Morgunblaðið - 31.10.1984, Síða 25

Morgunblaðið - 31.10.1984, Síða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984 25 ftJtripj Útgefandi JiMafrifr . hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 275 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö. Sögulegt samkomulag Eftir langan og strangan samningafund náðist loks í gærkvöldi samkomulag milli full- trúa ríkisins og BSRB um nýjan kjarasamning sem að óbreyttu á að gilda til 31. desember 1985. Þungu fargi er ekki aðeins af samningamönnum létt heldur allrið þjóðinni, því að hin hörðu verkfallsátök hafa skapað marg- vísleg vandræði sem óþarfi er að tíunda hér svo rækilega sem það hefur verið gert á síðum Morgun- blaðsins undanfarna daga. Um leið og hinar háu kröfur komu fram um mitt sumar og ljóst var að opinberir starfsmenn ætluðu að láta sverfa til stáls gátu menn sagt sér, að ekki yrði bundinn endi á kjaradeiluna nema með samningum sem ekki yrðu í neinu samræmi við raunveruleg verð- mæti byggð á þjóðarframleiðslu. Sú varð einnig raunin. Launa- hækkun um og yfir 20% leiðir til nýrrar kollsteypu. Staðan í launamálum hefur verið ákaflega flókin undanfarnar vikur. Enn er ekki ljóst hver verð- ur niðurstaðan í viðræðum Vinnu- veitendasambandsins og Alþýðu- sambandsins þar sem það hefur lengst af verið meginmarkmiðið að semja um hófsamar launa- hækkanir og skattalækkanir að auki. Þar hafa menn verið að reikna og reikna með hliðsjón af þeirri staðreynd að fjölgun sífellt verðminni króna í launaumslag- inu tryggir ekki meiri kaupmátt launa, en kaupmátturinn hlýtur að vera það sem að er stefnt vilji menn í raun bæta kjörin. Forystumenn BSRB og 60 manna samninganefnd samtak- anna hafa aldrei ljáð máls á því að semja um skattalækkanir og hófsamar launahækkanir. Þessir aðilar hafa allt fram til síðustu stundar keppt að þvi að fá launin hækkuð um 30%, hvorki meira né minna. Þótt það hafi ekki tekist er þess að vænta að samkomulag- ið sem undirritað var í gær nái fram að ganga í allsherjarat- kvæðagreiðslu BSRB sem nú verður efnt til lögum samkvæmt. Hitt hljóta almennir félagsmenn í BSRB að meta og gera upp hver við sig, hvort sá herkostnaður sem sérhver þeirra hefur mátt bera vegna verkfallsins skili sér nokkurn tíma aftur. Eftir að höfuðdrættir hins nýja samkomulags BSRB lágu fyrir tóku menn að ræða þá kröfu sam- takanna sem sett hefur mestan svip á málflutning forystumanna þess síðustu daga verkfallsins, að kaupmáttur sé tryggður með ein- hverju móti. Aðeins rúmt ár er liðið síðan vísitölubinding launa var afnumin með lögum sem gilda til 1. júní 1985. Öllum ætti að vera ljóst að afnám hennar var stærsta skrefið í baráttunni við verðbólg- una og skilaði ótrúlega góðum árangri á skömmum tíma. I hinu nýja samkomulagi segir á hinn bóginn að verði veruleg rýrnun á kaupmætti á samningstímanum geti hvor aðili um sig óskað við- ræðna eftir 1. júní 1985 um kaup- liði samningsins. Náist ekki sam- komulag fyrir 1. júli um breyt- ingar á kaupliðum er heimilt að segja þeim liðum samningsins upp fyrir 1. september. Með þessu orðalagi viðurkenna aðilar rétt- mæti kaupmáttartryggingar, þótt ekki sé hún sjálfvirk heldur samningsatriði. Ekkert er nýtt undir sólinni og auðvitað hefur það áður gerst að með atbeina stjórnvalda sé gefið fyrirheit um verðtryggingu launa