Morgunblaðið - 04.12.1984, Page 1

Morgunblaðið - 04.12.1984, Page 1
72 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI STOFNAÐ 1913 239. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins íraskar herþotur: Árásáskíp frá Kýpur Manama, 3. desember. AP. ÍRASKAR herþotur gerðu í morg- un árás á olíuflutningaskip fyrir sunnan Kharg-eyju í Persaflóa, sem er aðalolíuhöfn írana. Þrír skipverjar létu lífið og þegar síðast fréttist var skipið, sem nefnist „Minotaur'* og er skrásett á Kýp- ur, eitt eldhaf. Hermálayfirvöld í Bagdad hafa staðfest að herþoturnar hafi verið frá írak og segja að þær hafi skotið Exocet-flug- skeyti að skipinu. írakar hafa margsinnis varað erlend skip við að sigla í ná- grenni Kharg-eyjar og hafa lýst flæmi í grennd við hana ófrið- arsvæði. Þingkosningar á Grenada: Þjóðarflokknum spáð góðu gengi StGeofges, 3. desember. AP. ÞINGKOSNINGAR voru á eynni Grenada í Karabíahafi í dag og er búist við að Nýi þjóðarflokkurinn, sem er samsteypa hægfara flokka, hljóti meirihlutafylgi og myndi næstu ríkisstjórn. Á þjóðþing- inu sitja 52 fulltrúar. HERBERT BLAIZE, Sfmamynd/AP leiðtogi Nýja þjóðarflokksins á Grenada, veifar til kjósenda í lok kosninga- baráttunnar á eynni. Nýi þjóðarflokkurinn, sem myndaður var í ágúst sl., lýtur forystu 66 ára gamals lögfræð- ings, Herberts Blaize að nafni, sem var forsætisráðherra Grenada á árunum 1962—1967 þegar eyjan var enn nýlenda Breta. Blaize er talinn njóta velvildar Bandaríkjastjórnar og stuðnings þeirra eyjarskeggja, * A fimmta hundrað látnir eftir gaseitrun á Indlandi: Verksmiðjunni lokað og yfirmennirnir handteknir Nýjn Delhf. S. desrmber. AP. „ÞETTA er mesti harmleikur í sögu okkar,“ sagði Arjun Singh, forsæt- isráðherra Madhya Pradesh-fylkis á Indlandi, um gaseitrunina frá verk- smiðju Union Carbide í Bhopal, höfuðborg fylkisins, í morgun. Vitað er að a.m.k. 410 manns létu lífið, um tvö þúsund eru alvarlega veikir í sjúkrahúsi og átta þúsund til viðbótar hafa orðið að leita læknishjálpar. Ottast er að tala látinna og veikra eigi eftir að hækka verulega. Gasið lak úr neðanjarðargeymi við verksmiðjuna eftir að örygg- islok gaf sig vegna óvenju mikils þrýstings í geyminum. Gasið lagðist síðan yfir 40 ferkílómetra svæði í nágrenninu, þar sem einkum býr fátækt verkafólk. Strax og fólk varð eiturloftsins vart lagði það á flótta úr borg- inni. Fóru menn ýmist hlaupandi eða í bifreiðum og leituðu skjóls í nærliggjandi bæjum. Verksmiðja Union Carbide í Bhopal, sem Indverjar eiga meirihluta í, framleiðir skor- dýraeitur. Þar urðu einnig slys árin 1981 og 1982 og létust þá um 20 verkamenn. Verksmiðjunni hefur nú verið lokað og fimm yf- irmenn hennar hafa verið hand- teknir, sakaðir um að valda dauða fóiks með glæpsamlegri vanrækslu. Thomas Sprick, talsmaður Un- ion Carbide í Connecticut í Bandaríkjunum, sagði að gasið, sem lak frá verksmiðjunni væri af tegundinni metýl isócyanate. „Það verkar á fólk eins og tára- gas, en er mun banvænna," sagði hann. sem fögnuðu innrás Bandaríkja- manna í október