Morgunblaðið - 31.10.1984, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984
9
Stjóm Hrafnistu Hafnarfirði svo og öllum fjær og nær
þakka ég af alhug viröingu mér sýnda á aldarafmæli
mínu 18. oktöber sl Guð blessi ykkur ölL
Þómnn Bjarnadóttir.
Þakkir
Kærar kveðjur og þakklæti sendi ég öllum þeim, sem
sýndu mér velvild og hlýhug á nítugasta afmælisdaginn
minn 8. október si Guð blessi ykkur öll.
Rannveig Rögnvaldsdóttir,
Hólavegi 12, Sauðárkróki.
r '
Samband ísl. rafveitna Samband ísl. hitaveitna
Vetrarfundur
Sameiginlegur vetrarfundur Sam-
bands ísl. rafveitna og Sambands
ísl. hitaveitna veröur haldinn aö
Hótel Sögu 15. og 16. nóvember.
Raforkufyrirtæki og hitaveitur sem
ekki hafa fengiö í hendur fundar-
boö eru beönir um aö hafa sam-
band viö skrifstofu sambandanna í
síma 91-16811 og 16899 þegar í
staö.
v v
fiumPLfíM
MARKMIÐ:
Markmið námskeiðsins er að gefa stjómendum og öðrum sem starfa við
áætlanagerð og flókna útreikninga innsýn i hvemig nota má tölvur á
þessu sviði, með sérstöku tilliti til þeirra möguleika sem Multiplan
býður.
EFNI:
- Áætlanagerð
- Eftirlikingar
- Flókna útreikninga
- Skoðun ólikra valkosta
- Meðhöndlun magntalna jafnt og krónutalna.
Námskeiðið krefs ekki þekkingar á tölvum.
PÁTTTAKENDUR:
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja tileinka sér þekkingu á forritinu
Multiplan.
LEIÐBEINANDI:
Valgeir Hallvarðsson vél-
tæknifræðingur. Lauk prófi (
véltæknifræði frá Odense
teknikum 1978, en starfar nú
sem rekstrarráðgjafi hjá Hag-
vangi h/f.
5.-7. nóv. kl. 9—13. Síðumúla 23.
TIIKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
ATH.: Verslunarmannafélag Reykjavíkur og starfs-
menntunarsjóðir SFR og STRV styrkja félagsmenn
sína til þátttöku á þessu námskeiði. Upplýsingar gefa
viðkomandi skrifstofur.
vSTJÓRNUNARFÉLAG
Sk ÍSIANDS iiwæc^,23
Dreifibréf
krata
Á meðan á verkfalli
póstmanna stóð aendu
þingmenn Alþýðuflokksins
í Reykjavík félagsmönnum
í flokknum áminningar- og
hvatningarbréf sem dreift
var í umslagi frá AlþingL
Staksteinum er ekki Ijóst
hvernig dreifingin var
framkvæmd en bréfið, sem
er undirritað af þeim Jóni
Baldvin Hannibalssyni og
Jóhönnu Sigurðardóttur, er
dagsett 4. október og hefst
á þessum orðum:
„Verkfall opinberra
starfsmanna tekur smám
saman á sig mynd allsherj-
arverkfalls. Þjóðlífið lam-
ast Upplýsingamiðhin er
rofin. Fréttir berast aðal-
lega f formi kviksagna.
Eitt er Ijóst: Stjóraar-
stefnan er hrunin. Rfkis-
stjórain riðar til falls.
Kosningar geta verið á
næsta leiti. Hvað vilja Al-
þýðufiokksmenn gera
núna strax, til að leysa
bráðan vanda? Hver eru
okkar úrræði — til lengri
tfma litið?“
Því miður hafa þing-
mennirnir tveir ekki svör á
reiðum höndum við þess-
um brennandi spurningum
en segja að til þess að
svara þeim ætli kratar að
hittast á ákveðnum stað og
á tilgreindri stund. En
hvernig horfa þessi mál við
nú fjórum vikum efiir að
alþýðuflokksfólk í Reykja-
vfk var hvatt til að fjöl-
menna til umræðna um
stjórnmál á þeim forsend-
um að ríkisstjórain riðaði
tU falls?