eftir nokkurt hlé. Menn verða vonandi ekki búnir að gleyma reynslunni af óðaverðbólgu um mitt næsta ár. Og hitt er sjaldgæft að menn fall- ist á jafn mikla launahækkun og nú og lofi kauptryggingu að auki. Óvægilega hefur verið barist í verkfallinu og í mörgum tilvikum hafa þeir aðilar sem telja sig hafa orðið fyrir búsifjum vegna ólög- mætra aðgerða BSRB gripið til þess sem þeim stendur jafnan til boða í réttarríki að skjóta ágrein- ingi til dómstólanna. Sú hefð hef- ur skapast, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, að aðilar að kjaradeilu hafa náð sáttum um það við gerð samnings um ágrein- ingsefnið að binda einnig enda á aðrar deilur sem af þrætunni hafa sprottið, deilur sem eðlilegt væri að kæmu til úrskurðar dómstóla. Síðustu klukkustundirnar áður en samkomulag ríkis og BSRB var undirritað notuðu aðilar til að þrátta um það, hvort fallið skyldi frá málssókn opinberra aðila á hendur BSRB eða einstökum fé- lagsmönnum samtakanna. Sú málamiðlun náðist að lokum að einstaklingar verða ekki lögsóttir en á hinn bóginn verður málum gegn BSRB væntanlega haldið áfram. Þetta er ásættanleg lausn svo framarlega sem við hana verður staðið og alls ekki reynt að leggja stein í götu þeirra einkaað- ila sem leitað hafa skjóls hjá dómstólunum. Úr því að jafnmórg ágreiningsefni rísa og raun ber vitni er nauðsynlegt að fá þau til lykta leidd með réttum og lög- legum hætti. Ríkisstjórnin stendur frammi fyrir miklum yanda við lyktir þessarar deilu. Áður en hún hófst hafði stjórnin sett fram skýr efnahagsmarkmið á árinu 1985 þar sem byggt var á þeim megin- forsendum að gengi verði ekki breytt meira en að hámarki 5% á árinu 1985 og verðbólga í lok árs- ins verði ekki yfir 10%. Þessi markmið hlýtur hún að þurfa að endurskoða. Nú verður þess beðið með eftirvæntingu hvernig stjórnmálamennirnir bregðast við eftir að fjöldasamtök launþega hafa náð fram kauphækkunum sem rúmast ekki innan þessara marka. Um staðsetningu húsa, til dæmis tónlistarhúsa eftir Svein Einarsson Yfirbragð borga er margvíslegt, svo sem alkunna er. Margt ber til, og veldur smekkur, ríkidæmi og stórhugur því hvernig þetta yfir- bragð verður, þó að stíll sé marg- víslegur og ólíkir tímar talist við innan sömu borgarmarka. Stærð og reisn markast af því hvernig húsum er raðað saman, til dæmis merkishúsum, þannig að til þeirra og frá þeim sé góð útsjón. Þeir sem hafa staðið á Concorde-torgi og horft eftir Ódáinsvöllum til Sigurbogans vita, hvað ég á við. En við getum líka tekið nærdæmi: Kaupmannahöfn með torgin sín tvö, Ráðhússins og Kóngsins nýja með Konunglega leikhúsið. Elleg- ar Karl Jóhann í Ósló, með Þing- húsið, Þjóðleikhúsið og Konungs- höllina sem póla. Þegar ráðist er í að reisa merkisbyggingar, eignir þjóðar- innar og stundum stolt, ráðhús, leikhús, söfn, stjórnarhallir o.s.frv. virðist mér ýmis sjónarmið vera á lofti: a) Byggingin þarf nægilegt rými, þannig að ekki sé að henni þrengt og byggingarlist hússins fái að njóta sín. Jafnframt þarf auðvitað á okkar mótorvæddu dögum að sjá til þess, að aðkeyrsla að húsinu sé svo hindrunarlaus sem unnt er og umferðaræð ekki langt undan; sö- muleiðis þarf næg bílastæði. b) Á tímum, þegar menn eru að vakna upp til verndunarsjónar- miða og rumska við sér um menn- ingarsögulegt og byggingarsögu- legt