Morgunblaðið - 31.10.1984, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984
Sinnaskipti í
Norður-Kóreu
Peking, 30. október. AP.
KIM II Sung, forseti Noröur-Kóreu, er áhugasamur um að bæta
samskiptin við Suður-Kóreu og Bandaríkin og býður meira en
velkomna erlenda fjárfestingu
Segir frá þessum sinnaskiptum
í dag.
Kim II Sung, sem nú er 72
ára að aldri, tók í gær á móti
kínverskum sendimönnum í
Pyongyang, höfuðborg Norð-
ur-Kóreu, en þá var þess
minnst, að 34 ár eru liðin frá
þátttöku Kínverja í Kóreu-
stríðinu. Málgagn kommún-
istaflokksins í Norður-Kóreu
birti ræðu forsetans á forsíðu
og kvað þar við nýjan tón og
hófsamari. Lét hann falleg orð
falla um Suður-Kóreumenn
Hussein til
Sovétríkjanna
og samstarf „við allar þjóðir“.
í kínverskum fréttastofufregnum
fyrir að þeir skyldu hafa tekið
við neyðarhjálp frá Norðan-
mönnum og um þá ákvörðun
beggja ríkisstjórnanna að ræð-
ast við um efnahagsmál. Kim
hvatti einnig til erlendrar fjár-
festingar í landinu og sagði
Norður-Kóreumenn vilja hafa
samstarf við allar þjóðir.
Sinnaskipti ráðamanna í
Norður-Kóreu má rekja til
ferðar forsætisráðherra lands-
ins um Kína í sumar er leið. Þá
skoðaði hann verksmiðjur, sem
þar hafa verið reistar fyrir er-
lent fé, og kynnti sér aðrar
framkvæmdir, sem unnið er að
í samvinnu við útlendinga.
m
AP/símamynd.
Brosmildar fegurðardfsir
Þessar brosmildu stúlkur urðu í efstu
þremur sætunum í fegurðarsamkeppni ung-
kvenna í Yokohama í gærkvöldi. I miðið er
sigurvegarinn, ungfrú Ilma Julieta Urruta
frá Guatemala, til hægri er Mariam Leid-
erman frá Venezúela, sem varð í öðru sæti,
og til vinstri er sænska stúlkan Gunilla
Maria Kohlström, sem varð þriðja.
Kuwait, 30. oklóber. AP.
HAFT var eftir Hussein Jórdaníu-
konungi í dag, að hann færi innan
skamms til Sovétríkjanna til að
festa kaup á ótilteknum tegundum
vopna og til að ræóa deilur Araba og
ísraela.
Bandaríkjamenn hafa neitaö aö
selja Hussein hinar svokölluðu
Stinger-loftvarnaflaugar, sem
hann hefur falast eftir, en hann
tók fram, að för hans táknaði ekki
stefnubreytingu í utanríkismálum
að því er varðaði Sovétríkin.
Hussein sagði: „Jórdanía mun
halda áfram að eiga skipti við evr-
ópska vini sína, einkum Breta og
Frakka, þegar um það er að ræða
að efla varnir landsins, enda þótt
við reynum einnig að verða okkur
úti um vopn í Sovétríkjunum."
Hitamál f Norðursjó:
Argentínumenn söfnuðu
saman hlustunarduflum
Lundúnum, 30. október. AP.
HITAMÁL ER upp komið í Bretlandi vegna sölu Vestur-
Þjóðverja á kafbátum til Argentínumanna. Upp úr hefur soð-
ið, eftir að argentískir skipherrar voru sagðir hafa tekið um
borð bresk kafbátaleitartæki sem breskar Nimrod-þotur
vörpuðu í Norðursjó til að fylgjast með er skipherrarnir
reynslusigldu bátunum.
í fyrstu var sagt, að vestur
þýskir tæknimenn hefðu aðstoðað
Argentínumennina við að ná
tækjunum um borð, en Þjóðverj-
ar hafa neitað með öllu að hafa
skipt sér af því. Þetta kom allt
fram í vikuiegu varnarmálatíma-
hafi þvegið hendur sínar af at-
burðinum, hafi þeir ekki treyst
sér til að segja frá því hvernig
Argentínumennirnir náðu
hlustunarduflunum um borð
hjálparlaust og hvort þeir hafi
náð þeim í raun og veru.
Þotur af gerðinni DC-8 eru í hópi flugvélategunda sem ekki munu standast hávaðareglur Norðmanna nema
skipt verði um hreyfil í þeim eða settur á þær sérstakur hljóðdeyfibúnaður.
Norðmenn takmarka
flugvélahávaða 1987
NORÐMENN hafa ákveðið að
takmarka leyfílegan hávaða frá
flugvélum frá og með 1. janúar
1987, en samskonar reglur ganga
samtímis í gildi í löndum Evrópu-
bandaiagsins. Reglur af þessu tagi
ganga í gildi í Bandaríkjunum um
næstu áramót.
