Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
„Samstaða lifir“
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, flutti ræðu af svölum kirkju heilags Stanislás Kostka og sagði, að þeirri þjóð,
sem aetti kennimann á borð við Popieluszko, væri ekki hætt. Á borðunum voru yfirlýsingar um stuðning við
Samstöðu og fólkið hrópaði að án Samstöðu yrði aidrei neitt frelsi í Póllandi.
Kistan með Ifki séra Popieluszko var sett á pall úti fyrir kirkjunni til að
sem flestir gætu heyrt og séð athöfnina. Josef Glemp, kardináli, flutti
útfararræðuna að viðstöddum 250.000 manns.
Fjórðungur milljónar
yið útför Popieluszko
Varejá, 5. nóvember. AP.
Rúmlega fjórðungur milljónar
manna fylgdi til grafar pólska
prestinum Popieluszko sl. laugar-
dag og hefur ekki annar eins
mannfjöldi komið saman í borg-
inni síðan Páll páfi var þar á ferð.
Lýsti fólkið yfir stuðningi við Sam-
stöðu með því að hrópa á víxl „það
verður ekkert frelsi án Samstöðu“
eða „Lech Walesa".
Lögreglubílar og bílar búnir
vatnsbyssum fylgdu í humátt á
eftir fólkinu en ekki kom til
neinna átaka. Þegar gangan fór
fram hjá aðalstöðvum lögregl-
unnar í miðborg Varsjár bættust
í hana um 100 einkennisklæddir
en óvopnaðir lögreglumenn og
var það augljóslega gert til að
sannfæra fólkið um, að ekki yrði
á það ráðist.
Við útför Popieluszko flutti
Walesa ræðu af svölum kirkj-
unnar og sagði, að „Samstaða
lifir vegna þess, að þú gafst líf
þitt fyrir hana. Pólland, sem á
slíka kennimenn og fólk svo
trútt hugsjónum Samstöðu, hef-
ur ekki farist og mun ekki far-
ast.“
Hin opinbera fréttastofa,
PAP, sagði á föstudag að hers-
höfðingi í innanríkisráðuneytinu
hefði verið leystur frá störfum
og tveir lægra settir menn settir
í gæsluvarðhald vegna aðildar að
morði Popieluszko. Hershöfðing-
inn umræddi heitir Zenon Platek
og var yfirmaður þeirrar deild-
ar, sem fylgist með kaþólsku
kirkjunni.
Víetnam:
Hringdu í 33272 og fyrr en varir ertu kominn í sælkeraheim
Veitingahallarinnar og Hallagarðsins fyrir hreint almúgaverð.
Veitingar
fyrir 10-70
manna hópa
í glæsilegum
salarkynnum
Veitingahall-
arinnar
Veitingahöllin og
Hallargaröurinn bjóöa
smærri hópum upp á
glæsilega aðstöðu og
konunglegan viöur-
gjörning á vægu veröi.
Við bjóöum aðstööu til
hádegis- eða kvöld-
verðafunda svo og
veisluhalda fyrir 10—70
manns. KomiÖ og
skoöiö aöstööu okkar í
hjarta borgarinnar og
kynnist gæöum og
veröi veitinganna.
í Húsi verslunarinnar
við Krinqlumýrarbraut
Rússar gætu gert
árásir á Ástralíu
Sydney, 5. nóvember. AP.
LANGDRÆGAR sovéskar sprengju-
fiugvélar, sem aðsetur hafa í sovésk-
um herstöðvum I Víetnam, gætu gert
árás á hvaða skotmark sem væri í
Ástralíu, að sögn sérfróðra manna,
sem jafnframt segja varnir landsins
ekki í stakk búnar til að bregðast við
og verjast árásum af þessu tagi.
Sovéskar sprengjuflugvélar
hafa fast aðsetur í Cam Ranh-
herstöðinni í Víetnam. Drægni
þeirra er slík að þær geta flogið
hvert sem er í Ástralíu og til baka
án þess að taka eldsneyti á flugi.
William Crowe aðmiráll, yfir-
maður Kyrrahafsflota Bandaríkj-
anna, varaði nýlega við því að Sov-
étmenn hefðu lagt í miklar fram-
kvæmdir og uppbyggingu í Cam
Ranh, Ástralíu stafaði nú hætta
af sovéskum sprengjuflugvélum,
búnum langdrægum eldflaugum,
sem bar hefðu bækistöð.
í Ástralíu er ekki að finna lang-
drægar ratsjár til að fylgjast með
flugvélum af þessu tagi og þar eru
heldur ekki eftirlitsflugvélar, sem
fylgst gætu með árásarflugvélum.
Sovéskar árásarflugvélar gætu því
gert árás á skotmörk í Ástralíu án
teljandi vandræða, að sögn sér-
fróðra manna. Hins vegar er verið
að setja upp langdrægar ratsjár í
Ástralíu, sem komnar verða í
gagnið eftir nokkur ár, og Ástralir
hafa nýverið fest kaup á fullkomn-
um F-18-orrustuþotum, sem
komnar verða í gagnið fyrir 1990,
og batnar þá staða þeirra mjög.
Fresta fundi um
brottflutning herja
Beirét, 5. nó,ember. AP.
ÍSRAELAR og Líbanir ákváðu að
fresta viðræðum um brottfiutning
ísraelskra hcrsveita frá Suður-Líb-
anon þar sem Rashid Karami, for-
sætisráðherra Líbanons, tókst ekki
að ná saman rfkisstjórn sinni til
fundar til að velja viðræðunefnd
sína.
Viðræðurnar áttu að hefjast í
dag, mánudag, í landamæraborg-
inni Naqoura, en var frestað að
ósk Líbana. Karami tókst ekki að
kalla stjórn sína saman þar sem
Walid Jumblatt, drúsaleiðtogi, og
Nabih Berri, leiðtogi shíta, voru í
útlöndum. Búist er við að fundir
fsraela og Líbana geti hafist síðar
í vikunni.
Bæði Jumblatt og Berri segjast
treysta Karami fyllilega til að
skipa viðræðunefnd að þeim fjar-
stöddum, en heimildir herma að
Karami og Amin Gemayel forseti
vilji láta þá taka þátt í valinu svo
ekki komi til ágreinings síðar.
■ Til bardaga kom í dag, þriðja
daginn í röð, í austurhluta Líban-
ons, sem sýrlenskar hersveitir
lögðu undir sig 1976. Shítar eiga
þar í útistöðum við Sýrlendinga.