Morgunblaðið - 02.12.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1984
3
Sambandslagasamnmgurmn fra 1918 afhentur:
„Verður með öðrum hátíðar-
skjölum Þjóðskjalasafnsins“
— segir Bjarni Vilhjálmsson, þjóðskjalavörður
JÓN Helgason, dómsmálaráð-
herra, afhenti laust fyrir hádegi í
gær Bjarna Vilhjálmssyni, þjóð-
skjalalverói, frumskjal sam-
bandslagasamningsins frá 1918
undirritaðan af samninganefndar-
mönnum fslands og Danmerkur,
svo og Jóni Magnússyni, forsæt-
isráðherra, og ráöherrunum Sig-
urði Eggerz og Sigurði Jónssyni
frá Yztafelli. Samningurinn var
undirritaður í Reykjavík 18. júlí
1918.
Mistök í
birtingu
ritdóms
ÞAU MISTÓK urðu í Morgun-
blaðinu í gær, laugardag, að
fyrsti ritdómur Sigurjóns
Björnssonar prófessors um
bókmenntir birtist undir röngu
nafni. Sigurjón ritaði um verk
Erlings Davíðssonar, Aldnir
hafa orðið.
Sigurjón og lesendur eru
beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
„Ég tók við skjölunum með
mikilli ánægju og við munum
varðveita sambandslagasamn-
inginn með öðrum hátíðarskjöl-
um Þjóðskjalasafnsins," sagði
Bjarni Vilhjálmsson, þjóðskjala-
vörður, í samtali við Mbl.
„Samningurinn hefur verið
varðveittur í skjalasafni dóms-
málaráðuneytisins, en við töldum
rétt að Þjóðskjalasafnið varð-
veitti þessi sögulegu skjöl,“ sagði
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri í
dómsmálaráðuneytinu, í samtali
við Mbl.
Jón Helgason, ráðherra, af-
henti Bjarna Vilhjálmssyni þrjú
skjöl, sem varða þennan merki-
lega áfanga í sögu íslensku þjóð-
arinnar. Sambandslagasamning-
inn, staðfestingu Kristjáns X. á
frumvarpi um fullveldi íslands,
sem samþykkt var af Alþingi ís-
lendinga og konungsúrskurð um
íslenska fánann.
Alþingi íslendinga samþykkti
síðla sumars 1918 frumvarp til
laga um sambandslagasamning-
inn og sigldi Jón Magnússon, for-
sætisráðherra, utan til Dan-
merkur um haustið og staðfesti
Kristján X., konungur Danmerk-
ur og fslands, frumvarpið þann
30. nóvember 1918 — daginn áð-
ur en samningurinn gekk í gildi.
Með konungsúrskurði um ís-
lenskan fána voru úr gildi felld
ákvæði laga um fána frá 1915 og
fengu f slendingar þá sinn heima-
fána.
Jólalesbók
barnanna
NÚ nálgast jólin óðfluga og allir
krakkar hlakka til þeirra. Eins
og alltaf er tíminn oft lengi að
líða þegar beðið er eftir ein-
hverju. Gott ráð til að tíminn líði
fljótar er að hafa nóg fyrir stafni.
Foreldrar og forráðamenn ættu
því að hvetja börn sín til að
teikna, semja og skrifa eitthvað
nú á aðventunni. Og ef vel tekst
til að senda afraksturinn til Jóla-
lesbókar barnanna.
Krakkar! Dragið fram blý-
anta, penna og liti og gerið
stórar, skýrar myndir, teiknið
jólaatburöina, jólasveina eða
eitthvað annað sem ykkur
dettur í hug. Eða skrifið
eitthvað skemmtilegt. Sendið
þetta svo til Morgunblaðsins
merkt: Jólalesbók barnanna,
Morgunblaðinu, Aðalstræti 6,
Reykjavík á næstu dögum eða i
síðasta lagi innan einnar viku.
Sambandslagasamingurinn afhentur. Frá vinstri Aðalgeir Krístjánsson skjalavörður á Þjóðskjalasafninu, Bjarni
Vilhjálmsson þjóðskjalavörður sem tekur við skjölunum úr hendi Jóns Helgasonar ráðherra og loks Baldur Möller
ráðuneytisstjóri.
og aðrir góðir gestir velkomnir
Fjölmennasti klúbbur landsins
ALLT HRESST 0G LIFSGLATT FOLK VELKOMIÐ Á UTSYNARKVÖLD MEÐ
FRIKLURBSSTEMMNINGU!
UTSYNARKVQiD
^FRI-KLUBBSFJORI j
EIKDAIDWAT í KVÖLD, SUNNUDAGINN 2. DESEMBER 1984
Kl. 19.00
Húsiö opnaö.
Dagskráin hefst.
Kl. 19.30
„FRj-KLÚBBSFÓLK
Á SÓLARSTRÖND-
UM ’84“.
Frumsýning nýrrar
kvikmyndar. Ingólfur
Guöbrandsson, for-
stjóri Útsýnar, kynnir.
Kl. 20.00
Veisian hefst meö suð-
rænu sniöi, gómsætum
réttum og sannkölluðu
FRl-klúbbsfjöri. Fjöl-
breytt skemmtiatriði, m.a.
Tíleinkað FRÍ-KLÚBBNUM
og frábæru starfi á líöandi
ári.
Gestir kvötdsins og Ferðaakrif-
stofa Útsýnar fagna stórmsrkum
árangri FRÍ-klúbbsins á liðnu
Ésumri og heilsa vetri með frísku
og fjörugu fólki.
Rúllugjald FRÍ-kiúbbsins
er aöeins kr. 100 i staö kr.
^ ^ 170*
Fjölbreyttir feröamöguleikar
vetrarins kynntir meö nýrri
feröaáætlun.
FRÍ-klúbbsfararstjórar
bregöa á leik meö þátttöku
gesta.
UT-
FRI
ari
og
TÍSKU-
SÝNINQ
DANSSYNING
STÓR-BINGÓ
Verölaun: Glæsilegar
SÝNAR-ferðir með
klúbbnum á næsta
fjöldi aukavinninga.
HEIÐURSGESTUR:
Antonio Renosto, forstjóri Eurosun,
Lignlano.
Modelkeppnin Ungfrú
Herra Útsýn 1985 hefst.
Ath.: Lægsta matarverö á
vegum FRÍ-klúbbsins, aðeins
kr. 385 og glsssileg skemmt-
un meó fjörugu fólki.
Hinn eldhressi
Hermann
Gunnarsson
kynnir.
°g
Matseðill A:
Sérstakur þriréttaður sæl-
ksramatseóill kr. 650
Matseöill B:
Ódýr en Ijúffengur FRÍ-
klúbbsmatseðMI f
spænskum grísaveislu-
stíl. Aðeins kr. 385
Ath.: Ákveöið hvorn
matseöilinn þiö veljiö
um leiö og pantaö er.
Tryggöu þér
pláss í tíma í
síma 77500.
Pálmi Pélma-
son, framkv.stj.
FRÍ-klúbbsins
stjómar.
TÖFRAFLAUTAN
skemmtir gestum meö
hressilegu gamni og fjörug-
um söng.
Dansinn stiginn meö FRÍ-klúbbsfjöri
til kl. 01.00.
Boröapantanir og
miöasala {
Broadway dag-
lega á milli kl.
11 og 19.
Ný 8 manna hljómsveit Gunnars
Þóröarsonar og söngvararnir Björg-
vin Halldórsson, Sverrir Guöjóns-
son og Þuríður Sigurðardóttir.