Morgunblaðið - 16.11.1984, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NOVEMBER 1984
Vilja 10 milljarða
stríðsskaðabætur
Niqoira, Líbanon. 15. nórember. AP.
SENDINEFNDIR Líbanon og
Waeis sátu á fundum í dag og
ræddu brottflutning fsraelshers
frá suðurhluta Líbanon. Báðir aðil-
ar lýstu yfir þörf á frekari fundar-
höldum, en óljóst er hver árangur
hefur orðið af þeim fundum sem
liðnir eru.
Líbanir lögðu fram nokkrar
mjög stífar kröfur á fundinum í
dag, m.a. kröfu upp á 10 millj-
arða dollara stríðsskaðabætur.
Einnig skilyrðislaust og skjótt
brotthvarf fsraelska herliðsins
frá Líbanon „til þess að frelsa
líbanska alþýðu úr hinu risa-
vaxna fangelsi sem fsraelar hafa
gert úr Suður-Líbanon."
Verkfall í Bólivíu
lamar allt athafnalíf
Lt Paz, 15. BÖTember. AP.
ALLT ATHAFNALÍF í Bólivíu nær lamaðist í dag er námamenn, kennarar
og skrifstofufólk lögðu niður vinnu um óákveðinn tíma til að leggja áherslu á
launakröfur sínar, verðlagseftirlit og að tryggt verði að nægar birgðir nauð-
synjavöru verði jafnan fyrir hendi.
Verkfallið kemur á versta tíma
fyrir borgarastjórn Hernan Siles
Zuazo forseta, sem stjórnarand-
staðan hefur að undanförnu hvatt
til að efna til kosninga sem fyrst.
Samtök bólivískra launþega
hafa hótað að frá og með mánu-
degi leggi einnig niður vinnu
starfsmenn samgöngutækja, bens-
ínafgreiðslumenn, starfsfólk mat-
vöruverslana, sjúkrahúsa og
starfsfólk í ýmsum þjónustugrein-
um, ef enginn árangur hefur þá
orðið af verkfallinu.
Tinnámum var lokað í dag, en
stærstur hluti gjaldeyristekna
Bólivíu er af tinútflutningi, einnig
lokuðust verksmiðjur, verslanir og
flestir bankar. Seðlabanki lands-
ins var opinn svo opinberir starfs-
menn gætu náð út launum sínum.
Innanlandsflug stöðvaðist en enn
hefur verkfallið ekki áhrif á miili-
landaflug.
Matvælaskortur hefur verið í
Bólivíu undanfarnar vikur og
verðbólga nálgast 1.000 prósent.
Efnahagslíf landsins hefur verið í
krónískri lægð i mörg ár.
Verkalýðsleiðtogar krefjast
þess að ríkisstjórnin setji verð-
lagshöft og tryggi matvælafram-
boð, leiðrétti lágmarkslaun og inn-
leiði vísitöiubindingu launa. Emb-
ættismenn segja það leiða til enn
frekari kreppu og stjórnlausrar
verðbólgu, ef orðið verður við
kröfunum.
Díana skírír farþegaskip
Símamynd. AP.
Prinsessan af Wales, Díana, í Southampton í gær þar sem hún gaf nýju, glæsilegu farþega-
skipi nafni. Skipið heitir Royal Princess og er í eigu P&O skipafélagsins. Við athöfnina var
einnig Finnlandsforseti, Mauno Koivisto, en skipið var smíðað í Finnlandi.
Mitterrand semur við
Khadafy á leynifundi
FRANCOIS Mitterrand Frakklandsforseti og Moammar Khadafy Líbýuleiðtogi
samþykktu á Krft í dag að allt franskt og Ifbýskt herlið yrði fhitt á brott frá
Chad og hétu þvf að bæta sambúð þjóða sinna.
ERLENT
Khadafy sagði að fundurinn á
Krít hefði leitt til „gagnkvæms
trausts" og valdið þáttaskilum.
Hann þakkaði Andreasi Papandr-
eou forsætisráðherra Grikklands
fyrir að efna til fundarins og þátt
hans f samkomulaginu um brott-
flutninginn frá Chad.
Papandreou sagði að samþykkt
hefði verið í aðalatriðum að ekki
einn einasti franskur eða líbýskur
hermaður yrði eftir I Chad og stað-
festi þar með fréttir bandariska
utanríkisráðuneytisins um að líb-
ýskir hermenn væru enn i Chad.
Samkvæmt heimildum i frönsku
leyniþjónustunni eru um 1.000 lfb-
ýskir hermenn enn i Chad þrátt
fyrir fullyrðingar stjórnvalda um
að Libýumenn hafi hörfað þaðan að
sögn „Le Monde“.
Frakkar og Libýumenn tilkynntu
á laugardaginn að brottflutningi
þeirra frá Chad væri lokið. Því kom
það frönskum yfirvöldum i bobba
þegar bandarfska utanrfkisráðu-
neytið skýrði frá þvi i gær að
Frökkum hefðu verið afhentar ljós- ’
myndir, sem sýndu að „töluvert líb-
ýskt herlið* væri enn i Chad.
Heimildir í París herma að mót-
sagnakenndar yfirlýsingar Frakka
og Bandaríkjamanna eigi rætur að
rekja til vissrar ringulreiðar og
stjórnleysis í frönsku utanrfkis-
þjónustunni. Almennt er talið að
Roland Dumas talsmaður stjórnar-
innar taki senn við starfi utanríkis-
ráðherra af Claude Cheysson.
