Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. NÓVEMBER 1984 Hafnarfjörður: 120 verkakonur á atvinnuleysisskrá „ÞAÐ VORU um 170 manns á atvinnuleysisskrá hjá okkur um síðustu mánaðamót og þar af eru rúmlega 100 frá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar,“ sagði Gunnar Sveinbjörnsson, félagsmálafulltrúi hjá Hafnarfjarðarbæ, er Morgunblaðið leitaði upplýsinga um tölu atvinnulausra í bænum. Starfsfólki í fiskiðjuveri BUH var sagt upp störfum frá og með 6. október síðastliðinn og hefur vinna þar legið niðri að mestu síðan þá, en alls mun um 170 manns hafa verið sagt upp hjá fyrirtækinu. *•' / Að sögn Gunnars Sveinbjörns- sonar er tala atvinnulausra í bæn- um nú um 2,8% af vinnandi Hafn- firðingum, en auk þeirra sem bættust á atvinnuleysisskrána við uppsagnir BÚH væru rúmlega 20 manns frá íshúsi Hafnarfjarðar, sem einnig hefði sagt upp fólki vegna rekstrarerfiðleika. Af þeim 172, sem verið hefðu á atvinnu- leysisskrá um síðustu mánaðamót væru rúmlega 120 verkakonur, og því ljóst, að erfiðleikar í sjávar- útvegi bitnuðu mjðg á verkakon- um í landi. Gunnar kvaðst hins vegar vilja leggja áherslu á, að tala atvinnulausra í Hafnarfirði væri ekki hærri en gerist og geng- ur í þjóðfélaginu. Eins og fram hefur komið i fréttum hefur Bæjarútgerð Hafn- arfjarðar verið rekin með tapi undanfarin ár og samkvæmt bráðabirgðauppgjöri um mitt ár 1984 var tap BUH um 40 milljónir Dræm loðnuveiði AÐ undanförnu hefur loðnu- veiði verið dræm. Þrír bátar tilkynntu loðnunefnd um afla í gær. Þeir voru: Pífill HF 580 tonn, Örn KE 500 tonn og Keflvíkingur KE 170 tonn. Loðnan veiddist út af Aust- fjörðum, en meirihluti flotans heldur sig þar. Stormur var á miðunum fyrir vestan og norð- an. Heildarloðnuaflinn er nú 184 þúsund tonn. króna. Bæjarsjóður Hafnarfjarðar greiddi um síðustu mánaðamót vangoldin laun landverkafólks og sjómanna að upphæð 3,4 milljónir króna og fyrr á árinu hafði bæj- arsjóður greitt 11 milljónir króna til BÚH vegna fjárhagsörðugleika fyrirtækisins. Það var f nógu að snúast f Sjónvarpsbúðinni og margir staðgreiddu. Morgunblaðið/ RAX. Mikil sala á hátoUavörum: „Gengisfellingarskrekkur leynir sér ekki tneðal fólks“ „Gengisfellingarskrekkur leynir sér ekki meðal fólks. Góð sala hefur verið á sjónvarpstækjum alla vik- una, en gffurleg í dag eftir að heil- síðuauglýsing birtist f Morgunblað- inu. Og það sem befur komið mér einna mest ó óvart er hve margir staðgreiða tækin. Það er greinilegt að fólk býst við hárri gengisfellingu þrátt fyrir tal ráðamanna um ann- að,“ sagði Þóroddur Stefánsson eig- andi Sjónvarpsbúðarinnar í samtali við Mbl. Blaðamaður ræddi við forráða- menn nokkurra verzlana og spurð- ist fyrir um sölu á hátollatækjum. öllum bar saman um að verzlun meiri en venjulega og að yfirvof- andi gengisfelling réði miklu. >,Eftir mikið umtal um gengisfell- ingu er ljóst að fólk lætur verða að því að kaupa hátollavörur, svo sem sjónvörp, þvottavélar og kæli- skápa," sagði Birgir örn Birgis verzlunarstjóri hjá Heimilistækj- um. „Ég er sannfærður um að yfir- vofandi gengisfelling hefur áhrif á sölu þessa dagana, en verzlun á sjónvarpstækjum og myndbönd- um hefur verið mikil að undan- förnu, sjálfsagt skiptir máli að við bjóöum nú myndbönd á góðu verði," sagði Halldór Laxdal yngri hjá Radióbúðinni. „Það hefur verið mikil sala að undanförnu,” sagði Garðar Svav- arsson verzlunarstjóri í Teppa- landi í samtali við Mbl. „En erfitt er að gera sér grein fyrir að hve miklu leyti ótti við gengisfellingu spilar inní, því nóvember hefur verið helsti sölumánuður okkar. En salan hefur verið mikil og farið vaxandi," sagði Garðar. Sáttafundur fyrir vestan í dag: Samningar á borðinu — segir Pétur SigurÖsson, forseti ASV „ÉG Á ekki von á langri samn- Morgunblaðið spurði hann um ingalotu enda liggja samningar sáttafund samninganefnda á borðinu og við þurfum bara launþega og atvinnurekenda á að pússa þetta saman,“ sagði Vestfjörðum með ríkissátta- Pétur Sigurðsson forseti Al- semjara, sem boðað var til í þýðusambands Vestfjarða, er dag. „Valdníðsla auðsjáanlega til að drepa Steindór alveg niður“ — segir Bjarni Pálmarsson leigubif- reiðastjóri sem bannað er að aka vegna deilna við úthlutunarmenn ÚTHLUTUNARMENN atvinnuleyfa