Morgunblaðið - 17.11.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.11.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 225. tbl. 71. árs LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Moskvuförin íitskyrð Simamynd AP. Svetlana Alliluyeva, dóttir Jósefs heitins Stalín, efndi í gær til fundar með erlendum fréttamönnum i Moskvu, þar sem hún skýrði frá því hvers vegna hún hefði snúið aftur til Sovétríkjanna. Svetlönu til vinstri handar er Valentin Kamenev fulltrúi utanrík- isráðuneytisins, og til hægri handar henni er túlkur. Svetlana talaði rússnesku á fundinum þótt hún hefði verið í 17 ár í Bandaríkjunum og Bretlandi. Sjá nánar á bls. 20. Discovery lent með tvo hnetti Kanaverftl-börda. FKrida, 16. névember. AP. GEIMFERJAN Discovery lenti í dag heilu og höldnu á Kanaveral- höfða eftir 5,3 milljón km ferð um jörðu. Með í farangrinum voru tveir gervihnettir, sem bjargað var um borð, og er það í fyrsta sinn sem það lánast. Um tíma var óttast, að ekki yrði unnt að lenda í Flórída vegna þess hve þar var skýjað og var áhöfn ferjunnar farin að búa sig undir lendingu í Kalif- orníu þegar aftur rættist úr með veðrið í Flórída. Ferð Discovery að þessu sinni er merkilegust fyrir það, að nú tókst að þjarga um borð og flytja til jarðar tvo gervihnetti, sem voru á rangri braut og komu þess vegna að engu gagni. Verður nú hugað að þeim á rannsóknastofum en síðan verð- ur þeim komið á rétta braut. Hver gervihnöttur kostar óhemjufé og ávinningurinn því mikill. Scargill óskar eftir aðstoð Sovétmanna — til að hindra að námamenn hætti átta mánaða löngu, ólöglegu verkfalli London, 16. nóvember. AP. ARTHUR Scargill, leiðtogi náma- manna í Bretlandi, átti í gær fund með sovéskum sendiráðsmönnum þar sem hann fór fram á frekari stuðning við ólöglegt verkfall námamanna, sem nú hefur staðið f átta mánuði. Var rætt bæði um fjár- stuðning og að Sovétmenn reyndu að beita bresk stjórnvöld viðskipta- þvingunum. Hefur þessi fundur Scargills með Sovétmönnum vakið mikinn úlfaþyt i Bretlandi og segja sumir, að samband Scargills við Líbýumenn og Sovétmenn gangi landráðum næst. Arthur Scargill, leiðtogi breskra námamanna, og tveir aðstoðar- manna hans áttu í gærkvöldi fund með fulltrúum sovéska sendiráðs- ins í London til að ræða „frekari aðstoð sovéskra verkalýðsfélaga við breska námamenn" að sögn Scargills. Einnig mun hafa verið rætt um, að Sovétmenn gripu til ýmissa viðskiptaþvingana til stuðnings námamönnum, eins og t.d. að selja ekki Bretum kol og olíu. Um svipað leyti og fundurinn fór fram tilkynnti Tass-fréttastof- an rússneska, að sovéskir náma- menn hefðu lagt fram 500.000 pund, rúmlega 21 milljón ísl. kr., í verkfallssjóð breskra náma- manna. Orr-Ewing, lávarður, sagði á þingi í dag, að augljóst væri, að Scargill teldi sig meðal annars þjóna sovéskum hagsmunum með því að vinna bresku atvinnulífi það tjón, sem hann gæti. „Það er kominn tími til, að leyniþjónustan skýri frá því, sem hún veit um Scargill," sagði Orr-Ewing. Hann benti einnig á, að Scargill, sem væri marxisti og hefði verið í kommúnistaflokknum en nú f Verkamannaflokknum, hefði verið í sex mánuði í Sovétríkjunum árið 1972. „Sovétmenn eru með námskeið í Moskvu, Prag og á Kúbu þar sem verkalýðsleiðtogum er kennt að grafa undan, eyðileggja eða trufla efnahagskerfi hins