Morgunblaðið - 31.08.1984, Page 30
30
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984
Pennarnir fyrir
skóla- ‘
nemendur
í ar
«t#Artline200
Frábær tússpenni með mjóum
plastoddi, sem hægt er
að nota við öll
tækifæri, léttur og
þægilegur I
hendi, fæst I 4
svart - blátt -
rautt og grænt.
‘vArtlintí B/4LL 2000
Kúlutússpenni sem þolir álagið,
endingargóður hversdagspenni,
sem á engan sér líkan. Hægt að velja
um 4 liti.
Fást í flestum bóka-
ritfangaverslunum
Artline
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær
Sjafnargata
Barónsstígur
Laugav. 101—171
Grettisgata 37—98
Njálsgata
Laugaveg frá 1 —33
Skólavörðustígur
Vesturbær
Tjarnargata 39 —
Einarsnes
Nýlendugata
Vesturgata
Valdatafl Honeck-
ers og Kremlverja
— eftir Arne Œav
Brundtland
Sá augljósi þrýstingur sem Sov-
étmenn beita nú Austur-Þjóðverja
helst í hendur við vaxandi sovéska
andstöðu gagnvart Vestur-Þjóð-
verjum. Rót þessa er það kalda-
stríðs andrúmsloft sem nú ríkir í
samskiptum Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna.
Pólitísk afstaða Sovétríkjanna
gagnvart þýsku ríkjunum og
Bandaríkjunum er greinilega mót-
uð samkvæmt kokkabókum kalda-
stríðsins. Sovétmenn gera engan
greinarmun á Vestur-Þýskalandi
og Bandaríkjunum og telja bæði
ríkin til óvina sinna. Við þessar
aðstæður krefjast Sovétmenn auk-
innar undirgefni af ríkjum Aust-
urblokkarinnar. Þeir geta ekki
fellt sig við þá pólitísku áhættu
sem fylgir vinsamlegum samskipt-
um á milli ríkja austurs og vest-
urs. Þá telja þeir hyggilegra að
treysta eigin stöðu, en að tefla
djarft því þá er hætt við að and-
stæðingarnir efli eigin samstöðu.
Ljóst er að Sovétmenn binda vonir
við að sameiginlegur þrýstingur
ríkja Austurblokkarinnar geti, í
því ástandi sem nú ríkir, leitt til
vaxandi spennu á Vesturlöndum
og erfiðleika innan NATO.
Vonuðust eftir
sundrungu
Á fyrri helmingi þessa árs sáust
þess glögg merki að Sovétríkin
vildu reka fleyg á milli Bandaríkj-
anna og bandamanna þeirra í
Vestur-Evrópu. Viðræður um tak-
mörkun vígbúnaðar gátu ekki far-
ið fram eftir að Bandaríkjamenn
hófu að setja upp meðaldrægar
eldflaugar í Vestur-Þýskalandi.
Þess í stað völdu Sovétmenn að
fara nær hugmyndum sem upp
höfðu komið í Evrópu. Þeir ákváðu
að taka upp aftur viðræðurnar í
Vín um gagnkvæma fækkun í
herjum bandalaganna í Mið-
ft
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
. JflsrxrimblftMb
Yogastöðin
Heilsubót
o
Líkamsþjálfun
fyrir alla á öllum aldri.
Leiöbeinendur
meö langa reynslu og mikla þekkingu.
Þjálfunarform
Hata Yoga, trúlega fullkomnasta æfingakerfi sem til er.
Þjálfun hefst á mánudag.
Yogastööin — Heilsubót
Hátúnl 6A, símsr 27710 og 18606.
Evrópu og sendu fulltrúa á fram-
haldsfundi öryggismálaráðstefn-
unnar í Stokkhólmi.
Sovétmenn vildu fyrir sitt leyti
sýna varkárni því annars hefðu
þeir hætt á að Vestur-Evrópuþjóð-
irnar snerust til fylgis við stefnu
stjórnar Reagans. Þeir hljóta að
hafa komist að þeirri niðurstöðu
að þrátt fyrir uppsetningu eld-
flauganna væri unnt að hvetja ríki
Vestur-Evrópu til að taka sjálf-
stæðari afstöðu. Óhætt er að full-
yrða að meðal Frakka, Englend-
inga og Vestur-Þjóðverja hefur
verið vilji fyrir ákveðnari slökun-
arstefnu en Bandaríkjamenn hafa
aðhyllst í Vestur-Evrópu.
Á hinn bóginn telja Sovétmenn
að ríki Vestur-Evrópu gangi of
langt þegar þau reyna að efla
sjálfstæði ríkja Austurblokkar-
innar gagnvart Sovétríkjunum.
Þetta gildir um Rúmeníu og Ung-
verjaland en þó einkum um
Austur-Þýskaland.
