Morgunblaðið - 04.12.1984, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
Fimmta bindið af
„Hvað gerðist á
Islandi?44 komið út
FIMMTA bindi árbókaflokksins
„Hvað gerðist á íslandi?" er komið
út hjá Bókaútgáfunni Erni & Örlygi
og tekur þetta bindi til ársins 1983.
Það er eins og fyrri bindi eftir Stein-
ar J. Lúðvíksson, en myndaritstjóri
er Gunnar Andrésson. Flestir frétta-
Ijósmyndarar landsins eiga myndir í
bókinni.
1 bókinni er fjallað um það
helzta, sem gerðist á íslandi á ár-
inu 1983. Atburðir eru flokkaðir
eftir eðli sínu þannig að auðvelt er
að finna það, sem leitað er að. í
fréttatilkynningu frá bokaútgáf-
unni segir að höfundur bókarinn-
ar, Steinar J. Lúðvíksson, hafi
fengið mikið lof gagnrýnenda
Leiðrétting
Nicolai Gedda syngur
með sinfóníunni
ekki óperunni
Þau leiðinlegu mistök urðu í
blaðinu sl. föstudag að sagt var að
óperusöngvarinn víðkunni Nicolai
Gedda myndi syngja með tslensku
óperunni. Það er ekki rétt, hann
mun syngja með Sinfóníu-
hljómsveit Islands. Mbl. biðst af-
sökunar á þessum mistökum.
fyrir skýra og glögga uppsetningu
efnis og næmt mat á efnisvalinu.
Efni bókarinnar er raðað niður
eftir eðli atburðanna og i tímaröð:
Alþingi — stjórnmál, atvinnuveg-
ir, bjarganir — slysfarir, bók-
menntir — listir, dóms- og saka-
mál, efnahags- og viðskiptamál,
eldsvoðar, fjölmiðlar, íþróttir,
kjara- og atvinnumál, menn og
málefni, náttúra landsins og veð-
urfar, skák og bridge, skóla- og
menntamál, úr ýmsum áttum.
Bókin er sett og prentuð í prent-
stofu G. Benediktssonar, en bund-
in hjá Arnarfelli. Kápu hannaði
Sigurþór Jakobsson.
HMaðgefðis<áfe>aoti
1983
Sveinbjörn Björnsson (í miðju), Hell Chr. Lunde (til vinstri) og Ágúst Haraldsson undirrita samstarfssamning
Ofnasmiðjunnar og Hövik Stál.
Ofnasmiðjan framleiðir
norskar þungavöruhillur
OFNASMIÐJAN hf. í Reykjavík hefur gert samvinnusamning við norska
fyrirtækið Hövik Stál, dótturfyrirtæki Christiania Glass Magasinet A/S í
Noregi. Samningurinn gerir Ofnasmiðjunni kleift að fuilvinna vöru, einkum
þungavöruhillur fyrir frystiklefa og lagera, sem hannaðar eru af norska
fyrirtækinu, og jafnframt að flytja hálfunnar hillur til landsins og fullvinna
hér. Samningurinn veitir Ofnasmiðjunni aðgang að vöruþróun, framleiðslu-
tækniþekkingu og sölutækni norska fyrirtækisins og gera forráðamenn
Ofnasmiðjunnar sér vonir um góðan árangur af samstarfinu, að því er kemur
fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Segir þar einnig að hillurnar hérlendis að hluta eða öllu leyti.
séu viðurkenndar sem hágæða-
vara, bæði hvað varðar stál, lökk-
un og annan frágang. Þær séu á
betra verði en sambærilegar hillur
þar sem hægt sé að vinna þær
Vegna aukinnar lausafrystingar í
frystihúsum landsins verður í
fyrstu lögð áhersla á þungavöru-
hillur fyrir frystiklefa. I slíkar
hillur er notuð serstök stálblanda.
er þolir mikið frost auk þess sem
yfirborðsmeðhöndlun stálsins
þarf að vera sérstaklega góð, segja
forráðamenn Ofnasmiðjunnar.
Ofnasmiðjan hf. mun einnig
framvegis bjóða viðskiptavinum
sínum upp á skipulagningu á lag-
erhúsnæði og bjóða þá jafnframt
fast verð í allan búnaö. Segir í
fréttatilkynningunni, að dæmi séu
til um að fyrirtæki, sem hafi ætlað
að flytja í stærra húsnæði, hafi
hætt við flutningana eftir endur-
skipulagningu á lagerhúsnæðinu
með þungavörurekkum.
