Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984
TÍGRIS-
STRÍÐIÐ
Er Þyrnifuglunum slotaði á
miðvikudagskvöldið var og
fótboltaskjálftanum sömuleiðis,
upphófst á skjánum aldeilis
listilega vel gerð heimildamynd
frá Granada-sjónvarpsstöðinni
bresku. Nefndist sú: Tígrisstríðið
og sagði frá lítt kunnum „Þjóð-
arher" Indverja er barðist við
hlið Japana í síðari heimsstyrj-
öldinni gegn Bretum að sjálf-
sögðu. Var í myndinni greint af-
ar skilmerkilega frá tilurð hers
þessa, og þá sérstaklega frá for-
ingja hans, er nefndist Subhas
Chandra Bose. Var bersýnilegt
að Bretahatur þess ágæta manns
var komið á það stig, að hann
sveifst einskis i þvi skyni að
flæma nýlenduherrana frá Ind-
landi, og skirrðist jafnvel ekki
við að ganga á mála hjá Mússol-
íni, Hitler, Stalín og Japanskeis-
ara. óvinir Breta voru vinir
Indverja, að mati Chandra Bose.
-Listilega vel gerð“
Eg sagði nér í uppnafssetn-
ingu greinarkornsins að mér
hafi fundist þessi heimildar-
mynd um Bose og félaga „listi-
lega vel gerð“. Ég stend við þá
fullyrðingu því ekki er hægt að
gera meiri kröfur til heimilda-
myndar en að hún fjalli á hlut-
lægan hátt um það efni sem
skoða skal. í „Tígrisstríðinu"
voru kynnt rækilega sjónarmið
hinna stríðandi aðila, bæði með
viðtölum við fyrrum leiðtoga
„Þjóðarhersins" og við yfirmenn
bresku Indlandsherdeildanna er
stríddu gegn Japönum í síðari
heimsstyrjöldinni. Tii stuðnings
frásagna forystumanna hinna
stríðandi afla, Tígrisstríðsins,
voru bútar úr fréttamyndum af
vettvangi. Þannig var frásögnin
stöðugt rofin af myndabútum er
snertu á kviku umræðunnar.
Sum sé hvergi dauður punktur.
JCallinn“
Auðvitað er ekki hægt að ætl-
ast til þess að íslenska sjónvarp-
ið geri heimildamyndir á borð
við Tígrisstríðið. Til þess aö svo
megi verða þarf að efla mjög
tekjustofna stofnunarinnar. Hitt
er ljóst að okkur bráðvantar á
skjáinn stuttar, hnitmiðaðar og
vandaðar heimildamyndir, er
taka fyrir merkisatburði úr sögu
vorri. Ég held nefnilega að við
getum ekki vænst þess, að sú
„vídeókynslóð" er nú vex úr grasi
meðtaki íslandssöguna í bókar-
eða möppuformi, eins og fyrri
kynslóðir hafa þó gert að ein-
hverju marki. Þá má vera að
menn liti myndina af Jóni Sig-
urðssyni á vinnubókarblaðinu af
stakri samviskusemi en gleymist
ekki „kallinn" síður ef við sýnum
krökkunum undir lok tímans
stutta heimildamynd, er lýsir
ævi hans og starfi? Það ætti ekki
að vera svo mikið mál að kaupa
svo sem eitt 27“ sjónvarpstæki
og VHS-myndsegulband fyrir
hvert skólabókasafn (sex sam-
stæður mætti fá fyrir verð einn-
ar fyrsta flokks heimilistölvu) og
þá væri málið leyst.
Nú svo mætti líka athuga
þann möguleika að sjónvarpið
sendi út ákveðna dagskrá, er
félli að námsefni skólanna.
Möguleikarnir eru raunar óend-
anlegir á þessu sviði, en þeir eru
bara ekki nýttir, og því eigum
við á hættu, góðir hálsar, að ná
ekki til æsku landsins, með það
námsefni er leggur grunninn að
menningarlegu sjálfstæði þjóð-
arinnar í framtíðinni.
ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Arnold Schönberg
tónskáld
Gestir hjá Bryndísi
■1 Bryndis
10 Schram fær
gesti í sjón-
varpssal í kvöld, en þá
verður fyrsti þáttur henn-
ar af mörgum, sem einu
nafni nefnast „Gestir hjá
Bryndísi". í þáttum þess-
um ætlar Bryndís að leit-
ast við að gefa sjónvarps-
áhorfendum kost á að
kynnast betur því fólki,
sem þegar er þekkt af ein-
hverjum ástæðum.