1 fyrsta lagi var komið í
veg fyrir að upplýsinga-
miðhrn rofnaði með þvf að
einstaklingar tóku sér fyrir
hendur að stunda útvarps-
sendingar. Alþýóuflokks-
menn á Alþingi hafa ráðist
harkalega gegn því fram-
taki undir forystu Eiðs
Guðnasonar, þingflokks-
formanns. í öðru lagi lam-
aðist þjóðlífið ekki þótt
ýmislegt gengi að vísu
hægar eftir að þúsundir
opinberra starfsmanna
lögðu niður störf. í þriðja
Jón Baldvin
lagi tókst að brjóta lokun
fréttamiðlunar f hijóðvarpi
ríkisins á bak aftur og
sporna þannig við kviksög-
um þótt lögreglan lokaði
frjálsu útvarpL
Nú er að sjá hvernig
stjóraarflokkarnir ætla að
bregðast við eftir að opin-
berum starfsmönnum og
öðrum launþegum hefur
tekist að sveigja efnahags-
stefnu ríkisstjórnarinnar
þó nokkuð af þeirri braut
sem mörkuð var f byrjun
september með samkomu-
lagi Þorsteins Pálssonar og
Steingrfms Hermannsson-
ar um nýjan verkefnalista
fyrir ríkisstjóraina. Verður
fróðlegt að fylgjast með því
hvernig Alþýðuflokkurinn
ætlar að bregðast við hinni
nýju stöðu. Ætlar hann al-
farið að skipa sér f fylkingu
með Alþýðubandalaginu
eins og Sighvatur Björg-
vinsson, fyrrum þingmaður
flokksins, vill? Eða ætlar
har.n að sýna þá ábyrgð
sem fyrr á árum að
minnsta kosti veitti flokkn-
um meiri áhrif og völd en
stærð hans og fylgi í sam-
anburði við aðra?
Jóhanna Sigurðardóttir
Vinstri villan
Vinstri villan hefur leik-
ið krataflokka grátt vfða
um norðanverða Vestur-
Evrópu á liðnum árum. Þar
hefúr mest borið á tvf-
skinnungi forystumanna í
öryggis- og varnarmáhim,
hafa þeir jafnvel bopað frá
eigin ákvörðunum f von
um að lausunginn skilaði
sér f meira fylgi meðal
kjósenda. Reynslan hefúr
þó yfirleitt verið allt önnur
svo sem sjá má í Bretlandi,
V estur-Þýskalandi og
Danmörku til að þrjú
dæmi séu nefnd. Nú er svo
komið fvrir formanni
breska Verkamanna-
flokksins, Neil Kinnock,
að hann á fullt í fangi með
að sverja af sér stuðning
við Arthur ScargilL leiðtoga
námuverkamanna, eftir að
upplýst er að Scargill og fé-
lagar þiggja fé frá Khad-
afy, Lfbýuleiðtoga, sem al-
ræmdur er fyrir stuðning
við ofbeldismenn um vfða
veröld. Ekki eru nema fá-
einar vikur liðnar frá þvf
að Scargill var fagnað sem
flokkshetju á þingi breska
Kjartan Jóhannsson
Verkamannaflokksins og
þar lýstu menn stuðningi
við hann og baráttu námu-
manna gegn bresku lög-
reglunnL
Hér á landi hafa svokall-
aðir ungir jafnaðarmenn
um langt árabil talið það
sér helst til ágætis að þeir
fetuðu f fótspor hinna
vinstri sinnuðustu f hópi
vestur-evrópskra jafnað-
armanna, þetta telja þeir
sig jafnan sýna best með
þvf að vera á móti aðild
Islands að Atlantshafs-
bandalaginu og varnar-
samningnum við Bandarík-
in.
Þessi skoðun var ftrekuð
á 36. þingi Sambands
ungra jafnaðarmanna sem
haldið var á dögunum. í
ályktun um utanrfkismál
eru það samanburðarfræð-
in sem ráða ferðinni,
Bandaríkin og Sovétríkin
eru lögð að jöfnu og síðan
komist að þeirri niðurstöðu
að Bandaríkjastjórn sé ívið
verri, grimmari og her-
skárri en Kremlverjar, á
þessum forsendum er svo
hvatt til þess að rfki Evr-
ópu „losi sig úr ógnarklóm
risaveldanna".
Umbrot í Alþýðuflokki
Töluveröar sviptingar eiga sér staö innan dyra í Alþýöuflokknum
um þessar mundir enda eru menn þar aö búa sig undir langþráö
flokksþing þar sem ýmsir vilja láta Kjartan Jóhannsson víkja úr
formennsku. Líkur á því aö þaö gerist fara minnkandi aö sögn
kunnugra. Þá er tekist á um það hvort kratar eigi aö stefna til hægri
eöa vinstri og síðast en ekki síst vekja skoöanakannanir sem sýna
hrun Alþýöuflokksins vaxandi ugg. í Staksteinum í dag er skyggnst
inn í flokkinn og meöal annars minnt á vinstrimennsku ungra
jafnaöarmanna.
n AMCI Jeep
Eigendui
Vetuiinn ei genginn í gcnö.
Fyríibyggiö óþœgindi.
Mótorstillum.
Yfirförum bílinn og bendum á hvaö
þurfi aö lagfœra.
Mótorstilling dregur verulega úr
bensíneyöslu.
Pantiö tíma hjá veikstjóia í
síma 77756 og 77200
YFIR HÁLFA ÖLD
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiöjuvegi 4c - Kópavogi