Morgunblaðið - 31.10.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984
í dag:
Samningaviðræd-
ur í Reykjavík
ENN ER ÓSAMIÐ milli Reykjavíkurborgar og ntarf.smannafélags borgarinn-
ar. Morgunblaðið sneri sér í gærkvöldi til Davíðs Oddssonar, borgarstjóra,
eftir að samningurinn við BSRB hafði verið undirritaður.
„I framhaldi af þessum samn- Síðan koma samninganefndir
ingslokum," sagði borgarstjóri,
„munum við þegar hefja viðræður
við Starfsmannafélag Reykjavík-
urborgar. Ég hef mælt mér mót
við Harald Hannesson, formann
félagsins, snemma í fyrramálið.
borgarinnar og starfsmannafé-
lagsins saman til fundar.
Ég tel ástæðulaust að tjá mig
um efni þessa samnings fyrr en að
þessum fundum loknum," sagði
Davíð Oddsson.
BSRB skemmti á elliheimilum
Morgunbl&ðið/Júlíus.
Nokkrir félagar í BSRB fóru í gær á þrjú elliheimili og skemmtu vistmönnum. Boðið var upp á söng, Ijóðalestur,
leikþátt o.fl. Farið var á Grund, Hrafnistu og Sunnuhlíð og voru undirtektir alls staðar góðar, að sögn talsmanns
BSRB. Þeir sem skemmtu voru Guðmundur Guðjónsson, Herdís Þorvaldsdóttir, Arni Tryggvason, Sigrún
Hermannsdóttir og Héðinn Björnsson. Sigfús Halldórsson lék undir á píanó.
Fjármálaráðuneytið:
Starfsmenn fá sömu
fjárhæð og 1. október
VEGNA lokunar Skýrsluvéla ríkisins
og Reykjavíkurborgar í verkfalli
BSRB verður ekki unnt að afgreiða
Viðræðum ASÍ og VSÍ haldið áfram í dag:
Samkomulag tókst um af-
nám tvöfalda kerfisins
SAMNINGAFUNDI Alþýðusam-
bands íslands og Vinnuveitend-
asambands íslands, sem hófst að
loknu kvöldverðarhléi kl. 20.30 í
fyrrakvöld lauk kl. 8.30 í gærmorg-
un. Hafði þá náðst samkomulag um
leið til afnáms hins tvöfalda launa-
kerfis á grundvelli samningsupp-
kasts sem VSÍ lagði fram. Tilboð
VSÍ byggðist á skattalækkunarleið-
inni, en upp úr viðræðum slitnaði
vegna ágreinings um endurskoðun-
arákvæði samningsins, en sam-
kvæmt tilboði VSÍ á hann að gilda til
1. maí 1986. Samningafundum verð-
ur framhaldið í dag kl. 14, en að
sögn viðmælenda Mbl. úr samninga-
nefndunum er viðbúið, að samning-
ar BSRB og ríkisins geri það að
verkum, að skattalækkunarleiðin sé
nú endanlega úr sögunni og að pró-
Hafnarfjörður:
Bæjarstjórn greiðir
vangoldin laun BÚH
Á FUNDI bæjarstjórnar Hafnarfjarð-
ar í gær var samþykkt beiðni útgerð-
arráðs og forstjóra Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar um að greiða vangold-
injaun landverkafólks og sjómanna
BÚH fyrir október að upphæð 3,4
milljónir króna. Fyrr á árinu hafði
bæjarsjóður greitt 11 milljónir króna
til BUH vegna fjárhagsörðugleika
fyrirtækisins.
í bæjarstjórn kom fram að vinna
í Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hefur
að mestu legið niðri í fjórar vikur,
en starfsfólki í fiskiðjuveri BÚH
Morgunblaðið/Július.
Bensínið var í gær búið á nokknim bensínstöóvum borgarinnar og að
klárast á öðrum. Úti á Kollafirði lá hins vegar flutningaskip fullt af bensíni
og gasolíu, en það fékkst ekki losað í gær. Vinna hefst væntanlega i dag
við losun þess. Myndin var tekin í gær á stærstu bensínstöð landsins, Olís
við Álfabakka, en þar var búið að breiða yfir bensíndælurnar.
var sagt upp frá og með 6. október
siðastliðinn og starfsemi annarra
deilda hefur verið í lágmarki. BÚH
á þrjá togara, en aðeins einn
þeirra, Maí, hefur að undanförnu
verið að veiðum. Samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri um mitt ár var tap
BÚH þá um 40 milljónir króna.
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar hef-
ur undanfarin ár verið rekin með
tapi.
sentutölur launahækkana verði allt
aðrar og hærri en verið hafa til um-
fjöllunar.
Samkomulagið um afnám tvö-
falda launakerfisins byggir á
flokkatilfærslum og starfsaldurs-
aðgerðum og er hún metin á um
11,6—11,7% hækkun að meðaltali.
Þá gerði tilboð VSÍ ráð fyrir um
7,5% hækkunum í upphafi samn-
ingsgerðar, þ.e. 5,5% launahækk-
unum og tilfærslum í töxtum og
starfsaldri sem nemur 2%. Reikn-
að var með að heildarlaunahækk-
anir á samningstímanum, þ.e. 18
mánuðum, næmu 18—19%.
Sú hugmynd, sem rædd var
varðandi endurskoðunarákvæði
samningsins, byggðist á þvi, að
skipuð yrði samstarfsnefnd, þar
sem aðilar skiptust á að skipa
oddamann. Rætt var um, að
nefndin endurskoðaði samninginn
þrisvar á samningstímabilinu, á
fjögurra mánaða fresti. Til við-
miðunar hefði nefndin þróun
lífskjara og ýmsar efnahagsstærð-
ir, en upp úr viðræðum slitnaði,
þar sem mönnum kom ekki saman
um við hvaða efnahagsstærðir
skuli miðað.
laun með venjubundnum hætti nú um
þessi mánaðamót.
