Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984 Málfrelsið fyrir Júgóslavíu rétt í Belgraó, Júgóslavíu, 5. nóvember. AP. SEX menn, sem sakaðir hafa verið um „fjandsamlegt athæfi“ fyrir það eitt að hafa talað um stjórnmál, verða leiddir fyrir rétt í dag. í flestra augum snýst málið um það hve mik- ið málfrelsi ríkir í Júgóslavíu, sem lengi hefur verið frjálslegasta kommúnistaríkið. Sexmenningarnir voru kærðir 6. ágúst sl. fyrir að hafa ásamt mörgum öðrum tekið þátt í um- ræðuhópum sl. sjö ár þar sem fluttir voru fyrirlestrar um vís- indaleg og þjóðfélagsleg efni. Hljóðar ákæran upp á „fjandsam- FRAKKAR hafa horfið á brott með allar orrustuflugvélar sínar frá Chad, fjórar Jaguar-þotur og fjórar Mirage-þotur, að sögn talsmanna franska hersins. Einu herfiugvélarn- ar, sem þar eru eftir, eru tvsr Dass- ault-Breguet-eftirlitsflugvélar og Transall-flutningaflugvélar. Frakkar eru um þessar mundir að flytja herlið sitt á brott frá Chad. Um 3.500 franskir hermenn voru sendir til landsins í ágúst- mánuði í fyrra til að hrinda sókn uppreisnarmanna Goukouni Ou- legt athæfi" og aðra pólitíska glæpi. Að undanförnu hafa ýmsir frammámenn i kommúnista- flokknum og ríkisstjórn hvatt til aðgerða gegn þeim, sem dirfast að gagnrýna stefnu stjórnvalda. Dr. Vojislav Seselj, 29 ára gam- all kennari við háskólann í Saraj- evo, var í sumar dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að hafa skrifað grein um efnahagsmál í Júgóslav- íu og ýmis samfélagsleg mein. Hafði hún ekki verið birt opinber- lega en fjallað um hana í umræðu- hópunum fyrrnefndu. Sexmenn- eddei fyrrum forseta, sem nutu aðstoðar Líbýumanna. Sex foringjar í Líbýuher eru í Chad til að fylgjast með brott- flutningi Frakka og jafn margir franskir foringjar fylgjast með brottflutningi um 5.000 líbýskra hermanna frá norðurhluta Chad. Fylgjast foringjarnir með brott- flutningnum þar til síðasti her- maðurinn úr röðum hvorratveggju verður á brott úr Chad, sem er fyrrum frönsk nýlenda. Styrjald- arástand hefur ríkt í Chad í tvo áratugi. ingarnir, sem nú verða leiddir fyrir rétt, eru allir menntamenn og eiga yfir höfði sér fangelsi í fimm til fimmtán ár ef þeir verða fundnir sekir. Að sögn eins þeirra, Milans Nik- olics, voru umræðuhóparnir mjög óformlegir og stjórnmál aðeins eitt af áhugaefnunum. Vakti það ekki fyrir þátttakendum að efna til samblásturs gegn stjórnvöld- um, heldur voru þeir flestir sósíal- istar, sem létu sig dreyma um lýð- ræðislegt þjóðskipulag í stað ein- ræðisins, sem nú ríkir í Júgóslav- íu. Þetta mál hefur vakið mikla umræðu meðal júgóslavneskra kommúnista um það hvernig koma eigi fram við fólk, sem ekki játar trú þeirra. Sem dæmi um það má nefna, að í fyrra mánuði var samþykkt ályktun á þingi júgóslavneskra kommúnista, sem börðust í spænska borgarastríð- inu, þar sem hvatt er til lýðræðis og frelsis í júgóslavnesku samfé- lagi og stjórnin sökuð um „að hafa svikið þær hugsjónir, sem við börðumst fyrir". Þessi ályktun var að sjálfsögðu ekki birt i júgó- slavneskum fjölmiðlum en austur- ríska blaðið Die Presse greindi frá henni. Vestrænir sendimenn og ýmsir Júgóslavar telja, að stjórnvöld séu viðkvæmari fyrir gagnrýni nú en oft endranær vegna þess, að þung- ar álögur hafa verið lagðar á landsmenn til að unnt verði að greiða niður erlendar skuldir, sem eru 20 milljarðar dollara, og lífskjörin því versnað mikið. Frakkar flytja þotur frá Chad N’djuneu, 5. nóvember. AP. “"25 Nýju seðlarnir og þeir gömlu. Nýju seðlarnir eru talsvert minni en þeir gömlu og myndir af stjórnmálamönnum og þjóðarleiðtogum hafa orðið að víkja fyrir myndum af skáldum og menntamönnum. Japanir minnka seölana til að spara pláss og prentun JAPANIR BREYTTU mynt sinni í síðustu viku og eru nýju seðlarnir talsvert minni en forverar þeirra. Gengi jensins verður hið sama áfram, þ.e. 245 f Bandaríkjadollarar, og upphsð nýju seðlanna er sú sama og hinna gömlu, þ.e. 10.000, 5.000 og 1.000 jen, en slegin verður 500 jena mynt í stað seðils sömu upphsðar. Ráðist var í breytingarnar til að draga úr prentunar- og geymslukostnaði. Samtals voru í bankahólfum 3,6 milljarðar seðla að jafnvirði 90 milljörðum