Morgunblaðið - 06.11.1984, Qupperneq 28
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
Samningur BSRB og ríkisins:
Allsherjaratkvæðagreiðsla haf-
in utan höfuðborgarsvæðisins
Atkvæðagrcirtsla um nýgerðan að-
alkjarasamning BSRB og fjármála-
ráðherra er hafin eða að hefjast utan
böfuðborgarsvæðisins. Um belgina
voru kjörgögn til ríkisstarfsmanna
úti í landi póstlögð og aettu þau að
berast þeim í dag eða á morgun, ef
þeir hafa ekki þegar fengið þau.
Fólk er beðið að notfæra sér at-
Þorlákur
HF-12 seldi
í Grimsby
TOGARINN Þorlákur Jónsson
HF-12 seldi í Grimsby í gær 90,2
tonn, mest þorsk en nokkuð af grá-
lúðu. Heildarverðið var 2.653,600
krónur eða 29,42 krónur að meðal-
tali fyrir kílóið. Tvö skip selja í
Englandi i dag og eitt f Þýskalandi,
skv. upplýsingum Landssambands
íslenskra útvegsmanna.
kvæðaseðil sinn strax og því berst
hann í hendur og póstleggja hann
aftur tafarlaust.
Atkvæðaseðill sem settur er i
póst siðar en föstudaginn 9. nóv-
ember næstkomandi verður úr-
skurðaður ógildur.
Hafi ríkisstarfsmaður sem er
félagi í BSRB eigi fengið send
kjörgögn á morgun, miðvikudag-
inn 7. nóvember, getur hann feng-
ið þau á næstu póststöð og neytt
atkvæðisréttar síns í samræmi við
þær leiðbeiningar sem þar er að
fá.
Á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í
Reykjavík, Kópavogi, Bessastaða-
hreppi, Garðabæ, Hafnarfirði,
Seltjarnarnesi og Mosfellssveit,
sjá aðildarfélög BSRB um fram-
kvæmd bréflegrar kosningar á
morgun, miðvikudaginn 7. nóv-
ember, og fimmtudaginn 8. nóv-
ember í samráði við yfirkjörstjórn
BSRB.
Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla
hófst í gær á skrifstofu BSRB og
verður haldið þar áfram í dag og á
morgun og á fimmtudaginn. Full-
trúar yfirkjörstjórnar, Sigurveig
Sigurðardóttir og Svanhildur
Halldórsdóttir, sjá um utankjör-
staðaratkvæðagreiðsluna.
Kjörskrá liggur frammi á
skrifstofu BRSB, Grettisgötu 89,
hjá fyrrnefndum fulltrúum yfir-
kjörstjórnar en þeir veita jafn-
framt allar upplýsingar um fram-
kvæmd kosningarinnar. Á kjör-
skrá eru 11.724 félagar í BSRB.
Þá skal að lokum athygli vakin
á því, að þeir 530 félagar BSRB
sem ekki fengu send kjörgögn þeg-
ar atkvæði voru greidd um sátta-
tillögu sáttanefndar í september
síðastliðnum, fá heldur ekki send
kjörgögn nú, enda þótt þeir hafi
verið úrskurðaðir á kjörskrá. Það
stafar af því að ekki gafst tími til
eftir verkfall að leiðrétta það. Þeir
verða þvi að kjósa aftur í „úr-
skurðaratkvæði", enda þótt þegar
sé búið að úrskurða atkvæði
þeirra gild.
(FréttatíL frá jnrkJSrsljórn BSRB)
.. . á bak við velklædda konu
er hin fullkomna, alhliða og einfalda saumavél sem
laðar fram sköpunargleði þess sem saumar.
Þótt hin nýja Singer saumavél sé tæknilega
fullkomin, þá er hún einföld í meðförum —
og svo sparar hún þér stórfé.
SINCER
spori Jramar.
n m t nrp
mn u u ái
&SAMBANDSINS
ÁKMÚLA 3 SÍMI 6879(0
llnnió við vinnslu litmynda hjá Hans Petersen hf.
15 ára afmæli Lit-
framköllunarstofu
Hans Petersen hf.
Framköllunarstofa Hans Petersen
á 15 ára afmæli á þessu ári. f tilefni
þess hefur fyrirtækið gefið fram-
leiðslu sinni nafn. Heita litmyndir
fyrirtækisins H-Lúx litmyndir og er
nafnið stimplað á bak myndanna.
Nafn þetta er fyrst og fremst gæða-
stimpill og að baki stendur Kodak og
tryggir gæði framleiðslunnar, segir í
frétt frá fyrirtækinu.
f meira en sextíu ár hefur Hans
Petersen hf. rekið framköllunar-
stofu. í fyrstu voru eingöngu unnar
svart-hvítar myndir en árið 1969
hófst vinnsla á litmyndum sem hef-
ur aukist jafnt og þétt, en fram-
leiðsla svart-hvítra mynda hefur
dregist saman og eru þær nú ekki
lengur unnar hjá fyrirtækinu.
f fréttinni segir ennfremur:
„Tækni við litframköllun er mjög
þróuð og er litframköllunarstofa
Hans Petersen hf. búin bestu tækj-
um sem völ er á og mikil áhersla er
lögð á gæði framleiðslunnar. Hefur
fyrirtækið tekið þá stefnu að leggja
meiri áherslu á gæði framleiðslunn-
ar en hraða. I dag geta viðskipta-
vinir fyrirtækisins fengið myndir
sínar samdægurs ef komið er með
filmurnar fyrir kl. 11. Við lit-
myndaframleiðsluna vinna að jafn-
aði um 35 manns og eru nokkrir
starfsmenn búnir að vera hátt í 30
ár við myndaframleiðslu hjá fyrir-
tækinu.
