Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984 29 „Margt það sem sagt er í bækl- ingnum um vinnuaöstæöur viö tölvu- skjái á einnig viö um atmenna skrifstofuvinnu, til dæmis vélritun. Viö öli slík störf er nauösynlegt aö gæta þess aö stóll og borö séu í réttri hæð og aö lýsing og litir vinnu- staöarins séu þannig aö þaö ofreyni ekki sjónina. Þessara hluta veröur fólk líka aö gæta þegar unniö er viö tölvuskjái, ekki síst þegar fleiri en einn starfs- maöur nota sömu aöstööu. Fólk er mismunandi hátt til loftsins og þaö sem hentar einum er líklega ekki eins heppilegt fyrir annan. i slíkum tilvikum er nauösynlegt aö hver og einn stilli hæð borös og stóls eins og honum hentar best, sem og fjarlægð frá tölvuskjá, lyklaboröi og handriti. Til þess aö þetta sé gert veröa vinnuaöstæöur aö vera þannig aö fólk þurfi ekki aö fara á fjóra fætur í hvert skipti sem hæö stóls og borös er breytt. Eins teljum viö mjög æski- legt aö lyklaborö og tölvuskjár séu aöskilin og hægt sé aö snúa skján- um, halla honum, hækka og lækka hann og færa þannig til aö fjarlægö- in henti hverjum starfsmanni,” sagöi Þórunn. Um þetta atriöi segir í bæklingn- um: Hæð lyklaborös á aö vera stillt þannig aö starfsmaöur geti setið meö beint bak, slakar axlir og um 90° horn í olnboga þegar unniö er við boröiö. Fætur þurfa að ná til gólfs. Hæö og halli skjáborös eru stillt þannig aö skjárinn sé í þægi- legri stööu fyrir starfsmann, þ.e. aö höfuö starfsmanns lúti í u.þ.b. 20° niöur þegar hann horfir á skjáinn. Um vinnuborö segir einnig aö hentugast sé aö hafa þaö í einum fleti, en ekki tvískipt. Undirstaöa þess sé þó aö tölvuskjár og lykla- borö séu aðskilin, lyklaboröiö sé þunnt og hægt sé aö stilla hæð skjásins, snúa honum og halla. Sé slíkur búnaöur fyrir hendi þurfi aö- eins aö vera hægt aö stilla hæö borðsins fyrir viökomandi starfs- mann. Hæöin er þá miöuð viö rétta vinnustööu viö lyklaboröiö, en hæö og staöa skjásins stillt á eftir. Kost- irnir viö þetta fyrirkomulag eru m.a. þeir aö auöveldlega má flytja tækin til og nota boröiö til annarrar vinnu. Boröplata og buröarlisti skyldu ekki vera þykkari en 2,5 sm samtals til aö samræmi veröi á milli sethæðar og vinnuhæöar viö lyklaborö og æski- legast er aö boröplata sé úr möttu efni sem ekki veldur endurkasti. Nánar segir um lyklaborö aö hæö þess ætti ekki aö vera meiri en 2 sm, mælt viö aöra lyklaröö og aö æski- Ljósm. Mbl./RAX „Fólk er mismunandi hitt til loftsins og því veröur hæö boröe og stóls aó vera auðveld- lega stillanleg, sérstaklega ef fleiri en einn nota sömu aóstöðu,*1 segir Þórunn í viðtalinu. Þessi teikning, sem er fengin úr bæklingi Vinnueftirlitsins, sýnir glöggt hve nauösynlegt er aö tækjabúnaóur og húsgögn sóu stillanleg svo skapa megi góöa vinnuaöstööu. Mikilvægt er aó vemda augun eftir mætti fyrir því mikla ólagi sem hlýst af vinnu við tölvuskjó, lýsingu í herberginu og fleiru sem getur skaöaö þau. Þeir sem vinna við tölvuskjó ættu aö fara reglulega til augnlæknis, en óður en það veróur gert veróur aö mæla þessar fjarlægðir, þ.e. 1. Hæö augna. 2. Hæö lyklaborös fró góHi. 3. Hæö tölvuskjós fró gólfi (fró miöju skjós). 4. Hæö hand- rits fró gólfi (fró miöju handrits). 5. Fjarlægð augna fró lyklaborði. 6. Fjarlægó augna fró handriti. 