GÁRfíUR
S.62-1200 62-1201
Skipholti 5
Hverfísgata Hf.
2ja herb. rúmg. falleg íb. á efrl
hæö f eldra stelnh. Gott útsýni.
Sérhíti. Bílsk. Verö 1600 þús.
Blómvallagata
3ja herb. ca. 75 fm mjðg snytil.
íb. á 2. h. I trfokk. Verö 1700 þús.
Blikahólar
3ja herb. fb. á 4. hæö f lyftuhúsi.
Laus fljótl. Verö 1600 þús.
Furugrund
3ja herb. ca. 90 fm íb. á 3.
haBð < lyftuhúsi. Fullgerö góö
íb. Verö 1800 þús.
Hraunbær
88 fm íb. á 1. hSBö. Þv.herb. (
íb. Góö íb. Verö 1750 þús.
Hátún
3ja herb. samþ. kj.íb. i tvfb.
-steinh.
Háaleítishverfi
4ra—5 herb. 117 fm íb. á 2.
hœö. Þv.herb. f fb. Sérhlti.
Bflsk. Fallegt útsýni. Ibúö á
eftirsóttum staö.
Blöndubakki
4ra herb. 115 fm fb. á 3.
habð auk 20 fm herb. f kj.
Góö fbúö.
Breióvangur
4ra—5 herb. 122 fm mjög
góö fb. á 1. hsaö. Þv.herb. f
fb. Suöursv. óvenju rúmg.
stofur. Mögul. aö taka 2ja
herb. ib. uppf kaupverö.
Flúðasel
Laus (búö á 3. hæð. Bílgeymsla.
Stórar suöursv. Verö 2,2 mlllj.
Jörfabakki
4ra herb. fb. á 1. hæö auk
herb. f kj. Mjög góö fb. f ról.
hverfl. Þv.herb. í ib. Ný
teppi.
Bakkasel
Vandaö raöh. á 3 hæöum,
samt. ca. 260 fm auk bflsk. 2ja
herb. íb. í kj. Glsssil. útsýnl.
Verð 4,6 mlllj.
Selás
195 fm raöhús á 2 hæöum auk
tvöf. bílsk. 5 svefnherb. Verö
4,2 millj.
Bugðulækur
140 fm íb. á 2 hæöum. 4
svefnherb., góöur bilsk. Vðnd-
uö eign á góöum stað.
Rjúpufell
140 fm endaraöh. á einnl hæö.
Bflskúr. Gott hús, ræktaöur
qarður. Verö 3 millj.
Draumahús unga fólks-
ina
MjÖg snoturt og gott jámklætt
timburhús á steinkjaUara á góö-
um staö í miöbæ Hafnarfjaröar.
í smíðum —
Ártúnsholt
Einb.hus á tveim hæöum,
samt. 193 fm. auk 31,5 fm
bilsk. Til afh. strax. Góöur
staöur.
Jakasel
Elnbýll, hæö og rls, 168 fm, auk
31,5 fm bilsk. Verö 2.5 millj.
Kambasel
Raðh. á 2 hæöum, ca. 193
fm meö innb. bflsk. Selst
fokheit en fullgert aö utan,
m.a. lóö og bflastæöi (meö
hitalðgn). Einstakt tækifærl
til aö kaupa fokhelt hús i
fuHgeröi hverfi. Hagstætt
verö. Teikn. á skrífst. Til afh.
strax.
Grafarvogur
Glæsil. 203 fm endaraöh. á 2
hæöum meö innb. bilsk. Gert er
ráö fyrlr yfirbyggðum garðsvöl-
um. Húsiö selst fokh. Hagstætt
verö.
Ofanleiti
Nú er aöeins ein 4ra herb. 117
fm endafb. á 2. hæö eftir f vin-
sælu 3ja hæöa blokkinni sem
vfö höfum veriö til sölu. Bílsk.
Teikn. á skrífst.
Kárí Fanndai Guöbrandsson,
Lovísa Kristjánsdóttír,
Bjðm Jónsson hdt.