gildi gamalla húsa, ber að sjálfsögðu að hafa í huga, að merkishús af þessu tagi falli vel inn í umhverfi sitt og stingi ekki verulega í stúf við næstu grann- hús sín. c) Þetta má þó ekki koma í veg fyrir, að menn beini sjónum sínum að miðborgarkjarna hverju sinni, þannig að önnur merkishús af svipuðu tagi, kvikmyndahús, gisti- hús og veitingastaðir, séu í kall- færi eða að minnsta kosti gang- færi og gefi borgarbragnum líf og lit; menn þurfi sem sagt ekki að setjast undir stýri til að færa sig spönn frá rassi, heldur grípi til þessara jafnfljótu, sem upphaf- lega voru til þess ætlaðir. d) Borgarsamfélög vaxa og nýir tímar koma með nýjar kröfur eða opna nýja möguleika. Þess vegna er mjög mikils virði, að þess sé gætt í upphafi, að rými sé til við byggingar fyrir aukna starfsemi eða nýjar greinar starfseminnar beinlínis. Mér þykir trúlegt, að flestir séu nokkurn veginn sammála um þessi sjónarmið, líka hér í okkar kæru höfuðborg. Hitt er svo annað mál, að augljóslega er ekki ævinlega unnt að samræma öll þessi sjón- armið og uppfylla öll þessi skilyrði (nema kannski verið sé að búa til nýja borg frá grunni eins og Braz- il). Þá verða menn að velja og hafna og veita forgang. Hitt held ég sé vont, ef menn hlaupa til og velja hægan kost, sem fyrst virðist á lausu, en kanna ekki gaumgæfi- lega, hvort ekki eru til staðir og lóðir, sem uppfylla öll þau skil- yrði, sem hér að ofan voru nefnd. Ef stórborgarmönnum tekst að leysa slík dæmi, ætti okkur síður að vera vorkunn í okkar litla borg- arsamfélagi, að finna merkihúsum okkar stað með sæmd. Tilefni þessara skrifa er sá gleðilegi atburður, að fjöldi ein- staklinga hefur tekið saman hön- dum um að hafa forgöngu í því að koma upp tónlistarhúsi í Reykja- vík. Árum saman hefur það ekki verið vansalaust, að tónlistargyðj- an hefur ekki átt neitt heimili í borginni, og sú gróska, sem und- anfarin ár hefur verið á tónlistar- sviðinu, aukið hljómleikahald fjölda efnilegra ungra hljóðfæra- leikara og söngvara, efling og breidd í tónsmíðum, jafnt eldri sem yngri tónsmiða, tilkoma heill- ar nýrrar sinfóníusveitar, stofnun íslensku óperunnar (sem enn hef- ur engan söngvarahóp á atvinnu- grundvelli) og margvísleg önnur starfsemi, t.d. afbragðskóra, öll þessi gróska hefur auðvitað gert þessa vöntun á sómasamlegu hús- næði hrópandi. Sem betur fer á tónlistin marga unnendur í þessu landi, allt frá klassik til jass og popps og marga góða semjendur og flytjendur. Það er hugur í okkur, þessu fólki, og aldrei að vita nema þetta tónlistarhús rísi fyrr en nokkurn órar fyrir. En húsi þarf að finna stað og nú standa umræður um það. Meðal þeirra lóða, sem borið hefur á góma, eru eftirfarandi: 1) Á Laugarnestanga. Byggingin sem slík myndi njóta sín vel og nóg loft léki um hana, þó að næstu Sveinn Einarsson „Tilefni þessara skrifa er sá gleðilegi atburður, að fjöldi einstaklinga hefur tekið saman höndum um að hafa for- göngu í því að koma upp tónlistarhúsi í Reykja- vík. Árum saman hefur það ekki verið vansa- laust, að tónlistargyðjan hefur ekki átt neitt heimili í borginni ... “ grannhús séu kannski ekki þau sem talin voru upp í grein c) hér að ofan. En þarna er undurfagurt útsýni yfir Esjuna og Sundin; menn skyldu ekki gera of lítið úr hinum sálfræðilega þætti þess í tónleika- og óperuhléum. Þess