Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fuiltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 300 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 25 kr. eintakið. Heimilið og heima- yinnandi konur Konur hafa löngum tekið til hendi í sjávarplássum, þar sem vinna þarf afla til útflutn- ings strax og á land kemur. Sama máli gegnir um konur í sveitum; þær hafa kynslóð eftir kynslóð unnið jafnt utan húss sem innan. Atvinnuhættir okkar hafa og breytzt, yfirhöfuð, í þá veru, að þrýsta konum út í at- vinnulífið. Konur gera og rétti- lega kröfur til að hafa sömu möguleika og karlar í atvinnulíf- inu. Lífskjarakröfur á líðandi stund gera það og oft óhjá- kvæmilegt að heimili hafi tvær fyrirvinnur. Heimilið, hornsteinn þjóðfé- lagsins, á í vök að verjast í þess- ari þróun. Uppeldi og fræðsla barna og unglinga, sem til skamms tíma fór að meginhluta fram innan veggja heimila, hef- ur í ríkum mæli færzt yfir á ým- is konar stofnanir og skóla. Oft var þörf en nú er nauðsyn að standa vörð um heimilið sem hornstein þjóðfélagsins og kast- ala fjölskyldunnar. Þrátt fyrir örar þjóðfélags- breytingar, sem kalla eftir vinnuafli kvenna út í kviku at- vinnulífsins, eiga fjölmargar húsnæður þess ekki kost að vinna utan heimilis, þurfa að sinna búi og börnum. Störf inn- an heimiiis er og kostur, sem sumar konur kjósa öðrum frem- ur. Þessi starfsvettvangur er þjóðfélaginu þýðingarmeiri en flestir aðrir. Það þjóðfélagslega óréttlæti að meta störf innan veggja heimilis minna en önnur, eins og gert er á ýmsum sviðum, verður þegar að leiðrétta. Hagsmunanefnd heimavinn- andi kvenna, sem starfar á veg- um Bandalags kvenna i Reykja- vik, gekkst nýlega fyrir fundi um viðfangsefni sín. Á fundinum komu fram mörg dæmi um þjóð- félagslegt óréttlæti i garð heimavinnandi kvenna. Nefna má þrjú: • Heimavinnandi kona fær i barnsburðarleyfi 5.300 krónur en útivinnandi kr. 15.866. • Heimavinnandi kona fær að- eins fjórðung sjúkradagpeninga þeirrar útivinnandi. • Skattar á sömu heildartekjur heimilis eru mjög mismunandi eftir því, hvort fyrirvinna er ein eða tvær; og einnig eftir því, hvern veg tekjur skiptast milli tveggja fyrirvinna. Núgildandi skattareglur vanvirða beinlínis heimilisstörf — og refsa þeim er þau vinna í hærri heimilisskött- um. Þetta er auðvelt að leiðrétta með því að hafa heimildar- ákvæði í skattalögum, þess efnis, að hjón geti, ef þau vilja, helm- ingað sameiginlegar tekjur til skatts. Bezt væri að sjálfsögðu að fella tekjuskattinn niður sem ríkisskatt, enda er hann í raun launamannaskattur, sem eykur á misrétti, m.a. vegna þess hve stór hluti þjóðartekna sleppur fram hjá honum. Frú Hrefna Tynes, sem sat fund þann er hér er fjallað um, sagði í viðtali við Morgunblaðið: „Skatta á maður auðvitað greiða svo fremi sem réttlætis sé gætt, en hvernig getur það kallast réttlæti þegar svo margir svíkja undan skatti? Auðvitað er það rangt að heimili skuli skattlögð svo mismunandi, eftir því hvort annað hjóna eða bæði afla tekna og það er að sjálfsögðu réttlæti í því að meta vinnu heimavinn- andi húsmæðra til jafns við vinnu eiginmannsins ... “ Þessi fundur um stöðu heima- vinnandi kvenna var meir en tímabær til að vekja athygli á þjóðfélagslegu misrétti, sem leiðrétta verður sem allra fyrst. Konur, sem nú sitja á þingi, mættu gjarnan fylgja slíkri leið- réttingu eftir, þó sanngirnismál eigi að hafa stuðning allra þing- manna. Heimavinn- andi konur og kvennalistinn Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir hefur nýlega lagt fram frumvarp á Alþingi, fyrir hönd Kvennalistans, um breytingu á lögum um fæðingarorlof. Megin- efni þess er lenging fæðingaror- lofsins. Það vekur hinsvegar at- hygli að frumvarpið beinlínis ýt- ir undir mismunun i garð heima- vinnandi kvenna og raunar einn- ig láglaunakvenna. 1 greinargerð með frumvarpi Kvennalistans segir orðrétt: „Gert er ráð fyrir að fæðingar- orlofsgreiðslur miðist við full laun foreldris þannig að foreldri verði ekki fyrir fjárhagslegu tapi vegna fæðingarorlofs svo sem nú er.