Morgunblaðið - 31.10.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984
23
Chile:
Mikil og vaxandi
ólga í Santiago
SantÚMio, Chilo. 30. október. AP.
Andspyrnumenn standa á flaki sovéskrar þyrlu sem þeir hafa skotið niður.
Afganistan:
Andspyrnumenn grönduðu
þremur sovéskum þyrlum
Nýju-Delhí. 30. október. AP.
FREGNIR HERMA, að afganskir andspyrnumenn hafi skot-
ið niður þrjár sovéskar herþyrlur í síðustu viku. Þá fórst
sovésk herflutningaþota, en um borð voru 270 sovéskir her-
menn. Eigi er vitað hvort andspyrnumenn grönduðu þotunni,
en sterkur grunur leikur þar á. Og ekki er vitað um afdrif
hermannanna sem um borð voru. Einnig er talinn vera mögu-
leiki á því að þotan hafi lent í árekstri við aðra flugvél sem
var að fiytja unga Afgani til Sovétríkjanna.
AÐ MINNSTA kosti 18
sprengjur sprungu í Santiago,
höfuðborg Chile og fjórum
borgum öðrum, er tveggja
daga mótmælaaðgerðir gegn
stjórnvöldum hófust. Þá voru
mikil og fjölmenn mótmæli á
Morðingjar
líflátnir
Hunlsvilte, Texmu. 30. október. AP.
TVEIR morðingjar voru teknir af lífi í
dag, annar í Huntsville, hinn í Louisi-
ana. í Huntsvilie var líflátinn Thomas
Andy Barefoot, 39 ára gamall, og í Lou-
isiana Ernest Knighton, 38 ára gamall.
Þar með hafa 28 dæmdir morð-
ingjar verið líflátnir í Bandaríkjun-
um síðan dauðarefsing var þar inn-
leidd í nokkrum ríkjum á ný árið
1976. I vikunni á að taka af lifi í
rafmagnsstólnum í Norður-Karólínu
Wilmu Barfield, fyrstu konuna í 22
ár.
Zola Budd
kyrr í
S-Afríku?
Jóhannenarborg. AP.
HLAUPAKONAN Zola Budd,
sem vakti mikla athygli og umtal
á Ólympíuleikunum í Los Angeles
vegna atviksins í 3000 metra
hlaupi kvenna, ætlar ekki að snúa
aftur til Bretlands. Hún fékk í
skyndi breskan ríkisborgararétt
til að geta tekið þátt í Olympíu-
leikunum.
Frétt þessa efnis var birt í
Suður-Afríku nýlega og sagt að
hún vildi vera um kyrrt hjá
heilsuveilli móður sinni. Móðir
Zolu sagði svo fréttamönnum,
að ekkert hefði verið ákveðið í
þessu máli og dóttir sín yrði að
gera sjálf upp hug sinn í því.
Zola Budd fékk breskan ríkis-
borgararétt með aðeins tíu
daga fyrirvara vegna atbeina
skyldmenna sem eru breskir.
Það mæltist hins vegar mjög
misjafnlega fyrir hjá breska
íþróttafólkinu og var þá talað
um að þetta gæfi fordæmi og
fleiri suður-afrískir íþrótta-
menn gætu með þessu móti
„smyglað" sér inn í íþróttamót,
sem Suður-Afríku er bannað að
taka þátt í.
götum úti og til átaka kom
milli óbreyttra borgara og
hermanna sem kallaðir voru
út til að leysa upp fundar-
höld.
Augosto Pinochet, forseti her-
stjórnarinnar í landi, brást hinn
versti við aðgerðum fólksins, rak
140 pólitíska fanga í útlegð og
kallaði þá ótýnda glæpamenn,
skellti aukinni ritskoðun á dag-
blöð og kallaði út þúsundir lög-
reglu- og hermanna til að berja á
fólkinu. Talsvert var um að fólk
hlyti skrámur af völdum her-
manna og lögreglumanna, en
engan sakaði alvarlega.
Reiknað var með því að ekki
yrði lát á sprengingum, enda hef-
ur ólga farið vaxandi. Sprengj-
urnar sem um ræddi skemmdu
raflínur, opinberar skrifstofur,
banka og járnbrautir.
Indónesía:
Sprenging
í skotfæra-
geymslum
Jakarta, Indónesíu, 30. október. AP.
MÖRG tonn af sprengjum,
handsprengjum og skotfærum
sprungu í nótt upp í skotfæra-
geymslum indónesíska hersins
fyrir sunnan höfuðborgina Jak-
arta. A.m.k. 25 manns létu lífið
og um 100 slösuðust.
Hermenn girtu af svæðið
umhverfis skotfærageymsl-
urnar en svo öflugar voru
sprengingarnar, að gluggarúð-
ur skulfu í allt að 30 km fjar-
lægð. Fyrstu fregnir hermdu,
að eldur hefði orðið laus í
herstöðinni og hann síðan
komist í skotfærin. Upptök
hans eru ekki ljós, en grunur
leikur á, að um skemmdarverk
hafi verið að ræða.
í allt að 10 km fjarlægð frá
skotfærageymslunum rigndi
niður sprengikúlum, sem flest-
ar voru ósprungnar, og fólk
sem bjó nær þeim, flýði í
dauðans ofboði þegar húsin
Iöskuðust eða hrundu vegna
loftþrýstingsins. Haft er eftir
embættismönnum, að þetta sé
í annað sinn á árinu, sem eld-
ur brýst út í herstöðinni.
Andspyrnumennirnir hafa
haft sig mikið í frammi upp á
síðkastið, þannig hafa þeir auk
þessa sem á undan er getið gert
fjölda fyrirsátra og eldflauga-
árása á stöðvar afganska stjórn-
Seoul, 25. október. AP.
