Morgunblaðið - 31.08.1984, Síða 33

Morgunblaðið - 31.08.1984, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984 33 Um þorskveiðar með aflakvóta — eftir Guðmund Guðmundsson í Mbl. 15. ág. er viðtal við bæjar- stjórann á ísafirði, þar sem hann lætur í ljós það álit að hrun at- vinnulífsins og fólksflótti blasi við, þar sem togararnir væru langt komnir með að klára þorskkvóta þann er þeim hefði verið úthlutaður. Ég veit ekki hvaðan bæjarstjóranum koma þessar upplýsingar en ástandið er langt frá því að vera svo alvarlegt sem hann fullyrðir. Flest skipin eiga eftir verulegt magn af öðrum fiskitegundum sem hægt er að breyta yfir í þorsk að vissu marki. Þá hefir bæjar- stjórinn áhyggjur af því að bæj- arsjóður muni verða af þeim tekj- um sem fiskvinnslu og útgerð ofl. beri að greiða. Sem betur fer veit ég ekki til að þessar atvinnugrein- ar skuldi bæjarsjóði neitt af áföllnum gjöldum og ég vona að áfram verði hægt að standa í skil- um svo sem verið hefir. Sem betur fer hefir verið óvenjumikið um fisk á Vestfjarða- miðum að undanförnu, meira en menn áttu von á. Raunar hefir slíkt skeð áður á þessum tíma. Af þessu tilefni hefir kvótakerfið ver- ið mjög til umræðu í sumum fjöl- miðlum og hafa komið fram þær VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins hefur nú ákveðið lágmarksverð á smokkfiski til beitu og frystingar á komandi vertíð. Mun þetta vera í annað sinn, sem ákveðið er lág- marksverð á þessari fiskitegund. Verðið hefur nú verið ákveðið 9 krónur á hvert kiló til sjómanna og miðast við að smokkfiskurinn sé þá kominn á flutningstæki við skips- hlið. Verð til kaupenda með 10% viðbót til Stofnfjársjóðs og 29% vegna þátttöku f útgerðarkostnaði er hins vegar 12,51 króna. Verð á smokkfiski til kaupenda í Færeyj- um er nú 11,25 krónur íslenzkar og mun það eitt örfárra tilfella að fisk- verð er hærra hér en þar. Lágmarksverð á smokkfiski var fyrst ákveðið 1979 í kjölfar mikillar göngu við Vestfirði og var þá 170 gamlar krónur fyrir hvert kilo. Vegna þess hve smokkfiskurinn er stopull við strendur landsins er lágmarksverð aðeins ákveðið, þegar mikið er af honum eins og nú og 1979. Annars er hann mjög stopull i fullyrðingar að útgerðarmenn hagi sér óskynsamlega varðandi hagnýtingu þorskkvótans, með því að láta skipin stunda veiðarnar hömlulaust meðan aflinn var fyrir hendi. Þessar ásakanir eru fráleitt réttar og byggðar á ókunnugleika af mönnum sem ætla mætti að hefðu haft aðstæður til að kynna sér á hvern hátt staðið hefir verið að vinnslunni í frystihúsum. Skipin hafa verið stöðvuð í nokkra daga og allt upp í viku eft- ir löndun eftir því sem ástæða hef- ir þótt til hverju sinni til hagræð- ingar fyrir vinnsluna. Það er hið sanna i málinu. Yfir sumartímann kemur á vinnumarkaðinn mikill fjöldi unglinga, sem njóta góðs af sumaratvinnunni og eykur það af- köst frystihúsanna að mun. í frystihúsunum á ísafirði, Hnífsdal og Súðavík hafa verið á launaskrá um 506 manns þar af unglingar að 16 ára aldri 160. Ef tekinn hefði verið upp sá háttur að takmarka afla skipanna meir en gert hefir verið og þeim skammtað ákveðið magn í veiði- ferð, hefði að sjálfsögðu orðið að fækka starfsfólki og hefði það leitt til þess að unglingarnir hefðu ekki átt kost á þessri vinnu. Þeir sem bera ábyrgð á rekstri útgerðar, reyna að haga rekstrin- veiði og hafa seljendur því venju- lega samið sjálfir við kaupendur um verðlagningu