frjálsa heims,“ sagði Orr-Ewing. Þessa vikuna hafa 5.000 náma- menn hætt verkfalli og snúið aftur til vinnu. Scargill, sem óttast, að tök hans á verkfallsmönnum séu að bresta, hyggst hefja nýja fundaherferð á næstu dögum til að sannfæra námamenn um, að rétt sé að halda áfram í ólöglegu verkfalli, sem staðið hefur frá því í mars á liðnu vori. Auk þess ætlar hann að reyna að afla sér stuðn- ings einhverra kirkjunnar manna. í blaðinu „Sun“, útbreiddasta blaði í Englandi, var aðalfyrir- sögnin þessi í dag: „Örvæntingar- fullur Scargill leitar jafnt til kirkjunnar manna sem kommún- ista.“ Baby Fae látin Loma Linda, Kaliforníu, 16. aÓTember. AP. BABY FAE, litla stúlkan með bav- íanahjartað, lést í nótt, þremur vikum eftir hina sögulegu aðgerð. Hafnaði líkami hennar nýja hjart- anu þrátt fyrir allar tilraunir lækna til að koma í veg fyrir það. Níunda nóvember sl. fór Baby Fae að sýna þess merki, að ónæmiskerfi líkamans ætlaði að hafna hjartanu og þótt lækn- arnir reyndu hvað þeir gátu til að vinna gegn því hrakaði henni stöðugt. Var reynt að örva hjartsláttinn með lyfjum og stúlkunni gefin næring í æð og látin anda i gegnum súrefnis- grímu til að hún reyndi sem minnst á sig. Allt kom þó fyrir ekki. Bavíanahjartað var grætt í Baby Fae 26. október og hefur engin manneskja lifað lengur með hjarta úr annarri dýrateg- und. Hefur þetta verið reynt fjórum sinnum áður en sá, sem þá lifði lengst, Suður-Afríku- maður með hjarta úr sjimp- ansa, lifði i 3'A dag. Miklar deil- ur hafa verið um þennan hjartaflutning og finnst sumum sem læknarnir hafi verið með óréttlætanlegar tilraunir á manneskju, tilraunir, sem allir vissu, að gæti ekki tekist. Skipulagði sendifulltrúi í Noregi morðið á Indiru Ósló, 16. ■óvember. AP. FYRRUM sendifulltrúi Ind- lands í Noregi og á íslandi, Har- inder Singh, er maðurinn, sem skipulagði samsærið og morðið á Indiru Gandhi. Er þessu hald- ið fram í indverska blaðinu Hindustan Times. Harinder Singh, sem gekk nsstur sendi- herranum, baðst í sumar hælis í Noregi eftir að indverskir stjórnarhermenn höfðu ráðist á Gullna musterið í Amritsar og drepiö þar hundruð eða þúsund- ir sikha en Harinder er sikhi. Harinder Singh býr nú í Ósló ásamt konu sinni og þremur börnum og segist varla þora út úr húsi eftir að hann vissi um frásögn indverska blaðsins. „Ég á von á því, að einhverjir Ind- verjar reyni að ná fram hefndum á mér en sannleikurinn er bara sá, að ég hef hvergi komið nærri þessu,“ segir Harinder. Satwant Singh, sá morðingja Indiru, sem lifði af, sagði við yf- irheyrslu hjá lögreglunni, að Harinder hefði fjármagnað morðsamsærið. „Hann borgaði okkur 100.000 dollara fyrir að drepa Indiru Gandhi. Hann skipulagði morðið fyrir öfga- Harindcr Singh Indlands Gandhi? mennina i hópi sikha,“ sagði hann. Hinn morðingi Indiru, Be- ant Singh, var i fylgdarliði Ind- iru í Noregi fyrir einu ári og þá á að hafa verið lagt á ráðin um morðið. Harinder Singh segir í viðtali við blaðið Verdens Gang, að þetta sé allt liður í áróðursher- ferð gegn sér fyrir að hafa leitað hælis erlendis. „Ég átti engan hlut að máli. Ég vona, að ég fái hæli i Noregi því að ég get aldrei aftur farið til Indlands. Þar eru 700 milljónir manna, sem vilja hefna sín á mér vegna þessara lyga,“ sagði Harinder.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.