vegna fundu Bretar Festival Hall og Þjóðleikhús sitt á bökkum Thamesár. Eða hvað segja menn um útsýnisglugga Metrópólitanóp- erunnar, þar sem allt Lincoln Center blasir við, iðandi af list og menningu. Laugarnestanginn he- fur þó vann vankant, að þaðan er tæplega gengt niður í gamla mið- bæ, sem allir vita innst inni að heldur áfram að vera hjarta bæj- arins, hvað sem líður öllum skipu- lagstilraunum og útreikningum á því, hvar landfræðileg miðja Reykjavíkur sé. 2) Svokölluð Sigtúnslóð, sunnan Ásmundarsafns. Meirihluti full- trúaráðs hinna nýju samtaka virt- ist spenntur fyrir þessari lóð, en meirihluti aðalfundarmanna í vor mótfallinn og lét ekki sannfærast. Lóðin er þokkalegur kostur, en staðarvalið ber þó merki undan- látssemi. Meðal kosta er návígi við nýtt tónlistarskólahús og sitthvað annað í grennd, listasafn, gistihús, íþróttasvæði o.s.frv. Þarna er og gert ráð fyrir garði, þannig að snoturt yrði að vera kringum hús- ið, þó að tækifærið um merkisb- yggingu (monumental) yrði ekki nýtt. Meðal annarra ókosta: Of lángt frá kvosinni, og lítið af bíl- astæðum, ef eitthvað er um að vera í Laugardalshöll. Og það, sem mér þykir gera útslagið: Þarna er ekki rými til viðbyggingar. Til hvers þarf viðbyggingu? Jú, og þetta er höfuðatriði: Til óperufl- utnings. Húsið þarf að reikna þannig, að það verði reist í áföng- um og frá upphafi sé óperulistin höfð í huga. Annars kostar það hálfrar aldar bið, að hér rísi ópe- ruhús, og margra áratuga viðleitni Þjóðleikhússins og framtak ís- lensku óperunnar í Gamla bíói fær þá of seint umbun síns erfiðis; þarna á ballettinn einnig að vera til húsa í framtíðinni. 3) Við Rauðará. Útsýni fagurt yf- ir Esju og Sund, steinsnar á Hlemm og gengt niður í gamla miðbæ. Lóðin (þarna er bílasala núna) tæplega nógu stór, en mætti kannski stækka með uppfyllingu. 4) Við höfnina, á svokölluðu Haf- skipssvæði. Það er á flestra vit- orði, að athafnir stóru farskip- anna hafa verið að færast inn með Sundum og einhvern tíma í ekki of fjarri framtíð verður gamla höfn- in orðin rómantísk smábátahöfn; yfir útsýni þyrfti því ekki að kvarta. Stutt er síðan í veitinga- hús og annað það, sem tengst get- ur tónleikaferð. Lóðin er kannski helsti lítil, en bílastæði ættu að vera nóg í undirdjúpum Seðla- bankans. En byggingamálið þolir ekki langa bið og kannski liggur þessi lóð ekki á lausu í bili. 5) í Öskjuhlið og viti til vesturs. Þarna er nóg rými fyrir tónlistar- og óperuhús í fögru umhverfi, út- sýni yfir gamla bæinn f Reykjavík, bílastæði, greiður aðgangur og í lífrænum tengslum við gömlu kvosina, þó að göngutúrinn sé kannski í lengsta lagi. En svei mér ef þarna er ekki kominn staður, sem uppfyllir nær öll þau skilyrði, sem slegið var fram í upphafi. Og ég verð að segja það alveg hrein- skilnislega, að mér finnst fara bet- ur á að tónlistahöll prýði þennan öndvegisstað í bæjarlandinu en bowlinghöll. En hvað með flugvöllinn, spyr einhver. Rétt er það, að tónlist- arhúsið þarf vel að einangra, en það hefði verið gert, hvar sem það hefði verið reist. Hitt er svo annað mál, sem þarf að fara að ræða í alvöru: Flugvellinum er ekki miklu lengur vært inni í miðborg höfuðstaðarins, útsetjandi fjölda borgarbúa fyrir hljóð- og loft- mengun á sínum eigin heimilum, svo ekki sé rædd slysahætta. Flug- völlurinn