Morgunblaðið - 31.08.1984, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984
13
Löndunarvandræði
í Vestmannaeyjum
VeNtmannaeyjum, 29. ágúst
MANNEKLA í frystihúsunum vegna
sumarleyfa starfsfólks er farin að
valda erfiðleikum hjá togurum, en
Leiðari — leiðrétting:
Verðbólgu-
áratugur
MEINLEG ritvilla slæddist
inn í forystugrein Morgun-
blaðsins í gær, fimmtudag,
verðbólguáratugur varð að við-
reisnaráratug.
í forystugreininni er vitnað
til orða forseta ASV, Péturs
Sigurðssonar: „50% launa-
hækkun til verkamanna nú,
fyrsta september, stæði ekki
lengi. Hún yrði tekin aftur eins
og skot, enda hafa ólíklegri rík-
isstjórnir en þessi hagað sér
þannig.“
Næsta málsgrein hljóðar svo
í réttum texta:
„Það sem hér er ýjað að er sú
þróun sem viðgekkst allan
verðbólguáratuginn, meðan
ráðherrasósíalisminn var og
hét. Þá hækkaði kaup í krónum
talið langleiðina í 1000%, án
þess að kaupmáttur ykist nema
um einn hundraðasta hluta
krónutöluhækkunarinnar.
Kauphækkun, umfram efna-
hagslegar forsendur, fór ein-
faldlega út í verðlagið. Eða
með öðrum orðum: launafólk
var látið borga meintar kaup-
hækkanir sjálft í hærra verð-
lagi. Það var sú hókus-pókus
aðferð, sem Alþýðubandalagið
hélt dauðahaldi í.“
þeir hafa aflað ágætlega síðustu vik-
urnar. Margt starfsfólk frystihús-
anna er enn fjarverandi og eitt af
stóru húsunum, Fiskiðjan, hefur
ekki enn hafið móttöku hráefnis eft-
ir árlega ágústlokun frystihúsanna í
Eyjum.
Vegna fámennis í frystihúsun-
um hefur ekki tekist að vinna all-
an þann afla sem borist hefur að
landi síðustu dagana. Á mánudag
landaði Breki 220 tonnum eftir
stutta veiðiferð og í gær varð að
grípa til þess ráðs að senda Halk-
ion til Englands með um 120 tonn
en ekki er útlit fyrir að skipið fái
löndun fyrr en eftir helgi. Á morg-
un er svo Vestmannaey væntanleg
inn til löndunar með rúmlega 100
tonn.
Það má því segja að hér sé nú
ríkjandi hálfgert vandræða-
ástand, en auk fyrrnefndra skipa
eru þrír aðrir togarar á veiðum
auk báta. En þó er vonast til að úr
fari að rætast, því fólki fjölgar nú
daglega sem snýr aftur til starfa í
frystihúsunum eftir velþegið
sumarleyfi og endurnýjun starfs-
orkunnar.
Mjög skiptar skoðanir eru hjá
fólki hér hvort það sé rétt að loka
öllum stóru frystihúsunum í einu í
ágústmánuði eins og tíðkast hefur
undanfarin ár, en ágúst hefur yf-
irleitt verið fengsæll aflamánuður
hjá togurum.
Bátaafli hefur verið frekar treg-
ur upp á síðkastið, en þó með
þeirri undantekningu að Sigurfari
VE hefur lagt á land í þessum
mánuði um 130 tonn, sem eru
ljómandi góð aflabrögð á þessum
árstíma. Sigurfari leggur upp afla
sinn hjá frystihúsi FIVE sem ekki
greip til sumarlokunar í ár.
- hkj.
Septem-hópurinn
synir í 12.
UM HELGINA opna 3 sýningar á
Kjarvalsstöóum, ein af þeim er sýn-
ing Septem-hópsins. Þetta er tólfta
árið í röó sem hópurinn sýnir sam-
an.
Þeir sem nú eiga verk á sýning-
unni eru Guðmunda Andrésdótt-
ir, Þorvaldur Skúlason, Jóhannes
Jóhannesson, Kristján Davíðsson
og Valtýr Pétursson. Auk þeirra
eru í hópnum þeir Karl Kvaran
og Steinþór Sigurðsson, en þeir
sýna ekki að þessu sinni. Margir
listamenn hafa sýnt sem gestir á
sýningum hópsins. Gestur að
þessu sinni er Guðmundur Bene-
diktsson, myndhöggvari. En áður
hefur t.d. Ejler Bille sýnt með
hópnum, en hann sýnir eins og
kunnugt er núna á Listasafni ís-
lands ásamt fjórum öðrum lönd-
um sínum.
Um 70 verk eru á sýningunni og
eru það allt olíumyndir utan
höggmynda Guðmundar Bene-
diktssonar. Myndir hans eru unn-
ar í brons og gips, en þetta mun
vera í fyrsta skipti sem hann sýn-
ir höggmyndir unnar í gips.
Ein mynd eftir Kristján Dav-
íðsson, sem er af stærðinni 1,8 x 3
metrar, er tileinkað minningu
sinn
Ragnars Jónssonar í Smára, sem
lést sem kunnugt er nú í sumar.
Valtýr Pétursson sýnir á þess-
ari sýningu m.a. fjórar myndir,
töluvert ólíkar öðrum, en þær eru
tilbrigði um konumynd. „Ég fann
nýlega gamla teikningu eftir mig
af konu, sem var uppspretta þess-
ara mynda," sagði Valtýr.
Allar myndirnar á sýningunni
eru nýjar og hafa ekki verið á
sýningum áður.
Þegar blaðamann bar að garði,
voru listamennirnir í óða önn að
hengja upp sýninguna, en hún
opnar á laugardaginn í Vestusal
Kjarvalsstaða.
Sex listamenn sýna nú á Septem-sýningunni. Á myndinni eru, telið frá vinstri: Jóhannes Jóhannesson, Guðmundur
Benediktsson, Guðmunda Andrésdóttir, Valtýr Pétursson, Ari Kárason, en hann var að aðstoða við að hengja upp
sýninguna, og Kristján Davíðsson. Á myndina vantar Þorvald Skúlason.