7. Fjarlægö augna fró tölvuskjó. Nióurstööur þessara mælinga þarf að hafa til hliösjónar þegar sjónprófió er gert. (Teikning úr leiöbeiningabæklingi Vinnueftir- litsins um vinnu viö tölvuskjói.) legur halli sé 5°, til að fyrirbyggja óþarfa álag á herðar, handleggi og úlnliöi. „Það sem kannski er sérstæöast af mögulegum vandamálum varð- andi vinnu viö tölvuskjái er lýsing og áiag á augu þeirra sem stunda slíka vinnu," sagöi Þórunn. „Vinna viö tölvuskjái gerir miklar kröfur til augnanna og boðorö númer eitt er aö jöfn fjarlægö sé frá augum aö skjánum, lyklaboröi og aö handriti. Þetta eru atriöi sem viökomandi starfsmenn þurfa aö gæta sjálfir og helst ættu allir sem vinna viö tölvu- skjái aö gangast undir sjónpróf meö jöfriu millibili, sérstaklega þeir sem nota.gleraugu viö vinnuna. Æskilegt er aö jjeir sem þess þurfa noti gleraugu sem draga úr endurkasti og foröast skyldi aö nota gleraugu sem í eru lituö gler eöa gler sem breyta um lit viö mismunandi birtuskilyröi. Eins hentar yfirleitt ekki aö nota tviskipt eöa fjölskipt gler- augu þegar unniö er viö tölvuskjái." — Hvaö um lýsingu í vinnuher- bergi? „Aö henni verður að gæta vel,“ sagöi Þórunn, „því aó kröfur sem gerðar eru til lýsingar þar sem unniö er viö tölvuskjái eru aðrar en þær sem gerðar eru vegna almennrar skrifstofuvinnu. Tölvuskjáir eru yfir- leitt meö dökkum grunni og Ijósari stöfum. Því er auöveldast aö lesa af þeim þegar birta í herberginu er dempuð. Aö vísu hafa veriö fram- leiddir tölvuskjáir sem hafa dökkt letur á Ijósari grunni, en þeir eru fá- gætari og dýrari. Hins vegar er ekki ólíklegt aö slíkir skjáir séu hentugri, þar sem flestum þykir þetra aö lesa dökkt letur á Ijósari grunni en öfugt, elsta rannsóknin sem sannar þaö er frá árunum 1920—30. En þar sem flestir vinna viö tölvu- skjái þar sem Ijóst letur er á dekkri grunni, verður aö gæta vel aö því aö ofbjóöa ekki augunum meö of mikl- um litaandstæöum í umhverfinu. Til dæmis er betra fyrir þá sem vinna með handrit, væntanlega meö dökku letri á Ijósari grunni, aö hand- ritsblaöiö sé ekki mjallahvitt, heldur í einhverjum mildari lit, Ijósbrúnum eöa álíka. Sama gildir um litaval á veggi, gólf og allt umhverfi viö skjáinn. Best er aö hafa þar milda liti, þannig aö viöbrögöin viö aö líta af skjánum á annaö í kringum hann veröi ekki eins mikil fyrir augun. Ef þessa er ekki gætt, skapast hætta á aö andstssö- urnar geti veriö truflandi fyrir augun og valdiö glýju. Augaö er þá í sífellu aö aólagast mismunandi Ijóma hluta i umhverfinu, vöövar þess stækka og minnka Ijósopiö eftir því sem víö á og allt þetta veldur augnþreytu. Síöan er mikilvægt aö birta frá gluggum og Ijósgjöfum í herberginu endurspeglist ekki í tölvuskjánum og trufli þannig aflesturinn. Ákjósanleg- ast er aö staðsetja tölvuskjáinn þannig aö dagsbirta komi frá hliö, en hvorki framan eða aftan viö skjáinn. Einnig er nauösynlegt aö sá sem vinnur viö tölvuskjá hugi aö klæön- aöi sínum. Hann ætti aldrei aö vera hvítklæddur vió vinnuna eöa í Ijósum fötum, því aö Ijós litur veldur endur- speglun í skjánum. Sem sé allt endurkast ber aö foröast eftir mætti til aö hlifa augunum,“ sagöi Þórunn. i bæklingnum er bent á ýmis hag- ræöingaratriöi, eins og þaö aö sé prentari eöa annar hávær tæknibún- aöur notaöur í tengslum við tölvu- skjáinn, sé æskilegra aö staðsetja hann í sérstöku herbergi. Veröi því ekki viökomið beri aó reyna aó draga úr hávaöa frá búnaöinun á annan hátt. Þá er bent á nauösyn góös vinnurýmis fyrir tölvubúnaöinn sjalfan, fylgibúnaö. Einnig