Morgunblaðið - 04.12.1984, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.12.1984, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984 Izvestia um sovésku iiðhlaupana í Afganistan: „Haldiö í mar- tröð útlegðar" Moakvu, 3. desember. AP. TVEIR ungir sovéskir hermenn sem sögðust hafa verið liðhiaupar í Afganistan, en héldu heim til Sov- étríkjanna frá Bretlandi fyrir skömmu, hafa snúið við blaðinu og lýst yfir að afganskir andspyrnu- menn hafi rænt sér og síðan hefðu þeir verið neyddir til að dvelja í „útlegð sem var martröð líkust." Sovéska dagblaðið Izvestia birti í dag viðtal við piltana tvo, þá Oleg Khlan og Igor Rikov, 22 og 23 ára gamla, sem héldu til síns heima 11. nóvember síðast- liðinn. Hefur blaðið eftir þeim, að andspyrnumenn hefðu rænt þeim, gefið þeim svæfingarlyf og flutt þá þannig á sig komna til Pakistan og þaðan allar götur til Lundúna. „Við hættum aldrei að hugsa heim og allt var þetta martröð líkast, því gripum við fyrsta tækifærið sem gafst, er eftirlitsmenn okkar í Lundúnum sofnuðu á verðinum, og fórum í sovéska sendiráðið," hefur blaðið eftir mönnunum. Þá greinir blaðið frá dvölinni í flóttamannabúðum í Peshawar. Þar segir Izvestia, að þeir hefðu reynt að flýja er opíumvíma rann af þeim og þeir gerðu sér grein fyrir því hvar þeir voru niður komnir, en verið handteknir á ný, barðir sundur og saman og hlekkjaðir í dimmum fangaklef- um. I sömu andrá greinir dag- blaðið frá því að piltarnir tveir hafi daglega séð vörubíla koma til búðanna, hlaðna breskum og bandarískum rifflum, vélbyssum og skotfærum. „Þegar okkur var boðið að fara til Englands þáðum við það, því okkur fannst sem ferðin heim á ný hlyti að verða styttri og greiðari þaðan,“ hafði dagblaðið einnig eftir piltunum tveimur. Áður en þessir atburðir allir áttu sér stað, átti Fatima Salkaz- anova, fréttaritari Liberty- útvarpsstöðvarinnar, viðtal við piltana meðan þeir dvöldu í Pesh- awar. Þar sögðu þeir að sovéskir hermenn í Afganistan væru leiðir og liðsandi væri í lágmarki. Það lýsti sér á ýmsa lund, til dæmis væru Sovétmenn grimmir við heimamenn og færu um rænandi nauðgandi og drepandi ef hið minnsta tækifæri byðist. Þeir að- ilar sem komu þeim Rykov og Khlan til Bretlands, lýstu í dag áhyggjum sínum yfir því hvernig komið væri, það væri ljóst að KGB hefði náð tangarhaldi á þeim og þeir ættu nú á hættu að vera leiddir fyrir herrétt og skotnir. *• mb »* •m;1 me” "'m&r*' Mótmælafundur í Bólivíu Símamynd AP. Enn hefur ekki nádst samkomulag í Bólivíu milli stjórnvalda og verkalýðssambandsins þar um að binda enda á allsherjarverkfallið, sem lamað hefur landið svo til algerlega í hálfan mánuð. Mynd þessi var tekin í síðustu viku af fjölmennum útifundi I höfuðborginni La Paz, en fundurinn var haldinn til þess að mótmæla stefnu stjórnarinnar í efnahagsmálum. Eins og sjá má skortir ekki regnhlífarnar, en mikil rigning var, er fundurinn var haldinn. Hussein og Mubarak ljúka fundi um deilurnar f Miðausturlöndum: Hvetja til friðarráðstefnu með aðild allra deiluaðila Kairó, 3. desember. AP. HUSSEIN Jórdaníukonungur lauk þriggja daga heimsókn til Egypta- lands í dag og skömmu fyrir brott- förina hvöttu Jórdanir Bandaríkja- menn til að þrýsta á ísraela um að draga sig burt frá öllum herteknum svæðum Araba gegn friðarsam- komulagi við Araba. Með viðræðum sínum við Hosni Mubarak forseta Egyptalands er Hussein að reyna að sameina Ara- ba og samræma afstöðu þeirra Sanguinetti forseti Uruguay: Sleppir föngum og her- foringjum gefnar upp sakir Rio de Janeiro, Brasilíu. 3. denember. AP. JIILIO Sanguinetti, hinn nýkjörni forseti Uruguay, sagði í viðtali við vikurit í Brasilíu, að allir pólitískir fangar sem hnepptir heföu veriö í varðhald í tíð herstjórnarinnar, yrðu náðaðir er hann kæmi til valda. Her- stjórnin sat við völd í 11 ár og eru slíkir fangar afar margir. arnir sem misstu völdin hafa verið sóttir til saka hver af öðrum. með tilliti til friðarviðræðna við ísraela. Hefur Hussein átt fundi með Arafat leiðtoga Palestínu- manna og er vonast til að tilraunir hans leiði til nýrra friðartilrauna á næstu mánuðum. Forsætisráðherra Jórdaníu sagði Sovétmenn hafa „megin hlutverki" að gegna í framtíðar- tilraunum til að stilla til friðar í Miðausturlöndum, en þeir hafa ekki átt aðild að þeim hingað