Á þessu 15 ára afmælisári lit-
framköllunarstofu Hans Petersen
hf. var opnuð framköllunarstofa á
Akureyri, Myndval hf., í samvinnu
við Friðrik Vestmann, sem er annar
aðaleigandi hins nýja fyrirtækis.
Myndval er búið fullkomnum tækj-
um til litmyndaframleiðslu og nýt-
ur velþjálfað starfsfólk nýja fyrir-
tækisins reynslu og þekkingar
starfsmanna Hans Petersen. Á
næstunni munu fyrirtækin jafn-
framt tengjast með tölvu og mun
nýja framköllunarstofan þá vera
undir stöðugu gæðaeftirliti móður-
fyrirtækisins. Mun þetta gert til að
trygffla gæði framleiðslunnar og
um leið nýtur hið nýja fyrirtæki
fullkominnar tækni og sérþekk-
ingar starfsfólks Hans Petersen
hf.“
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Enn tapa áhorfendur
Skák
Margeir Pétursson
Greinilegt er að bæði Karpov og
Kasparov er meinilla við að tefia í
tvísýnu í heimsmeistaraeinvígi sínu í
Moskvu. í gær sá þrettánda jafntefi-
ið í röð dagsins Ijós þegar 22. skákin
var tefld. Köppunum ferst það báð-
um vel úr hendi að losna við að tapa,
þeir einu sem tapa eru áhorfendur
sem fá ekkert fyrir rúblurnar sínar
annað en að sjá þá félaga leika
þekktar byrjanir, nokkra leiki til
viðbótar, og semja síðan um jafn-
tefli.
Kasparov, sem hafði hvítt í
skákinni í gær, beitti katalónskri
byrjun gegn drottningarbragðs-
vörn heimsmeistarans. Karpov er
þaulvanur þvi að verjast gegn
þeirri byrjun, en engu að síður
þvingaði áskorandinn hann til að
veikja kóngsstöðu sína í 15. leik.
Hvíta staðan leit þá út fyrir að
vera heldur þægilegri, en Kasp-
arov fann enga leið til sóknar og
eftir hálfrar klukkustundar um-
hugsun um 20. leikinn bauð hann
jafntefli sem Karpov þáði sam-
stundis.
Að undanförnu hefur þeim
skákum sem Kasparov hefur haft
hvítt í lokið mjög fljótlega með
jafntefli, en baráttan hefur verið
mun meiri þegar heimsmeistarinn
hefur haft hvítt:
22. skákin:
HvítL- Gary Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Katalónsk byrjun
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. g3
í einvíginu hefur drottningar-
bragðsvörn svarts oftar verið
svarað á hefðbundnari hátt með 3.
Rf3 - d5, 4. Rc3 - Be7, 5. Bg5
3. — d5, 4. Bg2 — Be7, 5. Rf3 — 0-0,
6. 0-0 — dxc4, 7. Dc2 — a6, 8. a4I?
f áttundu skákinni lék Kasparov
8. Dxc4, en komst ekkert áleiðis
eftir 8. - b5, 9. Dc2 - Bb7, 10.
Bd2 - Be4,11. Dcl - Bb7!
8. — Bd7, 9. Bxc4 — Bc6
Karpov hefur margoft teflt
þessa stöðu og þekkir hana allra
manna bezt.
10. Bg5 — a5, 11. Rc3 — Ra6, 12.
Hacl — Dd6, 13. Re5! — Bxg2, 14.
Kxg2 — c6, 15. Bcf6! — gxf6
Bezt var að taka á sig veiking-
una strax, því 15. — Bxf6, 16. Re4
— De7, 17. Rxf6 — Dxf6? gekk
auövitað ekki vegna 18. Rd7. Þó
svartur hafi tekiö á sig þetta tvi-
peð þarf hann síður en svo að ör-
vænta, t.d. vegna þess að biskup
hans á e7 stendur vel til varnar.
16. Rf3 — Hfd8, 17. Hfdl — Db4,
18. Da2 — Hd7, 19. e3 — Had8, 20.
Hc2
Jafntefli. Það er að vísu vart
hægt að segja að hvítur hafi neina
stöðuyfirburði, en með fjórum
vinningum undir er þetta varla
verri staða en hver önnur til að
tefla áfram fyrir áskorandann.
Það er mikið lið á borðinu, svartur
hefur veikta kóngsstöðu og því full
ástæða til að reyna.
Eru meistararnir kannski að
reyna að sanna fyrir sauðsvörtum
almúganum að skák í sinni full-
komnustu mynd'hljóti að verða
jafntefli?