Morgunblaðið - 31.10.1984, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 31.10.1984, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984 Tekið svari Þör- ungayinnslunnar — eftir Játvarð Jökul Júlíusson Þörungavinnslan á Reykhólum hefur verið látin í friði í nokkur misseri undanfarið. En Adam var ekki lengi í Paradís. 30. ágúst síð- astliðinn var hafið á hana aldeilis flott skítkast. Það átti aldeilis ekki að fara leynt, enda var því valinn vettvangur í leiðara DV, sem þýðir það, að dáindinu er bæði dreift á prenti og skellt í hlustir alþjóðar í Ríkisútvarpinu daginn eftir, 31. ágúst. Margir hafa einhvern tíma á ævinni rek- ist á einn og einn illa upp alinn pðrupilt og iðjuleysingja, sem hent hefur grjóti, skít og snjó í fólk og farartæki. En undantekn- ingarlítið hafa þannig gemsar vaxið upp úr brekum sínum, mannast og orðið skammlaust fólk á endanum. Þessu virðist því miður ekki ætla að verða að heilsa um Jónas ritstjóra Kristjánsson á DV. Ár út og ár inn er hann við sitt „hey- garðshorn", sísífrandi og sí- gjammandi í alla í sveitum og smáplássum. Gildir nærri einu hvort fólk á skepnur eða er svo óskammfeilið að vinna við togara í litlu sjávarplássi. Allt segir hann það „gengið í gildru byggðastefn- unnar". Og nú fékk Þörungavinnslan sinn skammt af þessu andlega „fíniríi". „Þörungaverksmiðja var reist ... til að vernda byggð í Austur- Barð. Rekinn var verkfræðingur- inn sem reiknaði út að hún gæti ekki borið sig..starfrækt með harmkvælum og vafasömum bjargráðum. ... búseta heima- manna vernduð ... með því að láta þá hafa vinnu í hinni lánlausu verksmiðju. ... Þeir hokra enn í sveitinni og skipta við kaupfélagið ... þótt hagur þeirra væri nú mun betri ef þeir hefðu ... flutt á möl- ina.“ Þar næst ælir hann upp land- búnaðartuggunni sinni og jórtrar í erg og gríð, smakkast eins og best gerist á þriggja stjörnu veit- ingastöðum úti í stórborgum heimsins. Smekkmaður og þjóð- legur fyrr og síðar. BrautryÖjendaverk Þörungavinnslan er fyrirtæki sem landsmenn geta að ýmsu leyti verið nokkuð stoltir af. Nær allt sem til hennar þurfti var óreynt hér og þurfti því að þreifa sig áfram til að byrja með. Það er svo sem nógu álitleg á pappírnum sú regla, að allt skuli vera sannpróf- að og reiknað út fyrirfram. Hvað sem hver segir hlaut eitt og annað að koma betur í ljós, liðkast, skýr- ast og fullkomnast, enda varð sú raunin. Þetta á bæði við tækin og aðferðirnar við að afla þangs.us og þarans og í annan stað tækin og aðferðina við að þurrka með heitu vatni. Enn er að nefna þriðja mikilsverða atriðið, markaðina. Forsenda þess að byrjað var, var samningur við Skota um að þeir keyptu í tíu ár. Nú selur Þörunga- vinnslan eftirsótta gæðavöru víðs vegar um heim, heilnæmt og hreint hráefni sem kaupendurnir hafa sannreynt að er í allra fremstu röð sinnar gerðar. Þessi breiðfirska vinnustöð, Þörungavinnslan í Karlsey á Reykhólum, hefur borið hróður lands og þjóðar land úr landi. Og Jónas ritstjóri kallar hana „lán- lausa verksmiðju". Lánlegt sálar- líf hjá þeim manni. Blákaldur veruleikinn Sérhver ókunnugur sem les 70 króna þræla grein DV fær skýra mynd fyrir hugarsjónir. „Búseta heimamanna vernduð gegn svo- kallaðri „röskun" ... til að fólk geti unnið fyrir 70 kr. á tímann og safnað skuldum í kaupfélaginu, — í stað þess að ganga á vit frelsisins í stöðum á borð við Reykjavík." Ókunnugir sem trúa sjá fyrir sér sveitafólk sem akkað hefur verið saman í „gildru byggða- stefnunnar". Veruleikinn á Reyk- hólum er sá, að þangað flutti fólk víða að, hvað helst að sunnan. Að- flutta fólkið hefur ýmist verið lengur eða skemur, komið undir sig fótunum, sumt farið aftur, annað byggt yfir sig og sest um kyrrt. Vitanlega hefur fólk í nærsveitunum líka notað sér að- stöðuna og atvinnuna. Síðan Þör- ungavinnslan komst á laggirnar hafa verið byggð yfir 20 íbúðarhús á Reykhólum. Ekki eitt einasta auglýst undir hamar sýslumanns í Lögbirtingi. Hveravatnið sem hitar þau ódýrara en í sjálfri Reykjavík. Bú- ið að byggja skóla og heilsugæslu- stöð og verið að byggja elliheimili. Og það liggja víðar þræðir frá um- svifum Þörungavinnslunnar en Játvarður Jökull Júlíusson „Síöan Þörungavinnsl- an komst á laggirnar hafa verið byggö yfir 20 íbúöarhús á Reykhól- um. Ekki eitt einasta auglýst undir hamar sýslumanns í Lögbirt- ingi.