Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984
7
Egilsstaðir:
Heilsugæslustöðin 10 ára
Læknar á EgilsstöAum fyrr og nú, Lf.v. (inni) Stefán Þórarinsson, hér-
aðslæknir á Austurlandi; Haukur Magnússon, læknir á Egilsstödum
1963—1967; Þorsteinn Sigurósson sem nú hefur látið af störfum; Guð-
mundur Sigurðsson, læknir á Egilsstöðum 1971—1982 og Gunnsteinn
Stefánsson, yfirlæknir Heilsugæshistöðvarinnar.
EgibsUMam, II. nóvember.
ÞESS var minnst nú um helgina að
10 ár eru lióin frá þvi að Heilsu-
gæslustöðin á Egilsstöðum tðk til
starfa. Á fostudagskvöldið efndi
stjórn Heilsugæslustöðvarinnar til
almenns kaffisamsætis í Valaskjálf,
sem hartnær 150 manns sóttu víðs-
vegar af þjónustusvæði stöðvarinn-
ar, þar sem þessara tímamóta var
minnst og ennfremur var Þorsteinn
Sigurðsson, læknir, þá beiðraður, en
hann hefur nú látið af læknisstörf-
um fyrir aldurs sakir eftir 30 ára
samfellt starf hér eystra.
I samsætinu rakti Helgi Gisla-
son, fyrrum oddviti Fellahrepps,
sögu og þróun heilsugæslumála á
Héraði. Kom m.a. fram i máli
hans að hafist var handa um
byggingu sjúkraskýlis á Egils-
stöðum 1944 eftir bruna sjúkra-
skýlisins á Brekku í Fljótsdal.
Sjúkraskýli þetta var síðan að
hluta tekið í notkun 1946, en
rekstur þess hófst bó ekki að öllu
leyti fyrr en 1949. Árið 1969 hófst
undirbúningur að byggingu
heilsugæslustöðvar við sjúkra-
skýlið og hófst rekstur hennar
1974.
í samsætinu var Þorsteinn Sig-
urðsson heiðraður, en hann lét af
læknisstörfum í haust eftir 30 ára
samfellt starf. Þorsteinn stendur
nú á sjötugu, en hann hóf störf
hér á Egilsstöðum sem héraðs-
læknir árið 1954, en hafði áður
gegnt hér læknisstörfum sem
kandídat. Guðmundur Magnús-
son, sveitarstjóri á Egilsstöðum,
þakkaði Þorsteini giftudrjúg störf
og færði honum að gjöf frá þeim
ellefu sveitarfélögum sem standa
að rekstri Heilsugæslustöðvar-
innar forláta gestabók er þeir
feðgar frá Miðhúsum, Hlynur og
Halldór Sigurðsson, hafa smíðað
af alkunnum hagleik.
Þeir læknar sem lengst hafa
starfað með Þorsteini voru enn-
fremur færðar þakkir og viður-
kenningar, en það eru þeir Hauk-
ur Magnússon, læknir i Reykja-
vík, sem starfaði hér á árunum
1963—1968, og Guðmundur Sig-
urðsson, aðstoðarlandlæknir, er
starfaði hér 1971—1982.
Veislustjóri var Þráinn Jóns-
son, stjórnarformaður Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Egilsstöðum.
Eins og áður segir er Heilsu-
gæslustöðin rekin sameiginlega af
ellefu sveitarfélögum, öllum sveit-
arfélögum Fljótsdalshéraðs, 10 að
tölu og Borgarfirði eystra. Á
Heilsugæslustöðinni starfa nú
þrir læknar. Stefán Þórarinsson,
héraðslæknir Austurlands, Gunn-
steinn Stefánsson, yfirlæknir
stöðvarinnar og Sverrir Harðar-
son. Þá starfar þar tannlæknir,
Ragnar Steinarsson.
Að sögn Guðmundar Sigurðs-
sonar, aðstoðarlandlæknis, er
Heilsugæslustöðin á Egilsstöðum
fyrsta heilsugæslustöðin sem tók
til starfa skv. núgildandi lögum
um heilsugæslustöðvar, og var þvi
e.t.v. fengið ákveðið rannsóknar-
efni er hófst 1975 og lauk 1978.