Fréttatímar sjónvarps og
útvarps gefa ekki nógu
skýra mynd af þessu fólki,
né heldur fréttaskrif
dagblaða, að áliti Bryn-
dísar. í kvöld fær Bryndís
fjóra gesti. Það eru þau
Stefán Á. Guðjónsson,
sem fyrir skömmu gaf
Kópavogsbæ plötusafn
sitt, sem mun vera um
7000 hljómplötur, Guðrún
Kristmannsdóttir, sem
leikur Önnu Frank í leik-
riti Leikfélags Reykjavík-
ur, Auður Sveinsdóttir
Laxness og Ríó tríó, en í
því teljast að vísu þrír
gestir, þeir Helgi Péturs-
son, Ólafur Þórðarson og
Ágúst Atlason. Er ekki að
efa að gestir þessir eiga
eftir að gefa ýmislegt upp,
sem sjónvarpsáhorfend-
um þykir fengur í. Stjórn-
andi upptöku þáttarins
„Gestir hjá Bryndísi" er
Tage Ammendrup.
Tónlistar-
þáttur um 20.
aldar tónlist
Korriró
■■■■ í kvöld hefst ný
Ol 30 þáttaröð í út-
« JL varpi, sem kall-
ast Korríró. Þættir þessir
fjalla fyrst og fremst um
20. aldar tónlist og er ætl-
un stjórnenda að gera
þessa tónlist aðgengilega
fyrir hinn almenna tón-
listarunnanda. Tekið
verður fyrir ákveðið
grunnatriði tónlistar i
hverjum þætti, s.s. túlkun
texta og hljóðfall. Fyrsti
þátturinn fjallar um sam-
band texta og tónlistar og
sýnt, hvernig hægt er að
byggja tónlist í kringum
texta svo hún skili inni-
haldi textans engu síður
en hann sjálfur. Leikin
verður tónlist eftir ýmsa
höfunda, m.a. Franz Schu-
bert, George Cramb,
Charles Ives, Jónas Tóm-
asson og Arnold Schön-
berg. Þættir þessir eru í
umsjá nokkurra nemenda
Tónfræðideildar Tónlist-
arskólans í Reykjavík, en
umsjón með þættinum i
kvöld hafa þau Ríkharður
H. Friðriksson og Hulda
Birna Guðmundsdóttir.
David Essex leikur adal-
hlutverkið í kvikmynd sjón-
varpsins í kvöld.
Stjörnuhrap
■ Föstudagsbió-
25 mynd sjón-
varpsins að
þessu sinni er bresk, gerð
árið 1974. Myndin fjallar
um breskan poppsöngvara
á bítlaárunum og höpp
hans og glöpp á frama-
brautinni. Mynd þessi er
framhald myndarinnar
„Æskuglöp", sem sýnd var
í sjónvarpinu i ágúst. í
þeirri mynd lék bitillinn
fyrrverandi Ringo Starr,
sem yngri kynslóðinni er
e.t.v. betur kunnur nú sem
„maðurinn í Atlavík".
Ringó leikur ekki i þessari
framhaldsmynd, en David
Essex, sem lék á móti
honum i hinni myndinni,
gerir þaö hins vegar. Auk
hans leika aðalhlutverk
þau Adam Faith, Marty
Wilde, Rosalind Ayres og
Larry Hagman, en hann
er öllum Dallas-aðdáend-
um vel kunnur fyrir leik
sinn í hlutverki skúrsins
J.R. Leikstjóri myndar-
innar er Michael Apted,
en þýðingu annaðist
Kristrún Þórðardóttir.
Pósthólfið aftur fullt
■■ Valdís Gunn-
00 arsdóttir verð-
ur með þátt
sinn Pósthólfið, á dagskrá
rásar 2 kl. 14 í dag. Þátt-
urinn er nú kominn í
fastar skorður eftir verk-
fall, en bréfaleysi háði
honum nokkuð fyrst eftir
að það leystist. Valdís
sagði, að í þættinum í dag
yrðu engin viðtöl, en hún
myndi leika mikið af nýrri
tónlist, svo nýrri, að hún
hefði enn ekki heyrst hér
á landi. Nefndi hún sem
dæmi lög með UB-40,
Culture Club, Barböru
Streisand, Denise de
Young og Paul Young, en
tveir þeir síðastnefndu
munu alls óskyldir. Sú
Valdís Gunnarsdóttir, um-
sjónarmaður Pósthólfsins.
saga gekk fjöllum hærra
fyrir skömmu, að söngv-
arinn Paul Young hefði
misst röddina og heyrðist
ekkert frá honum nema
lágt hvísl, en Valdis sagði
að það hlyti að vera mjög
orðum aukið, því ekkert
virtist raddleysið angra
hann í nýja laginu, sem
hann flytur í dag. Milli
laga les Valdís úr bréfum
hlustenda, eins og endra-
nær.
FÖSTUDIkGUR
16. nóvember
74» Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Siguröar Q.
Tómassonar trá kvöldinu áö-
ur.
84» Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð — Jón Ol.