hans. Smokkfiskur er eingöngu veiddur á svokallaðan pilk, sem er blýsakka með krækjukraga að neðanverðu. um á þann hátt að sem mestur afli náist á land á þeim tima, þegar tilkostnaður er minnstur. Þetta hefir verið reynt að samræma vinnslugetunni í landi eftir því sem mögulegt hefir verið hverju sinni. Þegar fiskur gengur upp á land- grunnið hér fyrir Vestfjörðum í einhverju magni gerist það oftast við þær aðstæður að sjávarhiti verður hagstæður fyrir lifnaðar- hætti fisksins og átumagn er fyrir hendi. Loðna eða annað æti. Þetta átti sér stað í síðustu göngu og virtist þarna vera um óvenjulega mikið magn að ræða. Þegar svona hagar til er ekki á vísan að róa hvar fiskinn er að fá hverju sinni er veiðiferð hefst. Fiskurinn geng- ur ýmist austur eða vestur með landgrunninu og getur horfið á skömmum tima án þess vitað sé hvar fisk er að finna, hann leitar uppi ætið og er því oft á mikilli ferð. Við þessar aðstæður er eðli- legt að sjómenn reyni að nýta sér aflamöguleikana meðan þeir eru fyrir hendi. í leiðara Mbl. 17. ágúst segir höfundur: „Hvers vegna er ekki hægt að treina sér fiskinn." Það er aldrei hægt að gera ráð fyrir því að fiskurinn haldi sig til lengdar á sömu slóðum, svo að hægt sé að ganga að honum vísum næst þegar komið er á miðin. Máltækið segir: „Svipull er sjávarafli", og svo mun Sé hann veiddur á annan hátt, er veruleg hætta á því, að hann skemmist og verði því óhæfur í beitu. Til þessa hefur smokkfiskur í beitu aðallega verið innfluttur frá Færeyjum, Noregi og Kanada. Guðmundur Guðmundsson „Þeir, sem bera ábyrgð á rekstri útgeröar, reyna að haga rekstrinum á þann hátt ad sem mest- ur afli náist á land á þeim tíma þegar til- kostnaöur er minnstur. Þetta hefir veriö reynt aö samræma vinnsluget- unni í landi eftir því sem mögulegt hefir ver- iö hverju sinni. Um þorskveiöar meö aflakvóta ávallt verða. Þar sem er mokafli annan daginn getur verið ördeyða næsta dag. Minnkandi afli á síðustu árum, fallandi markaðsverð erlendis of lágt fiskverð til útgerðar og sjó- manna, ásamt stórauknum kostn- aði í þessari atvinnugrein, hefir nú skapað það ástand að útgerð óg fiskvinnsla eiga í vök að verjast og liggur við stöðvun þessara at- vinnugreina. Öllum er í fersku minni aðgerð- ir Austfirðinganna út af þessu ástandi í þeim tilgangi að fá rekstrargrundvöll. Stjórnvöld kukluðu í sárið án þess að þær aðgerðir gerðu nokkuð verulegt til að bæta úr rekstrarvandanum svo að gagni kæmi, og áfram er haldið út í óvissuna og skuldir halda áfram að aukast. Þegar talið var nauðsynlegt að draga stórlega úr þorskaflanum mátti öllum vera ljóst að það hlyti að koma niður á atvinnulífinu í landinu, þegar þessr takmarkanir færu að koma í ljós síðari hluta ársins. Skuldasöfnun útgerðarinnar leiðir af sér aukin vaxtakostnað sem gefur lánastofnunum auknar tekjur, enda má sjá það nú síðustu daga að þar er keppst um að bjóða upp á hærri vexti til þess að ná til sín sem mestu fjármagni ef það kynni að vera fyrir hendi. Banka- starfsemin malar gull á sama tíma og framleiðslugreinarnar eru að veslast upp. Það munu vera rúmlega fimm þúsund menn sem starfa við sjómennsku, en í lána- stofnunum munu finna sem næst þrjú þúsund manns. Það þarf margar hendur til þess að ráðstafa þeim fjármunum, sem útflutningsatvinnuvegirnir leggja til þjóðarbúsins. Verslunin virðist vera í góðu gengi, keppst er um að reisa stórar verslunarhallir, inn- flutningur takmarkalaus