LEE WON-Kyung utanríkisráðherra
Suður-Kóreu sagði þá ákvörðun
Norður-Kóreumanna að koma til
viðræðna um viðskipti og efnahags-
samvinnu uppörvandi.
Lee sagði Suður-Kóreumenn
hvað eftir annað hafa lagt fram
ýmsar raunhæfar tillögur fyrir
Norður-Kóreumenn til að koma
samskiptum ríkjanna í betra horf,
arhersins og sovéskar herflutn-
ingalestir á þjóðvegunum. Vest-
rænir ónafngreindir stjórnarer-
indrekar segja öruggt að Sov-
étmenn og stjórnarherinn hafi
mátt þola mikið mannfall síðustu
svo sem um sameiningu fjöl-
skyldna sem stíað var í sundur í
kjölfar heimsstyrjaldarinnar síð-
ari og Kóreustríðsins, um póst-
samgöngur og gagnkvæmar heim-
sóknir.
í síðasta mánuði tóku Suður-
Kóreumenn boði Rauða krossins í
Norður-Kóreu, sem sendi hjálp-
argögn vegna flóða í S-Kóreu í
sumar. Að sögn Lee munu Suður-
vikuna og í undirbúningi séu
viðamiklar hefndaraðgerðir.
Auk þessa hafa andspyrnu-
menn freistað þess að gera hátt-
settum stjórnmálamönnum og
embættismönnum skráveifur
þótt öflugur vörður sé um slíka
menn. Þannig hæfði eldflaug
skrifstofur forsætisráðherra í
Kabúl fyrir skömmu og létu
nokkrir skrifstofumenn lífið, en
ráðherra var ekki til staðar.
Einnig hæfðu andspyrnumenn
skrifstofubyggingu KGB í höfuð-
borginni, en skemmdir urðu ekki
eins miklar og árásarmenn hefðu
kosið.
Kóreumenn áfram leita eftir
íþróttasamskiptum ríkjanna í
þeirri von að þau tefli fram sam-
eiginlegu keppnisliði á Asíuleik-
unum 1986 og ólympíuleikunum
1988. Þessar íþróttahátíðir verða
haldnar í Seoul.
Tékkóslóvakía:
Ljóðaskáld
sótt til saka
Vínarborg, 30. október. AP.
Tékknesk skáldkona, Ivana
Kortla, og eiginmaður hennar,
hafa vcrið handtekinn þar eð
stjómvöld telja Ijóð skáldsins
vera „meiðyrði í garð lýðveldis-
ins“, eins og komist er að oröi.
Verk hennar hafa verið gerð
upptæk. Þá hefur ungur Tékki
að nafni Petr Kozanek verið
ákærður fyrir að hafa haft undir
höndum fáein af Ijóðum skáld-
konunnar.
Frú Kortla var á sjúkrahúsi er
lögreglumenn ruddust inn á heim-
ili þeirra hjóna. Var hún að eiga
fimmta barn þeirra. Eiginmaður-
inn var gómaður og færður til yf-
irheyrslu, en lögregluvörður er um
skáldið á fæðingardeildinni. Ekki
hefur verið gert opinbert hvenær
réttað verður yfir þremenningun-
um, en samkvæmt tékkneskum
lögum, má dæma þau í allt að
þriggja ára fangelsi fyrir að rægja
ríkið og lýðveldið.
Bretland:
Erfið kveðjustund
Feðgar, sem stríðið skildi að, fengu að njóta samvista í mánuð
London, 30. október. AP.
FEÐGAR, sem ekki höfðu sést í 42 ár, kvöddust í dag á Heathrow-
flugvelli og bjóst hvorugur við því, að fundum þeirra myndi bera
saman á ný. Að því búnu fór sonurinn, Stefan Terlezki, 57 ára gamall
þingmaður íhaldsflokksins, til síns heima í Cardiff en faðir hans,
Oleksa Terlezki, sem er 81 árs, fór aftur til Sovétríkjanna.
Það var árið 1942, sem þeir
feðgar voru aðskildir, en þá var
Stefan aðeins 15 ára gamall,
fluttur frá Úkraínu í þýskar
vinnubúðir þar sem hann var öll
stríðsárin. Eftir stríðið komst
hann til Bretlands en sovésk
stjórnvöld fluttu föður hans
nauðungarflutningi til Síberíu
þar sem hann var látinn vinna í
kolanámu. Fyrir nokkru var
honum leyft að fara til sonar
síns í Bretlandi gegn loforði um
að snúa aftur til Sovétríkjanna
eftir 30 daga og var það ekki síst
fyrir milligöngu Howes, utanrík-
isráðherra, sem leyfið fékkst.
„Þetta er erfið stund fyrir
okkur báða,“ sagði Stefan þegar
hann kvaddi föður sinn, „en faðir
minn er heiðursmaður, sem
stendur við orð sín.“
Stefan sagði, að faðir sinn
hefði notið endurfundanna og
ferðarinnar, „en hann segir, að
við lifum í ólíkum heimum.
Hann skilur ekki þá ofgnótt
allra hluta, sem hér er, og hon-
um finnst fólk svo miklu ánægð-
ara hér og hamingjusamara en
hann á að venjast í Sovétríkjun-
um“.
Stefan Terlezki ætlar að skrifa
Gromyko, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, og biðja hann um
að leyfa föður sínum að hverfa
frá Síberíu til Antoniwka, litla
þorpsins síns í Úkraínu, „til að
hann geti búið þar síðustu ævi-
árin og lagst til hvíldar við hlið
móður minnar".
Viðskipti Norður- og Suður-Kóreu:
S-Kóreumenn ánægðir
með undirtektir norður frá