Morgunblaðið - 16.11.1984, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 16.11.1984, Qupperneq 64
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11.45-23.30 AUSTURSTRÆTI 22 INNSTRÆTI, SÍMI 11633 EOT NORT AliS SHAAR FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. MorgunbUdid/Sigurgeir Vestmannaeyjar: Y> ■<■■■■■! jjui. 11 ■ér<«bw. ÞAÐ hefnr viAraA rel fyrir trilhi- karla ■ndanfamar rikur og hafa þeir sótt rel á miAin rið Eyjar. Og þeir hafa margir gert það gott og komið með góðan afla at landi. Signrgeir Jónasson, Ijósmyndari Nforgnnblaósins, hitti þá feóga Goójón Böórarason og Jón Inga non hans þegar þeir komn að landi eitt siðdegið nm daginn i trilhi Gnðjóna, sem ber það ágmta nafn Gani gamlL Þeir feðgar höfóu lagt línu og uerri fyllt trilluna af ágæt- in fiskL Jón Ingi Guðjónsson rekur einu fiskbúðina f Eyjum og hefur verið röskur við að sækja sjálfur fisk á miðin með föður sinum á Gaua gamla, sem hann hefur síðan selt glænýjan í fiskbúð sinni. Góður afli Gai og annarra tri Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar: Skuldir veitunnar rúmlega milljarður SKULDIR Hitareitu Akraness og Borgarfjarðar ern nú rnmlega einn milljarðnr króna. Tekjnr á þessu ári mnnn ekki standa undir vaxtagreiósl- nm, sem verða um 104 milljónir, að þvi er Ingólfur Hrólfsson hitaveitu- stjóri sagði í samtali við blaóamann MbL í gær. „í augnablikinu sjáum við ekki fram á að geta borgað eóa hvernig nt nr þessu verður komist," kenna um ónógri skipulagningu eða röngum forsendum við uppbygg- ingu hitaveitunnar þótt staöan væri nú sú, sem hann hefði lýst. „Það var að visu reiknað með að vatnssala yrði meiri og að hægt yrði að byggja hitaveituna upp með eðlilegum lánskjörum. Tapinu vegna minni vatnssölu höfum við getað náð upp með hærra verði en það hefur hinsvegar ekki dugað til að bæta upp mismuninn vegna hins háa gengis dollarans," sagði hann. Hreint tap af rekstri hitaveit- unnar á síðasta ári var 95,6 millj- ónir króna en um siðustu áramót voru skuldirnar samtals liðlega 850 milljónir. Vaxtagreiðslur á fyrra ári námu tæplega sjöföldum árs- tekjum ársins 1984. Uppboðið á Óskari Magnússyni EA: Uppboðslaun til ríkissjóðs 985 þúsund kr. RÍKISSJÓÐUR fær í uppboóslaun 1 % af söluverði skuttogarans Óskars Magnússonar EA, eða 985 þúsund krónur, sem sleginn var Krossvík hf. á 98,5 milljónir kr. á nauðungaruppboði á Akranesi fyrir skömmu. Nauðung- aruppboðið hefur ekki verið gert upp og ekki vitaó hversu há innheimtu- laun bæjarfógetinn fær. Um innheimtulaun gilda þær reglur, að ef sala fer fram á nauðungaruppboði á uppboðs- haldari að fá 1% innheimtulaun af því sem hann innheimtir eða innheimtist fyrir hans atbeina. Innheimtulaunin skal hinsvegar ekki greiða af uppboðsandvirði í vissum tilvikum eins og þegar lán hvíla áfram á eign eða kaup- andi og kröfuhafar semja um skuldir án atbeina annars, en það virðast kaupandi og aðalkröfu- hafi við uppboð óskars Magnús- sonar vera að gera. Þjóðleikhúsið: Ríkharði III frestað um ár ÁKVEÐIÐ HEFUR verið að fresta sýningum á „Ríkharói 111“ eftir William Shakespeare, sem átti að veróa jólaleikrit Þjóóleikhússins í ár. Leikverkið verður þess í stað sýnt fyrir jólin 1985, að því er Císli Alfreðsson, Þjóðleik- hússtjóri, sagði í samtali við blaðamann Mbl. í gær. „Ástæða frestunarinnar er sú, að vegna verkfalls BSRB tafðist vinna við verkið um mánuð. Það varð því ljóst, að ekki tækist að ljúka æfingum og annarri undir- búningsvinnu f tæka tið og að auki voru bæði leikstjóri og búninga- teiknari búnir að ráðstafa sér í önnur verkefni þegar í byrjun janúar,“ sagði Gfsli Alfreðsson. „Leikstjórinn, John Burgess frá breska þjóðleikhúsinu, átti upp- haflega aö koma til landsins i byrjun október en úr því varð ekki fyrr en að afloknu verkfalli. Hann fer heim nú fyrir helgina en það er langt í frá að vinnan, sem hann hefur lagt i verkið, hafi verið unn- in fyrir gýg, hún hefur raunar lík- að fádæma vel hjá öllum þeim, sem nærri hafa komið. Burgess lagði til dæmis mikla vinnu i hlut- verkaskipan og á þvf verður engin breyting þegar vinna hefst að nýju næsta haust.