Morgunblaðið - 06.11.1984, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
43
Ómar og Jón sigruðu á Toyota
„ÞETTA ER búiö að vera löng og erfið keppni, við erum ánægðir að hafa
sigrað. Við áttum ekki von á því að þessu sinni,“ sögðu bræðurnir Ómar og
Jón Ragnarssynir sem sigruðu Ljómarallið alþjóðlega í lok september er í
mark kom.
Aðeins sex bílum af tuttugu
tókst að ljúka keppninni sem lá
um 1500 km leið, en þar af voru
720 km eknir á sérleiðum, mikið á
vegum um hálendi landsins. Tveir
erlendir keppnisbílar voru í
keppninni, frá Finnlandi komu
kunnir ökumenn, þeir Peter Geitel
og Errki Vanhanen á Nissan
240RS. Þeir festust í á á Fjalla-
baki og töpuðu miklum tíma eftir
að hafa haft forystu í keppninni.
Er þeir reyndu að vinna upp glat-
aðan tíma, eftir að hafa losnað úr
ánni beygðu þeir hásingu bílsins
og hættu keppni. Skotarnir Philip
Walker og Gordon Dean urðu
einnig að hætta keppni eftir að
hafa misst allt vatn af vélinni,
vegna brotins vatnskassa á Fjalla-
baksleið." Rallið er eldraun bæði
fyrir bílinn og ökumanninn. Við
munum reyna aftur á næsta ári,
við höfum þegar reynt tvisvar og
förum ekki að gefast upp núna,“
sagði Philip Walker eftir að hafa
hætt keppni. Þegar þessir tveir
keppendur voru dottnir út og ís-
landsmeistararnir Halldór Úlf-
arsson og Hjörleifur Hilmarsson,
á Toyota Corolla með bilaðan gír-
kassa, héldu Ómar og Jón jöfnum
hraða út keppnina. Félagarnir
Bjarmi Sigurgarðarsson og Eirík-
ur Friðriksson á Escort 2000 gerðu
nokkrar tilraunir til að ná bræð-
runum, en þrátt fyrir góðan akst-
ur tókst það ekki og þeir sættu sig
við annað sætið löngu áður en
keppni var lokið. Ríkharður Krist-
insson og Atli Vilhjálmsson á
Lödu náðu annað árið í röð þriðja
sæti með öruggum akstri. Loka-
staðan í Ljómarallinu: 1. Ómar
Ragnarsson/Jón Ragnarsson To-
yota Corolla, 2;36,21 klst., 2.
Bjarmi Sigurgarðarsson/Eiríkur
Friðriksson Escort 2000, 2;40,25, 3.
Ríkharður Kristinsson/Atli Vil-
hjálmsson Lada, 3;52,58, 4. Guð-
mundur Jónsson/Sæmundur
Jónsson Subaru 4;55,03, 5. Magnús
Baldvinsson/Gunnar Sigurðsson
Lancer, 5;06,11, 6. Helga Jóhanns-
dóttir/Þorfinnur ómarsson
Toyota Tercel 4WD, 5;50,29.
Strákar í lögguleik
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
Red Rider
Breaking Curfew
Capitol/Fálkinn
Eftir því sem fleiri plötur eru
gefnar út verða möguleikarnir á
að koma fram með eitthvað
verulega frumlegt sífellt minni
og minni. Endurtekningarnar
verða enda æ meira áberandi í
poppinu. Bretum hefur þó
lengstum tekist að verða á und-
an flestum öðrum með nýjung-
arnar og því kemur það alltaf á
óvart þegar sveit vestanhafs af-
rekar eitthvað i þá veru.
Kanadíska sveitin Red Rider
er ekki neitt þekkt að því er ég
best veit. Hana skipa fjórir
náungar, sem ég hefi aldrei fyrr
heyrt getið. Það kemur þó ekki í
veg fyrir þá staðreynd, að flokk-
ur þessi er á köflum allur hinn
áheyrilegasti án þess þó nokkru
sinni að teljast vitund frumleg-
ur. Augljóst er að áhrifavaldar
Red Rider eru margir. Enginn þó
sennilega sterkari en Police.
Hvergi eru áhrifin þaðan greini-
legri en í laginu Beacon Hill og
Hold Tight. Þau fylgja hvort á
eftir öðru.
Lögin á Breaking Curfew eru 9
talsins og flest láta þau einkar
þægilega í eyrum. Hins vegar
eru þau fæst með þeim ósköpum
gerð að festast í vitundinni nema
í skamman tíma. Beacon Hill er
þó lag, sem situr eftir, en Hold
Tight telst þó smellur plötunnar.
Oll vinnubrögð á þessari plötu
eru með miklum ágætum, sem og
allur hljóðfæraleikur. Hver veit
nema Red Rider verði í náinni
framtíð nafn, sem eftir verður
tekið?
Tónlistin ekki merkileg
Blancmange
Mange Tout
Fálkinn
Blancmange er ein af þessum
örsmáu bresku sveitum, sem
slegið hafa í gegn þar í landi í
skjóli tölvuvædds popps. Þegar
talað er um örsmáar sveitir er
vanalega átt við tríó eða þaðan
af minna. Blancmange er aðeins
dúett. Neil Arthur og Stephen
Luscombe (Lúsakambur?) skipa
þessa sveit og gera flestallt
sjálfir, en njóta þó aðstoðar
nokkurra vel valinna hljóðfæra-
leikara, blásara og söngvara.
Vafalítið hefur tónlist Blanc-
mange eitthvað sér til ágætis en
ég er ekki maður til þess að með-
taka það, sem dúettinn hefur
upp á að bjóða. Þó eru mörg laga
hans betri en stór hluti þess
tölvuvædda skallapopps, sem á
manni dynur um þessar mundir.
Hins vegar er þetta form orðið
svo gelt, að manni þykir alveg
nóg að heyra 2 lög á svona plötu.
Tæknilega hliðin á þessari
plötu er snyrtileg og áslætti er
beitt af smekkvísi. T.d. er ekki
eingöngu stuðst við trommuheila
eins og svo grátlega oft er gert í
tölvupoppinu heldur eru hefð-
bundin ásláttarhljóðfæri notuð í
bland. Fyrir það eitt fær
Blancmange plús hjá mér en
tónlistin þykir mér ekki par
merkileg.
Úegar sambúð mín og FRIGOR frystikistunnar hófst, lofaði hún mér
sólarlandaferð á fjögurra ára fresti. Það gat hún vegna þess að hún
var 25% ódýrari en aðrar kistur. Svo hefur hún nákvæman hitastilli
og frábæra einangrun sem þýðir litla rafmagnseyðslu.
Matarreikningurinn ervitanlega lægri en áður. Og sambúðin í heild
sérlega ánægjuleg - m.a. vegna þess hve auðvelt er að þrífa hana.
n m { of.'n
nm aáa
SAMBANDSINS
Hún stóð við stóru orðin. Ég fer á morgun!
ÁRMÚLA 3 SÍMI 681910