er talaö um mikilvægi þess aö loftræsting sé góö, þar sem tölvubúnaöur gefur frá sér hita. Varóandi hagræöingu vinnunnar vildi Þórunn sérstaklega benda á mikilvægi þess aó reyna aö tengja vinnuna vió skjáinn verkefnum, sem krefóust annarra vinnustellinga og vinnuhreyfinga. Meö því væri komið í veg fyrir einhæfni, en einhæf vinna getur leitt til ofálags á þá líkamshluta sem mest mæöir á. „Líkaminn er geróur fyrir hreyfingu og því nauö- synlegt að viö hreyfum okkur annaö slagió, líka þegar unniö er sitjandi," sagói Þórunn. „Ef unnið er samfellt allan daginn viö tölvuskjáinn er nauösynlegt aó taka stutt hlé meö sem jöfnustum millibilum og helst aö gera léttar, liðkandi æfingar í hléum. Reyndar eru dæmi um slíkar æfingar í bæklingnum.“ — Viö spuröum Þórunni í lokin hvort Vinnueftirlitinu heföi borist niöurstööur erlendra rannsókna varöandi möguleg tengsl á milli vinnu þungaöra kvenna viö tölvu- skjái og fósturlát hjá þeim? „Vegna þeirra mörgu viövarana og þess oröróms sem er uppi í dag um aó tölvuskjáir geti veriö skaöleg- ir fóstrum, fylgist Vinnueftirlitiö mjög vel meö nýjum rannsóknum þar aö lútandi," sagöi Þórunn. „Til þessa hafa ekki komið fram neinar niður- stööur vísindarannsókna, sem sýna aö vinna viö tölvuskjái sé hættuleg vaxandi fóstri. Þaö hefur heldur ekki fundist mengun eöa geislun frá tölvuskjám sem talin er hættuleg konum á meögöngutíma eöa ófædd- um börnum þeirra. Vinnueftirlitiö hefur því ekki séö ástæöu tii aö vara þungaöar konur viö aö vinna viö tölvuskjái og það er samdóma álit leiöbeinenda vinnueftirlitanna á hin- um Noröurlöndunum," sagöi Þórunn Sveinsdóttir aö lokum. V.E. fyrir aö geta slegizt. Ef maöur lítur út fyrir aö ráöa viö hinn hver hefur þá áhuga á aö láta á þaö reyna? En sem karlmaöur þá verö ég aö vita þaö aö möguleikinn er fyrir hendi. Meö því sýni ég aö ég kann leikreglurnar. Ég á annan vin, írskan fótboltakappa, sem er mikill á velli. Hann hætti keppni nýlega og ætlaöi aö létta sig. Hann sagöi mér að þaö sem angraði hann i sam- bandi viö þetta væri sú staöreynd aö nú þyrfti hann aö hugsa sig um í staö þess aö geta látiö kylfu ráöa kasti eins og áöur. Svona eru leikreglurnar, hvort sem manni líkar betur eöa verr, rétt eins og hjá hundunum í þvögunni: Ræö ég viö gæjann eöa ræö ég ekki viö hann? Þaö er málið. Kona mín er barnshafandi og hún er alltaf aö tala um þaö aö hún ætli aö ala barniö — hvort sem þaö veröur strákur eöa stelpa — upp án þess aö ofbeldi eöa kynjamismunur komi þar viö sögu. Og hver heldur því fram aö útílokun þessara þátta mundi ekki búa okkur þá veröld sem viö vildum helzt af öllu lífa í? En þar til ég tek á því ætla ég aö gera ráö fyrir því aö heimurinn haldi sínu striki eins og hann hefur alltaf gert, og frum- skógarlögmálið sé enn viö lýði. Ég fylgdi konunni minni út á flugvöll um daginn og þar sem viö vorum aö ganga inni í flugstööinni rákumst viö á mann sem hún bjó einu sinni meö. Fyrst eftir aö ég kynntist henni stóö mér tölu- verö ógn af þessum manni. En í þetta skipti voru liöin nokkur ár siöan viö höföum hitt hann svo ég gat litiö á hann nokkurn veginn hlutlægt. Viö brostum öll og heilsuöumst. Á leiöinni heim leiö mér vel. Ég var búinn aö tékka á honum. Ég vissi aö ég réö viö hann. Gæðin eru staðreynd Það nýjasta í úlpum frá Melka. Tvöfaldir vasar sem koma að góðum notum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.