Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 1
64 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
224. tbl. 71. árg.
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hersveitir frá Norð-
ur-Kóreu til Uganda
Nairobi, Keaýa, 15. aArember. AP.
fXUGSTJÓRN á Entebbe-flugvelli í Uganda hefur stadfest, að á þriðjudag
hafi tvær flugvélar frá Norður-Kóreu lent þar og með þeim hafi verið 250
hermenn.
Að sögn vestrænna stjórnarer-
indreka í höfuðborginni Kampala
koma þessir hermenn til viðbótar
þeim 500-700 hermönnum frá
Norður-Kóreu, sem fluttir hafa
verið til Uganda á undanförnum
vikum.
Orðrómur er á kreiki i landinu
um, að stjórn Milton Obotes hafi
beðið stjórn Kim II Sungs i
Norður-Kóreu að veita sér hernað-
arlega aðstoð í sókn gegn skæru-
liðum, sem talið er að sé fyrirhug-
uð. Skæruliðarnir, sem lúta for-
ystu Musevanis, fyrrum varnar-
málaráðherra, hafa barist gegn
stjórn Obotes síðan í febrúar 1981
og orðið talsvert ágengt. Þeir haf-
ast við á landssvæði, sem nefnt er
Jjuwero-þríhyrningurinn" og er
fyrir norðan höfuðborgina.
Norður-Kóreumenn hafa einu
sinni áður sent hermenn til Afr-
íku. Það var árið 1981 og var her-
mönnunum, 160 að tölu, ætlað að
þjálfa 5.000 manna hersveit i
Zimbabwe, en ekki að taka þátt i
bardögum þar. Annað kommún-
istariki, Kúba, hefur hins vegar
haft hersveitir i a.m.k. tveimur
Afríkuríkjum, Angóla og Eþíópíu,
og hafa þær tekið þátt i bardögum
þar.
Allsherjarþing SÞ:
Sovétmenn
fari frá
Afganistan
Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna samþykkti f kvöld
með miklum meirihluta at-
kvæða ályktun þar sem Sov-
étmenn eru hvattir til að
flytja allt herlið sitt tafar-
laust frá Afganistan og Afg-
anir fái sjálfir að ráða málum
sínum.
Eitt hundrað og nitján riki
greiddu atkvæði með tillög-
unni, sem Pakistan og fjörutíu
önnur ríki báru fram. Tuttugu
ríki greiddu atkvæði gegn sam-
þykktinni og fjórtán sátu hjá.
Sex sinnum áður hefur alls-
herjarþingið gert sams konar
ályktun, en aldrei fyrr hafa
jafn mörg ríki greitt henni at-
kvæði.
Sendinefnd Afgana greiddi
atkvæði gegn tillögunni og
sagði fulltrúi þeirra á þinginu,
að sovéska herliðið í Afganist-
an, sem væri fámennt, væri
þar í sérstöku boði rfkisstjórn-
ar landsins. Vestrænir sér-
fræðingar telja að sovésku her-
mennirnir séu rösklega eitt
hundrað þúsund.
Auk Sovétríkjanna og fylgi-
ríkja þeirra f Austur-Evrópu
(að Rúmenfu undanskilinni)
greiddu bandamenn Sovét-
manna f Angóla, á Kúbu, f
Eþíópfu, Suður-Jemen, Laos,
Líbýu, Madagascar, Mongólfu,
Mósambique, Sýrlandi og Víet-
nam atkvæði gegn ályktuninni.
Símamynd/ AP.
Samskipti Bandaríkjanna og Nicaragua voru meðal þess, sem rætt var á fhndi Reagans Bandaríkjaforseta með Shultz
utanríkisráðherra og Robert McFarlane öryggismálaráðgjafa f Hvíta húsinu í gær.
Bandarikin og Nicaraguæ
Viðræður til þess
að draga úr spennu
WashinstAn IS ná* AP ™
WMUngtoB, 15. aév. AP.
BLAÐAFULLTRÚI Reagans Banda-
ríkjaforseta staðfesti f dag, að innan
skamms mundi sérlegur erindreki
forsetans eiga viðræður við Miguel
D’Eseoto, utanríkisráðherra Nicar-
agua, í því skyni að draga úr spennu
milli ríkjanna, sem aukist hefur und-
anfarna daga.
Ungfrú heimur
frá Venezúela
Londoo, 15. nóvember. AP.
STÚLKA frá Venezúela í Suður-Ameríku, Astrid Herrera að nafni, var í
kvöld kjörin Ungfrú heimur 1984 í samnefndri fegurðarsamkeppni, sem
haldin var í Royal Albert Hall í London.
Ungfrú heimur er 21 árs að Fulltrúar 72 ríkja tóku þátt í
aldri. Verðlaunin, sem hún hlýt- keppninni, sem sjónvarpað var
ur í reiðufé, nema 5.000 sterl-
ingspundum, sem er jafnvirði
um 215 þúsunda íslenskra króna.
