Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984 59 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS uwiJ If Úlfar Hermannsson telur, að ef einhverjir hafi grætt á nýafstöðnum verkföllum, þá hafi þaö helst verið myndbanda- leigur og stjórnarandstaðan. Hér sést mynd úr fyrrnefndum herbúðum. Vangaveltur um yerkfall og fleira Úlfar Hermannsson skrifar: Mér detta oft í hug skrítnir hlutir, þó ég hafi aldrei fest þá á pappír fyrr. En í dag datt mér f hug að skrifa bréf til Ronalds Reagan for- seta Bandaríkjanna, ekki til að segja honum hvað mér fyndist um innan- eða utanríkisstefnu hans, því ég hef ekkert vit á þeim hlutum. Sennilega hef ég ætlað að óska honum til hamingju með sigurinn, gömlum manninum, og segja honum um leið hvað væri helst að gerast hér á ameríkufleka íslands. Eins og margir eflaust vita er íslandi jarð- fræðilega skipt f tvo hluta eftir land- rekskenningu sem ég hef að vfsu að- eins heyrt lauslega minnst á. Fróðir menn telja að ef við hér á suð-vest- urhorninu bíðum nógu lengi getum við mjög líklega veifað til þeirra þarna fyrir westan og sagt „Hæ“. En auðvitað er ég, þegar hingað er kom- ið f párinu, löngu hættur við að skrifa ameríska forsetanum til að segja fréttir héðan, enda ekki um að ræða augnabliks hugdettu. Annars eru það heilmiklar fréttir og mættu fara víða þegar litið er til veðurfarsins hér, kominn 8. nóvem- ber með sól og stillur upp á hvern dag og ekki farið að eyða einni lltilli krónu í snjómokstur og hálka á göt- um höfuðborgarinnar varla til um- ræðu. Hvílíkur munur fyrir öku- menn að þurfa ekki að byrja hvern dag á að sópa snjó af bifreiðum sín- um eða koma jafnvel of seint í vinnu vegna ófærðar. Opinberir starfsmenn ættu að vera nokkuð ánægðir þessa dagana og þurfa ekki lengur að hanga heima í aðgerðarleysi. Blessað verkfallið er búið og allir búnir að fá kaupphækk- un þó menn séu ekki á eitt sáttir við árangurinn eftir svo ianga vinnu- stöðvun. Annars held ég að flestir hafi verið óánægðastir með að hafa ekki fengið að velja sjálfir um hvort þeir mættu kála sér í rólegbeitum úr nikótíneitrun eða alkóhólisma. Alla vega var ég einn þeirra mörgu sem bölvaði verkfallinu mikið vegna skorts á tóbaki og fannst á tímabili að þeir Albert og Kristján væru bara virkilega vondir menn og harð- brjósta. Ekki voru þeir heldur að hugsa um heilsu mfna þvf ég tel að henni hafi hrakað mjög vegna alls þess óvandaða tóbaks, sem ég var að reyna að svæla í mig með misjöfnum árangri, oftast slæmum. Talandi um verkfall, þá er greinilegt að ýmsar slæmar afleiðingar eru af svo langri vinnustöðvun, svo sem eins og f opinberum stofnunum. Ég þurfti t.d. að fara f þá annars ágætu stofnun er nefnist borgarfógetaembætti nú um hádegisbilið í dag. Ekki komst ég hjá þvi að sjá þar greinilegar afleiðingar verkfallsins. Allt of fátt starfsfólk, að vinna úr uppsöfnuðum verkefn- um. Hverjar eru svo afleiðingarnar, stress-pirringur og sein afgreiðsla, sem svo veldur því að kúnninn verð- ur leiður og fer að skammast ef allt gengur ekki eins og hann vill að það gangi. Kannski engin furða þvf að það voru ekki allir jafn heppnir og ég að sleppa við að borga nema 85 kr. Mér finnst það líka mikill munur að aka um götur borgarinnar eftir að borgarstarfsmenn hófu störf og SVR komst á eðlilega tímaáætlun aftur. Það er annars merkilegt umhugsun- arefni að gera sér grein fyrir hvað margir bifreiðaeigendur nota stræt- isvagna þegar allar aðstæður eru venjulegar. Það sást best á þvi hvað margar bifreiðir virtust bætast við f hina daglegu umferð borgarinnar á meðan ferðir strætisvagna lágu niðri. Þá kom lfka berlegast f ljós hinn gffurlegi skortur á bifreiða- stæðum. Þvflíkur akstur, þvflík um- ferðarmenning, engin furða þó bens- ínbirgðir landsmann væru á þrotum síðustu daga verkfallsins. Mér dettur það Ifka stundum f hug. „Hverjir græddu svo á þessu verkfalli"? Ekki hinn almenni laun- þegi, tæplega ríkið, þar var jú allt i lágmarki, verslunarmenn varla, fólkið hafði minni peninga til að kaupa fyrir, myndbandaleigur gætu hafa bætt örlítið við veltuna, eða eins og einn leigueigandi sagði: „Þetta er bara vertíð hjá okkur núna“. Þeim veitir kannski ekki af, því heyrst hefur að sumir hverjir berjist í bökkum. Ekki græddu heild- salar því þeir fengu engar vörur úr tolli. Þeir einu sem gætu hugsanlega hafa grætt á verkfallinu eru stjórn- arandstæðingar, þeir gætu hafa grætt nokkur atkvæði þvf óneitan- lega var mjög pólitisk lykt af öllum bramboltinu. Kannski er ekki enn séð fyrir endann á þessu hvað varðar setu stjórnarinnar. Ég er nú samt svo einfaldur að mér finnst einhvern veginn að þeir menn sem sitja f stjórnsætum hafi gert nokkra góða hluti og þá sérstaklega á fyrri hluta þessa árs. Á þeim tíma hafði ég ágæta aðstöðu til að fylgjast með vöruverði og ég verð að segja að það voru góðir hlutir að gerast, þegar vöruverð stóð í stað viku eftir viku og jafnvel lækkaði milli sendinga. En einhvers staðar brást kerfið og kaupmátturinn fór dvfnandi. Hvert svo framhaldið verður er spurning, sem ekki verður svarað fyrr en fram líða stundir. En svona er nú þetta, mér datt f upphafi bara rétt si svona i hug, þeg- ar ég var að lesa um kosningasigur Reagan, að gaman væri að skrifa karli bréfkorn. AUK ÞESS aö vera meö mikið úrval, hagstætt verö og 2ja ára ábyrgö á öllum vörum, bjóöum viö góö greiöslukjör, V3 út og afgangurinn á 6 mánuöum, gefum 5% staðgreiöslu- afslátt — einnig þegar borgaö er meö kreditkortum. Landsþjónustan sér um aö pakka vör- um og senda út á land. Berðu saman verð og gæöi BDSBAGNAQÖLLIN yBÍLPSHÖFOA 20 - 110 REYKJAVlK « 91-Ö1198 oq B1410y er smám saman að fyllast af húsgögnum, enda heitir það HÚSGAGNAHÖLUN VIÐ HÖFUM sett okkur þaö markmiö aö hafa svo yfirgengilega mikiö úrval af góöum húsgögnum á hagstæöu veröi aö þaö detti engum í hug aö versla annarsstaöar fyrr en hann hef- ur grandskoöaö þaö sem viö höfum aö bjóöa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.