á að fara á Álftanes. Og þá leysist sá hnútur, sem skipu- lagsmál Reykjavíkur eru búin að vera í áratugum saman. Gamli flugvöllurinn verður að breiðgöt- um og torgum og þarna verður hið fegursta rými fyrir allar okkar merkisbyggingar. Og gamla kvos- in fær eðlilega og lífræna útvíkk- un. Og þá er tónlistarhúsið okkar nýja nákvæmlega á réttum stað. Við höfum verið nokkuð sein- heppin, þegar dritað hefur verið niður nokkrum af háborgum menningar í þessu landi. Þjóð- leikhúsið er auðvitað í gamla miðbænum, en það er nokkuð þröngt um olnbogarými þess. Þessi fallega bygging nýtur sín ekki sem skyldi, vegna þess þarna vantar aðsjón. Þetta var mönnum ljóst, þegar húsið reis, og því voru uppi hugmyndir um að útbúa torg fyrir framan leikhúsið, frá Hverf- isgötu upp að Laugavegi, og átti það að bera nafn frumkvöðuls hússins og heita Indriðatorg. Ekki bólar á því torgi, en á þessu svæði hafa síðan risið steinsteyptir bankar. Nokkrum áratugum síðar var hafist handa við að reisa Borgar- leikhús yfir Leikfélag Reykjavík- ur, eina elstu menningarstofnun borgarinnar, sem hafði vaxið með henni frá því fyrir aldamót, þegar íbúar voru hér um 4000, og ævin- lega staðið við Tjörnina, tákn hinnar gömlu og nýju Reykjavík- ur. Ekki fannst þó pláss fyrir þetta gamla óskabarn nær upp- runa sínum í Kvosinni en inni í Kringlumýri. Látum þessa sögu ekki endur- taka sig í þriðja sinn. Þeim rökum, að menningin verði að taka það sem að henni er rétt, af því það sé á lausu og ella megi allt fara í bið, vil ég ekki sinna lengur. Þau rök virðast ekki gilda, þegar ýmsar aðrar byggingar eiga í hlut, þ.á m. ónefndir bankar, sem þjóta upp hindrunarlítið á fegurstu stöðum. En skyldi ekki hljóma fagurlega af Öskjuhlíðinni? Beinum sjónum okkar þangað. Sreinn Einarsson er leikstjóri og fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri og leikhússtjóri LR. Langholtskirkja vígð SUNNUDAGINN 16. september var Langholtskirkja vígð og hófst athöfnin með því að sóknarnefndin ásamt prestum, biskupum og vígsluvottum gengu í skrúðgöngu frá safnaðarheimilinu í kirkjuna með kirkjugripi. Eftir ritningarlestur og sálmasöng vígöi biskup ís- lands, herra Pétur Sigurgeirsson, kirkjuna. Prestur var séra Sigurður Haukur Guðjónsson og séra Ólafur Skúlason vígslubiskup leiddi altarisgöngu ásamt séra Jóni Helga Þórarinssyni og séra Pjetri Maack. Kammersveit sá um hljóðfæraleik og þau Olöf Kolbrún llarðardóttir, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Garðar Cortes og Halldór Vilhelmsson sungu einsöng með Kór Langholtskirkju. Eftir athöfnina var kirkjugest- um boðið í kaffi og mættu þar um 450 manns af þeim 600 sem voru viðstaddir vígsluna. Langholtssöfnuður var stofn- aður 29. júní 1952. Árið 1957 hóf- ust framkvæmdir við safnaðar- heimilið og hefur söfnuðurinn starfað þar síðan í desember 1960. Vinna við sjálfa kirkju- bygginguna hófst árið 1971 og er hún byggð að mestu á fjárfram- lögum frá safnaðarbörnum og velunnurum kirkjunnar. Húsið er 800 fermetrar að grunnfleti og getur rúmað mest 548 manns í sæti. Kirkjan er hönnuð af Herði Bjarnasyni, en innanhússhönnuð- ir voru Steinþór Sigurðsson og Kjartan Jónsson. Byggingar- meistari var Kristinn Sigurjóns- son. Formaður byggingarnefndar kirkjunnar frá upphafi hefur ver- ið Vilhjálmur