á alls- konar varningi, sem engin nauð- syn er á. Þetta væri nú allt í lagi ef þeir sem stjórna málum þjóðar- innar tækju raunhæft á málunum og gerðu þær ráðstafanir sem kæmu að gagni til þess að þær atvinnugreinar, sem skapa megin hlutann af gjaldeyristekjunum ættu þess kost að vera reknar með viðunandi hætti. Að iokum verð ég að víkja að samtali við Pétur Sigurðsson, formann Alþýðusambands Vest- fjarða, í Mbl. 16. ágúst. Þar sem hann segir: „Þeir moka fiskinum á land án þess að hafa nokkur tök á að vinna hann á viðunandi hátt og svo kór- óna þeir ástandið með því að fara nú að sigla með aflann.“ Formað- ur ASV hefir allar aðstæður til þess að hafa greiðan aðgang að frystihúsunum og fylgjast með því á hvern hátt fiskurinn er unninn, áður en hann setur fram fullyrð- ingar sem eru algjörlega ósannar því að allur afli, sem á land hefir borist hefir verið unninn í fryst- ingu og söltun eftir aðstæðum hverju sinni. Hann fullyrðir ef af því verður að um atvinnuleysi verði að ræða hér þá sé það vegna ábyrgðarleysis útgerðarmanna. Síðar í þessu viðtali segir form. ASV: „Ef það kemur hinsvegar á daginn að þeir ætla að skilja þetta fólk eftir á köldum klaka verður þjóðfélagið að grípa í taumana og taka af þeim þessi fyrirtæki." Verði þessi ummæli form. ASV um atvinnuleysi að veruleika, sem ég vona að verði ekki, þá mun hann að sjálfsögðu hafa hönd í bagga um að færari menn fáist til þess að stjórna þessum fyrirtækj- um en þeir, sem verið hafa að basla við að byggja þau upp á und- anförnum áratugum. Þegar kvótakerfið var tekið upp var afli togaranna sem gerðir eru út frá ísafirði og Hnífsdal skertur um nær 1770 tonn miðað við það sem þeir öfluðu á árinu 1983. Það liggur því ljóst fyrir að þessi skerðing hlýtur að hafa veruleg áhrif á atvinnulífið hér sem ann- arsstaðar á landinu. Hagnýting þorskkvótans er ekki orsakavaldurinn í þessu tilliti. Varðandi siglingu með afla, er form. ASV talar um, er rétt að gefa á því skýringu. Íshúsfélag fs- firðinga hf. tekur við afla af tog- urunum Guðbjörgu og Júlíusi Geirmundssyni. Þessi skip hafa aflað vel að undanförnu og þar sem búast mátti við því að bæði skipin yrðu í landi með góðan afla var ákveðið að láta Guðbjörgu sigla til Englands. Þetta er í fyrsta skipti sem skipið siglir síð- an það kom til landsins í júlí 1981. Frá þeim tíma hefir Guðbjörg aflað 18070 tonn og hefir allur afl- inn verið unninn í landi. Meti nú hver sem vill ábyrgðarleysið hjá þessari útgerð hvað viðkemur at- vinnulífinu á ísafirði. Cudmuadur Guðmundsson er út- gerðarmaður í ísafírði. Aðalfundur Presta- félags Suðurlands Á sunnudagskvöldið hefst á Skálholtsstað aðalfundur Prestafé- lags Suðurlands. Á sunnudagskvöldið verður flutt erindi á fundinum: Prófessor Jón Sveinbjörnsson flytur þá er- indi, sem hann nefnir: Biblíulestur og bókmenntarýni. (Aðferðir bókmenntafræða við ritskýringu.) Á mánudaginn verða aðalfund- arstörfin og að loknum hádegis- verði lýkur þessum aðalfundi Prestafélags Suðurlands með messu í Skálholtskirkju. Sr. Hannes Guðmundsson í Fellsmúla prédikar og sr. Guðmundur óli ólafsson þjónar fyrir altari. 1 tengslum við aðalfundinn er sú venja að aðkomuprestar messi í hinum ýmsu sóknarkirkjum í Árnes- og Rangárvallaprófasts- dæmum. Á sunnudaginn kemur verða messur aðkomuprestanna kl. 14. Lágmarksverð á smokkfiski ákveðið 7W STÓRLÆKKAÐ VERÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.