Fjármálaráðuneytið hefur því
ákveðið að greiða öllum föstum
starfsmönnum sem eru við störf
sömu fjárhæð nú og þeir fengu um
síðustu mánaðamót, enda hafi þá
verið um venjulega launagreiðslu
að ræða.
Á greiðslu þessa verður litið sem
bráðabirgðaráðstöfun þar til fulln-
aðarvinnsla launa getur farið fram.
Greiðslumáti verður sá sami og
1. október sl., þ.e.a.s. greitt verður
inn á sömu bankareikninga og þá.
Launaseðlar verða ekki gefnir út,
en útborgunarlistar fyrir forstöðu-
menn stofnana verða tiltækir.
Þeir starfsmenn sem ekki voru
komnir á launaskrá 1. október sl. fá
ekki afgreiðslu á þennan hátt, en
ætlast er til að þeim verði greitt til
bráðabirgða í viðkomandi stofnun
hafi stofnunin sjóð.
Bilaðir símar:
Afsláttur af
afnotagjöldum
í VERKFALLI BSRB hefur ekki ver-
ið gert við símabúnað einstakra not-
enda nema í tilvikum sem ætla má
að varði öryggi og heilsugæslu. Hafa
einstaka fyrirtæki og einsUklingar
því verið símalausir í verkfallinu.
í gjaldskrá fyrir símaþjónustu
er gert ráð fyrir slíkum tilvikum.
Þeir aðilar sem svo er ástatt fyrir
eiga rétt á að krefjast endur-
greiðslu á afnotagjaldi sínu í
hlutfalli við þann tíma sem sím-
inn er ónothæfur, ef sambands-
slitin eru meira en 10 sólarhringar
á ári.
ísland í öðru sæti
ÍSLENDINGAR eru í öðru til fjórða
sæti í sínum riðli eftir sex umferðir á
Ólympíumótinu í bridge, sem fram fer
í Seattle í Bandaríkjunum þessa dag-
ana. Hefur sveitin 117 stig og er jöfn
Indónesíu og Svíþjóð. Argentína er í
efsU sæti, með 126‘A stig.
„Við erum í banastuði," sagði Jón
Ásbjörnsson, einn íslensku liðs-
mannanna í samtali við Mbl. í
gærkvöldi, „höfum spilað djarft og
sótt stigin grimmt".
ísland tapaði fyrsta leiknum
gegn Finnum 9—21, en vann síðan
fimm næstu leiki: Egypta 18—12,
Uruguaymenn 23—7, Bangladesh
23—7, Hong Kong 21—9 og Spán
23—7. í gær átti fslenska sveitin að
leika gegn Hollensku-Antillueyjun-
um og Noregi.
íslendingar eru með ítölum og
Bandaríkjamönnum í riðli, en þær
þjóðir eru taldar mjög sigur-
stranglegar. Höfðu ítalir fengið 110
stig eftir sex umferðir en Banda-
ríkjamenn 95 stig.
í A-riðli eru tvær þjóðir jafnar og
efstar, Ástralía og Pólland, með 135
stig. Frakkar eru þriðju með 117
stig, en í fjórða til sjötta sæti með
115 stig eru Holland, Kanada og
Bretland.
Ungfrú Reykjavík í úrslitum
Miss International í Japan
UNGFRÚ Reykjavík, Guðlaug
Ntella Brynjólfsdóttir, var meðal
15 stúlkna, sem komust f úrslit
Miss International-fegurðarsam-
keppninnar, sem haldin var í Jap-
an og lauk í gær. Sigurvegari í
keppninni var frá Guatemala. Full-
trúi Venesúela hafnaði í öðru sæti
og fulltrúi Svíþjóðar varð í þriðja
sæti. Stúlkur frá 47 löndum tóku
þátt í keppninni.
„Ég er ákaflega ánægð með að
hafa komist í úrslit keppninnar,"
sagði Guðlaug í samtali við Mbl.
f gær skömmu eftir að úrslit
voru kunngjörð. „Keppninni
voru gerð góð skil í fjölmiðlum
hér í Japan. Okkur var alls stað-
ar tekið sem drottningum. Við
fórum víða og fjöldi fólks fagn-
aði okkur þar sem við komum,
lúðrasveitir léku og borgarstjór-
ar fluttu ávörp. Þetta hefur ver-
ið ævintýri líkast,“ sagði Guð-
4,
¥\\ r
„Okkur var alls sUðar tekið sem
drottningum,“ sagði Guðlaug
Stella Brynjólfsdóttir í samUli við
Mbl. í gær.
laug Stella og bætti við: „Ég hef
verið hér í Japan í 2‘k viku og
þrái að komast heim. Vonandi
verð ég komin heim að morgni
fimmtudagsins, þannig að ég
komist í skóla síðar um daginn
en ég stunda nám við Mennta-
skólann við Sund — hef lokið
verslunarprófi frá Verslunar-
skóla tslands."
Guðlaug sagði að dómnefnd
keppninnar hefði aðeins séð
stúlkurnar einu sinni — það er
að kvöldi úrslitakeppninnar.
„Við komum fyrst fram í þjóð-
búningum, síðan á sundbolum og
loks í samkvæmiskjólum. Þetta
var hrein og klár fegurðarsam-
keppni. Ég hefði heldur kosið að
hæfileikar þátttakenda og per-
sónuleiki væru einhvers metnir,
en vissulega hefur þetta verið
dýrmæt lífsreynsla og skemmti-
leg,“ sagði Guðlaug Stella að lok-