“ Frumvarpið gerir ráð fyrir ákveðinni lágmarks fæðingar- orlofsgreiðslu úr sameiginlegum sjóði landsmanna, sem ber uppi tryggingarkerfið, en síðan stig- hækkandi greiðslum eftir launa- stöðu viðkomandi kvenna. Há- launakonur fái mest en heima- vinnandi húsmæður og láglauna- konur væntanlega tiltekna lág- marksgreiðslu. Það er mismunun af því tagi, sem fram kemur í þessu frum- varpi, sem hagsmunanefnd heimavinnandi kvenna var að gagnrýna. Það eiga allir að standa jafnir fyrir landslögum og greiðslum úr tryggingarkerfi ríkisins. Bíður „karlsins í brúnni“ sökkvandi skip? „ÞAÐ ERU einhver stórbrotin örlög eða ógæfa, sem hvfla á Alþýöuflokknum varöandi forustumennina. Ég held, að allir formenn flokksins frá tíma Jóns Baldvinssonar til dagsins í dag, hvað sem svo gerist um helgina, hafi beint eða óbeint verið hraktir burtu, með einni undantekningu, sem var Emil Jónsson.“ Svo mæltist einum fyrrverandi frammámanni Alþýðuflokksins í vikunni í tilefni af mótframboði Jóns Baldvins Hannibalssonar þingmanns Reykjavíkur gegn Kjartani Jóhannssyni núverandi formanni. Kosningarnar fara fram á 42. flokksþingi Alþýðuflokksins kl. 17 á morgun, laugardag, en þingiö verður sett í dag kl. 17.30 í Gamla bíói. Samkvæmt viðræðum við al- þýðuflokksmenn nú í vikunni getur orðið mjótt á munum og skal hér engu spáö um úrslit. Þó er staðreynd, að ef Kjartan kemur frá þinginu sem sigurvegari f þessum kosningum verður það í fyrsta sinn i sögu flokksins, sem formaður stendur af sér slíkt mót- framboð. Þeir sem ekki hafa fallið í kosningum, þegar svo hefur stað- ið á, hafa dregið sig f hlé. Hver svo sem úrslitin verða óttast flokks- menn mjög afleiðingarnar og allt fram til þess að þessi skrif fóru f vinnslu um miðjan dag f gær, fimmtudag, hefur verið leitað log- andi ljósi, án árangurs, að ein- hverjum þriðja aðila, sem Kjartan og Jón Baldvin gætu fallist á f „sáttaframboð", þannig að þeir drægju sig báðir f hlé. Gífurlegrar óánægju gætti í málflutningi velflestra sem rætt var við með forustu flokks- ins, en menn skiptust nokkuð á f skoðunum um það, hvort Kjartani væri þar einum að kenna, og þá ekki siður hvort Jón Baldvin komi til með að bæta úr. Þó virðist málflutningur Jóns um hver staða flokksins eigi að vera hafa fallið f góðan jarðveg, einnig samlfking hans á lággengi flokksins og skipi sem ekki fiskar... „en þá er að skipta um karlinn f brúnni," sagði hann á fréttamannafundinum, þegar hann tilkynnti framboð sitt. Menn höfðu einnig á orði að Jón hefði „kveikt líf og komið flokkn- um í umræðuna" og eins og staða flokksins væri hlyti öll breyting að vera til bóta. Þá var mörgum tíð- rætt um, að Jón Baldvin hefði gengið heiðarlega til verks, til- kynnt Kjartani um framboð sitt fyrstum og í tíma, og bera menn það saman við hvernig Kjartan stóð að mótframboði sinu gegn Benedikt Gröndal þáverandi formanni á 39. flokksþinginu 31. okt. til 2. nóv. 1980. Verður komið að því síðar. Oánægjan með Kjartan og forustana byggist fyrst og fremst á sífellt minnkandi fylgi flokksins á sama tíma og Banda- lag jafnaðarmanna eykur fylgi sitt, samkvæmt skoðanakönnun- um, en flokksfólki var tíðrætt um, að forustan eigi að gera allt sem f hennar valdi stendur til að ná Bandalaginu inn f flokkinn. Einn fyrrverandi forustumaður orðaði það svo: „Það verður að lfta á vinstri hreyfinguna í heild og þá verður sú pólitiska spurning eftir: Hvenær hafa þessir menn, (þ.e. forustumenn Alþýðuflokksins, innskot Mbl.) vit á þvi að slá sér saman með Bandalagi jafnaðar- manna, með ferska krata, ný nöfn. Alþýðubandalagið með „komma- elementið" innanborðs getur aldr- ei sameinast jafnaðarmönnum, en aftur á móti gætu kjósendur þeirra f stórum stil hugsað sér að kjósa þróttmikinn jafnaðar- mannaflokk." Sem dæmi um þenn- an áhuga gekk hópur alþýðu- flokksmanna á fund Gylfa Þ. Gislasonar nýverið í þvf skyni að fá hann til að fara fram til for- manns um helgina. Töldu margir þeirra Gylfa þann aðila, sem m.a. hefði mesta möguleika á að ná sáttum og sameiningu við þá bandalagsmenn, auk þess að geta orðið óumdeildur foringi. Jóni Baldvin er ýmislegt fundið til foráttu í ummælum manna. Hann hefur verið nefndur „flokka- flækingur”. Þá hafa menn á orði pólitískan feril föður hans og brottför hans úr Alþýðuflokki, eft- ir að hann féll i formannskosn- ingu. Hugleiðingar f þvf sambandi snúast um, hvort Jón Baldvin komi til með að hlaupa út undan sér. Þá er mönnum og tíðrætt um yfirlýsingar Jóns um að flokkur- inn eigi að vera staðsettur „til vinstri við miðju". Margir höfðu á orði, að Jón hafi nú fremur verið orðaður við hinn kantinn, og nefna þvf til sanninda leiðaraskrif f rit- stjóratfð hans á Alþýðublaðinu. í hópi þeirra sem eru þessarar skoð- unar eru margir verkalýðsleiðtog-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.