Cheysson samdi um brottflutn-
inginn, sem hann verður liklega sfð-
asta meiriháttar verk hans. Dumas
sagði i dag að leiðtogafundur hefði
verið til athugunar siðan f septemb-
er og hægt hefði verið að halda
hann þar sem brottflutningur Lfbý-
umanna hefði farið fram eftir áætl-
un.
Morðingi Indiru Gandhi:
Erlendir aðilar fjár-
mögnuðu ódæðið
Air Canada og TWA:
Tveggja hreyfla þotur
í Atlantshafsflugiö 1985
Treggja hreyfla þotur verða í
fyrsta sinn notaðar í reghilegu áætl-
unarflugi milli Norður-Ameríku og
Evrópu á næsta ári. Hyggjast TWA
og Air Canada nota Boeing 767-þot-
ur á flugleiðum milli Bretlands og
Norður-Ameríku, en hingað til hafa
þr'g(íj* og fjögurra hreyfla þotur, Ld.
Lockbeed TriStar og Boeing 747,
flogið þessa flugleið.
Þetta kemur fram í frétt Daily
Telegraph frá þvi á mánudag.
Hyggst Air Canada fljúga frá
Prestwick og Heathrow til Halifax
og Gander á Nýfundnalandi næsta
sumar með Boeing 767-þotum.
TWA mun fljúga til margra staða
í Evrópu frá St. Louis i Missouri.
Tveggja hreyfla þotur hafa til
þessa verið notaðar eingöngu f
leiguflugi yfir Atlantshafið, þar
sem reglur um öryggi í áætlunar-
flugi takmarka flug véla af þessu
tagi um ákveðið belti, sem liggur
um ísland. Mega tveggja hreyfla
þotur ekki fljúga lengra frá vara-
velli en svo að þær næðu þangað á
60 mínútum ef annar hreyflanna
bilaði. Af þessum sökum verða
Nýjv DelU, 15. •órenber. AP.
INDVERSKA dagblaðið HindusUn
Times greindi frá því f dag, að Satw-
ant Singh, annar tveggja morðingja
Indiru Gandhi, befði lýst því í yfir-
heyrslum að erlendir aðilar hefðu
skipulagt morðið og ráðið sig til
þess. Segir blaðið heimildir sínar
pottþéttar, ennfremur að Satwant
hefði sagt lögreglu um hvaða aðila
væri að ræða. Því hefur hins vegar
verið haldið leyndu um sinn að
minnsta kosti. Greini blaðið rétt frá,
undirstrikar það grunsemdir margra
að morðið á frú Gandhi hafi aðeins
verið brot af miklu samsæri þar sem
ætlunin var að myrða enn fleiri
frammámenn í IndlandL
Stjórnvöld i Nýju Delhi hafa
látið frá sér fara skýrslu um óöld-
ina sem ríkti f landinu um hrið
eftir morðið umtalaða. Þar kemur
fram, að alls hafi 1.277 manns lát-
ið lífið, þar af 651 f Delhf. 13 voru
hindúar sem lögreglan skaut til
bana, hinir voru flestir shikar sem
urðu hefndaróðum hindúum að
bráð. Kemur fram að enn sé verið
að meta tjón af völdum gripdeilda,
rána og íkveikju. Hjálparstarf er í
fullum gangi segir f skýrslunni.
Þota af gerðinni Boeing 767. Þotu þessarar tegundar, tveggja hreyfla, hyggjast
Air Canada og TWA nota á flugleiðinni yfir Atlantshaf á næsta ári, en
samkvæmt reglum flugsins verða flugvélarnar ætíð að leggja leið sína um belti
sem liggur um fsland.
þær að fljúga lengri leið en aðrar
þotur, sem fljúga flestar lengra
suður af fslandi.
Flugfélög og flugvélaframleið-
endur hafa beitt sér fyrir því að
þessari reglu verði breytt þar sem
þotuhreyflar séu það fullkomnir i
dag að nær engar líkur séu á
hreyfílbilun. En Air Canada og
TWA bíða ekki eftir nýjum regl-
um, flugtíminn frá Prestwick til
Halifax lengist aðeins um 20 min-
útur við að fljúga í beltinu, sem
liggur um ísland. í beltinu eru
Keflavikurflugvöllur, Söndre-
ström, Nanortalik og Gander,
þannig að flugvél á flugi i beltinu
er alltaf i innan við klukkustundar
fjarlægð frá einhverjum þeirra.
11 dætra faðir í ísrael:
Ætlar að reyna
þar til sonur fæðist
TH Atít, 15. nÓTember. AP.
Waelskur hermaður sagðist enn
honum fæðist sonur, en kona hans
Hermaðurinn, Farzi Karmi,
sem er 36 ára og er í skriðdreka-
sveitum ísraelshers, sagðist
vona að næst yrði það drengur.
Elleftu dótturinni var gefið
nafnið Bat El, sem þýðir guðs-
dóttir, „til að sýna að allt kemur
frá Guði“.
Þegar önnur dóttir þeirra
hjóna kom í heiminn krafðist
eiginkona Karmi að hann hætti
að leika knattspyrnu í þeirri trú
að Guð mundi launa honum með
mundu halda áfram og reyna þar til
ól elleftu dótturina í vikunni.
syni ef hann fórnaði einu helzta
áhugamáli sinu.
„Eg sagði henni að ég neytti
ekki áfengis, reykti ekki eða spil-
aði póker, en knattspyrnu gæfi
ég ekki upp á bátinn," sagði
Karmi. Herdeild hans fylgist
spennt með fjölskyldunni og
vonaði að nú væri strákur á leið-
inni, og var því þunnt hljóðið í
mönnum á sunnudag, er 11. dótt-
irin kom i heiminn.