Bjarnason talar.
94» Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Breiðholtsstrákur ter I
sveit" eftir Dóru Stefánsdótt-
ur. Jóna Þ. Vernharðsdóttir
les (13).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 .Mér eru fornu minnin
kær“
Einar Kristjánsson frá Her-
mundarfelli sér um þéttinn.
(RÚVAK)
11.15 Morguntónleikar
124» Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
124» Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
144» ,A Islandsmiðum” eftir
Pierre Loti. Séra Páll Pálsson
á Bergþórshvoli lýkur lestri
þýðingar Páls Sveinssonar
(17).
14.30 A léttu nótunum
Tónlist úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
164» Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16J20 Sfödegistónleikar
.Concentus Musicus"
hljómsveitin I Vlnarborg leik-
ur Brandenborgarkonsert nr.
4 I G-dúr eftir Johann Seb-
astian Bach; Nicolas Harn-
oncourt stjórnar. Felicja
Blumental og Nýja kamm-
ersveitin i Prag leika Planó-
19.15 A dðfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
19J25 Veröld Busters
Annar þáttur. Danskur fram-
haldsmyndaflokkur I sex
þáttum, geröur eftlr sam-
nefndri barnabók eftir Bjarne
Reuter og Bille August. Þýö-
andi Ólafur Haukur Slmon-
arson. (Nordvision —
danska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20J0 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Guöjón Ein-
ÚTVARP
konsert I D-dúr eftir Leopold
Kozeluch; Alberto Zedda
stjórnar.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20M Kvöldvaka
a. Frá Selfossi til Seyðis-
fjaröar. Guðmundur Arn-
laugsson flytur ferðafrásögn.
b. Ljóð úr ýmsum áttum.
Þorbjörn Sigurðsson les.
SJÓNVARP
FÖSTUDKGUR
16. nóvember
arsson.
21.10 Gestir hjá Bryndlsi
Fyrsti þáttur. Bryndls
Schram spjallar viö fólk I
sjónvarpssal. I þáttum þess-
um er ætlunin aö gefa sjón-
varpsáhorfendum kost á að
kynnast fólki I fréttum nánar
en unnt er I hraöfleygum
fróttatlma eða fréttaklausum
dagblaöa. Upptöku stjórnar
Tage Ammendrup.
21.50 Hláturinn lengir llfið
Þriðji þáttur. Breskur mynda-
flokkur l þrettán þáttum um
gamansemi og gamanleik-
ara I fjölmiölum fyrr og slöar.
Þýðandi Guðnl Kolbeinsson.
c. Þáttur af Axlar-Birni.
Bjðrn Dúason flytur. Umsjón:
Helga Agústsdóttir.
21J30 Korriró
Tónlistarþáttur I umsjá Rlk-
harðs H. Friðrikssonar og
Huldu Birnu Guömundsdótt-
ur.
2130 .Ógnir þjóðvegarins"
smásaga eftir Fay Weldon.
Þurlður Baxter les þýöingu
slna.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsirts.
Orð kvöldsins.
22.35 Traðir
■1
22.25 Stjörnuhrap
(Stardust)
Bresk biómynd frá 1974.
Leikstjóri Michael Apted.
Aöalhlutverk: David Essex,
Adam Faith, Larry Hagman,
Marty Wilde og Rosalind
Ayres. Myndin er um bresk-
an poppsöngvara á bltlaár-
unum, höpp hans og glöpp á
framabrautinni. Hún er fram-
hald myndarinnar ,Æsku-
glöp" (That'll Be the Day)
sem sýnd var I Sjónvarpinu
25. ágúst sl. Þýðandi Krlst-
rún Þórðardóttir.
00.00 Fréttir I dagskrárlok.
Umsjón: Gunnlaugur Yngvi
Sigfússon.
23.15 A sveitallnunni
Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(ROVAK)
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
03.00.
RÁS 2
16. nóvember
10.00—124» Morgunþáttur
Fjörug danstónlist. Viötal,
gullaldarlðg, ný lög og vin-
sældalisti.
Stjórnendur: Jón Ólafsson
og Sigurður Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfið
Lesin bréf frá hlustendum og
spiluð óskalðg þeirra ásamt
annarri léttri tónlist.
Stjórnandi: Valdis Gunnars-
dóttir.
16.00—17.00 Bylgjur
Framsækin rokktónlist.
Stjórnendur: Asmundur
Jónsson og Arni Danlel Júll-
usson.
f7-00—18.00 I föstudagsskapi
Þægilegur músikþáttur I lok
vikunnar.
Stjórnandi: Helgi Már Barða-
son.
23.00—03.00 Næturvakt á rás
2
Stjórnendur: Skúli Helgason
°g Snorri Már Skúlason.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl.
24.00 og heyrist þá I rás 2
um allt land.)