“ um byggðina á Reykhólum. Það hafa líklega verið „70 króna þræl- ar“ sem stofnuðu nýtt skipafélag og sóttu sér eigulegt flutningaskip til Noregs. Þó líður líklega engum betur í „gildru byggðastefnunnar" en þangskurðarmönnunum. Skarðsstrendingar, Hvammsfi- rðingar, Eyhreppingar, Múlsveit- ungar, Gufsarar og Reykhóla- sveitungar, sem kunna að slá þangið, róta upp peningum sumir í sumarfríum, aðrir, sveitamenn- irnir, í ígripum, fái þeir pramma þegar veðráttan er hliöholl. Menn leggja sig fram hver sem betur getur. Ekki gæti ég láð þeim þótt þeir gæfu DV langt nef. Þangið sprettur að nýju á 3—4 árum. Reynist sumum þéttvaxnara og þyngra þegar slegið er í annað sinn. Æ fleiri þangbændur, eig- endur eða ábúendur þangjarða, taka ekki framar í mál að láta aðra slá hjá sér, heldur slá þangið sjálfir og selja, fá bæði þangtöku- gjaldið og ákvæðisverðið fyrir þangið. Jarðir þeirra liggja áreiðanlega ekki á lausu og bændur á þeim eða umráðamenn þeirra una vel sínum hlut í „gildru byggðastefnunnar". Lokaorð Á vissan hátt er gott að tæki- færi gafst til að vekja nokkra at- hygli á merkilegri nýjung í ís- lensku atvinnulífi. Enn er þetta ekki nema álitleg byrjun sem lofar góðu. Þótt hér hafi verið tekið svari Þörungavinnslunnar gagnvart einhæfri og illkvittinni gagnrýni, allt að því rógi, þá er ekki þar með sagt að ekki þurfi að gera betur á þeim bæ. Fyrr eða síðar ber að færa út kvíarnar, sæta færi að fjölga vinnslurásum, komast á spor ein- hverrar úrvinnslu eða nýrrar framleiðslu hvort heldur er á þör- ungasviðinu eða öðru sviði breið- firsks lífríkis. Slíkt „liggur í eðli dugmikils menningarsamfélags" og getur víðar gerst en á Reykja- víkursvæðinu ef rétt er á haldið. Það er til dæmis ekkert óhagg- anlegt lögmál að fyrirtæki á borð við Þörungavinnsluna verði ríkis- eign um aldur og ævi. Hinu er alveg óhætt að slá föstu, það hefur Þörungavinnslan sannað, að þegar tækifæri bjóðast, á hiklaust að „byggja verksmiðjur ofan á hinn hefðbundna landbún- að“, umfram allt með almennri þátttöku í sveitunum, hvort held- ur það er Jarðefnaiðnaður á Suð- urlandi, Dalaleir í Búðardal, eða einhver enn annar vettvangur fyrir duglegt fólk til að bjarga sér á. Játrarður Jökull Júlíusson er bóndi í Miðjanesi og rithöíundur. Umferðin í yetrarbyrjun — eftir Valgarð Briem Á sl. vori ritaði ég nokkur orð í Morgunblaðið til þess að vara við því, að sá góði árangur, sem á sl. ári, hinu Norræna umferðarör- yggisári, náðist í fækkun slysa, kynni að verða til þess að vekja hjá mönnum falskt öryggi i um- ferðinni og draga úr aðgæslu og varúð. Benti ég á að þegar hlið- stæður árangur hefur náðst í um- ferðarslysavörnum hér á landi síð- ustu áratugi, hefur varla brugðist að slysum hefur verulega fjölgað árið eftir, jafnvel nokkuð fram yf- ir það sem var fyrr. Því er nú verr að þessi ótti hefur ekki verið ástæðulaus. Umferð- arslys nú í vetrarbyrjun eru veru- lega fleiri frá áramótum en á sama tíma í fyrra. Er þá sama hvort hliðsjón er höfð af slysatöl- um Umferðarráðs eða þeim sem spítalar og sjúkrastofnanir færa. Þeir sem vinna að bættri og slysaminni umferð hér á landi hafa tapað. Umferðin er hættu- legri en fyrr. Þeirri staðreynd verður ekki hrundið. Þetta er þeim mun sorglegra þegar haft er í huga að ýmsar um- bætur, sem gerðar voru á gatna- kerfi Reykjavíkur og vegakerfi landsins á sl. ári til þess að draga úr slysum, eru enn í fullu gildi. Hefi ég þá sérstaklega í huga upp- hækkanir á ýmsum götum höfuð- borgarinnar og annarra bæja og aðrar hliðstæðar aðgerðir, sem sannanlega draga verulega úr hraða, þar sem hann áður var óhóflegur. Þetta nægir bara ekki. Meira þarf til að koma og í hönd fer myrkrið, hálkan og