Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984 23 Falklandseyjar: Argentínumenn vilja viðræður við Breta Hruilln, 15. BiÍTeinber. AP. Argentínumenn lögðu fram til- lögu til ályktunar á fundi Sam- taka Ameríkuríkja, OAS, í dag, þar sem hvatt er til að „hið allra fyrsta“ hefjist viðræður í því markmiði að leysa ágreining Breta og Argentínumanna um Fajklandseyjar. í ályktuninni eru Sameinuðu þjóðirnar hvattar til áfram- haldandi tilrauna til að fá ríkin tvö til að komast að „friðsam- legri lausn" Falklandseyjadeil- unnar. Bretar hafa skellt skollaeyr- um við tilkalli Argentínumanna til eyjanna frá því þeir hröktu innrásarher Argentínu á brott frá eyjunum í Falklandseyja- stríðinu 1982. Argentínumenn segja eyjarn- ar, sem þeir kalla Malvinas, á- argentínsku svæði og að Bretar séu þar nýlenduherrar. í álykt- uninni segir að nærvera bresks herliðs á Falklandseyjum ögri friði og öryggi í álfunni. Rajiv og Rahul Rajiv Gandhi forsætisráðherra Indlands ásamt syni sínum Rahul. Myndin var tekin við athöfn í Tenn Murti-húsinu í Delhí, þar sem ein krukka með ösku Indiru Gandhi var til sýnis fyrir íbúa Delhí. 140 milljónir fyrir demant Geaf. 15. aÓTember. AP. W Geaf, 15. aÍTember. AP. Demantur, 42,92 karata, var seldur á uppboði hjá Christie’s í dag fyrir 10 milljónir svissneskra franka, eða jafnvirði 140 mflljóna króna, og hefúr aldrei verið greitt hærra verð fyrir einn demant Demanturinn er sá þriðji stærsti sinnar tegundar í ver- öldinni og var eitt sinn eign ríks Rússa, Michel Terestchenko, sem uppi var á tímum keisar- ans, og var á sínum tíma smygl- að frá Rússlandi á tímum bylt- ingarinnar. Demanturinn er perulaga og er af sérfræðingum Christieás sagður mjög áþekkur að þyngd og lögun og vonardemanturinn, sem varðveittur er í Smiths- onian-stofnuninni í Washing- ton. Vonardemanturinn er 45,52 karata. Fyrsta boð í demantinn hljóð- aði upp á þrjár milljónir franka og var hann sleginn nýjum óþekktum eiganda þremur mín- útum seinna. Fyrra metverð á demanti var átta milljónir franka, sem greiddar voru fyrir demantinn „Pólstjörnuna", sem er 41,3 karöt, og var eitt sinn eign bróður Napoleons fyrsta. 3 börn deyja úr AIDS- veikinni í Astralíu Fengu öll blóð frá kynvilltum manni Nydney, AatnlÍD, 15. nÓTember. AP. ÞRJÚ börn eru látin og það þriðja alvarlega sjúkt eftir að hafa verið gefið blóð úr kynvilltum manni, sem líklega er haldinn sjúkdómnum AIDS. Er nú verið að ganga úr skugga um hvort maðuriun hafi gef- ið blóð í annan tírna. Brian Austin heilbrigðisráð- herra i Queensland sagði á frétta- mannafundi, að börnin þrjú hefðu látist í september og október en það þriðja væri alvarlega sjúkt. 011 fengu þau blóð frá sama manninum, sem er kynvilltur og talinn vera með sjúkdóminn AIDS. Austin sagði ennfremur, að þingið i Queensland væri nú að ganga frá lögum, sem banna kyn- villingum og eiturlyfjaneytendum að gefa blóð að viðlögðum hörðum refsingum, miklum sektum og fangelsi. Maðurinn, sem gaf blóðið, hefur tekið dauða barnanna mjög nærri sér enda vissi hann ekki fyrr en í haust, að hann væri sjúkur. Hann hefur a.m.k. 15 sinnum gefið blóð frá árinu 1981 og síðast i maí og ágúst á þessu ári. Verið er nú að kanna hvað orðið hefur um fyrri blóðgjafir hans. Embættismenn í öðrum fylkjum Ástralíu hyggjast fara að dæmi Queensland-búa og banna kyn- villtu fólki og eiturlyfjasjúkling- um að gefa blóð. Sovézkur kafbátur njósnar við Skotland Loadon, 15. DÍTenber. AP. Flugmóðurakipið HMS Illustr- ious sigldi í innan við 500 metra fjarlægð frá sovézkum njósnakaf- báti þar sem það tók þátt I æfing- um brezka fiotans norðvestur af Skotlandi, milli Orkneyja og Fær- eyja, að sögn blaðamanns um borð í skipinu. Blaðamaðurinn segist hafa séð tvo sovézka dáta í turni kafbáts- ins, sem var af Tangó-gerð. Kafbátar af þessari tegund eru 92 metra langir og knúnir dfsil- vélum. Um tíma sigldu Illustrious og kafbáturinn samsiða og var send þyrla frá flugmóðurskipinu til að taka nærmyndir af bátnum. Örstuttu seinna birtust tveir sovézkir „birnir", TU-142 eftir- litsflugvélar, og flugu í hringi yfir flugmóðurskipinu. Harrier- þotur flugu upp og fylgdu þeim eftir. Skipverjar á Illustrious segja augljóst að kafbáturinn hafi gefið flugvélunum upp stað- setningu flugmóðurskipsins. Grein um skáksnillinginn Bobby Fischer, eftir llluga Jökulsson blaðamann, þar sem fjallaö er um feril hans, grafist fyrir um hvar heims- meistarinn fyrrverandi er nú, og hvort líklegt sé aö hann tefli á nýjan leik. Ath.: Nýir áskrifendur fá fyrsta tölu- blaöiö í kaupbæti, blaðiö sem seldist þrívegis upp í sumar. Metsölutímaritið Mannlíf Meöal efnis: Svipmynd af Styrmi Gunnarssyni, ritstjóra Morgun- blaðsins. Tískuþáttur. Grein um kynlíf á 9. áratugnum. Grein um bandaríska skokkarann James Fixx, sem nýtega lést úr hjartaslagi. Övenjulegt viötal vlö Svavar Gestsson. Grein um stóriðju. Stutt viötal viö Guönýju Ragnarsdóttur, sem lék aöalhlutverkiö í Landi og sonum. Fjailaö um megrunarsjúkdóma. Einkaviötal viö bandaríska blökkumannaieiötogann Jesse Jackson, og margt annað fróölegt og skemmtilegt efni. Áskriftarsímar: 91-687474 og 687479. „Jónas og Halldór. Þessir höfundar eru stórir af því aö þeir útmála eitthvaö, sem býr í öllum og þeir grípa eitthvaö sem liggur í tíöinni og stækka þaö. En þaö er ekki allt og sumt; þeir eru alltaf trúir sjálfum sér — þeir eru persónuleikar og hafa skap.“ — Svo segir Guömundur Andri Thorsson meöal annars í grein um bókmenntir. Tímaritiö Mannlíf Höföabakka 9, 110 Reykjavík. Sfman 91-687474 og 687479.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.