* Helgi Skúlason mun fara með hlutverk Ríkharðs III. Þjóðleikhússtjóri sagði að „Ríkharður III* væri metnaðarfull sýning, sem mikið hefði átt að leggja í, og því hefði verið talið „réttast fyrir alla að fresta henni nú og setja upp fína Shakespeare- sýningu að ári.“ Verkfall opinberra starfs- manna, þar með talinna leikara og annarra starfsmanna Þjóðleik- hússins, varð einnig til þess að frumsýningu á „Skugga-Sveini“ eftir Matthfas Jochumsson, sem átti að verða um miðjan október, hefur verið frestað til 23. nóvem- ber næstkomandi. Á veitusvæðinu eru íbúar um 7.000 en skráðir notendur, þ.e. fjöldi útsendra reikninga, eru um 2.300. Það þýðir að hver notandi — hver fjölskylda eða fyrirtæki — skuldar nærri hálfri milljón króna. Við bætist að gjaldskrá Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar er hin hæsta á landinu, notendur á veitu- svæðinu borga tæplega fjórum sinnum meira en t.d. notendur á veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur, skv. þvf, sem fram kom á vetrar- fundi sambanda rafveitna og hita- veitna, er hófst f Reykjavik f gær. „Það stendur í mönnum að hækka gjaldskrána frekar en það gæti orðið nauðsynlegt," sagði Ing- ólfur Hrólfsson. „Það sem veldur þessu fyrst og fremst er gengis- þróun — hitaveitan var fjármögn- uð með erlendum lánum, dollara- lánum, og það hefur hækkað skuld- ina langt umfram verðlagið. Þetta voru að mestu skammtimalán, tek- in á árunum 1980 og ’81. Um þessar mundir er verið að reyna að hag- ræða lánunum, þannig að það liggi Ijóst fyrir til hversu langs tíma þau eru.“ Ingólfur sagði að ekki mætti Skeiðarárjökull ryðst fram eftir 50 ára hlé: 5 km jökultunga hefur geng- ið 30 metra fram á þessu ári Skeiðarirjökull hefur gengið fram í sumar um 30 metra á 5 krn breiðum kafla á miójum Skeiðarár- sandi, en jokullinn hefur veríð að hopa f hálfa öld. Jökultungan við lónin undan jöklinum er nú oróin há og brött, en var fyrr á árinu sleikt og þiinn samkvæmt upplýsingum Sigur- jóns Rist vatnamælingamanns. Sig- urjón sagði f samtali við Mbl. að sagan befði sýnt aö einu til einu og hálfu árí eftir aó Skeióarárjökull gengi fram hefðu koraið veruleg hlaup undan jöklinum. Skeióarár- jökull befur verió að hopa síðan 1930 meó smá hvfldum og þvf hafa myndast mikil lón og vötn meófram jöklinum, allt að eins kflómetra breió. Jöklarnir hafa yfirleitt minnk- að mjög mikið í sumar að sögn Sigurjóns, nema miðjan á Skeið- arárjökli sem skríður fram skammt austan við Gígjukvfsl á miðjunum sandinum. Sigurjón sagði að af gamalli reynslu hefði Ragnar Stefánsson f Skaftafelli ákveðið landmið frá Skaftafelli til þess að fylgjast með hæð jökultungunnar, þ.e. miðið er f Hvirfilsdalsskarði norðan við Lómagnúp og á miðju sumri fór jökullinn að hækka snarlega, en bæði austur- og vesturendar jök- ultungunnar hafa rýrnað á þess- um tíma. 1 kjölfar slíks fram- skriðs hafa oft orðið „hin réttu Skeiðarárhlaup* eins og Sigurjón orðaði það, en litlu hlaupin 1982 og 1983 fluttu aðeins um Vto af vatnsmagni „hefðbundins" Skeið- arárhlaups, enda kvað Sigurjón yfirborð Grímsvatna hafa náð nú þegar sömu hæð og fyrir hlaupin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.