Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
6 til 8 % verðhækk-
un á saltfiski til
Spánar og Ítalíu
SÖLUSAMBAND islenzkra fisk-
framleiðenda hefur nú náð nokkurri
verðhækkun á saltfiski til Spánar og
Ítalíu frá síðustu sölusamningum við
þau lönd. Nemur hækkunin til Spán-
ar 8% í dollurum talið og til Ítalíu
6%, sömuleiðis í dollurum talið. Er
hér um að ræða að minnsta kosti
EGGERT G. Þorsteinsson og Gylfi
Þ. Gíslason hlutu flest og jöfn at-
kvæði, þ.e. 104, í kosningu fulltrúa á
flokksþing Alþýðuflokksins 16.—18.
nóvember nk. 133 tóku þátt i at-
kvæðagreiðslunni, sem fram fór í fé-
lagi Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Kjörnir voru 47 fulltrúar, en þingið
sitja um 250 þingfulltrúar. Þing-
menn flokksins eru sjálfkjörnir.
í þriðja til fjórða sæti voru Árni
Gunnarsson og Þorsteinn Egg-
ertsson með 93 atkvæði. 5. Björn
Friðfinnsson 90 atkv. 6. Bryndís
Schram 88 atkv. 7.-8. Grétar G.
Nikulásson og Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir 87 atkv. 9. Ragna Bergmann
83 atkv. 10. Bjarni Guðnason 82
atkv. 11.—12. Björgvin Vilmund-
arson og Jón Ármann Héðinsson
81 atkv. 13.—14. Kristinn Breið-
fjörð og Vilhelm Ingimundarson
80 atkv. 15. Emilía Samúelsdóttir
79 atkv. 16.—17. Björgvin Guð-
mundsson og Guðmundur Har-
aldsson 78 atkv. 18.—19. Gunnar
Eyjólfsson og Maríanna Frið-
jónsdóttir 77 atkv. 20. örlygur
2.000 lestir af svokölluóum tandur-
fiski til viðbótar á Spánarmarkað, en
fyrr á þessu ári hafa verið seldar um
7.000 lestir þangað af þeirri afurð og
500 lestir af stórum fiski og milli-
fiski til Ítalíu.
Með tandurfiski er átt við létt-
staðinn saltfisk, sem er nýmæli í
Geirsson 74 atkv. 21. Helgi Skúli
Kjartansson 70 atkv. 22. Guðríður
Þorsteinsdóttir 66 atkv. 23. Jón
Þorsteinsson 63 atkv. 24. Guðlaug-
ur Tryggvi Karlsson 61 atkv. 25.
Haukur Morthens 59 atkv. 26. Þór-
unn Valdimarsdóttir 58 atkv., og
27.-29. með 56 atkvæði þeir Jón
Hjálmarsson, Birgir Dýrfjörð og
Unnar Stefánsson.
útflutningi á saltfiski. Að undan-
förnu hefur SÍF gengið frá um-
ræddum samningum til Spánar og
Ítalíu en auk þess hefur verið
gerður viðbótarsamningur við
Grikki um sölu á 700 lestum. Verð
í þeim samningum er óbreytt í
dollurum frá síðustu sölu. Tals-
verð eftirspurn er nú eftir salt-
fiski að sögn Sigurðar Haralds-
sonar, skrifstofustjóra SÍF, og
hafa þessar verðhækkanir meðal
annars náðst vegna þess. Þá hafa
allir sölusamningar frá síðasta
vori verið uppfylltir vegna örra af-
skipana. Nú er búið að framleiða
um 600 lestir af söltuðum ufsa-
flökum frá þvi f haust og sumar og
fullnægir það um það bil því, sem
búið er að selja til áramóta. Mögu-
legt er að auka sölu ufsaflaka og
sagði Sigurður, að sjálfsagt væri
vegna þess að flaka allan stóran
og góðan ufsa.
