Morgunblaðið - 31.10.1984, Síða 48
T1L DAGLEGRA NOTA
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45-23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTl, SlUI 11633
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Verkfalli BSRB frestað—
Samkomulag samþykkt 36:13
VERKFALLI Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja var frestað
klukkan 22.15 í gærkvöldi þegar Al-
bert Guömundsson, fjármálaráö-
herra, og Kristján Thorlacius, for-
maður BSRB, höfðu ritað undir nýj-
an aðalkjarasamning sem gildir til
31. desember 1985. Þar með lauk
sáttafundi sem staðið hafði undir
stjórn Guðlaugs Þorvaldssonar,
ríkissáttasemjara, með stuttum hlé-
um frá klukkan 13 á mánudag eða í
33 klukkustundir. Verkfallið hófst
formlega hinn 4. október en strax
hinn 1. október gekk verulegur hluti
félagsmanna BSRB frá störfum.
Starfsemi á vegum ríkisins færist nú
í eðlilegt horf og byrjaði Ríkisút-
varpið að senda út tónlist klukkan
22.25 í gærkvöldi. Samningurinn
veröur nú borinn upp í alls-
herjaratkvæðagreiðslu í BSRB. Enn
er ósamið á milli Reykjavíkurborgar
og starfsmannafélags hennar. Hefur
Gruimskólar Rvíkur:
Engin
kennsla
ídag
KENNSLA verður ekki i grunn-
skólum í Reykjavík í dag, þrátt
fyrir að endir sé bundinn á kjara-
deilu BSRB og rikisvaldsins.
Dyraverðir við grunnskólana eru
enn í verkfalli, en þeir eru í
Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar.
Barnaheimili í Reykjavík
verða lokuð í dag og akstur
strætisvagna hefst ekki fyrr en
samkomulag hefur tekist milli
Starfsmannafélags Reykjavík-
urborgar og borgaryfirvalda.
verið boðað til fundar aðila nú fyrir
hádegi.
Ríkisstjórnin hittist á fundi sið-
degis í gær og staðfesti þá drögin
að samkomulagi við BSRB sem
legið höfðu í höfuðdráttum fyrir
siðan í fyrrakvöld. Jafnframt
ályktaði rikisstjórnin að ekki
væru uppi áform um að beita ein-
staklinga innan BSRB aga- eða
bótaviðurlögum vegna atvika, sem
upp hafa komið i tengslum við
framkvæmd verkfallsins. Hafði
niðurfelling lögsóknar vegna at-
vika í verkfallinu verið til umræðu
milli aðila verulegan hluta dags í
gær. Þá hittust þingflokkar
stjórnarflokkanna á fundum síð-
degis í gær og veittu ráðherrum
umboð til samningsgerðar.
Skömmu eftir miðnætti í fyrri-
nótt skipuðu aðilar 3 menn hvor í
vinnunefnd til að fullsmíða samn-
inginn. Þá þegar var ljóst að innan
60 manna samninganefndar BSRB
voru menn ekki á einu máli um
efni hans og var víða fundað í
húsakynnum sáttasemjara,
Karphúsinu. Þegar birti af degi
lögðu margir félagsmenn BSRB
leið sína í Karphúsið og lýstu
skoðunum sínum. Fór svo að
sáttasemjari einangraði
samningamenn. Þegar samningur-
inn var að lokum borinn undir at-
kvæði í 60 manna nefndinni þegar
Morgunblaðið/RAX.
Fjármálaráöherra ávarpaði fulltrúa í 60 manna samninganefnd BSRB, eftir að samningar höfðu verið undirritaðir.
Þakkaði hann þeim fyrir heiðarlega, en harða baráttu og sagði m.a.: „Ég hef undrast það mjög á undanförnum vikum
hversu samtök ykkar eru vel skipulögð. En verið þið bara róleg, við höfum lært af reynslunni, og verðum betur
undirbúnir næst. Ég vil hins vegar hvetja ykkur til að halda áfram baráttu ykkar fyrir bættum kjörum, hver svo sem
á eftir að verða andstæðingur ykkar í stól fjármálaráherra. Ég geri mér grein fyrir, að í svona stöðu verða
fjármálaráðherrar að taka óvinsælar ákvarðanir. En ég veit að þið viljið ekki neina druslu fyrir fjármálaráðherra,
frekar en þið viljið hafa druslur í ykkar forystusveit, og svo sannarlega eru engar druslur í þeirri sveit. Það bef ég
fengið að reyna á undanfórnum vikum,“ sagði fjármálaráöherra og féllu þessi síðustu orð hans i góðan jarðveg meðal
viðstaddra.
Við borðið eru frá vinstri: Haraldur Steinþórsson, framkvæmdastjóri BSRB, Kristján Thorlacius, formaður BSRB,
og Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari.
Iðntæknistofnun íslands um Sjóefnavinnsluna á Reykjanesi:
klukkan var langt gengin 10 í
gærkvöldi voru 36 fylgjandi hon-
um en 13 á móti, 2 sátu hjá. Eftir
það var gengið til undirritunar.
Samningurinn verður nú kynntur
i einstökum félögum og er þess
vænst að atkvæði verði greidd um
hann eftir 10 til 15 daga.
Samningurinn er birtur í heild á
blaðsíðu 5 í Morgunblaðinu í dag.