Samkvæmt þessu verður mesti
leyfilegi hávaði í flugtaki að vera
97 desibel 450 metra frá miðlínu
flugbrautar. Reglur um flugvéla-
hávaða í Noregi leyfa nú allt að
102 desibela hávaða í 650 metra
fjarlægð frá flugbrautarmiðju.
Akvörðun Norðmanna og EB
mun einkum koma niður á flug-
félögum frá ríkjum þriðja
heimsins og austantjaldslöndun-
um. Mörg flugfélög á Vestur-
löndum eiga einnig flugvélar,
sem uppfylla ekki nýju hávaða-
kröfurnar.
Af vestrænum flugvélategund-
um eru það einkum flugvélar af
gerðinni Boeing 707, Douglas
DC-8, sumar elztu gerðirnar af
DC-9, og eldri gerðir af
Boeing-727, -737 og -747-þotum,
sem standast ekki hávaðaregl-
urnar. Til þess að komast hjá því
að leggja þeim verða flugfélög
annaðhvort að setja á þær nýja
og hljóðlátari hreyfla eða sér-
stakan hljóðdeyfibúnað. Síðari
valkosturinn virðist vænlegri í
mörgum tilvikum, en þó mun
enn ekki hafa verið framleiddur
nægilega góður hljóðdeyfibúnað-
ur fyrir sumar flugvélategund-
anna.
Að ákvörðun Norðmanna eru
þeir tilbúnir til að veita flugfé-
lögum frest til ársloka 1988 að
aðlaga sig að hinum nýju háv-
aðatakmörkunum, en þá aðeins
gegn loforðum að flugvélum hafi
verið breytt fyrir lok umþóttun-
artímans.
Sterling Airways er eina
skandinavíska flugfélagið, sem
hávaðareglur Bandaríkjamanna
bitna á um næstu áramót, en fé-
lagið notar DC-8-flugvélar í
leiguflugi sínu milli Skandinavíu
og Bandaríkjanna. Sterling hef-
ur ásamt um eitt hundrað flug-
félögum öðrum sótt um undan-
þágu frá reglunum en verið synj-
að. SAS og Braathens munu
þurfa að breyta mörgum
DC-flugvélum sínum og Boeing
737 til þess að þær fái að fljúga
1987. Hafa bæði flugfélögin þeg-
ar pantað hljóðdeyfibúnað fyrir
viðkomandi flugvélar.
riti sem kemur út í Bretlandi. Þar
segir einnig, að þó Þjóðverjar
■ ■■
ERLENT,
Talsmaður breska varnarmála-
ráðuneytisins, sem ekki lét nafns
getið, sagðist ekki vilja tjá sig um
málið, en öruggt væri að það yrði
kannað ofan í kjölinn, enda verið
heitt í kolunum milli Argentínu
og Bretlands síðan í Falklands-
eyjastríðinu 1982. Vestur-Þjóð-
verjar selja Argentínumönnum
einnig herskip og hafa Bretar
jafnan litið það hornauga, sér-
staklega eftir fyrrgreindan ófrið.
Járntjaldið:
Unglingur í kúlna-
hríð slapp í frelsið
Berlín, 30. oklóber. AP.
17 ÁRA austur-þýskur flóttamaður
vippaði sér yfir gaddavírsklædda
veggi Berlínarmúrsins í kúlnahríð í
dag og komst lítt meiddur til Neu-
koelln-hverfisins fyrir vestan múr-
inn.
Lögregluyfirvöld í Vestur-Berl-
ín vildu ekki skýra frá nafni pilts-
ins, en hann hefur beðið um hæli
sem pólitískur flóttamaður. Afrek
hans þykir með ólíkindum. Eigi er
vitað með hvaða hætti hann komst
fram hjá tálmum áður en hann
kleif síðasta vegginn, en vitni urðu
að því er hann tók síðasta sprett-
inn og austur-þýskir landamæra-
verðir reyndu mjög að fella hann
með vélbyssuskothríð. Ein kúla
straukst við fót piltsins, en að
öðru leyti sakaði hann ekki.
Japanir gómuðu
sovéskan togara
Tókýó, 30. oklóber. AP.
JAPANSKT strandgæsluskip góm-
aði í dag sovéskan togara norður af
Hokkaiodo og var hann færður til
hafnar. Þar var skipstjórinn kærður
fyrir að hafa ekki fært í dagbók
skipsins að hann hefði skipað sard-
ínuafla skipsins daginn áður um
borð í verksmiðjuskip.
Þetta var fimmti sovéski togar-
inn sem japanska gæslan nælir í
innan japanskrar lögsögu það sem
af er þessu ári og sá 15. síðan 1977
er Japan færði út í 200 mílur efna-
hagslögsögu sína. í alþjóðlegum
samningum er kveðið á um
ákveðnar skyldur skipstjóra varð-
andi færslur í dagbækur skipa.
Mikið er um brot af því tagi sem
hér um ræðir. Sovétmenn hafa
margsinnis stöðvað japanska tog-
ara og fiskibáta og kært skipstjór-
ana fyrir sams konar brot.