Morgunblaðið - 31.10.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.10.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984 21 Kosningamar í Nicaragua: Andstöðuflokkur ákveður framboð Mana^ua, Nicaragua, 30. olttóber. AP. íhaldssami lýðræðisflokkurinn ákvað í gær að taka þátt í kosning- unuin sem fram eiga að fara 4. nóvember. Er ákvörðun þessi vatn á myllu sandinistastjórnarinnar, þar sem henni er í mun aö sýna fram á, að stjórnin njóti meirihlutafylgis með þjóðinni, en tveir stærstu stjórnarandstöðuflokkarnir, Lýðræðislegi samvinnuflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn, hafa þegar ákveðið að hunsa kosningarnar. Saka þeir stjórnina um að hefta ritfrelsi og skerða ferðafrelsi fram- bjóðenda. Auk sandinista, sem álitið er að vinni öruggan sigur, og íhalds- sama lýðræðisflokksins, taka fjór- ir vinstrisinnaðir smáflokkar í stjómarandstöðu þátt í kosning- unum. Síðastnefndu flokkarnir hafa allir stutt sandinistastjórn- ina meira eða minna. Þýsk flugsveit f Stavanger eftir innrásina. „Studie Nord“ afsannar að innrásin hafi verið fyrirvaralaust eða vegna skyndiákvörðunar um að verða á undan Bretum að hernema landið. Innrás Þjóðverja í Noreg skipulögð 1939 Leynileg áætlun foringjans afhjúpuð LEYNIAÆTLUN Hitlers um innrásina í Noreg kom nýlega fram í dagsins Ijós. Hingað til hefur aðeins óljóst verið vitað um áætlun þessa, og það litla, sem það var, var afar brota- kennt. En nú hefur einkaaðili í Lon- don afhent norska sagnfræðipró- fessornum Magne Skodvin skjöl sem hafa að geyma fyrrnefnda áætlun, en Skodvin er með fremstu sérfræðingum í Noregi um sögu landsins í síðari heims- styrjöldinni. Hann hefur jafn- framt áratugum saman grafist eftir plaggi þessu sem bar dul- nefnið „Studie Nord“. í viðtali við Dagbladet í Ósló segir Skodvin prófessor, að fá- mennur vinnuhópur hafi fengið það verkefni á útmánuðum 1939 að gera þessa áætlun og strengi- leg fyrirmæli fylgt frá Hitler um að alger leynd hvíldi yfir því. Ekki einu sinni Vidkun Quisling, norska nasistaleiðtoganum, var sagt frá „Studie Nord“, þegar hann kom í heimsókn sína til Berlínar árið 1939. Eftir því sem Skodvin segir, afsannar „Studie Nord“ þá kenn- ingu sumra sagnfræðinga, að innrásin hafi verið fyrirvara- laus, að til hennar hafi verið gripið til að verða á undan Bret- um að hernema landið. — „Studie Nord“ rennir stoð- um undir þá skoðun sem ég hef lengi haft, segir Magne Skodvin, — að hernám Hitlers hafi verið þaulskipulagt löngu áður en til þess kom, að látið var til skarar skríða. Innrásaráætlunin er upp á 70—80 blaðsíður, auk korts og fylgigagna, og þar kemur fram, að þegar í desember 1939 var bú- ið að fullganga frá skipulagi landgöngunnar og flutninga vegna hernámsins. Portúgal: Nýjasta og jafnframt glæsilegsta farþegaskipið sem smíðaö hefur verið, lætur úr höfn í Helsinki eftir að hafa verið afhent eigendum. Það mun aðeins vera á valdi efnafólks og auðjöfra að Nýjasta lystisnekkjan AP/Simamynd. takast á hendur sigling með þessu skipi, sem gefið verður nafnið Royal Princess við athöfn í Englandi um miðjan nóvember. Díana prinsessa mun gefa skipinu nafn. Kohl og Mitterrand: Hvetja til viðræðna milli stórveldanna B»d Kreuznxrh, Vestur-Þyakalandi, 30. oktéber. LEIÐTOGAR Vestur-Þýska- lands og Frakklands segjast vonast til, að þegar eftir forseta- kosningarnar í Bandaríkjunum nk. þriðjudag muni fulltrúar austurs og vesturs setjast að