Bjarnason. Stólar, skírnarfontur, prédikunarstóll og altari eru allt íslensk smíð. Á tónleikum sem kór Lang- holtskirkju hélt þegar kirkjan var komin undir þak, skömmu fyrir jólárið 1978, uppgötvaðist afburðagóður hljómburður kirkj- unnar. Eftir það var ákveðið að gera allt til þess að halda honum. Einnig var ákveðið að í kirkjunni skyldi verða upptökuherbergi og þar hefur verið komið fyrir upp- Langholtskirkja. tökutækjum af fullkomnustu gerð. Þessi aðstaða verður notuð til að taka upp kirkjulega og klassíska tónlist. Þess má að lokum geta að nýja kirkjan er frábrugðin öðrum ís- lenskum kirkjum að því leyti að kórinn snýr á móti söfnuðinum. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Grikkland: Mitsotakis, nýr formaður Nýdemókrata gæti reynzt Papandreu harður keppinautur ALLMJÍKÍ er nú liðið á kjörtímabil Andreasar Papandreu, forsætisráð- herra Grikkiands, og PASOK stjórnar hans; hun hefur nú setið í þrjú ár um þessar mundir. Þrátt fyrir að kosningaloforð Papandreu hafi farið fyrir lítið, hefur ekki verið merkjanlegt að veldi PASOKS væri ógnað að neinu marki. Papandreu hét stórmiklum ráðstöfunum í efnahags- og atvinnumálum, endurbætur yrðu gerðar á mennta- og heilbrigðiskerfi landsins, að ekki sé nú talað um yfirlýsingar hans varðandi efnahags- bandalag Evrópu og Atlantshafsbandalagið. Utan Grikklands lögðu menn fyrst og fremst við eyru og margir fylltust kvíða, þegar Papandreu veifaði þeirri hótun óspart að Grikkir myndu draga sig út úr Atlantshafsbandalag- inu, loka snarlega bandarískum herstöðvum í landinu og endur- skoða alla samvinnu við Efna- hagsbandalag Evrópu. Þessi tvö atriði hefur Papandreu síðan lagt töluverða áherslu á þegar hann hefur sótt ráðstefnur eða fundi utan Grikklands, svona til að halda mönnum við efnið, á hinn bóginn virðist hann ekki hugsa sér til neinna meiriháttar breytinga og hann hefur gefið yfirlýsingar út og suður, sem stangast hver á við aðra. Niður- staðan verður þó ætíð hin sama, hann ætlar ekki að gera neinar umtalsverðar breytingar á utan- ríkisstefnu Grikklands, en hefur sjálfsagt á prjónunum að ítreka þessi heit, þegar fer að líða að kosningum. Kommúnistaflokk- urinn í Grikklandi hefur haldið uppi töluverðri gagnrýni á Pap- andreu sakir þessa. En sú gagn- rýni virðist ekki valda Pap- andreu hinu minnsta hugar- angri. Hann veit sem er að hon- um hefur liðist margt sem hefði orðið öðrum að fótakefli, mælska hans og tök á kjósendum eru með ólíkindum. Svo að hann hef- ur ekki haft neina ástæðu til að kvíða að ráði kosningum þó svo að innanlands gæti mikillar gremju með hversu kosningalof- orðin hafa farið fyrir lítið. Inn- anlands eru menn þó ekki með allan hugann við samstarf við Atlantshafsbandalagið og al- menningur virðist ekki hafa sett sig af neinni alvöru inn í hvað aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu þýðir. En atvinnuleysi, verðbólga, afleit þjónusta á sviði menntunar og heilsugæslu. Þetta brennur á hinum almenna borgara. Og þrátt fyrir allt hefur Pap- andreu samt ekki þurft að óttast um veldi sitt. Einkum og sér í lagi vegna þess hve stjórnar- andstaðan hefur verið veik og sundurleit. Nýdemókrataflokk- urinn, sem beið mikið afhroð í siðustu kosningum og hefur ekki borið sitt barr frá því Karam- anlis var kjörinn forseti og sagði af sér formennsku í flokknum, hefur