Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
5
Sædýrasafnið:
Ekki vitað hvenær háhyrn-
ingaveiðar hefjast
arnar, en vélbáturinn Guðrún,
sem notaður hefur verið til að
fanga háhyrningana, væri enn við
síldveiðar. Sædýrasafnið hefur
leyfi til að fanga 4 lifandi háhyrn-
inga nú sem undanfarin ár. Jón
sagðist ekkert vita hvert markaðs-
verðið væri nú enda væri það mis-
jafnt.
Sagði hann að 50 til 60 þús-
und dollarar hefðu fengist fyrir
hvert dýr að undanförnu, það er 7
til 8 milljónir íslenskar fyrir há-
hyrningana fjóra.
Söluverð 4 dýra
7—8 milljónir
„JÁ, VIÐ gerum ráð fyrir því,“ sagði
Jón Gunnarsson, forstöðumaður Sæ-
dýrasafnsis í Hafnarfirði, þegar
hann var spurður að því hvort Sæ-
dýrasafnið ætlaði ekki að gera út bát
á háhyrningaveiðar eins og undan-
farin ár.
Jón sagði að ekki væri vitað
hvenær hægt yrði að hefja veið-
Hiö frábæra Ríó tríó sem allir
muna eftir er nú komiö sam-
an aö nýju. Þeir félagar
Ágúst, Helgi og Ólafur hafa
nú sett saman bráöskemmti-
lega og eldhressa dagskrá
meö gömlu og góöu ásamt
nýju og fersku efni sem
frumflutt veröur í Broadway
um næstu helgi.
Gunnar Þóröarson hinn mikli
tónlistarsnillingur hefur af
þessu tilefni sett saman
stórhljómsveit strengja og
blásara sem leika mun undir
hjá Ríó þar sem þeir
skemmta gestum í mikilli
Ijósadýrð Broadway, í húsi
sem ber hljóm afburöa vel.
Skemmtikvöldin í Broadway
hafa fest sig í sessi íslensks
skemmtanalífs og veriö
hvert öðru betra. Þaö er því
enginn svikinn af gleöistund
í Broadway meö Ríó. Fram-
leiddur veröur þríréttaður
Ijúffengur kvöldveröur af
bestu gerö — pantið borö
tímanlega því hér er aö fara
af staö hin allra besta
skemmtun.
Nýr álsamningur undirritaöur í Zlirich í gær:
Nýtt orkuverð, stækkun ál-
versins, dómsátt um deilur
Stykkishólmur:
Framkvæmdir við
sjúkrahúsið ganga vel
Stykkixbólmi. 31. okt.
FRAMKVÆMDIR við sjúkrahúsið
og heilsugæslustöðina hér I Stykk-
ishólmi hafa gengið eftir áætlun og
er þessi álma nú komin undir þak og
var þessa áfanga sérstaklega minnst
í þessum mánuði.
Þvottahúsið og geymsla fyrir
sjúkrahúsið sem eru í austurálmu
byggingarinnar komast í gagnið í
haust og byggingin á að verða
fokheld fyrir áramót. Samkvæmt
samningi greiða stysturnar — eig-
endur sjúkrahússins — 47,16% af
stofnkostnaði, ríkið 49,63% og
sveitarfélagið 3,21%. Byggingar-
nefnd skipa systir Rene Lonton
formaður, Einar Karlsson og
Sturla Böðvarsson. Um sl. áramót
hafði verið unnið fyrir tæpar 17
milljónir króna.
Fréttaritari
BIPiOAD
WAY
nk. föstudags-, laugar-
dags- og sunnudags-
kvöld kl.
ZUrich, 5. nóvember, frá önnu
Bjamadóttur, frétUríUra MbL
SVKRRIR Hermannsson, iðnaðarráðherra, undirritaði laust eftir hádegi í
dag, í höfuðstöðvum Alusuisse í Ziirich, samkomulag við svissneska álfyrir-
tækið Alusuisse. Samkomulagið felur I sér dómsátt deiluaðila, íslenska
ríkisins og Alusuisse, samþykkt um breytingu á aðalsamningnum og
viðaukasamning um raforkuverð.
Dr. Bi-uno F. Sorato, forstjóri
Alusuisse, og dr. Dietrich N.
Ernst, varaforstjóri, undirrituðu
samkomulagið fyrir hönd Alu-
suisse. Dr. Jóhannes Nordal, for-
maður stjórnar Landsvirkjunar,
og Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, undirrituðu fyrir
hönd Landsvirkjunar. Iðnaðar-
ráðherra mun leggja samkomu-
lagið fyrir Alþingi á miðvikudag
og segist vona að það verði sam-
þykkt sem lög sem allra fyrst.