samningaborðinu á nýjan leik. Kom þetta fram í máli Helmuts Kohl, kanslara Vestur-Þýska- lands, að loknum 44. leiðtoga- fundi Frakka og Vestur-Þjóð- verja frá stríöslokum. „Við vonum, að leiðtogar stór- veldanna tveggja bíði ekki boð- anna með að setjast að samninga- borðinu strax að forsetakosning- um í Bandaríkjunum loknum," sagði Kohl á blaðamannafundi með Mitterand, Frakklandsfor- seta. Leiðtogarnir ræddu til skipt- is við fréttamenn og sagði Mitter- and, að þeir væru sammála um, að Spánn og Portúgal gengju í EBE 1. janúar 1986. Frakkar og Vestur- Þjóðverjar eru einhuga um að halda áfram með Ariane-geim- ferðaáætlunina og saman ætla þjóðirnar að vinna að smíði könn- unarhnattar til að efla varnir þjóðanna. Á hann að geta fylgst með mörgu hvað sem líður veður- fari á jörðu niðri. Kohl gerði mengunarmál mjög að umræðuefni og þær áhyggjur, sem menn hafa af hnignun skóg- anna. Sagði hann, að frá 1989 yrðu allar bifreiðar í Vestur-Þýska- landi að vera búnar tækjum, sem gera bílvélum kleift að brenna blýlausu bensfni. Um þetta mál er mjög deilt í Vestur-Evrópu og bera margar bílaverksmiðjur sig AP. illa undan þeim aukna kostnaði, sem af nýja búnaðinum hlýst. Þeim er þó nauðugur einn kostur TOLVU að fjárfesta í honum vegna þess, að þær hafa ekki efni á að missa vestur-þýska markaðinn. Sprengja fannst við bandaríska sendiráðið IjfBiabon, 30. október. AP. LÖGREGLAN í Lissabon fann I dag tvær sprengjur sem komið hafði ver- ið fyrir skammt frá bandaríska sendiráðinu í borginni og aðalstöðv- um Kommúnistaflokksins eigi langt þar frá. Svo virtist sem sprengjurnar hefðu ekki sprungið vegna tækni- legra galla. Það voru börn að leik sem fundu sprengjuna skammt frá skrifstof- um Kommúnistaflokksins, en ókunn rödd sem hringdi til lög- reglunnar sagði frá hinni sprengj- unni sem fannst í óskráðri bifreið. Báðar sprengjurnar voru eins, tveir málmhólkar bundnir saman og ein handsprengja í hvorum hólki. Samtök öfgasinna í Portúgal, FP-25, hafa lýst ábyrgð á hendur sér og harmað að sprengjurnar skuli ekki hafa sprungið, en lofað þess í stað að næst muni þeim ekki mistakast. Þessi hópur hefur stað- ið fyrir mörgum bankaránum og pólitískum morðum síðan 1980. EASYWRITER II Ritvinnslukerfið Eayswriter II eða Ritvinnsla II eins og kerfið hefur verið nefnt á íslensku er eitt af örfáum sem hefur verið íslenskað að fullu. Með því er átt við að öll samskipti notandans við kerfið er á íslensku, sem telja verður mikinn kost. I samanburði við önnur ritvinnslu- kerfi s.s. Word er Easywriter II tiltölulega einfalt og auðlært en býður ekki upp á alla sömu möguleika og t.a.m. Word. MARKMIÐ: Tilgangur námskeiðsins er að þjálfa þátttakendur í notk- un ritvinnslukerfisins Easywriter II. Námskeiðið fer að mestu leyti fram með verklegum æfingum sem leystar verða á tölvubúnað SFÍ undir handleiðslu leiðbeinanda. EFNI- ' - Vélbúnaður — Grundvallaratriði við ritvinnslu — Easywriter II skipanir — Easywriter II æfingar — Meðferð skjala — Meðferð búnaðar ÞÁTTTAKENDUR Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem áhuga hafa á að kynnast og þjálfast í notkun Easywriter II. LEIÐBEINANDI: Ragna Sigurðardóttir Guðjohn- sen ritvinnslukennari hjá Stjórn- unarfélagi íslands. Tími — Staður: 19.-21. nóv. kl. 13-17, Síðumúli 23. TILKYNNIÐ ÞATTTÖKU I SIMA 82930. B STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS M&23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.