Rannsóknarverkefni þetta var
fólgið í skráningu sjúkraskýrslna
og styrkt af Norrænu ráðherra-
nefndinni og því fylgdist sam-
norræn nefnd (Nordisk Medicinal
Statistisk Komité) með fram-
gangi rannsóknarinnar, en hún
var unnin af islenskum aðilum
undir stjórn Guðmundar. Könnun
þessi leiddi ótvirætt í ljós að
sjúkraskráin og það upplýsinga-
kerfi er byggt var upp til skrán-
ingar reyndist gagnlegt hjálpar-
tæki við stundum sjúklinga, rann-
sóknir og kennslu og auðveldara
en ella reyndist að fylgjast með
svonefndum áhættuhópum. Raun-
in hefur líka orðið sú að langflest-
ar heilsugæslustöðvar á landinu
Heilsugæslustöðin á Egilsstöðum. Ljism. Mbi./öi«fur
í
Þráinn Jónsson stjórnarformaður
Heilsugæslustöðvarinnar flytur
ávarp.
hafa tekið upp þetta skráninga-
kerfi er leiddi af fyrrnefndri
rannsókn.
Guðmundur Sigurðsson hóf
læknisstörf hér á Egilsstöðum
1971, en 1982 fékk hann leyfi frá
störfum til framhaldsnáms. Und-
anfarin tvö ár hefur hann síðan
stundað framhaldsnám við Uni-
versity of Western Ontario í
London i Ontario í Kanada i
heimilislækningum með tilliti til
rannsóknarstarfa og kennslu i
þeirri sérgrein. Eftir heimkomu i
haust var hann settur aðstoðar-
landlæknir, en ólafur ólafsson,
landlæknir, er i leyfi um sinn
vegna starfa við Alþjóðlegu heil-
brigðismálastofnunina i Kaup-
mannahöfn. Guðmundur hlaut
svonefndd Kelloggs-styrk til
framhaldsnáms, en Kelloggs-
stofnunin, er kornflöguframleið-
andinn Kellogg kom upp, hefur
undangengin ár styrkt lækna
víðsvegar úr heiminum til sliks
sérnáms. Ólafur.
Fjallalíf er sérstakur lífsmáti, mótaður af Tírólum fyrir lífsglatt fólk. Fjallalífið er með fjórugasta
móti í Zillertal, einu þekktasta skíðasvæði Austurríkis. Höfuðstaður Zillertal er Mayrhofen,
áfangastaður Flugleiða í vetur.
Fjallalífið hentar öllum sem kunna að meta fallegt umhverfi, ________________________________________
sólskin, holla hreyfingu, Ijúffengan mat og drykk. .... ■ M.fljr,
Fjallalífið hefur þau áhrif að öll fjölskyldan fer heim ánægð og b fiokkur * c
endurnærð. Mayrhofen er líflegur bær, skíðabrekkurnar eru við , vfka j1°81ur j
allra hæfi, góður skíðaskóli er á staðnum, gististaðirnir eru 2 vikur 6.366.- 1
sérlega vandaðir og allir skemmta sér konunglega frá morgni til Aukadagur 455,-
kvölds, - en vakna þó endurnærðir að morgni. fordfievta Foi
Fararstjóri Flugleiða heitir Rudi Knapp og sér hann til þess að OpoiC orsa op
allir njóti sín sem best. Fiatuno fíj
Það er ekki dýrt að njóta fjallalífsins í Mayrhofen:_________________________
Flug til Luxemborgar og bílaieigubíll
Brottíarardagar: Alla föstudaga frá 21. desember til 6. april 1985
Flug og gisting i 2 vikur:
Beint leiguflug
Brottfarardagar: 26. janúar, 9. febrúar og 23. febrúar 1985
Flug og gisting i 2 vikur:
Hótel
Café Traudl/Windschnur
Gasthof Neuhaus I
Casthof Neuhaus II
Sporthotel Strass
Hotel Elizabeth
Hótel
Café Traudl/Windschnur
Gasthof Neuhaus I
Gasthof Neuhaus II
Sporthotel Strass
Hotel Elizabeth
íbúftir
Ibubir
Landhaus Veronika I
Landhaus Veronika II
Landhaus Veronika III
Landhaus Veronika IV
Landhaus Veronika I
Landhaus Veronika II
Landhaus Veronika III
Landhaus Veronika IV
29.1564.
35.510.
41.852.
48.222.
Flugleiöir bjóöa þér einstaka greiösluskilmála:
Þú greiðir fimmtung út og afganginn á fjórum manuöum!
Leitaöu frekari upplýsinga um skíðaferðir til Mayrhofen á söluskrifstofum Fluglciða, umboðsmonnum og ferðaskrifstofui
FLUGLEIDIR
Uilaleigubílar frá Continental í Luxemborg
B-flokkur C-flokkur D-flokkur E-Flokkur
1 vika 3.183.- 3.868.- 4.621.- 5.066.-
2 vikur 6.366.- 7.736,- 9.242.- 10.132.-
Aukadagur 455.- 553.- 661.- 725.-
Ford Fiesta Ford Iscort Fiat Ritmodisil Fiat Regata 100
Opel Corsa Opel Kadett Fiat Regata Ford Sierra
Fiat Uno Fiat Ritmo Opel Ascona
Audi 80