Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.11.1984, Blaðsíða 48
60 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984 » IM3 frm ,, M ag'inn í mér hcfur nóg o&qcftx cá> \/cnjask \/cl-sobk\uwi mot-" ... að líta björt- um augum til framtíðarinnar. TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved • 1979 Los Angeles Times Syndicate Það stendur hér á miðanum, að hann hafí gelist upp og ákveðið að svipta sjálfan sig lífi! Með morgunkaffinu f eina tíð renndir þú alltaf niður rennilásnum fyrir mig, þegar við fórum að hátta. HÖGNI HREKKVlSI ^ERTU A€> HOR.FA Á QRÖPTIWM EOA ^eSSA TONPlSK JAðALOKU ?! " „Nei, Steindórsmenn" Atvinnubílstjóri sem var 5 ár launþegi áður en hann fékk at- vinnuleyfi skrifar: Enn einu sinni geisast Stein- dórsmenn fram á ritvöllinn, sam- anber grein í DV 3.11. og skamm- ast út í samgönguráðherra og út- hlutunarmenn atvinnuleyfa til leigubílstjóra í Reykjavík. En nú er kominn annar tónn í Steindórsmennina. Þeir hafa tap- að. Tapað máli sínu bæði í undir- rétti og fyrir Hæstarétti, sem staðfesta að þau lög séu í gildi að atvinnuleyfi til leiguaksturs skuli aldrei verða söluvara manna á milli. Steindórsmönnum var full- kunnugt um þessi lög þegar þeir yfirtóku ruslahauginn sem þá kallaðist Bifreiðastöð Steindórs. Þeim var bent á þessi lög bæði af Samgönguráðuneytinu og af Bif- reiðastjórafélaginu Frama, en þeir sögðust ætla að láta reyna á þetta fyrir dómstólunum og ætl- uðu greinilega að þvæla málinu í kerfinu svo árum skipti. En það fór á annan veg. ' f dag emja þeir og kveina um óréttlæti og að þeir hafi lagt út í dýrar fjárfestingar vegna þessara kaupa. Nú voru góð ráð dýr, aðeins ca. 6 atvinnuleyfi til ráðstöfunar þetta árið. Samgönguráðherra er drengur góður og vildi leysa þeirra vanda svo sem mögulegt var. Þá fór út- hlutun atvinnuleyfa fram og var 20 atvinnuleyfum úthlutað og þar af 5 til Steindórs. Þetta grætti Steindórsmenn ennþá meir og töldu þeir enn meir gengið á rétt sinn. Ráðherrann betrumbætti þá fyrri úthlutun og heimilaði 13 at- vinnuleyfi í viðbót, þar af 5 til Steindórsmanna. Þar með voru 10 Steindórsmenn komnir með at- vinnuleyfi af þeim 26 sem upp- haflega keyptu stöðina. En áfram var grátið og nú telja þeir sig ekki komast lengra með samgönguráðherra í máli þessu. Þá er bara næst að læða tor- tryggni og leiðindum inn í raðir atvinnubilstjóranna. Það fer t.d. fyrir hjartað á Steindórsmönnun- um að einn af mönnunum í úthlut- unarnefndinni hafi fengið úthlut- að atvinnuleyfi í seinni úthlutun- inni, en þeir virðast einfaldlega ekki vilja átta sig á því að komið var að aksturstíma hans í úthlut- unarröðinni. Þeir 26 Steindórsmenn sem hæst hrópa á réttlæti hafa í tæp þrjú ár fótum troðið og haft að engu allar þær reglur og lög sem ca. 600 atvinnubílstjórar hér í Reykjavík þurfa að hlíta. Meðal annars hafa þeir ekki talið sig þurfa að vinna sér inn aksturs- tíma eins og aðrir atvinnubílstjór- ar, til að hljóta atvinnuréttindi, þeir telja sig einfaldlega hafa keypt aksturstímann með Bif- reiðastöð Steindórs. Steindórsmenn, þið þurfið að vinna ykkur inn aksturstíma eins og aðrir. Þessir hringdu . . Skattalöggjöfin ekki hagstæðari útivinnandi konum Útivinnandi kona hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Mig langar til að svara JLL sem sagði í Velvakanda sl. fimmtudag að skattalöggjöfin refsaði þeim konum, sem vildu vera heima hjá börnum sínum. Ég er orðin þreytt á að hlusta á þennan