leigubifreiðastjóra f Reykjavík hafa stöðvað notkun á atvinnuleyfi Bjarna Pálmasonar leigubifreiðastjóra á BSR frá klukkan 17 f gær um óákveðinn tíma. Formaður úthlutunar- nefndarínnar segir að þetta hafi verið ákveðið þar sem Bjarni hefði ekki mætt til viðræðna við nefndina vegna meintra brota. Bjarni Pálmason sagði í sam- tali við Mbl. í gær að hann hefði ekki fengið neitt um þetta frá nefndinni og í bréfi til Bifreiða- stöðvarinnar Steindórs þar sem þessi ákvörðun var tilkynnt væri engin ástæða tilgreind. Aðspurð- ur um hverjar hann teldi ástæð- urnar vera, sagði Bjarni að hann vissi til að það færi í taugarnar á úthiutunarmönnum að hann skyldi aðstoða Steindórsstöðina þegar hún þyrfti á að halda. Hafði hann það til marks um að það væri ástæðan að annar bíl- stjóri hefði verið látinn skrifa undir yfirlýsingu um að hann hætti slíku. Bjarni sagði um samvinnu sína við Steindór að hún væri í því formi að hann væri með talstöð frá þeim í bíln- um og hefði ekið fyrir þá þegar þeir hefðu ekki haft bfla sjálfir f um vikutíma. Sagði Bjarni að vinnan hjá sér hefði aukist talsvert við þetta. Þá sagðist Bjarni taka við greiðslukortum eins og þeir á Steindóri og væru þaö einkum slíkar ferðir sem hann hefði farið f fyrir Stein- dórsmenn. Sagðist hann ekki sjá hvernig mögulegt væri að stöðva hann á þessum forsendum og myndi hann reyna að ná rétti sínum næstu daga. „Þetta finnst mér vera algjör valdníðsla sem auðsjáanlega er framin til að drepa Steindórsstöðina alveg niður," sagði Bjarni. Ármann Magnússon formaður úthlutunarnefndarinnar sagði f samtali við blm. Mbl. að Bjarni hefði ekki verið sviftur atvinnu- leyfi sínu heldur hefði notkun þess verið stöðvuð um óákveðinn tíma þar sem Bjarni hefði ekki Bjarni Pálmarsson leigubifreiðastjóri mætt á boðaðan fund til úthlut- unarmanna til að gera grein fyrir meintu broti. Taldi Ár- mann ekki ástæðu til að skýra frá hvað nefndin teldi Bjarna hafa brotið af sér, sagði ekki rétt að segja frá því þar sem Bjarni hefði enn ekki gert grein fyrir máli sínu. Vildi hann ekki stað- festa að akstur Bjarna fyrir Steindór væri ástæðan heldur sagði að ýmislegt þyrfti að ræða við hann. Sagði Ármann að það væri undir Bjarna sjálfum kom- ið hvað hann yrði leyfislaus Horgunblaðið/ Bjarni. lengi því mál hans kæmi aftur til athugunar þegar hann óskaði eftir að fá viðtal við nefndina um sfn mál. Sigurður Sigurjónsson stððv- arstjóri á Bifreiðastöð Steindórs sagði, þegar álits hans á leyf- issviptingu Bjarna var leitað: „Þetta er ekkert annað en það sem við máttum búast við af þessum varðmönnum einokunar og sérhagsmuna. Þetta sýnir enn einu sinni þann ásetning þeirra að afmá Bifreiðastöð Steindórs. „Við sækjum ekkert meira til okkar vinnuveitenda en laun- þegar annars staðar á landinu og okkar sérkröfur beinast fremur að ríkisvaldinu, en at- vinnurekendum og þá á ég eink- um við aðstöðumun fólksins hér og á höfuðborgarsvæðinu," sagði Pétur ennfremur. Pétur kvaðst alveg eins eiga von á aö gengið yrði frá samningum í dag, enda væri fátt því til fyrirstöðu að skrifa undir eins og málum væri nú komið. Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari, sagði í samtali við blm. Mbl. skömmu áður en hann hélt vestur til fundar við deilu- aðila, að hann ætti ekki von á miklu samningaþófi, enda lægju línur í samningamálum nokkuð ljóst fyrir eftir nýafstaðna samningalotu. Góðar sölur í Þýzkalandi ÓGRI RE seldi afla sinn f Brem- enhaven í gær, 209,3 tonn af karfa. Fyrir aflann fengust tæplega 6,2 milljónir króna og var meðalverð 29,50 kr. Að undanförnu hafa ís- lenzkt skip fengið gott verð fyrir afla í Þýzkalandi. Framboð á fisk- mörkuðum hefur verið lítið og verðgildi þýzka marksins aukist. Ljósafellið seldi 131 tonn af karfa á miðvikudag fyrir liðlega 3,7 milljónir króna, meðalverð var 28,39 krónur. Breki seldi á mánudag 226 tonn fyrir liðlega 5,5 milljónir króna. Meðalverð var 24,37, en af þessum 226 tonn- um voru 113 tonn af ufsa. Þá seldi Dagstjarnan KE f Hull í gær 77,5 tonn, mest þorskur og ýsa, fyrir 2,3 milljónir króna. Meðalverð var 30,24 krónur. Þrjú skip hafa bókað sölur í Þýzkalandi í næstu viku, ólafur Jónsson GK, Hólmatindur SU og Viðey RE.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.