Bandaríkjadollara þegar breytingin átti sér stað 1. nóvember. Kostaði prentun nýju seðlanna jafnvirði 250 milljóna dollara og gífurlegur kostnaður annar fylgir breytingunni, t.d. breytingar á nærri 300.000 vélum, sem taka við peningum fyrir ýmsa þjónustu, t.d. á bensínstöðvum. Nýju seðlana prýða önnur andlit en þá gömlu. Horfið hefur verið frá því að láta myndir stjórnmála- manna og þjóðarleiðtoga prýða seðlana en í staðinn eru notaðar myndir af skáldum og mennta- mönnum. Er það gert á þeirri for- sendu, að sögn talsmanna Jap- ansbanka, að ímynd hinna síðar- nefndu sé betri og jafnframt al- þjóðlegri en ímynd leiðtoganna. Samkvæmt blaðafregnum stóð til að konumynd prýddi einn seðil- inn, en samkomulag tókst ekki um kandidat úr röðum kvenna. Á seðl- unum eru upphleyptir punktar til þess að blindir og sjóndaprir geti glöggvað sig á þeim. Gömlu seðl- arnir verða innheimtir á næstu sex mánuðum. Verða þeir malaðir mélinu smærra og notaðir í papp- írsdeig til öskju- og bréfþurrku- gerðar. Stúdentaóeirðir í Suður-Kóreu Seoul, 5. BÓTember. AP. Til átaka kom í dag milli háskóla- nema og lögreglusveita við Yonsei- háskólann og er talið að 4.000 námsmenn hafi komið við sögu. Hentu þeir grjóti og bensínsprengj- um en lögreglan svaraði með tára- Fyrsta borg kynvillinga? Vestur-Hollywood, Kaliforníu, 5. nóvember. AP. f kosningunum í Bandaríkj- unum á þriðjudag verður kosið um margt fleira en forseta og þingmenn. í Vestur-Hollywood verður Ld. um það kosið hvort gera skuli byggðina að sérstöku sveitarfélagi og ef það verður samþykkt verður Vestur-Holly- wood fyrsta borgin í Banda- ríkjunum og vafalaust öllum heimi þar sem kynvillingar eru í meirihluta. Vestur-Hollywood er rúm- lega fimm ferkílómetra svæði milli Beverly Hills og Los Angeles og það eru ekki að- eins kynvillingar, sem vilja gera svæðið að sérstakri borg, heldur einnig flestir leigjend- ur þar og aldrað fólk, sem eru 22,5% íbúanna. Kynvillingar, bæði konur og karlmenn, stefna hins vegar að því að ná meirihluta í borgarráðinu og geta gert sér um það góðar vonir. Vestur-Hollywood er nokk- urs konar miðstöð innanhúss- arkitektúrsins á vesturströnd Bandaríkjanna og þar eru einnig mörg frægustu veit- ingahús og hótel í Hollywood. gasi. Forsprakkar námsmanna sögðu a.m.k. 10.000 lögreglumenn hafa verið senda gegn þeim. Til átaka kom er námsmennirn- ir reyndu að efna til mótmælaað- gerða á skólalóðinni og í næsta nágrenni. Hrópuðu námsmennirn- ir ókvæðisorð um stjórn landsins, sem þeir sögðu einræðis- og harð- stjórn. Krafist var afsagnar ým- issa ráðamanna og að stjórnar- flokkurinn yrði leystur upp. Brenndu þeir brúður, sem áttu að vera eftirmyndir Chun Doo-hwan forseta og þriggja ráðherra hans. Lögreglumenn féllu í Chile Santiago, S. nó.ember. AP. FIMM menn köstuðu sprengjum og bófu vélbyssuskothríð á stöðvar herlögreglu I Gran Avenida-hverf- inu, felldu tvo lögregluþjóna og særðu þrjá til viðbótar, þar af tvo lífshættulega. Á föstudag var gerð samskonar árás á lögreglustöð i Valparaiso, næststærstu borg Chile, og voru fjórir lögregluþjónar þá vegnir og 12 særðir. Stjórn Augusto Pinochet hefur sakað vinstri sinnaða öfgamenn um sprengjutilræðin, en engin samtök hafa lýst sig ábyrg. Lög- reglan hefur sætt harðri gagnrýni af hálfu stjórnarandstöðunnar fyrir harða framgöngu gegn stjórnarandstæðingum, sem efnt hafa til mótmælaaðgerða i Chile að undanförnu. í Húsi verslunarinnar viÖ Kringlumýrarbraut Við getum haldið fyrir þig konungiegar veislur hvar sem er og hvenær sem er og gestafjöldinn skiptir engu máli. Efþú þarft að halda 10 vtanna veislur eða 1.000 manna risasamkomur gæti fyrsti leikurinn verið símtal til matreiðslusnillinganna í VeitingahöUinni. Þeir eru sér- frœðingar í að útbúa konunglegar kræsingar hvort sem erfyrir hópa sem mæta á staðinn (að vísu ráðum viö ekki alveg við 1.000) eða viljafá sent heim í eigin haUir. Það skiptir okkur ekki öUu máli hve margir gestimir eru við tryggjum alltaf sömu gæðin. Hringdu í 33272 og fyrr en varir ertu kominn í sælkeraheim Veitingahallarinnar og Hallagarðsins fyrir hreint almúgaverð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.