Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984 Kjördæmlsráð Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum: Bætt starfsskilyrði sjávarútvegs brýn- asta hagsmunamál hinna dreifðu byggða MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ílyktun til birtingar: Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarða- kjördæmi, haldinn á Isafirði dag- ana 26.-27. október 1984, vekur athygli á þeirri örðugu stöðu sem þjóðarbú okkar er nú í. Á sama tíma og við er að etja alvarlegan vanda í efnahagsmálum, eru sett- ar fram kaupkröfur sem óðara myndu magna verðbólgu, stofna atvinnuöryggi í hættu og koma með miklum þunga niður á þeim er lökust hafa kjörin í landinu. Þingið fagnar þeim árangri sem ríkisstjórnin hefur náð í viðureign sinni við dýrtíðina. Á rúmu ári hefur tekist að ná verðbólgunni úr 130-150% ofan í 10-15%. Eng- inn vafi er á því að þessi árangur verður grundvöllur fyrir raun- verulegar kjarabætur og skapar meira jafnvægisástand í efna- hagslífinu. Vegna hins stöðuga verðlags hefur verið kleift að halda verði margvíslegrar opin- berrar þjónustu stöðugu, fyrir- tæki hafa í fyrsta skipti getað gert áreiðanlegar framtíðaráætlanir og nýjar atvinnugreinar því átt auðveldara uppdráttar. Það er meginverkefni komandi mánaða og missera að viðhalda þessum árangri, sem náðst hefur og takast á við verkefni sem ríkis- stjórnin hefur ekki enn hrundið í framkvæmd. í því skyni þarf að beita margvíslegum efnahagsað- gerðum sem miða að því að höggva að rótum þess vanda sem við er að etja í efnahagslífi okkar Islend- inga. Taka þarf fjárlagagerð föstum tökum þannig að tryggt sé að fjár- lög séu rekin án halla. Peninga- málastjórn þarf að hafa þannig að jafnvægi sé í útlánum og innlán- um, eðlileg ávöxtunarkjör ríki í innlánsstofnunum og aukning peningamagns sé í samræmi við markmið í efnahagsmálum. Skráning gengis taki mið af markmiðum um stöðugt verðlag, kostnaðarþróun innanlands, jafn- vægi í viðskiptum við útlönd og að eðlileg starfsskilyrði séu fyrir hendi hjá útflutningsgreinum. Aðalfundurinn lýsir yfir mikl- um áhyggjum vegna þess að hugmyndum ríkisstjórnarinnar um skattalækkanir til lausnar á yfirstandandi kjaradeilum, virðist hafa verið hafnað. I stað þeirra er stefnt inn á gamlar aðferðir mik- illa peningalaunahækkana, sem einungis munu glæða verðbólgu- bálið á nýjan leik. Eðlilegast er við ríkjandi að- stæður að draga úr umsvifum hins opinbera. I þvi sambandi skal sér- staklega bent á leiðir er fela í sér hagræðingu í ríkisrekstri, samein- ingu ríkisstofnana, eða að þær séu lagðar niður. Þá ber brýna nauð- syn til þess að gaumgæfa leiðir í ríkara mæli, til þess að færa opinbera þjónustu í hendur einka- aðila. Aðalfundurinn ítrekar stuðning sinn við stefnu Sjálfstæðisflokks- ins í öryggis- og varnarmálum; að fylgt sé ábyrgri og sjálfstæðri utanríkisstefnu sem reist er á norrænu samstarfi, öryggis- og varnarsamstarfi vestrænna ríkja, þátttöku í samtökum Sameinuðu þjóðanna og standa vörð um frjáls milliríkjaviðskipti. Kjördæmisráð Sjálfstæðis- flokksins í Vestfjarðakjördæmi vekur sérstaka athygli á þeirri stór alvarlegu rekstrarstöðu sem nú ríkir í sjávarútvegi lands- manna. Margra ára núllrekstr- arstefna, sem vinstri öflin í land- inu fylgdu varðandi þennan at- vinnuveg er nú að koma þjóðinni í koll. Þegar við bætast þrengingar vegna erfiðrar stöðu á erlendum mörkuðum og takmarkana á heimiluðum afla, stefnir í hrein vandræði hjá atvinnugreininni í heild. Áréttað skal hér að um almenn- an vanda er að ræða í sjálfri und- irstöðugrein íslensks þjóðarbús. Vanda sem stjórnvöld verða að grípa inn í. Aðalfundurinn tekur heilshugar undir ályktun flokks- ráðs og formannaráðstefnu Sjálf- stæðisflokksins frá 13. og 14. októ- ber, þar sem krafa er gerð um að sjávarútveginum verði skapaður eðlilegur starfsgrundvöllur. Bætt starfsskilyrði sjávarút- vegsins eru nú brýnasta byggða- mál Vestfjarða og hinna dreifðu byggða í landinu. Án öflugs sjáv- arútvegs verður ekki unnt að framkvæma heilbrigða byggða- stefnu. Það eru og hagsmunir starfsfólks í sjávarútvegi að ör- yggi ríki í rekstri atvinnugreinar- innar. Aðalfundurinn hvetur því til skjótra viðbragða af hálfu stjórn- valda er miði að því að skapa heil- brigðan starfsgrundvöll fyrir sjávarútveginn, landi og þjóð til heilla. Akranes: Oánægja með þjónustu Rík- isútvarpsins Akraaem, 14. september. MIKIL óánægja er ríkjandi á Akranesi með þjónustu ríkisút- varpsins og á það sérstaklega við útsendingar rásar 2 en hlustunar- skilyrði hcnnar eru afar slæm í kaupstaðnum. Mönnum finnst það skjóta nokkuð skökku við þegar talað er um það hjá forráðamönnum útvarpsins að hlustunarskilyrði séu góð allt vestur á Snæfellsnes meðan stór nágrannabyggð höf- uðborgarinnar nær ekki þessum útsendingum svo vel sé. Umræður urðu um þessi mál svo og þjónustu ríkisútvarpsins almennt á bæjarstjórnarfundi fyrir skömmu og var þar sam- þykkt tillaga til forráðamanna ríkisútvarpsins um úrbætur. Tillagan hljóðar svo: Bæjarstjórn Akraness sam- þykkir að beina því til forráða- manna Ríkisútvarpsins að nauð- synlegt er að bæta útsendingar á rás 2 til Akraness svo hlustun- arskilyrði verði viðunandi í bænum. Einnig beinir bæjar- stjórn því til Ríkisútvarpsins að bæta fréttaþjónustu við Akra- nes, bæði hljóðvarps og sjón- varps. í þessu augnamiði komi hljóðvarp og sjónvarp sér upp aðstöðu á Akranesi til upptöku og útsendingar efnis. Bæjarstjóra og bæjarráði er falið að koma þessu á framfæri við rétta aðila og fylgja því eftir eins og kostur er. Þessi tillaga var samþykkt samhljóða. J.G. Læjkkaö verö abamamat Við hvikum ekki frá lágmarksvöruverði, t.d. höfum við ódýrustu bleyjur í bænum og nú lækkum við verðið á öllum barnamat í krukkum og pökkum. Betri kaup er okkar meginmarkmið. Dæmi um verð: áður nú Beech Nut barnamatur, lítil glös kr. 13.85 kr. 12.70 Beech Nut barnamatur, stór glös kr. 19.50 kr. 17.90 HAGKAUP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.