Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 56
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984 Heim til Svíþjódar — heim til Islands í heimsókn hjá Teiti Þórðarsyni og fjölskyldu í Cannes í Frakklandi TEITUR ÞÓRÐARSON var einn fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn sem yfirgaf landið og gerðist atvinnu- maður í íþrótt sinni. Hann fór til Svíþjóðar og allar götur síðan hefur hann haft mjög sterkar taugar til þessarar frændþjóðar okkar. Teitur var um tíma einn dáðasti knattspyrnumaður í Svíþjóð, hann varð þrívegis sænskur meistari með Öster, og eitt árið var hann útnefndur besti íþróttamaður í hópíþrótt í landinu. Því til sönnunar sýnir hann mér viðurkenningu sem hann hlaut af því tilefni. Eitt og annað fleira úr verðlaunasafninu sýnir hann mér og ekki fer á milli mála að hér er á ferðinni íþróttamaðurinn sem afrekaö hefur sitt af hverju. Teitur býr nú í Cannes, kvikmyndaborginni frægu á Miðjarðarhafsströnd Frakklands, og leikur með samnefndu liði í 2. deild. Ég var svo lánsamur að heimsækja Teit og fjölskyldu hans síðla sumars. Við sátum í stofunni og ræddum saman drjúga stund, eftir að Teitur haföi sótt mig á brautarstöðina í „Svíanum“ sínum, SAAB 900 Turbo. Fyrst fórum viö reyndar að leikvangi félagsins þar sem Teitur fór í stutta meðferö hjá nuddara félagsins, en meiðsli hafa angrað hann nokkuð lengi, og í sumar var hann skorinn upp í nára. Morgunblaðið/Skaptl HaHgrímsaon. „Já, þaö er stutt milli hláturs og gráturs í atvinnumennskuinni,” sagöi Teitur. „Þetta er ekki alltaf dans á rósum. Fyrsta áriö hjá Lens gekk mér rosalega vel. Ég skoraöi 21 mark í deildinni og liöinu gekk flest í haginn. Ég var m.a. meöal markahæstu manna Evrópu. Næsta vetur meiddist ég síðan i nára, og þá var mér ýtt til hliöar. Ég heföi aldrei getaö trúaö því aö óreyndu hve forráöamenn féiaga geta breyst í viömóti viö leikmenn ef þeir meiöast. Ef maður er ekki leikhæfur er maöur einskis viröi, og ég er hræddur um aö þetta sé ótrúlega algengt. Þegar menn meiöast eða á móti blæs meö einhverjum hætti veröa menn aö geta staöiö á eigin fótum. Þá er mikilvægt aö andlega hliöin sé sterk, geysilega mikilvægt,“ sagöi Teitur mér, og vist er aö hann talar þar af reynslu. „Ætlaði að brjóta mig niður“ „Þjálfari okkar hér hjá Cannes er fyrrum franskur landsliösmaöur. Hann var staöráöinn í aö brjóta mig niöur andlega í vor. En ég geröi mér grein fyrir því strax og ákvaö aö honum skyldi ekki takast þaö, aldrei! Ég reifst viö þjálfarann á hverjum degi; en ég mætti, geröi mínar æfingar og fór svo heim í rólegheitum án þess að tala viö kóng né prest. Nú fyrir stuttu kom svo til mín einn stjórnarmanna liösins og baöst afsökunar á þvi hvernig heföi veriö fariö meö mig, og þjálfarinn hefur veriö allt annar maður eftir þaö. Hann hefur greini- lega veriö tekinn í gegn! Hann er þekktur fyrir aö brjóta menn niöur, þessi náungi. Hann tók t.d. þrjá leikmenn á taugum fyrir stuttu, þ.