Morgunblaðið - 31.10.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAG UR 31. OKTÓBER 1984
3
Morgunblaðið/Emilla Bjðrg Bjðrnsdóttir.
Að fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar. Hér sjást þeir Geir H. Haarde, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, og
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri, sem báðir eru í samninganefnd ríkisins, ganga út úr Stjórnarráðshúsinu með
samþykkt ríkisstjórnarinnar um samkomulagið við BSRB.
Ríkisstjómin samþykkir samningana:
Einstaklingar ekki beitt-
ir aga- og bótaviðurlögum
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gær ályktun þess efnis
að ráðherrar hafi ekki uppi áform
um að beita einstaklinga innan
BSRB aga- eða bótaviðurlögum
vegna atvika, sem upp hafa komið í
tengslum við framkvæmd verkfalls
BSRB. Þá samþykkti ríkisstjórnin
að ganga til samninga við BSRB á
grundvelli þeirra samningsdraga
sem lágu fyrir síðdegis í gær.
Ríkisstjórnin kom saman kl.
17.15 í gær. Fjármálaráðherra sat
ekki fundinn, þar sem hann var í
samningaviðræðum við forustu
BSRB í húsnæði ríkissáttasemj-
ara. í hans stað gerðu aðstoðar-
maður hans, Geir Haarde, og
Þorsteinn Geirsson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, rík-
isstjórninni grein fyrir stöðu
samningamála. Ríkisstjórnin
samþykkti síðan að ganga til
samninga við BSRB á grundvelli
þeirra samningsdraga sem þá lágu
fyrir. Vegna ákveðinnar kröfu
BSRB um að fallið yrði frá öllum
eftirmálum vegna verkfallsað-
gerða, ella myndu þeir fella samn-
ingsdrögin, samþykkti ríkisstjórn-
in eftirfarandi ályktun: „Af hálfu
ráðherra innan ríkisstjórnarinnar
eru ekki uppi áform um að beita
einstaklinga innan BSRB aga- eða
bótaviðurlögum vegna atvika, sem
upp hafa komið í tengslum við
framkvæmd verkfalls BSRB.“
Fundi ríkisstjórnarinnar lauk
laust eftir kl. 19.
20 atvinnuleyfum til leigubílstjóra úthlutað:
Átti að úthluta
minnst 30 leyfum
— segir Matthías Bjarnason
„ÉG ER ekki ánægður með úthlut-
un úthlutunarnefndar atvinnuleyfa
leigubifreiðastjóra. Ég tel að hún
hefði að minnsta kosti átt að út-
hluta 30 leyfum í stað 20 eins og
hún gerði,“ sagði Matthías Bjarna-
son, samgönguráðherra, í samtali
við Morgunblaðið.
Matthías Bjarnason sagði
ennfremur, að hann vildi ekkert
annað láta í ljósi en þessa
óánægju sína. Þó vildi hann taka
fram, að við leyfisveitinguna
ætti ekki að fara eftir því frá
hvaða stöðvum menn ækju, held-
ur aðeins því, hvort menn hefðu
aksturinn fyrir aðalstarf og hve
lengi þeir hefðu stundað þessa
atvinnugrein. Leyfisveitingar
ættu að ganga jafnt yfir alla
miðað við þessar forsendur.
Guðmundur Skaftason
hæstaréttardómari
GUÐMUNDUR Skaftason, hæsta-
réttarlögmaður, hefur verið skipaður
hæstaréttardómari frá og með 1. nóv-
ember. Hann er 61 árs, fæddur 18.
desember 1922 að Gerði í Skriðu-
hreppi í Eyjafirði. Guðmundur er son-
ur hjónanna Skafta Guðmundssonar,
bónda að Gerði, og Sigrúnar Sigurð-
ardóttur. Guðmundur varð stúdent
frá Menntaskólanum á Akureyri
1944. Hann lauk prófi frá viðskipta-
fræðideild Háskóla íslands 1948 og
lögfræðiprófi 1952. Löggiltur endur-
skoðandi frá 1960.
Á námsárum sínum starfaði
hann við Skattstofu Reykjavíkur,
en að námi loknu fluttist hann til
Akureyrar og stundaði lögfræði- og
endurskoðunarstörf. Hann var
skattrannsóknarstjóri 1964—67,
var settur dósent við viðskiptadeild
HÍ í skattaskilum 1967, en frá
sama ári hefur hann rekið lög-
fræði- og endurskoðunarskrifstofu
í Reykjavík. Formaður kauplags-
nefndar frá 1967, formaður ríkis-
skattanefndar 1972—79, formaður
Kjaradóms 1971—71 og Kjara-
nefndar frá stofnun hennar til
sama tíma. Skipaður formaður líf-
eyrissjóðs bænda 1978. Guðmundur
var settur dómari við Hæstarétt
starfsárið 1982 til 1983.
Hann er kvæntur Aðalbjörgu
Halldóru Guðmundsdóttur og eiga
þau þrjú börn.
Þorsteinn Geirsson
ráðuneytisstjóri í
dómsmáiaráðuneytinu
ÞORSTEINN Geirsson hefur verið
skipaður ráðuneytisstjóri í
dómsmálaráðuneytinu frá og með 1.
janúar næstkomandi. Þorsteinn
Geirsson er 43 ára gamall, fæddur í
Reykjavík 15. febrúar 1941. Sonur
Geirs Magnússonar og konu hans,
Rebekku Þorsteinsdóttur. Þorsteinn
varð stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1%1 og lauk lögfræðiprófi
frá Háskóla íslands 1966.
Þorsteinn varð fulltrúi hjá Árna
Guðjónssyni hrl. sama ár en réðst
til starfa í fjármálaráðuneytinu
1971. Árið 1974 varð hann skrif-
stofustjóri fjármálaráðuneytisins.
Hann hefur að undanförnu gegnt
embætti ráðuneytisstjóra sjávar-
útvegsráðuneytisins. Þorsteinn var
um tíma formaður Félags ungra
framsóknarmanna.
sébsií5keerðtilk®krI
IYRIR 60ÁRA 0G ELDEI
URVAL ÚTSÝN Samvinnuferdir-Landsýn FLUGLEIDIR
Til að undirstrika enn frekar að Kanaríeyjar eru opnar og „mót-
tækilegar” fyrir alla aldurshópa, efnir Kanaríklúbburinn til sér-
stakrar sólar- og afslöppunarferðar þangað, fyrir eldri borgara.
Ferðin er skipulögð með þarfir eldri borgara í huga og því hefur
félagsmálafulltrúinn Jórir Guðbergsson tekið að sér fararstjórn
ásamt með Auði Sæmundsdóttur, fararstjóra Kanaríklúbbsins
á Playa del Inglés. Þá verður hjúkrunarfræðingur einnig með í för-
inni. Gist verður í 3 vikur, á íbúðarhótelinu Broncémar, sem margur
Kanarífarinn þekkir af góðri þjónustu
í hvívetna. Skoðunarferðir, veislur og
rólegheit skiptast á um að gera eftir-
minnilega ferð að ógleymanlegri.
Flogið verður út í gegnum heimsborg-
ina London og beint heim.
Brottför: 26. nóv.
Heimkoma: 19. des.
VerO pr. mann, m/hálfu fæði.
3 í íbúð kr. 26.100,-
2 í íbúð kr. 28.200,-
1 í íbúð kr. 33.400,-