Morgunblaðið - 02.12.1984, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 02.12.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1984 43 Chad: Mestu þurrk- ar í manna minnum London, 27. nóveniber. AP. í CHAD herja nú mestu þurrkar í manna minnum og hafa þúsundir manna þegar farið til nágrannaríkis- ins Cameroon í leit að mat og vatni, að því er starfsmaður Sameinuðu þjóðanna sagði í dag. Dr. Djibril Diallo, upplýsinga- fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Afríku, kvað 200.000 manns hafa flosnað upp frá heimkynnum sín- um vegna hungurs, og enn fremur hefði margt fólk úr strjálbýli leit- að ásjár í þéttbýli. I Chad eru um 4 milljónir íbúa. Diallo sagði, að í síðasta mánuði hefðu um 600 manns dáið úr hungri í Moyen Chari-héraði, 200 í Batha-héraði og um 300 í Guera- héraði. „í Chad ríkja nú mestu þurrkar í manna minnum, og ástandið er mun erfiðara en í þurrkunum miklu 1974,“ sagði Diallo á blaða- mannafundi í London. „Og þar sem fólkið er á flótta nú, á þolanlegasta tima ársins, þá geta menn ímyndað sér, hvernig ástandið verður eftir tvo til þrjá mánuði, þegar þurrkatíminn hefst,“ sagði hann. Diallo kvað öll ríki sem ættu land að Chad, nema Cameroon og Nigeríu, hafa lokað landamærum sínum fyrir sveltandi fólkinu vegna pólitískra ástæðna. I Chad þar sem þurrkar hafa verið herjað nú um fjögurra ára skeið, hefur geisað borgarstyrjöld frá árinu 1965. Scotland Yard: Rannsakar hvarf skips- bókarinnar Loadon, 30. bót. AP. SCOTLAND Yard hefur verið falið að rannsaka hvarf skipsbókar úr brezka kafbátnum, sem sökkti arg- entínska herskipinu Belgrano í Falk- landseyjastríðinu. Skýrði Michael Heseltine, varnarmálaráðherra Bretlands, frá þessu í dag. Heseltine kvaðst ekki vilja skýra frá nánari atriðum þessarar rannsóknar nú, á meðan hún stæði yfir, en sagði, að greint yrði frá niðurstöðum hennar, þegar henni væri lokið. bón us eftir 5ám samfeUdm tjónlausan akstur Sjóvá vill verðlaunaþá ökumenn sem hafa ekið tjónlaust samfellt í 5 ár. Á 6. ári fá þ eir 55% bónus af ábyrgðariðgjaldinu Eftir 10 ára tjónlausan akstur verður heildarbónusinn 65% á hverju iðgjaldsári svo framarlega sem ökumaður veldur ekki tjóni Þetta boð nœr einnig til þeirra sem hafa vátryggt hjá öðrum vátryggingarfélögum. Tjónlaus ár þar koma þeim til góða hjá okkur. Himgursneyðin í Eþíopíu: 300 þús. hafa látist Addia Ababa, 30. nó»ember. AP. SÉRFRÆÐINGAR Sameinuðu þjóð- anna telja að um 300 þúsund manns hafi látið lífið af völdum hallerisins í Eþíópíu síðustu níu mánuði. Finn- inn Kurt Janson, aðstoðarfram- kvemdastjóri SÞ, sem fer með neyð- arhjálp, segir að þessi tala sé lág- markstala, byggð á upplýsingum frá hjálparstöðvum síðan í febrúar. Hörmulegust þykja örlög hálfr- ar milljónar barna sem hlotið hafa varanlega bæklun vegna hungurs, sem þau hafa liðið. „Þetta er heil kynslóð, sem orðið hefur fyrir andlegu og líkamlegu tjóni,“ segir Janson. Janson, sem stjórnaði neyðar- hjálp Sameinuðu þjóðanna í Kambódíu á árunum 1980—1981, segir að ástandið í Eþíópíu sé mun verra en þar. „Og útlitið er ekki bjart hér,“ bætti hann við. Talið er að nærri sjö milljónir manna í Eþíópíu þjáist vegna hungursneyðarinnar í landinu. fbúar landsins eru 42 milljónir. SJÓVÁ TRYGGT ER VEL TRYGGT SUÐURIANDSBRAUT 4 SlMI 82500 Umboösmcnn um allt land Áskriftarsíminn er 83033 Auglýsingastofan Örkin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.