„Ég geri mér vonir um að sam-
komulagið verði samþykkt innan
10 daga,“ sagði hann, „en þori ekki
að segja til um hvort það tekst.
Við verðum að hafa í huga að hver
dagur er ansi dýr.“ Hann sagði að
hver sólarhringur kostaði Islend-
inga 400 þúsund krónur þangað til
nýja samkomulagið gengur í gildi.
Það á að gilda til 20 ára og má
endurnýja til 10 ára árið 2004.
Alusuisse hefur samþykkt að
greiða á bilinu 12,5 til 18,5 mill
fyrir raforkuna, verðið reiknast út
frá heimsmarkaðsverði á áli
hverju sinni. Fyrirtækið hefur
borgað 9,5 mill fyrir orkuna sam-
kvæmt bráðabirgðasamkomulagi
frá því í september 1983 en frá
1975 til þess tíma var verðið 6,45
mill. Hin nýja samþykkt um raf-
orkuverðið gildir til 5 ára og má
þá endurskoða hana.
í samkomulaginu um breytingu
á aðalsamningnum er gefin heim-
ild til að stækka álverið í
Straumsvík um helming og fá nýj-
an eignaraðila, sem mætti eiga
50% í fyrirtækinu. Dr. Jóhannes
Nordal, sem var formaður ís-
lensku nefndarinnar er samdi við
Alusuisse, benti á, að hinn nýi
orkusamningur gildi ekki fyrir
nýja eigendur og stærri verk-
smiðju. Breytingarnar á aðal-
samningi fela einnig í sér endur-
skoðunarrétt á skattareglum fyrir
fyrirtækið. Dr. Jóhannes sagði að
nú yrði hafist handa við að finna
nýjar og öruggari viðmiðunarregl-
ur til að skattleggja ÍSAL hf. og
sagðist vona, að þær kæmu fram
fyrir mitt næsta ár.
Dómsáttin byggist á fyrningu
gamalla deilumála aðila varðandi
verðlagningu á hráefnum, af-
skriftir og skattaviðurlög. Sverrir
Hermannsson sagði, að Alusuisse
hefði sæst á það sem íslenska
stjórnin fór fram á, þ.e. hækkun
orkuverðs og greiðslu sáttafjár að
upphæð 3 milljónir dollara. Sú
upphæð dregst frá skattainneign
fyrirtækisins hjá íslenska ríkinu,
en alls hafa 7 milljónir dollara
hlaðist þar upp á undanförnum
árum.
Samningsaðilar þökkuðu hvor
öðrum fyrir gott samstarf að und-
irskrift lokinni, en í fréttatilkynn-
ingu frá Alusuisse segir, að deilu-
mál aðila hafi nú verið leyst „á
vinsamlegan hátt“. Dr. Sorato,
forstjóri Alusuisse, sagði eftir
undirskriftina, að sanngjörn lausn
hefði verið fundin á deilumálunum
og hvorugur aðilanna borið lægri
hlut. „Við höfum starfað lengi
saman,“ sagði hann, „og höfum
19.00.
Hólmfríður Björnsdóttir
100 ára á fimmtudaginn
HÓLMFRÍÐUR Björnsdóttir, Álf-
heimum 52, síðar Fífuhvammsvegi
33, Kópavogi, nú til heimilis á
Hjúkrunarheimili aldraðra í Sunnu-
hlíð í Kópavogi, verður 100 ára 8.
þessa mánaðar.
Hún er fædd í Dölum í Fá-
skrúðsfirði, dóttir Björns Stefáns-
sonar og Margrétar Stefánsdóttur.
Giftist Halldóri Pálssyni í Tungu í
Fáskrúðsfirði. Bjuggu þau 24 ár að
Nesi í Loðmundarfirði, en fluttu
síðan til Reykjavíkur og bjuggu
þar til 1967, er Halldór lést.
Hólmfríður tekur á móti gestum
í Félagsheimili Langholtssafnaöar
á afmælisdaginn kl. 4—7.
sýnt að við getum leyst ágrein-
ingsmál okkar á hreinskilinn hátt.
Ég býst við að samstarf okkar geti
nú aftur orðið eðlilegt og ég
treysti því að samstarfsaðilar
okkar næstu 20 árin verði áreið-
anlegir," sagði forstjóri Alusuisse.
Samkomulagið verður lagt fyrir
stjórn fyrirtækisins á næstunni.
Hólmfríður Björnsdóttir
Borðapantanir
daglega kl. 11—19
í síma 77500.
VERIÐ VELKOMIN VELKLÆDD í