Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
57
fclk í
fréttum
+ Það er ekki verið að búa Chernenko, leiðtoga Sovétríkjanna, undir það að koma fram opinberlega eins
og ætla mætti heldur er listakonan Susan Cook að leggja hér síðustu hönd á vaxmynd af honumí
vaxmyndasafni Madame Tussaud i London. Myndina gerði listamaðurinn Jim Mathieson og varð hann
eingöngu að styðjast við ljðsmyndir við vinnu sína.
Margréti
bannað að
snerta vín
+ Læknar Margrétar prinsessu
hafa stranglega bannað henni að
snerta áfengi framar og segja þeir
að líf hennar liggi við. Margrét
var lögð inn á sjúkrahús árið 1978
með skæða lifrarbólgu og í níu
mánuði á eftir hélt hún sig frá
víninu. Þá tók hún upp aftur fyrri
hætti og nú er heilsa hennar orðin
mjög bágborin. Það getur hún
þakkað þeim vana sinum að
drekka gin á daginn >_g viskí á
kvöldin og tveimur sígarettupökk-
um daglega.
„Kálhausakrakkarnir" eftirsóttu.
Barnabætur
meö dúkkunum?
+ Eins og kunnugt er hafa „kál-
hausakrakkarnir", dúkkur, sem
eru þannig úr garði gerðar, að
engin á að vera eins og önnur, ver-
ið mjög vinsælir erlendis en þeim
fylgir fæðingarvottorð þar sem
allt er tint til eins og um væri að
ræða raunverulegt barn.
í Bandaríkjunum er eftirspurn-
in eftir dúkkunum miklu meiri en
framboðið og auk þess þykja þær
nokkuð dýrar. Þess vegna hafa
margir krakkar ekki orðið þeirrar
ánægju aðnjótandi að eignast þær
og til að bæta þeim það upp hafa
sumir foreldrar beðið starfsfólk á
sjúkrahúsum að skrifa upp á fæð-
ingarvottorð fyrir aðrar dúkkur,
sem krakkarnir eiga. Svo rammt
kvað að þessu að á einum spítalan-
um, St. Luke’s í Cedar Rapids í
Iowa, voru komnir 30 manns, allt
sjálfboðaliðar, í vinnu við að
ganga frá og senda út fæðingar-
vottorð til þakklátra barna og for-
eldra.
Þessi starfsemi hefur nú verið
stöðvuð og það voru ríkisstjórnin
og FBI, bandaríska alríkislögregl-
an, sem gripu í taumana. Var
ástæðan sú að sumir foreldranna
komu auga á auðvelda fjáröflun-
arleið í fæðingarvottorðunum,
nefnilega þá að svíkja fé út úr
tryggingakerfinu með því að lát-
ast eiga fleiri bðrn en þeir áttu.
COSPER
a
COSPER
Cpib
ur
1/ tJ
9iQ5
-----Ég vissi það, litli bróðir hefur gleypt einn
járnbrautarvagninn.
ARMAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verð.
Steinull — glerull — hólkar.
Armúla 16 sími 38640
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
SOLBAÐSSTOFA
ÁSTU B. VILHJÁLMSDÓTTUR
Grettisgötu 18, sími 28705.
Opið:
Virka daga frá
Laugardaga 9—19
Sunnudaga 9—19
Slakiö á á sólbekknum látið streit-
una líða úr ykkur með Ijúfri tónlist ,
úr headphone. Ettir sturtubaðið i
getiö þiö valiö úr fjölbreyttu úrvali *
at snyrtivörum (Baölina) og hatt
afnot af blásara og kruHujárni. Ér-
um með extra breioa soidökki
meö sérstökum andlitsljósum. Og
enginn þarf að liggja á hliöinni.
Athugiö Ávallt heitt á könnunni
nýjar perur. Veriö yelkomin
Vesturgötu g, simi 1744S