á m. aöalmarkvörð- inn okkar. Þaö var í fyrravetur. Sá var góöur leikmaöur og þaö var rosalegt aö sjá hvernig hann brotnaöi andlega. Þeir höföu veriö leikmenn hjá Nice á sama tíma, hann og sá er þjálfar okkur nú, en haföí aldrei komið nógu vel saman einhverra hluta vegna. Nú sá þjálfarinn sér leik á boröi og ákvaö aö hefna sín. Nú leikur markvöröurinn meö áhugamannaliöi hér í borginni. Einn af forráöamönnum Cannes- liösins tók hann upp á sína arma, útvegaöi honum vinnu í verksmiöju sinni og lét hann leika í liöi fyrir- tækisins." Erfitt fyrst Eins og áöur sagöi lék Teitur í nokkur ár í Svíþjóð. Fyrst er hann fór út lék hann meö Jönköping en síöan Öster. Þaöan var hann síöan seldur til Lens i Noröur-Frakklandi. „Fyrstu sex mánuöirnir í Lens voru rosalega erfiöir. Ég talaöi ekki mál- iö, og svo er líka spilaöur allt annar fótbolti hér en í Svíþjóö. Ég varö aö breyta leik mínum mikiö. Hreyfa mig allt ööru vísi á vellinum. Svo þegar ég kom hingaö niöur eftir varö ég enn aö breyta nokkuö um stíl. Hér er þaö „Suöur-Ameríku- stíllinn" sem gildir.“ Nýr heimur opnast „En þegar maður fer aö tala frönskuna opnast fyrir manni nýr heimur, máliö er dásamlega fal- legt. Þaö er líkt ítölsku og spönsku þannig aö maöur getur skiliö fólk frá þessum löndum. Og krakkarn- ir, þau tala íslensku, sænsku og frönsku og nú er stelpan farin aö læra ensku í skólanum, og hún er ekki nema 12 ára! Þetta er stór- kostleg þekking sem þau munu búa aö í framtíöinni.“ Teitur hefur sagt mér oftar en einu sinni aö Cannes sé paradís á jöröu. „Samt held ég aö ég vildi ekki setjast hér aö til frambúöar. Nú erum viö búin aö vera hér í um tvö ár, og bráölega held ég aö maöur fái nóg. Veöriö er ailtaf gott, ég held jafnvel aö hitinn sé of mikill, og íslendingar fái nóg af svo góöu veöri er til lengdar læturl" íslendingur — Svíi Munu Teitur og fjölskylda flytja til íslands á ný? Hvar eiga þau „heima“? „Ef maöur fær enga almennilega vinnu á Islandi, hvaö hefur maöur þá aö sækja þangaö?“ sagöi Teit- ur. „Ég lit á mig oröið sem jafn mikinn Svía og Islending, fótbolta- lega séö. Svíar fylgjast líka miklu meira meö mér. Viö fórum í sumarfrí til Svíþjóöar í sumar, viö tölum oröið um aö fara „heim“ til Svíþjóöar alveg eins og aö fara heim til Islands. Og þaö er oröiö nokkuö langt síöan viö höfum komiö til Islands. Ég veit ekki hvort viö munum setjast þar aö er ég hætti í at- vinnumennskunni. Ég hef mikinn áhuga á því aö fara út í knatt- spyrnuþjálfun. Mér var raunar boöin þjálfarastaöa á islandi fyrir nokkrum árum. Akurnesingar höföu samband viö mig og buöu mér aö þjálfa meistaraflokksliöiö, áöur en Kirby kom aftur á Skag- ann, en ég var ekki tilbúinn aö fara heim þá.“ Fengi örugglega starf í Svíþjóð „Ég veit aö ég fengi örugglega starf sem þjálfari í Svíþjóö um leið og ég færi til landsins, jafnvel þó ég hafi ekki próf sem slikur. Þó ég segi sjálfur frá er ég oröinn þaö þekkt nafn í Svíþjóö, aö þaö yröi lítið mál fyrir mig. Áöur en ég fór frá Lens til Frakklands vildi m.a.s. eitt þriöjudeildarliö í Svíþjóö fá mig til aö skrifa undir samning um að ég tæki aö mér þjálfun hjá lið- inu er ég kæmi aftur frá Frakk- landi, sama hve langur tími liöi þangaö til! En ég geröi þaö nú ekki. Ég hef lengi haft mikinn áhuga á þjálfun, og hef skrifaö niöur allar æfingar sem viö höfum veriö látnir gera síöan ég byrjaöi í atvinnu- mennskunni. Ég tel mig því vera betur undirbúinn undir þjálfun en sennilega flesta atvinnumenn." Samningur Teits viö Cannes rennur út í vor, og líklegt má telja aö hann flytji sig um set er þar aö kemur. í Frakklandi er ætíö samiö
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.