Vegna þessara verðhækkana
hefur útborgunarverð á saltfiski
hækkað nokkuð frá mánaðamót-
um ágúst-september. Tandur-
verkaður þorskur í fyrsta flokki
hefur hækkað úr 62 krónum í 65,
blautverkaður þorskur hefur
hækkað úr 68,50 í 72 krónur og
þorskflök hafa hækkað úr 91
krónu í 94. Er hér alls staðar mið-
að við fyrsta flokk. Framleiðslan
frá áramótum til fyrsta október
nam alls um 33.000 lestum, en var
á sama tíma í fyrra um 45.000
lestir. Því hefur orðið um 25%
samdráttur í saltfiskframleiðslu
milli þessara ára.
verksmiðja verður því 1.473 krón-
ur fyrir hvert tonn, en þær greiða
39% ofan á skiptaverð og rennur
það til útgerðar. Verðbreytingin er
tekin í Ijósi breyttra aðstæðna,
eins og það er orðað í samþykkt
Verðlagsráðs sjávarútvegsins frá í
gær. Samþykktin er svohljóðandi:
„Með tilliti til breyttra að-
stæðna samþykkir Verðlagsráð
sjávarútvegsins að skiptaverð á
loðnu til bræðslu verði kr. 1.060
fyrir hvert tonn frá og með 1.
nóvember til og með 31. desem-
ber 1984. Önnur ákvæði sam-
kvæmt tilkynningu ráðsins nr.
16 frá 29. september 1984 eru
óbreytt.“
Jón Reynir Magnússon, for-
maður ráðsins, sagði í samtali
við blaðamann Mbl. í gærkvöldi,
að ástæða hækkunar skipta-
verðsins væri sú, að hærra verð
fengist fyrir afurðirnar, loð-
numjöl og loðnulýsi, en verið
hefði þegar verðið var ákveðið í
septemberlok. „Afurðaverðið
var mjög lágt fyrr í haust þegar
skiptaverðið var ákveðið af
kaupendum og oddamanni en nú
þykir rétt að láta þá, sem hafa
atvinnu af loðnuveiðum og
-vinnslu, njóta bættra kjara,“
sagði hann.
Loðnulýsi er einkum selt til
Bretlands en nokkuð til Hol-
lands og' V-Þýskalands. Loðnu-
mjöl er selt víða um heim,
stærstu markaðirnir eru í
Finnlandi og Bretiandi.
Bifreiðin er talin gjörónýt
26 ára gamall
maður beið bana
í umferðarslysi
CarAi. S. nóvember 1984.
Tuttugu og sex ára gamall
Garðbúi, Ingimundur Guðmunds-
son, beið bana i umferðarslysi sem
varð um kl. 4 aðfaranótt sl. laug-
ardags á Sandgerðisheiði, tæpan 1
km norðan við byggðina í Sand-
gerðL
Slysið varð með þeim hætti að
Ingimundur heitinn var á leið
frá Keflavík til Sandgerðis, þeg-
ar hann átti skammt ófarið
missti hann stjórn á bifreiðinni,
sem fór margar veltur utan veg-
ar. Ingimundur kastaðist út úr
bílnum og var hann látinn þegar
komið var með hann í sjúkrahús-
ið í Keflavík. Hann var einn í
bílnum, sem er af gerðinni
Daihatsu Charmant og er talinn
gjörónýtur.
Ingimundur Guðmundsson var
26 ára gamall, fæddur 9. nóv-
ember 1957 til heimilis að
Garðbraut 43. Hann var rafvirki upp f 1. deild fyrir nokkrum vik-
að mennt. Hann lék með knatt- um. Ingimundur var ókvæntur.
spyrnuliði Víðis sem vann sig Arnór
Ingimundur Guðmundsson
Hærra verð fyrir loðnumjöl og lýsi:
18 % hækkun á skipta-
verði loðnu til bræðslu
SKIPTAVERÐ á loðnu til bræðslu Nýja verðið, 1.060 krónur fyrir
hefur verið hækkað um tæp 18% hvert tonn í stað 900 króna áður,
frá og með síðustu mánaðamótum. gildir til áramóta. Verð til loðnu-
Ólafur G. Einarsson um stjórnarsamstarfið:
Ekki áhuga á óbreyttu ástandi
„ÉG ER að leggja til að brugðist verði við fylgistapi ríkisstjórnarinn-
ar, sem ég tel vera staðreynd. Það þarf að bregðast við og ræða til
botns, hvort menn geti ekki komið sér saman um eitthvað, sem gæti
skapað nýja stemmningu í kringum rfkisstjórnina. Ein af niðurstöð-
unum gæti orðið að hafa ailt óbreytt — að gera ekki neitt. Ég hef
ekki áhuga á slíku og horfi þar aðeins til sögunnar," sagði Ólafur G.
Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, er hann var
spurður hvað hann ætti við með orðum sínum í viðtali við DV í gær,
en þar segir hann m.a. að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins þurfi að
gera ýmis stór mál upp við sig í þessari viku.
ólafur sagðist ekki vilja tjá sig
nánar á þessu stigi hvaða leiðir
hann teldi færar til að ná upp
„nýrri stemmningu", eins og hann
kallar það, eftir væri að ræða
málið í þingflokknum. I viðtali f
DV er einnig haft eftir Ólafi, að
þingflokkurinn hafi aðeins viku
eða tvær vikur til ákvörðunar um
framhaldið. Um þessi tímamörk
sagði hann: „Eg sagði vika, hálfan
mánuð og ég ftreka að tfminn er
knappur. Það hafa breyst ýmsar
forsendur efnahagsstefnu rfkis-
stjórnarinnar við kjarasamn-
ingana, sem við þarf að bregðast.
Til þess höfum við ekki langan
tíma út af fjárlagagerðinni, hún
ein setur okkur mjög þröngar
timaskorður. Það er fyrst og
fremst það sem ég er að tala um,
þegar ég nefni þröngar tima-
skorður." Ólafur vildi ekki tjá sig
frekar um málið.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði um
sömu frétt, en þar er m.a. sagt, að
Þorsteinn „rói nú lífróður í þing-
flokknum" og að meiriháttar um-
brot séu þar á döfinni:i „Það eina
sem ég get sagt, er að ég kannast
ekki við þennan lífróður sem um
er talað og að stærstum hluta til
sýnist mér þetta venjuleg roku-
frétt, án þess að hún styðjist við
miklar heimildir. Hitt hlýtur auð-
vitað öllum að vera ljóst, að rfkis-
stjórn og sérhver stjórnarflokkur
hlýtur eftir slíka atburði, sem átt
hafa sér stað og hafa raskað svo
mjög markmiðum rfkisstjómar-
innar, að endurmeta sfna stöðu og
það ætti varla að koma nokkrum
á óvart. En þessar bollaleggingar,
sem þarna er verið að tala um,
hafa ekki verið til umræðu í þing-
flokknum.
Þorsteinn var spurður, hvort
einhverjar viðræður hefðu átt sér
stað við Alþýðuflokkinn um hugs-
anlega þátttöku hans í ríkis-
stjórninni. „Ekki svo ég viti til,“
svaraði hann. Aðspurður um
hvort rætt hefði verið upp upp-
stokkun ráðherraliðsins, en í
DV-fréttinni er það nefnt sem eitt
af því sem til umræðu sé, sagði
hann: „Þetta hefur ekki komið til
umræðu í þingflokknum."
— En manna á meðal?
„Það eru alltaf einhverjar kvik-
sögur á ferðinni um slíkt, en það
er varla mikið fréttnæmt í því.
Málefni Sjálfstæðisflokksins
verða ekki ráðin til lykta á útsíð-
um DV eða annarra blaða. Það er
ætfð, þegar blöðin vantar fréttir,
að búnar eru til fréttir af þessu
tagi,“ sagði formaður Sjálfstæðis-
flokksins ennfremur.
Matthías Bjarnason, heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra, var
spurður hvort hann kannaðist við
að til umræðu væri uppstokkun
ráðherraliðsins. „Ég veit ekki til
þess að þessar umræður hafi farið
fram og í þingflokki Sjálfstæðis-
fiokksins hefur ekki verið rætt
einu orði um þetta. Ég kannast
ekki við þetta og veit ekki til þess
að neinn af ráðherrum Sjálfstæð-
isfiokksins sé að kveðja. Hvað
varðar mig sjálfan, þá hef ég ekki
gefið til kynna við einn eða neinn,
að ég sé að kveðja, svo þessar
fregnir í DV um það koma mér á
ívart.“
Menningarviðburðir helgarinnar
Nýtt íslenzkt sjónvarpsleikrit ...................... bls. 17.
Tónleikar Kammermúsíkklúbbsins ...................... bls. 17.
Sýning LR á Önnu Frank .............................. bls. 20.
Sýning Nemendaleikhússins .......................... bls. 20.
Sýning Alþýðuleikhússins ............................ bls. 21.
Tónieikar Ensamble 13 ............................... bls. 21.
Frumsýning á Kúrekar norðursins ..................... bls. 41.
Alþýðuflokkurinn, Reykjavfk:
Dræm þátttaka í
flokksþingskjöri