verið atkvæðalítill og for- ystu hans hefur ekki tekist að afla sér trausts. Fyrr en nú, að svo virðist sem Nýdemókrataflokkurinn sé að rísa úr öskustónni eftir að hafa nýverið kosið Konstantín Mits- otakis formann sinn. Mitsotakis hefur verið nálægt formanns- sætinu um hríð, en vegna deilna Papandrcu þar og sundrungar ekki tekist að krækja sér í sætið fyrr en nú. Mitsotakis hefur verið þing- maður fyrir Krít í þrjá áratugi. Hann er sextíu og sex ára gamall og hann og Papandreu eiga að minnsta kosti eitt sameiginlegt: annað hvort dá menn hann takmarkalaust eða hafa á hon- um megnustu andúð. Fyrir for- ingja stjórnmálaflokks má teija slíkt til kosta. Papandreu hefur ekki dulið það hversu mjög honum varð bilt við, þegar Mitsotakis var kjörinn formaður Nýdemókrata- flokksins. Hann gaf þá sam- stundis út yfirlýsingu, þar sem hann sagði að kjör Mitsotakis lýsti því hversu illa flokkurinn væri kominn að velja sér einmitt þennan forvígismann. Siðan hef- ur hann að vísu reynt að draga úr þeim stóryrðum sem hann lét falla, en stjórnmálaskýrendum ber saman um að sjaldan hafi forsætisráðherra í embætti gefið andstæðingi sínum jafn mikinn höggstað á sér og Papandreu með yfirlýsingu sinni. Mitsotak- is hefur þegar tekið til óspilltra málanna að byggja upp Nýdemó- krataflokkinn. Hann hefur ferð- ast um Grikkland og eyjarnar og efnt til funda og verið skeleggur í málflutningi sínum. Staða hans virðist sem stendur býsna sterk og menn spá því að Nýdemó- krataflokknum verði það lyfti- stöng að hafa valið Mitsotakis til forystu. Svo virðist sem innan Nýdemókrataflokksins sé meiri eining um Mitsotakis og meiri ánægja en með nokkurn annan síðan Karamanlis lét af embætti til að verða forseti. Mitsotakis hefur augsýnilega lag á því að koma forsætisráð- herranum úr jafnvægi og milli þessara manna hefur reyndar lengi verið ósamkomulag. Það má rekja til sjöunda áratugarins þegar báðir voru áberandi stjórnmálamenn og keppinautar í Miðsambandi föður Papandreu, Georges Papandreu. Þeir deildu þá ákaft og áttu báðir nokkurn þátt í því, hvor á sínn máta, að Miðsambandið klofnaði og leyst- ist síðan upp sem síðan ruddi brautina fyrir valdarán herfor- ingjastjórnarinnar árið 1967. Ekki er að efa að Mitsotakis muni nota tímann vel fram að kosningum. Hann kveðst koma fram sem hinn ábyrgi stjórn- málamaður sem vill ekki að Grikkir uni því að sætta sig við „innantómt froðusnakk lýð- skrumara" á borð við Pap- andreu. Og Andreas Papandreu mun eiga erfitt uppdráttar ef hann velur þá leið að tína gömlu kosningaloforðin nánast óbreytt úr pússi sínu. Hinn almenni borgari í Grikklandi hefur orðið fyrir miklum vonbrigðum með þessi þrjú ár sem áttu að marka upphaf nýs velgengnisskeiðs fyrir Grikkland. Fram að þessu hafa þeir horft til Papandreu sem hins eina leiötoga sem væri frambærilegur, hvað sem stjórn- unarhæfileikum og heitum liði. Nú hefur alvöru keppinautur komið fram á sjónarsviðið. Hann stendur Papandreu ekki að baki sem mælskumaður og timinn kann að koma Mitsotakis einnig til góða, þar sem Papandreu hef- ur nú aðeins ár til að gera ein- hverjar þær ráðstafanir sem geta bætt hag alþýðu manna í Grikklandi. (Heimildir AP, Time o.fl.) Johanna Kristjónsdóttir er blm. í erlendri íréttadeild Mbl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.