Morgunblaðið - 02.12.1984, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1984
Saga Hafnarfjarð-
ar Þriðja bindi
BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá, Hafnar
firði, hefur gefíð út þriðja bindi af
Sögu Hafnarfjarðar 1908—1983,
sem Ásgeir Guðmundsson sagnfrsð-
ingur hefur skráð í tilefni af 75 ára
kaupstaðarafmæli Hafnarfjarðar,
sem var 1. júní 1983. Þetta er loka-
bindi Sögu Hafnarfjarðar. Það er
um fjórðungi stærra en fyrri bindin,
sem út komu á síðasta ári, eða 35
arkir (500 bls.). Samtals eru öll þrjú
bindin um 1.500 bls. að stærð með
um 1.200 Ijósmyndum, gömlum og
nýium, auk korta og uppdrátta.
I fyrsta bindi ritsins er eftirfar-
andi efni: Formáli höfundar. Inn-
gangur, sem fjallar um sögu bæj-
arins fram til 1908. Hafnarfjörður
Ásgeir (judmumkson
Saga
Hafttatfarða
19081983
X ,
ÞRIDJA BINDI
verður kaupstaður. Bæjarstjórn í
Hafnarfirði 1908—1983. Hafnar-
fjarðarkjördæmi. Lögsagnarum-
dæmi Hafnarfjarðar. Bæjarland-
ið. Krýsuvík. Skipulagsmál. Fjár-
mál. Hafnarfjarðarhöfn. Atvinnu-
mál.
í öðru bindi ritsins er fjallað
um: Rafmagnsmál, hitaveitu,
Vatnsveitu Hafnarfjarðar,
Slökkvilið Hafnarfjarðar, lög-
gæslu, skólamál, íþróttir, heil-
brigðismál og kirkjumál.
í þriðja bindi Sögu Hafnar-
fjarðar 1908—1983, sem nú er
komið út, er þetta efni: Stéttarfé-
lög, félagsstarfsemi, menningar-
mál, félags- og æskulýðsmál, hús-
næðismál. Verzlun og viðskipti.
vegamál og samgöngur, nokkrar
bæjarstofnanir, 75 ára afmæli
Hafnarfjarðarkaupstaðar, ævi-
ágrip bæjarfulltrúa og bæjar-
stjóra, eftirmáli, tilvitnanir og
heimildir, nafnaskrá, örnefnaskrá
og heildarefnisyfirlit.
„Saga Hafnarfjarðar 1908-
—1983 er ein ítarlegasta bók, sem
gefin hefur verið út hér á landi, og
vandað rit að sama skapi. Fyrir
utan hinn mikla fróðleik um
Hafnarfjörð, sem texti ritsins hef-
ur að geyma, segir hið mikla magn
ljósmynda, korta og uppdrátta
sina sögu, en margar ljósmynd-
anna hafa aldrei fyrr birzt á
prenti,“ segir I frétt frá útgefanda.
Bókin er prentuð og bundin í
Prentsmiðju Hafnarfjarðar hf.
Káputeikningu gerðu Þóra Dal.
Kammersveitin í Áskirkju
á þriðjudagskvöldið
FYRSTU tónleikar á ellefta starfs-
ári Kammersveitar Reykjavíkur
verða í Áskirkju næstkomandi
þriðjndag og hefjast klukkan 20.30.
Kammersveitin býður upp á þrenna
tónleika á þessu starfsári. A þeim
fyrstu verða fluttir tveir strengja-
sextettar: Sextett nr. 1 1 B-dúr op.
18 eftir Brahms og „Verklárte
Nacht“ op. 4 eftir Schönberg.