Að auki kemst hún á auglýs-
ingasamning, sem færir henni
25.000 pund til viðbótar.
til 20 landa. Er talið að áhorf-
endur hafi verið 500 milljónir.
Fegurðardrottning Islands,
Berglind Johansen, varð í hópi
15 efstu keppenda.
Blaðafulltrúinn kvaðst vonast
til þess, að viðræðurnar yrðu til
þess að friðarhugmyndir utanrík-
isráðherra svonefndra Conta-
dora-landa, Venezúela, Mexíkó,
Colombíu og Panama, næðu fram
að ganga.
Stjórnvöld i Nicaragua halda
áfram almennum vigbúnaði, sem
þau segja að sé til varnar innrás í
landið, sem Bandaríkjastjórn
fyrirhugi. í Washington hafa þær
staðhæfingar margsinnis verið
bornar til baka.
Háttsettur embættismaður i
Hvíta húsinu sagði í dag að vopna-
flutningar Sovétmanna til Nicar-
agua væru höfuðástæðan fyrir nú-
verandi spennu milli Bandaríkja-
stjórnar og herstjórnarinnar i
Managua. Hann vakti athygli á
þvi, að sovéskum vopnum, ætluð-
um her Nicaragua, væri nú í
fyrsta sinn lestað í höfnum í Sov-
étríkjunum; áður hefði það verið
gert í Austur-Evrópuríkjum.
Embættismaðurinn kvað það álit
sérfróðra manna, að auknar
vopnasendingar Sovétmanna
þjónuðu tvíþættum tilgangi. í
fyrsta lagi, að veita Sandinistum
hernaðarlega yfirburði í Mið-
Ameríku. í öðru lagi, að festa her-
stjórnina í sessi og tryggja að Sov-
ét-sinnuð alræðisstjórn verði við
völd um ókomin ár.
Arthur Scargill
Þriðjung-
ur náma-
manna að
störfum
Loarfon, 15. ■ói’roibrr. AP.
LEIÐTOGAR samtaka kolaná-
mumanna i Bretlandi hyggjast
efna til funda í öllum námubæj-
um landsins á næstu dögum, til
að reyna að hindra að verkfall
samtakanna, sem staðið hefúr í
átta mánuði, leysist upp.
í dag sneru rösklega 700
námumenn, sem verið hafa
verkfalli, til starfa á ný og bæt
ast þeir í hóp þeirra sjö þús
unda, sem hunsað hafa verkfall-
ið undanfarnar tvær vikur.
Talsmenn ríkisreknu kolanám
anna segja að nú séu um 58 þús-
und námumenn að störfum, en
það er þriðjungur námumanna,
sem eru samtals um 178 þús-
und.
Að sðgn lögregluyfirvalda
kom í morgun til átaka við kola-
námur víðs vegar um landið
þegar verkfallsverðir reyndu að
hindra starfsbræður sína f að
hefja stðrf. I Goldthorpe á
Norður-Englandi vörpuðu verk-
fallsverðir bensinsprengjum,
brutu niður ljósastaura og
komu fyrir vegartálmum. Voru
tveir þeirra handteknir.
Arthur Scargill, hinn herskái
marxisti, sem stjórnar samtök-
um kolanámumanna, segist
ekki taka mark á tölum stjórn-
ar kolanámanna um fjölda
þeirra námamanna, sem snúið
hafa til vinnu. 1 dag neitaði
hann að verða við áskorun leið-
toga Verkamannaflokksins um
að efna til allsherjaratkvæða
greiðsiu innan samtakanna um
framhald verkfallsins. „Við
munum halda baráttunni áfram
þar til sigur vinnst,“ var haft
eftir honum.
Fjöldahandtök-
ur í Santiago
Sutiooo. 15. nó«.mh»r AP A.—^
Sootiogo, 15. oÓTnnber. AP.
VOPNUM búnir hermenn og lög-
reghimenn handtóku í morgun
fjölda mannns í einu úthverfa Santi-
ago, höfuðborgar Chile, og fluttu
fólkið á íþróttavöll, þar sem það er í
gæslu. Ekki er vitað hve margir voru
teknir, en sjónarvottar segja að tugir
hópferðabifreiða hafa verið notaðir
við flutningana.
í maí í fyrra voru 10.000 manns
handteknir í hverfi þessu, sem
nefnist La Victoria og er eitt höf-
uðvígi stjórnarandstæðinga.
Flestum var sleppt skömmu síðar.
Herstjórn Pinochets, sem setið
hefur að völdum í ellefu ár, setti
lög um neyðarástand 6. nóvember
sl. og sagði að þau væru liður í
tilraun stjórnarinnar til að upp-
ræta hermdarverkasveitir marx-
ista.