til, og kunngerði að Jórdanir myndu innan tíðar ljúka samningum um kaup á loftvarnarvopnum frá Rússum. Hussein sagði í ræðu í egypska þinginu að friðarviðræður Israela og Araba yrðu ekki haldnar nema með fullri aðild samtaka Palest- ínumanna, PLO. Hafnaði hann til- lögum um að Jórdanir kæmu fram fyrir hönd PLO, en sagðist til- búinn til samstarfs við PLO í leit að friði. ísraelar neita að semja við PLO. Þrátt fyrir kröfu Husseins um beina aðild PLO að friðarviðræð- um við ísrael sögðu háttsettir ísraelar, sem vildu ekki láta nafn síns getið, að viðræðurnar hefðu verið jákvæðar að mörgu leyti, og að „raunhæfari" leiðir hefðu verið rædd fyrir luktum dyrum. í yfir- Hussein lýsingu að fundum loknum hvöttu Hussein og Mubarak til þess að haldin yrði alþjóðleg friðarráð- stefna að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna, þar sem allir deiluaðil- ar, þ.ám. PLO, tækju þátt. Mubarak hefur dregið gildi slíkrar ráðstefnu í efa þar sem ísraelar og Bandaríkjamenn eru mótfallnir hugmyndinni. Sanguinetti sagði, að náðanirn- ar næðu aðeins til þeirra sem sett- ir hefðu verið í fangelsi í tíð stjómarinnar, en ekki til þeirra vinstri sinnuðu skæruliða sem settir voru í svarthol áður en her- stjórnin settist að völdum. „Það er vegna þess, að þeir sem handtekn- ir voru áður, börðust gegn lýðræð- islega kjörinni stjórn, hinir aftur á móti gegn kúgunarstjórn sem hrifsaði til sín völdin. Herstjórnin tók völdin árið 1973. Forsetinn sagði að reyndar kæmi til mála að náða einhverja hinna vinstri sinn- uðu skæruliða ef það sannaðist að þeir hefðu ekki „drýgt hræðilega glæpi gegn mannkyninu," eins og Sanguinetti sagði og útlistaði síð- an: Morð, mannrán, limlestingar og nauðganir. Forsetinn sagði nokkuð sem vakti athygli, en það var að for- kólfar herstjórnarinnar yrðu ekki sóttir til saka fyrir sitthvað sem þeir kynnu að hafa brotið af sér meðan þeir sátu við völd. Er búist við að þessi yfirlýsing forsetans skapi úlfúð, en ýmsir höfðu vænst þess að sama stefna yrði tekin og í Argentínu, þar sem herforingj- Bandaríkin: Heyrnartæki fyrir heyrnarlausa — hlýtur samþykki yfirvalda WashÍBKton, 3. deaember. YFIRSTJÓRN matvæla- og lyfja- eftirlits Bandaríkjanna samþykkti í síðustu viku að leyfa framleiðslu og sölu á sérstöku rafeindaeyra sem gert gæti 60—200.000 heyrn- leysingjum í Bandaríkjunum kleift að heyra hljóð eins og flaut í bflum og hljóm í dyrabjöllum. Þegar tilkynnt var um sam- þykki stofnunarinnar, sagði dr. Mark Novitch, forstöðumaður hennar m.a.: „í fyrsta skipti get- ur tæki að hluta til komið í stað skynfæris mannsins." Heyrnartækið mun gera al- gerlega heyrnarlausu fólki möguíegt að heyra raddir, en það verður samt ekki svo öflugt að með því verði greind orðaskil, að sögn dr. Novitch og höfundar tækisins, dr. William House. Dr. Novitch kvað samþykki hafa verið veitt fyrir framleiðslu og sölu tækisins, sem hann nefndi „elektrónískt innra eyra“, eftir að 163 slíkum hafði verið Leiðsla til magnara K .............É,iiiiiíliMÍlinii.imimmi*i.... J Frá hljóðnemanum fer hljóðið til lítils magnara, sem sendir það áfram sem rafboð til segulspólunnar utan á höfuðkúpunni aftan við eyra. Þaðan berast boðin sem segulboð til innri segulspólunnar, sem sendir þau áfram sem rafboð til heyrnartaugarinnar. Loks sendir heyrnartaugin boðin á leiðarenda, til heilans. komið fyrir í tilraunaskyni. Sagðist dr. House hafa komið fyrir tækjum í yfir 400 sjúkling- um frá árinu 1969. Þau tilfelii af heyrnarleysi, sem tækið getur bætt upp, stafa af því að hinar örsmáu hárfrum- ur í bogagöngum innra eyrans hafa eyðilagst og geta ekki um- myndað hljóðbylgjur í rafboð til heilans. Tækið vinnur á eftirfarandi hátfc Lítill hljóðnemi, sem hægt er að festa á gleraugnaspangir, nemur hljóðið, sem breytist í rafboð fyrir tilstilli lítils magn- ara. Boðin berast síðan til seg- ulspólu, sem fest er utan á höf- uðkúpuna aftan við eyra. Spólan er sendir og kemur boðunum áfram með seguláhrifum til mót- takara, innri segulspólunnar, sem komið er fyrir innan á höf- uðkúpunni aftan við eyra, á móts við ytri spóluna. Frá móttakar- anum fara boðin nú eftir leiðslu og berast sem rafboð til heyrn- artaugarinnar. Hún kemur skilaboðunum á leiðarenda, til heilans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.