Aðalfundur Kaupmannafélags Vestfjarða:
Verzlanir einstaklinga og
samvinnufélaga starfi á
jafnréttisgrundvelli
AÐALFUNDUR Kaupmannafélags
Vestfjarða var haldinn á Hótel fsa-
flrði hinn 29. september síðastliðinn.
Benedikt Bjarnason, sem verið hef-
ur formaður félagsins, baðst undan
endurkosningu og var Heiðar Sig-
urðsson kjörinn í hans stað. Aðrir í
stjórn félagsins eru: Úlfar Ágústs-
son, Ásgerður Halldórsdóttir, Gunn-
laugur Jónsson og Kristján Jó-
hannsson.
í ályktunum fundarins segir að
hann fagni þeim skrefum, sem
stjórnvöld hafi stigið til aukins
frjálsræðis i verzlun og telur
fundurinn, að það muni eflaust
bæta hag bæði verzlana og neyt-
enda. Þá bendir fundurinn á slaka
afkomu landsbyggðarverzlunar al-
mennt, en sökum mikilvægis
landsbyggðarverzlana fyrir þjóð-
arheildina „eru stefnumarkandi
aðgerðir nauðsynlegar til að
lækka rekstrarútgjöld þeirra".
Bent er á veigamikla þætti til
lækkunar, svo sem jöfnun orku-
kostnaðar og hagkvæma lánafyr-
irgreiðslu.
Kundurinn ítrekaði fyrri álykt-
anir um niðurfellingu á sérskött-
um á verzlunar- og skrifstofu-
húsnæði, um niðurfellingu sölu-
skatts á flutningskostnað innan-
lands og um lækkun á launaskatti
til samræmis við aðrar atvinnu-
greinar, er greiða lægri skattpró-
sentu. Þá itrekaði fundurinn að
greiddur yrði kostnaður við inn-
heimtu söluskatts.
Aðalfundurinn krefst þess að
stjórnvöld sjái til þess með laga-
setningu, að verzlanir einstakl-
inga og samvinnufélaga geti starf-
að á jafnréttisgrundvelli, séu jöfn
gagnvart lögum landsins, án for-
réttinda. Mótmælt er því ranglæti
í skattalögum að eigendur i einka-
rekstri fái ekki frádregið í rekstr-
arreikningi 6% lífeyrissjóðsfram-
lag fyrirtækis fyrir störf sín, eins
og heimilt er í öðrum rekstrar-
formum. Hvetur fundurinn stjórn
Kaupmannasamtaka fslands til að
halda fast á málum við ráðherra-
skipaða nefnd, sem endurskoðar
nú ýmis lög varðandi félög og
stofnanir í atvinnurekstri. Það
hefur grundvallarþýðingu fyrir
heill og framtíðarhag verzlunar-
fyrirtækja í einkaeign, að ná nú
fram réttlátum breytingum og
leiðréttingum á ýmsum úreltum
ákvæðum í þessum lögum.
Þá bendir Kaupmannafélag
Vestfjarða á að samgöngur milli
byggðarlaga á Vestfjörðum séu
grundvöllur fjölgunar og treyst-
ingu byggðar á Vestfjörðum.
Leggur fundurinn því þunga
áherslu á að nú þegar verði hafist
handa um að útvega fjármagn og
tæki til að tryggja daglegar sam-
göngur á Vestfjörðum meðal ann-
ars með greftri jarðganga í gegn
um þau fjöll, sem mestum farar-
tálma valda. Mikill íbúaflótti hef-
ur verið á Vestfjörðum á síðast-
liðnum áratugum. Skorar félagið á
stjórnmálamenn og atvinnurek-
endur í héraðinu að taka höndum
saman til markvissrar sóknar þar
til íbúafjölda hefur verið náð, sem
tryggir eðlilega þjónustu og fjöl-
breytni í atvinnuháttum.
Háskóla-
tónleikar
á morgun
SÍDUSTU Háskólatónleikarnir á
haustmisseri 1984—85 verða
haldnir í Norræna húsinu í hádeg-
inu mióvikudaginn 5. desember.
Flytjendur eru Kjartan
Óskarsson, klarinett, Helga Þór-
arinsdóttir, víóla og Hrefna
Eggertsdóttir, píanó. Þau flytja
verk eftir Max Bruch.
Tónleikarnir hefjast kl. 12:30
og standa u.þ.b. hálftfma.