Morgunblaðið - 31.08.1984, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984
Ráðstefna um nátt-
úru og vistkerfi
Þingvallavatns
Þingvallavatnsrannsóknir og Nor-
ræna vistfræðiráðið gangast fyrir
sameiginlegri ráðstefnu í Norræna
húsinu, sem hófst f gær, 30. ágúst, og
stendur til 1. september. Á ráðstefn-
unni er fjallað um vistkerfi og nátt-
úru Þingvallavatns.
Aðalefni ráðstefnunnar er rann-
sóknir á náttúru vatnsins og nán-
asta umhverfi þess, en þær hafa
staðið yfir um árabil. Þáttakendur
eru frá öllum Norðurlöndum en
ráðstefnan er opin fyrir þá sem
áhuga hafa á efninu.
Föstudaginn 31. ágúst verður
farin rannsóknarferð að Þing-
vallavatni kl. 9 árdegis og snædd-
ur verður kvöldverður við írafoss.
Á síðasta degi ráðstefnunnar,
iaugardaginn 1. september, verða
fluttir fyrirlestrar frá kl. 10 f.h. til
kl. 15.50 en þá hefjast lokaumræð-
ur, að því er segir í fréttatil-
kynningu Norræna hússins.
Morjfunblaöiö/Emelía
Unnið að framkvæmdum á viðbótarhúsnæði við ísaksskóla.
Nýtt hús á skólalóðinni
UNNIÐ er nú við framkvæmdir á
byggingu viðbótarhúsnæðis við
skóla ísaks Jónssonar við Bólstað-
arhlíð. Er hér um að ræða lítið hús
sem byggt er á skólalóðinni og að
sögn Antons Sigurðssonar, skóla-
stjóra, verða þar tvær lausar
kennslustofur.
„Þetta húsnæði er liður í stærri
áætlun um að tvísetja skólann í
framtíðinni," sagði Anton í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðs-
ins. Anton sagði að hið nýja hús-
næði yrði tekið í notkun strax í
haust, en ekki yrði þó hægt að
tvísetja skólann á þessum vetri.
Vonir standa til að tvísetningin
komist í framkvæmd veturinn
1985-1986.
Myndun,
ekki Myndir
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi athugasemd frá Vilhjálmi
Þór Guðmundssyni, fyrir hönd kvik-
myndagerðarinnar Myndunar:
Vegna fréttar í Morgunblaðinu
25. ágúst sl. óska ég eftir leiðrétt-
ingu á nafni kvikmyndagerðarinn-
ar, þ.e. Myndunar, en Myndun
framleiddi umrædda þætti um
lambakjöt á myndböndum er
greinin fjallar um.
Myndun er elsta starfandi fyrir-
tæki i landinu, sem hefur með
upptöku og vinnslu myndbanda að
gera. Fyrirtækið hefur framleitt
fjölda sjónvarpsauglýsinga, kynn-
inga og auglýsingamynda fyrir fé-
lög og fyrirtæki, nú síðast þáttinn
um léttu réttina í samvinnu við
markaðsnefnd landbúnaðarins og
Kaupmannasamtök íslands.
Skóli ísaks Jónssonar hefur
starfað allar götur frá árinu 1926
og hefur verið í fararbroddi hvað
varðar nýjungar í kennslu yngri
barna. í skólanum hafði t.d. verið
stunduð kennsla 6 ára barna í 30
ár áður en sú kennsla var tekin
upp í grunnskólum og þar hefur
verið stunduð kennsla 5 ára barna
í 15 ár. Nemendur í yngstu deild
ísaksskóla, þ.e. 5 ára börn, verða
nú í vetur um 150, en alls verða
nemendur rúmlega 500 talsins.
Læknar fá 15%
afslátt á
Læknatalinu
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
um útgáfu ritsins „Læknar á ís-
landi", var sú villa, að sagt var að
læknar gætu keypt ritið á 1500
krónur. Hið rétta er, að ritið kost-
ar 2964 krónur í verslunum, en
læknar fá 15% afslátt frá því
verði. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
Geir Gunnar Geirsson, eggjaframleiðandi Lv. og Alfreó Jóhannsson, framkvæmdastjóri ísfugls. „Framleióslan
er miðuð við að hver fjölskylda á íslandi fái sér andarsteik a.m.k. einu sinni á ári.“
Framleiðsla á
Peking-öndum hafin
Á bænum Skeggjastöðum í
Mosfellssveit er nú hafin
framleidsla á öndum í stórum
stíl. Er það nýmæli á íslandi
að slíkur búskapur sé stund-
aður jafn reglubundið og í
jafn miklum mæli og nú er
gert þar. En á Skeggjastöðum
koma nú úr eggjum um 600 til
700 andarungar á viku.
Endurnar, sem um ræðir,
eru af Peking-stofni og örlög
þeirra eru að sjálfsögðu þau að
enda sem gómsætir réttir á
matborðum landsmanna, enda
andarsteik sannkallaður
herramannsmatur.
„Okkur þótti tími til kominn
að auka fjölbreytnina. Kjúkl-
ingur hefur nú um langt skeið
verið vinsæl fæðutegund — svo
vinsæl, að hún er orðin hvers-
dagsmatur — og því sjálfsagt
að bæta fleiri tegundum fugla-
kjöts á markaðinn," sögðu þeir
Geir Gunnar Geirsson, eggja-
framleiðandi á Vallá, sem rek-
ur búið á Skeggjastöðum og Al-
freð Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Isfugls, sem
dreifir framleiðslunni, þegar
Morgunblaðsfólk brá sér í
skoðunarferð til Skeggjastaða í
vikunni.
„Þá má líka nefna, að í öðr-
um löndum eru endur yfirleitt
50% dýrari en kjúklingar, en
hér er verðmunurinn aðeins
10%. Öndin er því fyllilega
samkeppnisfær við lamba-
kjötið, enda hefur fólk tekið
þessari nýjung afar vel og sýnt
henni mikinn áhuga,“ sögðu
þeir Geir og Alfreð, en fyrstu
öndunum frá Skeggjastöðum
var dreift í síðustu viku.
Um síðustu jól kostaði öndin
350 kr. í heildsölu, en nú kostar
hún aðeins 195 kr. sem m.a.
þýðir, að nú verður hægt að fá
andarsteik á veitingastöðum á
mjög viðráðanlegu verði. öndin
er fljótvaxin fugl, sem tryggir
kjötgæði, en slátrun fer fram
eftir sjöundu viku. Þessir fugl-
ar þurfa töluverða umhyggju
en hins vegar eru þeir hraustir
og lítil vanhöld," sagði Geir og
ekki var annað séð á bústnum
fuglunum, sem vöppuðu um
húsin, en að þar færi fiðurfén-
aður í góðu ásigkomulagi.
Nikulás Snorrason, bóndi á
Skeggjastöðum, hugar að andar-
ungum, sem eru að skríða úr eggj-
unum í klakskúffunni. Labrador-
hundurinn Adam sýnir mikinn
áhuga. (Ljósm. Hbl. Árni Sjeberg.)
Andafundur á Skeggjastöðum.
OpMámorsun
laugardag kl.lO-4
VJAáljr ATTP Skeifunni 15
IlAVJliAU 1 Reykjavík