Morgunblaðið - 31.08.1984, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 31.08.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984 19 Ólöglegum innflytjendum frá Pakistan vísað burt IVforKunbladsiiis, Erik Liden. Stokkhólmi, 30. ágúsL Frá frétUríUra ÞEIR 300 flóttanienn frá Pakistan, sem flutzt hafa ólöglega til Svíþjóó- ar, hefur veriö fyrirskipað að fara þaðan. Rökstyður frú Anita Gradin, innflytjendaráðherra sænsku stjórnarinnar, þessa ákvörðun m.a. með því, að Pakistanarnir hafi ekki getað sýnt fram á, að þeirra biði refsing, ef þeir flyttu aftur til heimalands síns. Pakistanarnir 300 tilheyra svokölluðum Ahmadiya-sértrúar- flokki, sem er öflugur og vel skipulagður trúflokkur með næstum 5 millj. meðlimi. Rétt- trúnaðarmenn á meðal múham- eðsmanna i Pakistan vilja ekki viðurkenna Ahmadiya-trúflokk- inn, heldur halda því fram, að stofnandinn, Mirza Ghulam Ahmed, viðurkenni opinberanir, sem óhugsandi sé fyrir múham- eðsmenn, er ekki viðurkenna neina spámenn aðra en Múham- eð. Samkvæmt ákvörðun Pakist- anstjórnar frá því í vor skal dæma áhangendur Ahmadiya- trúflokksins í fangelsi, ef þeir halda því fram, að þeir séu mú- hameðstrúarmenn eða ef þeir reyna að breiða trú sína út í Pak- istan. Til þessa hafa dómendur í Pakistan neitað að fara eftir þessu og komið í veg fyrir, að refsingu yrði beitt. Sænska stjórnin segist ekki fá séð, að þeir 300 Pakistanar, sem í Svíþjóð búa, eigi yfir höfði sér ofsóknir af neinu tagi, ef þeir halda heim að nýju. Þremur Pakistönum var vísað strax úr landi, eftir að ákvörðun sænsku stjórnarinnar i dag hafði verið kunngerð og þegar í næstu viku er gert ráð fyrir, að margir úr hópi Pakistananna 300 fái fyrirmæli um að fara úr landi. Allir eiga þeir að vera farnir í síðasta lagi í október nk. Norges Fiskarlag ¥ < bœMt Fjórir fórust í flugslysi n m /ct/ vib #*s***fe fkfcme tet mtrwFimt i ©*»t mtwwfrf jMUð f &c* t*vT; «*.*rti* ** mf ié Í4Mfft vftga* .*£ «jffvap?' w•* t*'i«' cr««tU Ur« b*vit #> *-ltknx ‘il .*/■**£* i i **i <•£*#£ Fi#»Ui*i.rr,# I . f’tté• , *x ti* m+í *«M*t%mmt toéfb+imé* t>% 'AiMMff* S4I toísMwr *&»*, *%§ 'tf - . Munchen, 30. ágúst AP. EINS hreyfils fiugvél af gerðinni Cessna 172 í eigu flugskóla hrapaði og brann stuttu eftir fiugtak frá fiugvellinum í Miinchen með þeim afieiðingum, að fjórir menn, sem með vélinni voru, fórust allir. Vélin féll til jarðar í aðeins 300 metra fjarlægð frá flugbrautinni. Flugmaðurinn, Michael Wolf, var 22 ára gamall. Hann og félagar hans höfðu tekið vélina á leigu í útsýnisflug yfir Alpafjöllin. Ekki er vitað, hvort bilun í vélinni eða mistök flugmannsins ollu því, að vélin fórst. NÝTT SOVÉSKT BEITISKIP Nýjasta og fullkomnasta beitiskip Sovétmanna sigldi sl. mánudag um Eyrarsund á leið til Norður-Atlantshafsins og voru þessar myndir teknar af því þá. Það heitir „Funze“ og er búið kjarnorkuvopnum. 1*1 #5 r,oí mt j. t mmiut+er * E.r, Eí «K**li«.« s «UU l*r.$4Mr »**.«»< wlli fAdMffÍ* *w& t** s4 <í*** w «i* IMdÍKt m%t* l**i»4>* s mjmi I * t» e 4, f toí # « toVftA :,.»•? A40*r,'-rf» , fha&§ t Jh . £4 m&wt s*Mi Bréfið frá Félagi norskra fiskimanna til Statoil. Noregur: „Viö áttum þetta skilid“ Forsvarsmenn Statoil ætla framvegis að nota móðurmálið I skiptum við landa sína OhIó. 30. ágúat. AP. EINS OG fram hefur komið í frétt- um svöruðu norskir sjómenn fyrir sig á íslensku þegar Statoil, norska ríkisolíufélagið, sendi þeim og öðr- um bréf, sem ritað var á enskri tungu. Hafa viðbrögðin við þessum bréfaskiptum verið ótrúlega mikil í Noregi, bæði meðal einstaklinga og samtaka, og hafa margir orðið til að þakka sjómönnum fyrir framtakssemina. í bréfinu til sjómannanna og 15 annarra samtaka var spurst fyrir um skoðanir þeirra á lagn- ingu olíuleiðslu frá Statfjord- svæðinu til Vesturlandsins og afkomendum Börs Börssonar hjá Statoil fannst það betur við hæfi að brúka barnaskólaenskuna sína en móðurmálið. Hjá sjó- mannasamtökunum bölvuðu menn bæði hátt og í hljóði þegar þeim barst bréfið, sem þeim þótti hin mesta ósvinna, og þá datt einhverjum það snjallræði í hug að leita til íslenskra vina sinna og fá þá til að semja svar- bréfið. Hjá Statoil klóruðu menn sér i höfðinu þegar þeir fengu svar- bréfið. Hvað var nú þetta eigin- lega? Þeir kunnu ekki almenni- lega við að spyrjast fyrir um það hjá sjómannasamtökunum en datt þó helst í hug að þetta væri fornnorska. Þeir leituðu því til íslenskufræðings við mennta- skóla á Rogalandi, sem leiddi þá í allan sannleika um innihaldið. „Við áttum þetta skilið. Við fengum það svar, sem við höfð- um unnið til: Auðvitað er það hégómaskapur að skrifa hver öðrum á brogaðri ensku þegar það vill svo til, að norskan er okkar móðurmál," sagði Willy Olsen, upplýsingafulltrúi Stat- oil, en hann hringdi sjálfur til Martin Dahle, starfsmanns sjó- manna, og óskaði honum til hamingju með svarbréfið. Ekki er þó allt á eina bókina lært hjá Statoil f þessum efnum því að fyrirtækið hefur fengið norskumenn við háskólann í Björgvin til að finna norsk orð yfir öll heiti í „olíumálinu" svo- kallaða, sem er mjög enskuskot- ið. Er áætlað að verja til þess nærri 16 milljónum ísl. kr. Hemlar og hemlakerfi er mikilvægasti öryggisþátturinn í öllum akstri og meðferð ökutækja og vinnuvéla. Þetta vita allir. í því sambandi skiftir mestu, sé fyllsta öryggis gætt; að vel sé séð fyrir viðhaldi og umhitðu allri. Þetta vita líka allir. Við erum sérfræðingar í allskyns hemlum og hemlakerfum. Orginal hemlahlutir í allar tegundir bifreiða ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ. NOT® ÞJÓNUSTU FAGMANNA, ÞAÐ TRYGGIR ÖRYGGIÐ. LLING Sérverslun með hemlahluti. Skeifunni 11 Simi: 31340,82740,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.