Morgunblaðið - 04.12.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
43
Guðjón Jónsson
gefið góða raun, hvorki ykkur
persónulega né þjóðinni. Um það
er sifelldur barlómur nokkurt
vitni, þótt falskur sé af margra
munni. Sannleikurinn er sá — og
það er alkunna — að stór hluti
þjóðarinnar nýtur enn miklu meiri
kaupmáttar en þjóðarbúið þolir um
sinn. Kannski er meiri þjóðar-
nauðsyn að minnka kaupgetu
sumra en að efla kaupmátt al-
mennt.
Ég á ekki von á því, að þið, ungu
kennarar, né aðrir láglaunahópar
innan BSRB, ráðið miklu um
kjarasamninga ykkar eða hvernig
raðað er í launaflokka, fremur en
gerist í samtökum okkar banka-
manna. En þeim mun ég helga
aðra grein, ef mér endist móður.
Það eru væntanlega forystumenn
ykkar í hæstu launaflokkum sem
jafnt stýra stríðinu og samning-
unum. Þessir menn hafa nú þegar
eignazt allt sem þeir þurfa til lífs-
ins, alið upp börn sín og menntað
þau. Þeir hafa klifrað upp met-
orðastigann og fengið starfsald-
urshækkanir við síminnkandi
þörf, þeir þurfa sennilega alls
enga launahækkun nú, meðan
neyðarástand er að verða hjá sum-
um hópum í þjóðfélaginu. Það er
mannlegt að þeir þegi yfir þessu
og krefjist sömu hækkunar fyrir
allan hópinn, ekki í krónum held-
ur prósentum, svo að þeir fái
raunar meiri hækkun en hinir
þurfandi. Ef þið sættið ykkur við
þetta áfram, unga fólk, þá upp-
skerið þið það eitt að verðbólgan
æsist á ný og leggur samfélagið í
rúst. Hinn fátæka leggur hún
fyrst að velli.
Það er bláber skylda ykkar,
hvers einasta eins, að þekkja
sannleikann um kjarasamninga
undanfarin ár og afleiðingar
þeirra. Lesið t.d. greinar hins
virta hagfræðings Olafs Björns-
sonar í Mbl. 27. ág., 2. og 7. sept.
1983. Og gerið ykkur ljóst, að
réttlæti í skattgreiðslu er í senn
bezta og öruggasta kjarabót
launafólks og kostar ekki verð-
bólgu, og jafnframt einhver mik-
ilvægasti prófsteinn á heiðarleika
og réttlæti í samfélaginu. Það er
skýlaus skylda þess að afla sér-
hverrar vitneskju sem þarf til að
ná viðhlítandi árangri í þessu efni,
til þessa er samfélagið stofnað.
Látið því þessa kröfu ekki niður
falla, þó að kyrrist um sinn á
vinnumarkaði. Aftur á móti er
engin augljós nauðsyn að ljóstra
upp eins miklu og nú er gert um
einkahagi manna, sbr. skatt-
skrána, og líklega vitlaust að gera
það og til þess fallið að freista
manna til að dyljast.
Og áfram nú, unga fólk:
íslandi allt
Meginástæða þess að ég ákvað
ið beina orðum til ykkar, ungu
tennarar, er sú að þið létuð um
nríð meira á ykkur bera en aðrir
þrýstihópar, og án þess að sýna þá
ábyrgð og skilning á þjóðmálum
sem ætlazt verður til af útvöldum
fræðurum næstu kynslóðar, — já,
virtust alls óvísir þess, hvílíkt
glæfra- og glæpaspil hefur verið
leikið um langa hríð, m.a. með mis-
beitingu hins gífurlega afls samein-
aóra stéttasamtaka í landinu, —
fullkomlega til jafns við rangar
ákvarðanir stjórnvalda og ann-
arra umsjónarmanna fjármagns
(sem réttilega fá þungar ásakanir
fyrir, og þá ekki sízt frá hinum
fyrr nefndu, þótt sannarlega kasti
þeir grjóti sínu úr glerhúsi).
Feginn vildi ég mega verja mín-
um veiku kröftum, eins og ég hef
áður borið við, til að segja þeim til
syndanna sem meiri sök eiga á
vanda þjóðarinnar en þið — og
mér þykir verulega fyrir því að
vera til neyddur að vanda um við
ykkur í þetta sinn. En mér rennur
blóðið til skyldunnar, og sú er
önnur ástæða fyrir skrifi mínu nú,
samúð með stéttinni — og með
þeim sem ekki eiga. Þið máttuð
kannski sízt við þvi að fyrirgera
þeirri samúð sem þið nutuð meðal
þjóðarinnar. Að sjálfsögðu veit ég
næsta lítið um hvað henni líður,
— en samúð mín er ekki lengur
með ykkur, heldur með börnunum
ykkar og barnabörnum — þeim
sem erfa skulu landið, og ábyrgð-
arleysið og verðbólguskuldirnar.
Það ok verður lagt á þeirra herðar:
SYNDIR FEÐRANNA KOMA
NIÐUR Á BÖRNUNUM.
Þá verður kannski allur fiskur
dauður í sjó og þjóðartekjur ís-
lendinga koma af engu nema því
að telja peninga og innheimta
skuldir vegna kreditkorta m.m. Þá
verður kannski gott að vera lektor
í félagsfræði með laun í samræmi
við þjóðartekjur, þegar útgerð er
úr sögunni og stóriðja landræk.
Ætli það þó?
EÐA HVER BORGAR ÞÁ RÍK-
INU, ágætu ungu ríkisstarfs-
menn?
Með friðarkveðju og ósk um far-
sælt og réttlátt þjóðfélag.
Guðjón Jónsson er fyrrverandi
kennari og starfar nú rið Seðla-
banka íslands.
ER SKIRTEINI
ÞífTUR
GILDIGENGID?
-eóa gerirþaó fljótlega.
Hafðu gát á gildistímanúm. Fjöldi fólks missir
ökuleyfið á hverju ári vegna vanrækslu við endur-
nýjun. Slík vanræksla getur kostað það, að taka
þurfi ökupróf að nýju.
í tilefni 5 ára afmælis Passamynda bjóðum við
15% afslátt í desember á öllum passamyndatökum.
Við endurnýjun öku-
skírteinis þarf að
hafa eftirfarandi
liandbi'rt:
• Nýjarskírteinismyndir
• Gamla ökuskírteinið
• I.æknisvottorö
1113151
PASSAMYNDIR f ALLA PASSA
Á HLEMMI
fl’itl
Falleg og Ijúf
lljjli
í 111 i j
!i|ir
I
1
r f
íi