í fyrra. Hafa bandarískir kaupsýslumenn ennfremur styrkt kosningabar- áttu hans með fjárframlögum og lýst sig reiðubúna til fjárfest- inga á eynni ef það megi verða til þess, að tryggja framtíð lýð- ræðis þar. Auk Nýja þjóðarflokksins og nokkurra óháðra einstaklinga bjóða þrír stjórnmálaflokkar fram til þingsins: Föðurlands- hreyfingin, sem kennir sig við marxistann Maurice Bishop, sem myrtur var í valdaráni í fyrra; Sameinaði verkamanna- flokkurinn, en forystumaður hans er sir Eric Gairy, dulspek- ingur og sérvitringur mikill, sem var leiðtogi Grenada í þrjá áratugi, og Verkamannaflokkur kristilegra demókrata, sem Winston Whyte stjórnar. Á kjörskrá á Grenada eru 48 þúsund manns, en það er allir eyjarskeggjar 18 ára og eldri, að eitt þúsund manns undanskild- um. Leiðtogafundur Evrópubandalagsins: Vínframleiðsla Portú- gala og Spánverja veldur vandræðum Dyflinni, 3. desember. AP. LEIÐTOGAR ríkjanna tíu, sem aðild eiga að Evrópubandalaginu, komu saman til fundar í Dyflinni í írska lýðveldinu í dag. Á dagskrá fundar- ins, sem er hinn þriðji á þessu ári, eru fjárhagsmál bandalagsins, samskipti austurs og vesturs og umsóknir Portúgala og Spánverja um aðild að bandalaginu. Gífurlegar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar vegna fundar- ins og hafa sérsveitir hermanna verið kallaðar út lögreglu til að- stoðar. Er lögð sérstök áhersla á að gæta Margrétar Thatcher, for- sætisráðherra Bretlands, sem irskir hryðjuverkamenn reyndu fyrir skömmu að ráða af dögum. Kom hún í þyrlu til fundarstað- arins, sem er 13. aldar höll í miðborg Dyflinnar, og fór inn bakdyramegin. írski þjóðfrelsisherinn, sem er hópur marxista innan hins ólög- lega lýðveldishers, segist hafa komið fyrir mörgum óvirkum sprengjum i nágrenni fundar- staðarins til að leggja áherslu á fyrirætlan sína, að ryðja Thatch- er úr vegi. Hefur lögreglan í Dyfl- inni þegar fundið eina slíka sprengju í miðborginni. Eitt erfiðasta viðfangsefni leið- togafundarins eru umsóknir Portúgala og Spánverja um aðild að Evrópubandalaginu, en við- ræður um það efni hafa enn ekki skilað árangri. Helsti Þrándur i Götu samkomulags er ágreining- ur aðildarríkjanna um það hvern- ig bregðast skuli við gífurlegri aukningu á víni á markaði banda- lagsins í kjölfar inngöngu rikj- anna tveggja, en offramboð á víni er þegar orðið alvarlegt vanda- mál innan bandalagsins. Símamynd/AP. Hrydjuverkamenn fyrir rétti Kóm. 3. (tnenber. AP. TUTTUGU og þrír félagar f ítölsku hryðjuverkasamtökunum Rauðu herdeildunum, sem dcmdir hafa verið fyrir ránið og morðið á Aldo Moro, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, árið 1978, komu fyrir áfrýjunar- rétt í Róm í dag. í hópnum voru Adriana Faranda (tv.) og Valerio Morocci, sem sjást hér á myndinni, en þau voru höfuðpaurar samsæris- ins og hafa verið dæmd í ævilangt fangelsi. Það hefur vakið mikla reiði og gremju á Italíu, að kvikmyndafélag, sem er að gera mynd um örlög Moros, hefur óskað eftir aðstoð þeirra tveggja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.