Launahækkun samkvæmt honum
er um og yfir 20%. Gildistími
sérkjarasamninga sem ráðist
verður í að gera eftir staðfestingu
aðalkjarasamnings verður frá 1.
nóvember 1984. Til að leysa úr
ágreiningi um verðtryggingu
launa, sem ríkisstjórnin hafnaði,
sættust aðilar á að hvor þeirra um
sig geti óskað eftir viðræðum um
kaupliði samningsins eftir 1. júní
1985. Náist ekki samkomulag milli
aðila fyrir 1. júlí 1985 um breyt-
ingar kaupliða skal heimilt að
segja upp þeim liðum samningsins
frá og með 1. september 1985.
Indriði H. Þorláksson, formaður
samninganefndar ríkisins, taldi
samninginn kosta ríkið um 400
milljónir króna.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, og
Haraldur Hannesson, formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar hittast árla dags í dag og
síðan viðræðunefndir aðila. Þá er
ósamið á Seltjarnarnesi og Sel-
fossi.
Sjá viðtöl við forystumenn og
frásögn af fundum hjá sátta-
semjara á bls. 4 og frétt um
yfirlýsingu rfkisstjórnarinnar á
bls. 3.
Forystumenn kennara
á höfuðborgarsvæðinu
og Reykjanesi:
Vildu fella
samninginn
Rekstur fyrirtækisins
getur aldrei borgað sig
TALSVERÐ átök eru nú um framtíð Sjóefnavinnslunnar á Reykjanesi.
Á síðasta aðalfundi fyrirtækisins var skipt um þrjá menn af fimm í
stjórn þess og mun það hafa gerzt í kjölfar úttektar Iðntæknistofnunar á
fyrirtækinu. Er þar meðal annars iagt til, að áform um uppbyggingu
fyrirtækisins verði endanlega lögð á hilluna, gerðar athugasemdir við val
stjórnarmanna og tekið fram, að vinnsla hennar muni aldrei geta skilað
hagnaði. Nú hefur verið varið um 264 milljónum króna til uppbyggingar
Sjóefnavinnslunnar. 209 milljóna hefur verið aflað með erlendum lán-
tökum með ríkisábyrgð, en hlutafé, að mestu í eigu ríkisins, er um 55
milljónir króna. Af þessari upphæð hefur þegar verið varið rúmum 50
milljónum í hönnum og ráðgjöf.
f niðurstöðum úttektar Iðn-
tæknistofnunar kemur fram, að
árleg 8.000 lesta tilraunafram-
leiðsla á salti geti ekki staðið und-
ir breytilegum kostnaði við fram-
leiðsluna og 40.000 lesta árleg
framleiðsla muni ekki geta skilað
hagnaði. í skýrslu stofnunarinnar
segir meðal annars, að stjórn og
ráðgjöfum SEV hafi lengi verið
ljóst, að 8.000 lesta áfanginn
mundi, þegar hann kæmi í fullan
rekstur, ekki gera betur en að
standa undir breytilegum kostn-
aði. Þá kemur það fram í skýrsl-
unni, að áætlanir um markaðsverð
afurða og markaðshlutdeild séu
ofmetnar af ýmsum orsökum. Þá
er dregið í efa réttmæti erlendra
lántaka til fjármögnunar vinnslu,
sem ljóst hafi verið frá upphafi, að
ekki borgaði sig. Segir þar, að ekki
verði séð af gögnum félagsins, að
þurft hafi að leggja fram endur-
skoðaða arðsemisreikninga vegna
óska um erlendar lántökur og tor-
skilið sé hvers vegna aðaleigandi
fyrirtækisins (ríkissjóður) hafi
ákveðið að fjármagna fram-
kvæmdir að jafn miklu leyti og
raun beri vitni með erlendu lánsfé.
Erlend lán nema þegar um 209
milljónum króna og frá og með
næsta ári til ársins 1993 eru af-
borganir og vextir af þeim áætlað-
ar á bilinu 27 til 46 milljónir
króna. Hámarks söluandvirði
8.000 lesta af salti er 16 milljónir
króna. Áætlaðar tekjur af verk-
smiðjunni árið 1990 miðað við
40.000 lesta saltframleiðslu auk
annarrar efnaframleiðslu eru 107
milljónir króna og er þá afkoman
neikvæð um 78 milljónir. Nú hafa
verið framleiddar um 1.000 lestir
af salti í verksmiðjunni, þar af
hafa um 500 lestir verið seldar á
um 1.900 krónur hver. Útlagður
kostnaður við framleiðsluna er því
nú um 264.000 krónur á hverja
lest. Sjá nánar um Sjóefna-
vinnsluna á bls. 31.
STJÓRNIR og trúnaðarmanna-
ráð kennarafélaga á höfuðborg-
arsvæðinu og Reykjanesi komu
saman á fund í gærkvöldi og sam-
þykktu áskorun til fulltrúa sinna
í 60 manna samninganefnd
BSRB um að felia samninginn,
sem samþykktur var í gærkvöldi.
Fundinn sátu stjórnir og
trúnaðarmannaráð kennarafé-
laga í Reykjavík og Reykjanesi,
auk nágrannasveitarfélaga
Reykjavíkur. Áskorunin barst
inn á fund 60 manna nefndar-
innar áður en til atkvæða-
greiðslu kom, en í nefndinni
sitja níu fulltúar kennara.
JRori)nnIiTní>iíi
Frá og með 1. nóvember n.k.
kostar áskrift Morgunblaðsins
kr. 300.- á mánuði. Lausasölu-
verð er óbreytt kr. 25.00 eintak-
ið. Grunnverð auglýsinga verður
frá og með sama tíma kr. 180.-
pr. dálksentimeter.