ófærðin. Hvernig erum við undir það bú- in að mæta þeirri stórauknu slysa- hættu, sem þessu fylgir? Ef allt fer sem horfir, má vænta þess að 1984 verði með mestu slysaárum í umferð frá upphafi. Það segir sig sjálft að þeir, sem vinna að því að auka umferðarör- yggi og varna umferðarslysum, líta ekki þessar staðreyndir og horfur sérstökum ánægjuaugum. Umferðarráð hefur sótt um aukn- ar fjárveitingar til meira fræðslu- starfs og aukins áróðurs. Þessum umsóknum er svarað á þá leið að eins og ári hjá þjóðinni sé naumast að vænta aukins fjár. Umferðarráð verður því að gera sem mest úr því sem það hefur og treysta á skilning og samvinnu vegfarenda, akandi og gangandi. Þó er einn þáttur slysavarna þar sem engum árangri verður náð nema með peningum. Ná- grar.nar okkar á Norðurlöndum hafa fyrir löngu komið sér upp æf- ingasvæðum í hálkuakstri. Hér er hvergi unnt að þjálfa ökumenn í viðbrögðum við hálku. Umferðar- ráð hefur sótt um land í hrauninu fyrir sunnan Hafnarfjörð fyrir slíkt svæði. Bæjaryfirvöld í Hafn- arfirði hafa sýnt málinu skilning og velvilja og leyft gerð slíks svæðis. Fjármagn vantar. Nú þegar á þessu hausti hafa orðið alvarleg slys vegna óvæntrar og skyndilegrar hálku. Óhætt er að fullyrða að ef hægt hefði verið að koma í veg fyrir þau, hefði sparast meira en sem nemur kostnaði við gerð æfingasvæðis- ins. Engum sem til þekkir bland- ast hugur um að slík svæði eru þjóðhagslega hagkvæm og góð fjárfesting. Hálkan gerir yfirleitt ekki boð á undan sér og þjálfun f ósjálfráðum viðbrögðum getur komið í veg fyrir stórkostleg slys. Umferðarráð mun vinna að þessu máli á næstu mánuöum og væntir góðrar samvinnu við einstaklinga og félög sem láta sig varða bætt umferðaröryggi. Ekki kor.tar allt peninga sem til Valgarð Briem „Nágrannar okkar á Nordurlöndum hafa fyr- ir löngu komið sér upp æfingasvæðum í hálku- akstri. Hér er hvergi unnt að þjálfa ökumenn í viðbrögðum við hálku. Umferðarráð hefur sótt um land í hrauninu fyrir sunnan Hafnarfjörð fyr- ir slíkt svæði. Bæjaryf- irvöld í Hafnarfirði hafa sýnt málinu skilning og velvilja og leyft gerð slíks svæðis. Fjármagn vantar.“ Morgunblaöiö/Guöfinnur SÍLDARSTEMMNING hefur ríkt í Grindavík undanfarnar vikur. Það hefur verið unnið dag og nótt við söltun og frystingu og hafa heimamenn og fjölmargir aðkomumenn haft meira en nóg að gera. bóta horfir, svo er fyrir að þakka. Upplýsingar berast hingað til lands um það að sú ákvörðun að leggja refsingar við því að nota ekki öryggisbelti í bílum hafi í mörgum löndum leitt til fækkunar slysa. Læknablöð i Englandi upplýsa að þar í landi hafi dauðaslysum og slysum með alvarlegum meiðslum af þessum sökum fækkað um fjórðung, enda noti 95% öku- manna þar í landi nú beltin. Okkur íslendingum gengur illa að læra. Þó fjölgar fréttum af því að bílbelti hafi hér á landi bjargað lífi ökumanna eða forðað stórslysi, þegar óhapp hefur borið að hönd- um. Vitneskjan um það dugar þó skammt í baráttunni við tómlætið. Við ættum ekki miklu lengur að draga að fara að fordæmi þeirra, sem stigið hafa skrefið til fulls. Nefnd sú sem á vegum Umferð- arnefndar Reykjavíkur kannar umferðaröryggi á götum í ná- grenni barna- og unglingaskóla borgarinnar hefur m.a. lagt til að allvíða verði settar upphækanir á götur. Nokkrar þeirra hafa þegar verið samþykktar í Umferðarnefnd og settar upp á þessu hausti. Sumir ökumenn hafa kvartað undan þessum aðgerðum, telja þær óþarfar og draga um of úr eðlilegum ökuhraða. í því sam- bandi skulum við minnast þess að hindranir þessar eru fyrst og fremst upp settar til verndar yngstu vegfarendunum. Heilar borgir sem sprengdar hafa verið í rúst má byggja á ný á skömmum tíma, en líf og limi lítils barns, sem dáið hefur eða lamast í umferðarslysi, er aldrei hægt að bæta hvað sem í boði er. Við getum gjarnan lagt á okkur nokkur óþægindi til vemdar þeim verðmætum. Reykjavík, 22.10. 1984. Valgarð Briem er hæstaréttarlög- maður og formaður Vmferðarráðs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.