króna.
Annað útboð var á aflspenn-
um og bárust í það 25 tilboð.
Lægsta tilboðið var frá júgó-
slavnesku fyrirtæki, Minel Ex-
port-Import, og var það tæpar
20 milljónir króna, sem er
62,6% áætlaðs kostnaðar. Næst
lægsta tilboð var frá Kymmene
Strömberg frá Finnlandi upp á
rúmlega 20 milljónir króna.
Hæsta tilboðið barst frá Sumit-
omo Corporation í Japan.
Hljóðaði það upp á rúmar 43
milljónir króna, eða 38,5% yfir
áætluðum kostnaði.
Þriðja útboð, útboð á há-
spennubúnaði, var boðið í af 13
fyrirtækjum. Þar átti lægst til-
boð franska fyrirtækið Merlin
Gerin, eða tæpar 28 milljónir
króna, sem er 76,7% áætlaðs
kostnaðar. Siemens AG frá
V-Þýskalandi var með næst
lægsta tilboð 34,4 milljónir
króna. Hæsta tilboðið átti ann-
að franskt fyrirtæki, Copelex,
sem bauð tæpar 69 milljónir,
eða 83,3% yfir kostnaðaráætl-
un.
Tíu fyrirtæki buðu í gerð og
uppsetningu lyftikrana. Þar var
það franskt fyrirtæki, Verlinde,
sem bauð lægst, rúmar 10 millj-
ónir króna, sem er 61,4% áætl-
aðs kostnaðar. Næstir komu
Kone Corporation frá Finnlandi
með 10,8 milljónir króna. Hæsta
tilboðið var tæpar 23 milljónir,
eða 35,4% meira en áætlaður
kostnaður. Það var portúgalskt
fyrirtæki, Mague SARL, sem
svo bauð.
Fjórtán fyrirtæki gerðu til-
boð í 5. útboðsþátt um lokubún-
að. Lægsta tilboðið var frá júgó-
Vogum 29. ájfúst.
í NJARÐVÍKUM eru hafnar
framkvæmdir við að færa Flug-
vallargirðinguna frá íbúðabyggð-
inni í Ytri-Njarðvík. Það eru
starfsmenn Njarðvíkurbæjar
sem annast verkið.
Flugvallargirðingin hefur
þrengt mjög að byggðinni í
Ytri-Njarðvík, enda hefur verið
byggt fast upp að henni. Lóða-
skortur hefur verið í hverfinu,
og lóðaumsóknir á biðlista.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Albert K. Sanders bæjar-
stjóri að það væri gífurlega mik-
ið atriði fyrir Njarðvíkinga að
girðingin yrði færð. „í raun er
langþráður draumur að rætast,"
sagði Albert. Á svæðinu sköpuð-
ust möguleikar á íbúðabyggð,
þar sem kæmu til tugir lóða.
Landsvæðið er hentugt bygg-
slavneska fyrirtækinu Ingra
Group sem var 36,9 milljónir
króna. Næstir komu Stahl &
Apperatebau frá Þýskalandi
með rúmlega 41 milljónir.
Hæsta tilboðið var frá Drag-
ados á Spáni sem var 102,6
milljónir króna, en kostnaðar-
áætlun var 44,5 milljónir króna.
Tólf fyrirtæki gerðu tilboð í 6.
útboðsþátt um þrýstivatnspíp-
ur. Lægsta tilboðið var frá
Ingra Group, frá Júgóslavíu upp
á 43 milljónir króna, en næst
lægsta tilboðið var frá spænska
fyrirtækinu Boetticher Y Nav-
arro upp á 70,7 milljónir króna.
Hæsta tilboðið var frá Thyssen
Engineering GmbH frá Þýska-
landi og nam 150,4 milljónum
króna. Kostnaðaráætlun var
upp á 57,1 milljónir.
Samtals hljóða lægstu tilboð í
ofangreinda 6 verkþætti upp á
um 470 milljónir króna, en
kostnaðaráætlanir voru samtals
680 milljónir króna.
ingarland, en skipulag þess ligg-
ur ekki fyrir, enda ekki búið að
semja við landeigendur.
E.G.
Forsætisráð-
herra afþakkar
boð til ísrael
Steingrími Hermannssyni,
forsætisráðherra, hefur verið
boðið í opinbera heimsókn til
Israel. í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi sagði Stein-
grímur, að hann sæi sér ekki
fært að þiggja boð þetta vegna
anna.
Kvóti Siglfirðings frá
Álsey til Sólbergs ÓF
NÚ HEFIJR verið gengið frá flutn-
ingi 220 lesta kvóta frá Álsey VE
til Sólbergs ÓF. Aflakvóta þennan
hafði Álsey áður fengið frá Sigl-
firðingi SI.
Að sögn Sigurðar Einarsson-
ar, framkvæmdastjóra Hrað-
frystistöðvarinnar, sem gerir Ál-
sey út, fékk útgerðin þennan
kvóta þar sem Siglfirðingur hef-
ur verið frá veiðum vegna breyt-
inga og stundaði Álseyin einnig
rækjuveiði frá Siglufirði í
sumar. Sigurður sagði, að segja
mætti að þarna væri verið að
skila kvótanum, sem hefði feng-
izt frá Siglfirðingi, þar sem Áls-
eyin hefði ekki þörf fyrir hann
vegna endaslepptrar vertíðar og
tregfiskirís.
Tardue varð
MARK Tardue varð þriðji í alþjóðlegri keppni hljómsveitarstjóra, The
Geneva International Performers Contest, í Genf í Sviss, sl. miðvikudag.
Keppnin var mjög fjölmenn og var haldin forkeppni fyrir hana ( New York,
Tókýó og Genf, áður en keppt var til úrslita í Genf. Að lokum voru aðeins
þrír stjórnendur sem kepptu til úrslita og var Tardue einn þeirra.
„Eins og ég sagði áður en úr-
slitin voru kunngerð, þá var aðal-
atriðið ekki að verða númer eitt
þegar hér var komið sögu,“ sagði
Mark Tardue í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Hins vegar hef
ég komist í mikilvæg sambönd og
eignast góða vini hér og það
skiptir mig miklu."
Mark Tardue hefur nú í haust
þriðja tímabil sitt sem stjórnandi
lslensku óperunnar og verður
hljómsveitarstjóri fyrirhugaðrar
uppfærslu á Carmen. „Það er eina
verkefni Islensku óperunnar, sem
ég tek þátt í í vetur," sagði hann.
„Islenska óperan er í mjög örri og
góðri þróun og afar skemmtilegt
að taka þátt i henni. En ég held
að hún hafi gott af því að fá fleiri
stjórnendur, nýtt fólk. Sjálfur
elska ég Island og gæti vel hugsað
mér að vera þar tvo til þrjá mán-
uði á ári hverju. Ein ástæðan
fyrir því að ég tók þátt í þessari
keppni var, að ég hafði áhuga á
að færa mig meira yfir á sinfón-
iska sviðið, en ísland hefur verið
mér góður staður,“ sagði Mark
Tardue.
Flugyallargirðingin færð:
Langþráður draumur
Njarðvíkinga rætist
— segir Albert K. Sanders bæjarstjóri