SjálfstæÖ stefna
Austur-Þjóðverja
Sjálfstæði og sveigjanleiki
Austur-Þjóðverja gagnvart
Vestur-Þjóðverjum á fyrri hluta
þessa árs hefur komið þeim á
óvart, sem talið hafa Austur-
Þjóðverja tryggustu bandamenn
Sovétríkjanna í Austur-Evrópu.
Samkvæmt forskriftum kalda-
stríðsins hefðu Austur-Þjóðverjar
ekki átt að sýna vilja til að bæta
sambúðina við Vestur-Þjóðverja.
Þá lá það fyrir frá hendi Sovét-
manna að fundirnir í Genf hefðu
farið út um þúfur vegna vígbúnað-
ar í Vestur-Evrópu sem aftur
myndi leiða til uppsetningar
kjarnorkuflauga í Austur-Evrópu
og kólnandi sambúðar vesturs og
austurs.
Austur-Þjóðverjar samþykktu
uppsetningu sovésku eldflauganna
og í kjölfarið fylgdu ákveðin fyrir-
mæli frá Sovétmönnum sem vörð-
uðu ýmis mikilvæg mál. Þeir
skylduðu Austur-Þjóðverja til að
mæta ekki til leiks á Ólympíuleik-
unum í Los Angeles og hlýtur það
að hafa verið þeim mikið áfall því
talið var að austur-þýskir íþrótta-
menn ættu þar mikla möguleika.
En síðan gerðist sá merkilegi at-
burður að Austur-Þjóðverjar tóku
upp sjálfstæða stefnu gagnvart
Vestur-Þýskalandi. Segja má að
þrátt fyrir kólnandi sambúð aust-
urs og vesturs hafi samband
þýsku ríkjanna farið batnandi.
Þar ber hæst lán sem Vestur-
Þjóðverjar hafa veitt og Austur-
Þjóðverjar „greiða" með því að
draga úr öryggisgæslu og vopna-
búnaði á landamærum ríkjanna,
þó að það þýði örugglega aukinn
fjölda flóttamanna frá austri til
vesturs. Auk þesS hefur verið slak-
að á reglum varðandi heimsóknir
einstaklinga til Austur-Þýska-
lands og gjaldeyrisviðskipti.
Viöbrögð Sovétmanna
Til að bregðast við þessari
þróun mála munu Sovétmenn
væntanlega reyna að koma í veg
fyrir heimsókn Honeckers, for-
manns austur-þýska kommúnista-
flokksins, til Vestur-Þýskalands,
sem fyrirhuguð er nú í september-
mánuði. Þar með munu Sovét-
menn freista þess að ná aftur nær
algjöru valdi á utanríkisstefnu
Austur-Þjóðverja.
Sovétmenn óttast mjög að ferð
Honeckers leiði til aukinna áhrifa
Vestur-Þjóðverja í innanríkismál-
um Austur-Þjóðverja. Hvað varð-
ar Vestur-Þýskaland líta Sovét-
menn svo á að Vestur-Þjóðverjar
og Bandaríkin séu í sameiningu að
auka kjarnorkuvígbúnaðinn og að
Vestur-Þjóðverjar leggi nú höfuð-
áherslu á að ná auknum áhrifum í
Austur-Þýskalandi.
Þannig álykta Sovétmenn að
tvennt hafi gerst. í fyrsta lagi hafi
Vestur-Þjóðverjar breytt um
stefnu gagnvart Austur-Evrópu
og í öðru lagi séu Austur-Þjóð-
verjar að mörgu leyti sammála
þessari stefnubreytingu. Þess
vegna grípa Sovétmenn til sinna
ráða.
Sovétmenn geta ekki fellt sig
við þessa þróun mála og vilja kæfa
ri . ^
Sovéskir dagar
MÍR1984
meö þátttöku hljóöfæraleikara, söngvara og dans-
ara frá Sovétlýðveldinu Azerbajdsjan veröa settir
í Hlégaröi, Mosfellssveit, mánudaginn 3. sept-
ember kl. 20.30. Flutt veröa ávörp og listafólkið
skemmtir. Aögangur er ókeypis og öllum heimill.
Tónleíkar og danssýningar:
Hellíssandi þriöjudaginn 4. sept. kl. 21.
Stykkishólmi miðvikudaginn 5. sept. kl. 21.
Búdardal fimmtudaginn 6. sept. kl. 21.
Varmalandi, Borgarfirði, föstudaginn 7. sept. kl. 21.
Þjóóleikhúsinu, laugardaginn 8. sept. kl. 20.
Sýning frá Axerbajdsjan opnuð aö Vatnsstíg 10 laugardaginn
8. sept. kl. 16.
MÍR.