söng, því ég er útivinn- andi kona. Eg er hissa á að fleiri konur skuli ekki láta í sér heyra varðandi þetta mál, því sann- leikurinn er sá, að óréttlætið í skattamálum er jafnvel ennþá meira gagnvart útivinnandi kon- um. Þær geta alls ekki dregið frá neinn kostnað til öflunar tekna, t.d. kostnað við barnagæslu. Það mætti kannski segja sem svo, að heimavinnandi húsmæður séu eina stéttin sem vinnur skatt- frjálst að verðmætasköpun. Þær sem vinna úti eru skattlagðar að fullu, þó svo þær borgi kannski % af tekjum sínum í kostnað við að geta unnið, þ.e. í greiðslu kostnaðar við barnagæslu og húshjálp. Þegar 50%-reglan var tekin í gildi á sínum tíma, þá var á móti lögð niður heimild til að draga frá kostnað við heimilishjálp, en þegar þessi regla var lögð niður, þá kom ekkert slíkt aftur í stað- inn. Barnagæsla kostar um 5—7 þúsund á mánuði og heimilis- hjálp einu sinni í viku kostar um 6—10 þúsund á mánuði, eftir því hve mikið er gert. Þetta er að sjálfsögðu tvísköttun á heimil- unum og skerðir mjög val og jafnrétti til þess að velja hvort unnið sé heima eða ekki. Skatta- löggjöfin er því ekki hagstæðari útivinnandi konum en þeim sem vinna heima. Gretti í sjónyarpið Stúlka vió Gautland hringdi: Mig langar til að hvetja sjón- varpið til að sýna fleiri þætti um köttinn Gretti (Garfield). Ég er ekki ein um það að þykja þessir þættir með því besta sem sést hefur á skjánum og það yrðu margir glaðir ef af þessu gæti orðið. Annað vildi ég gjarnan minn- ast á og það er áramótaskaupið. Væri ekki hægt að láta þá félaga Gísla Rúnar, Ladda og Sigurð Sigurjónsson sjá um það? Mér finnst þetta fyndnustu menn landsins og fátt skemmtilegra en að fá að sjá þá á skerminum, ef undan er skilið að sjá köttinn, sem áður er minnst á. Ég vildi svo að lokum taka undir orð þess, sem í Velvakanda á sunnudag furðaði sig á fjölda þula í kvöldfréttum. Eg er viss um, að ef þulirnir væru færri, þá væri hægt að eyða meiri pening- um til að gera skemmtiþætti. Það veitir t.d. ekki af að gera tónlistarþætti með íslenskum hljómsveitum, því ekki komast allir á tónleika, sem oftast eru haldnir á vínveitingastöðum. Fólk á landsbyggðinni hefur ekki hugmynd um hvað er að gerast í íslensku popplífi, því sjónvarpið stendur sig svo illa að þessu leyti. Það var bara þátturinn Glugginn, sem einstaka sinnum sýndi íslenskar hljómsveitir í fyrravetur. Fyrst alltaf er verið að tala um að spara, en um leið að veita góða þjónustu, hvernig væri þá að fækka þulum, en fjölga innlendu skemmtiþáttun- um? Kransar teknir af leiði Ekkja hringdi og hafði eftir- farandi sögu að segja: „Fyrir stuttu fór ég að leiði mannsins míns, sem jarðaður hafði verið nokkrum dögum áð- ur. Ég ætla ekki að lýsa því hvernig mér leið, þegar ég sá, að búið var að fjarlægja alla kransa af leiðinu. Ekkert var eftir, nema lítil tætla af borða eins þeirra. Fyrst hélt ég að um skemmdarverk væri að ræða, en komst svo að því, að krajisarnir höfðu verið fjarlægðir af starfs- manni kirkjugarðsins. Hvernig má það vera, að kransar með lif- andi blómum, merktir hinstu kveðju vina, séu fjarlægðir og það aðeins nokkrum dögum eftir jarðarför." Þakkir fyrir komuna Fulltrúi Jófríðarstaðasóknarfé- laga hringdi: „Ég vil gjarnan koma á fram- færi hjartans þökkum til allra þeirra, sem komu á basar 28. október sl. í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Kærar kveðjur til ykkar allra."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.