Evrópuráðið ákvað að árið 1985
skyldi verða ár tónlistarinnar og
ber efnisskrá Kammersveitar
Reykjavikur á næsta ári svip af
því. 1985 verður þess minnst að
nokkur af þekktustu tónskáldum
sögunnar eiga stórafmæli. í janú-
ar verður efnisskrá Kammer-
sveitarinnar helguð fyrsta
„afmælisbarninu“, Johann Seb-
astian Bach, en liðin eru 300 ár
frá fæðingu hans. 1 mars minnist
Kammersveitin aldarafmælis Al-
ban Bergs. Og á hausti komanda
er ætlunin að gera Georg Fried-
rich Hándel skil.
Að venju býður Kammersveitin
áskrift að tónleikum vetrarins og
er verð áskriftarkorts krónur 600,
en aðgangur að einstökum tón-
leikum kostar 250 krónur. Ás-
kriftarkort verða til sölu við inn-
ganginn á fyrstu tónleikunum.
Hljóðfæraleikarar á fyrstu tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur I Ásldrkju á þriðjudagskvöldið. Frá vinstri:
Robert Gibbons, Inga Rós Ingólfsdóttir, Szymon Kuran, Rut Ingólfsdóttir, Arnór Jónsson og Helga Þóraríns-
dóttir.
SIUNDARÞÚ
VAXIARÆKT?
MeðKJÖRBÓKINNI
leggur þú rækt vió fjárhag þinn
LANDSBANKINN
Grxeddur er geymdur eyrir
Aðventukvöld á
Hótel Loftleiðum
Á AÐVENTUNNI verður margt gert
til hátíðarbrígða á Hótel Lfotleiðum,
að því er segir í frétt frá hótelinu.
Fyrsta hátíðin er í kvöld, sunnu-
dagskvöld, og er það aðventukvöld.
I fréttatilkynningu Hótels Loft-
leiða segir ennfremur:
„öll hátíðakvöldin verða tisku-
sýningar þar sem sýndur verður
jólafatnaður. Ennfremur verður
víkingaskipið sérstaklega skreytt
og þar sýndar jólavörur og jóla-
gjafir.
Aðventukvöldið 2. desember
syngur söngfólk úr Söngskólanum
jólalög.
Lúsíukvöldið 9. desember heim-
sækja lúsiur úr æskulýðsdeild
Bústaðakirkju Hótel Loftleiðir og
syngja jólalög i Blómasal. Söng-
stjóri verður Þórunn Björnsdóttir
og einnig verður séra Sólveig Guð-
mundsdóttir með lúsíunum. Skóla-
kór Kársnesskóla syngur jólalög í
anddyri hótelsins meðan gestir
koma til kvöldfagnaðarins.
Jólapakkakvöldin 15. og 18. des-
ember mun Ingveldur Hjaltested
söngkona skemmta gestum við
undirleik Guðna Þ. Guðmundsson-
ar.
Allir aðgöngumiðar að hátíða-
kvöldunum fjórum eru númeraðir
og síðasta kvöldið, 16. desember,
verða dregnir út aðalvinningar,
sem eru ferð til Húsavíkur og dvöl
að Hótel Húsavík, og farseðlar
fyrir tvo til London.
Á matseðli Aðventukvölds verð-
ur grafinn silungur með sinneps-
sósu, steikt önd með portvinssósu
og marineruð vinber í kampavíni.
Lúsíukvöldið verður matseðillinn
grafið heiðarlamb með Dijon-
sósu, fylltur kalkún að hætti húss-
ins og ferskur ananas Grand
Marnier.
Jólapakkakvöldin 15. og 16. des-
ember verða bornar fram rjúpur
með ávaxtasalati, heilsteiktar
nautalundir Chasseur skornar á
silfurvagni, perubroddgöltur og
kaffi með konfektkökum.
Hinn 3. desember breytist sjáv-
arréttahlaðborðið vinsæla i jóla-
hlaðborð með steiktri gæs, svína-
steik og jólagraut. Frá byrjun
jólaföstu verður jólaglögg einnig á
boðstolum. Til þessað auka enn á
jólastemmninguna nú á aðvent-
unni verður blómasalurinn sér-
staklega skreyttur."