Morgunblaðið - 04.12.1984, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
„Hagkaup góðan dag
„Seljið þið símtœki?
Já, við seljum þœgileg
takkasímtœki með vegghulstri,
þau eru með 10 minnum.
Hvað kosta þau?
1385 krónur
Eru þau svona ódýr???“
Já, þetta eru góð kaup.
Halló, halló....“
HAGKAUP
Reykjavík Akureyri Njarðvík
Landbúnaðarvörur hækkuðu um 8,8 til 16,5%
Mjólkurlítrinn
kostar nú 26,50
NÝTT verð á landbúnaðarvörum tók gildi í gær. Nautgripakjöt hskkaði um
8,8%, dilkakjöt um 13,2% og mjólk og mjólkurvörur um 12,4 til 16,5%
Mjólkurlítrinn kostar nú 26,50 kr., kostaði fyrir helgi 23,10 kr. og hskkaði
því um 14,7%
Einn lítri af rjóma kostar 163,20
kr., hækkaði um 12,5%. Undan-
rennan kostar 18,40 kr. hver lítri,
hækkaði um 14,6%. Eitt kíló af
skyri kostar 44,40 kr. og hækkaði
um 14,1%. 1. flokks smjör kostar
291,50 kr. hvert kíló, hækkaði um
16,5%. Eitt kíló af 45% osti hækk-
aði um 12,4% og kostar nú 249,70
kr.
Eitt kíló af dilkakjöti i úrvals-
flokki í heilum skrokk, skipt að
ósk kaupanda, kostar 174,10 kr.,
167,40 kr. ef skrokkurinn telst
vera af 1. verðflokki og 150,90 kr.
ef það er af 2. verðflokki. Hækkaði
dilkakjötið um 13,2%. Nautgripa-
kjöt hækkaði um 8,8%. Kostar nú
eitt kíló af nautgripakjöti í 1.
verðflokki, í heilum eða hálfum
skrokk, 198 krónur, 175,70 kr. ef
kjötið er af 2. verðflokki og 156,60
af 3. verðflokki.
Nýja ræsið i Hjallarás.
Endurbætur
Hverajjerði, 26. nóvember.
VEGFARENDUM um hinn lands-
fræga tílfusveg, (milli Hveragerðis
og Þrengslavegar) ráku upp stór
augu nú á dögunum, þegar vart varð
við vinnuflokka vegagerðarinnar.
Töldu raargir að nú ætti að fara að
undirbúa lagningu bundins slitlags á
veginn og var það að vonum eftir
margra ára umræður og blaðaskrif
um þennan einn versta vegakafla
landsins, sem þó er mjög fjölfarinn
og má oft á vetrum bera alla bílaum-
ferð frá Nuðurlandi til höfuðborg-
arsvæðisins, þegar Hellisheiði er
éfær.
Við hittum að máli Gunnar
Olsen verkstjóra þar sem hann
var með mönnum sinum að koma
fyrir sprengiefni undir einni
gömlu brúnni á veginum. Sagði
hann vegagerðina vera að gera
ýmsar lagfæringar á ölfusvegi
m.a. rífa 3 brýr sem komnar eru
til ára sinna, orðnar 40 ára gaml-
• •
á Olfusvegi
í staðinn verða sett ræsi úr
stálrörum. Brýrnar eru á lækjum
sem nefnast Bakkarás, Hjalla-
lækur og Hjallarás. Síðar á að
steypa nýja brú á Þurá. Þá mun
eiga að setja stikur á veginn.
Vissulega er allt gott um þessar
framkvæmdir að segja, svo langt
sem þær ná, en hvað ætli líði slit-
laginu? Aðspurður sagði verk-
stjórinn að ekki væri kunnugt um
að fyrir lægi að leggja bundið
slitlag á veginn á næstunni.
Trúlega verðum við að bíða einn
áratuginn enn, nema okkar ágætu
þingmenn taki nú á sig rögg og
reyni að þoka málinu til „betri
vegar."
Sigrún.
GROHE
m
Sarnafi!
- varanleg lausn
VIÐHALDSFRÍTT ÞAKEFNI
Á ÞÖK - Á ÞAKSVALIR
ÁBYRGÐ Á EFNI OG VINNU
UNNIÐ ALLT ÁRIÐ - SUMAR SEM VETUR
FAGTÚN HF LÁGMÚLA 7, 105 REVKJAVÍK, SÍMI 28230
Ladylux - Ladyline:
Nýtt fjölhæft heimílistæki i eldhusið
RR BYGCINGAVÖKPR_HK
. ,.W%
ársámxOm
Bónus á 6 mánaöa reikningi er nú 3%. Bónusinn auk vaxta
gefur því 27,7% ársávöxtun. Auk þess ræöur þú hvort þú tekur
verötn/ggingu eöa ekki. Þaö er kostur.
Bónusreikninginn færöu bara hjá lönaöarbankanum.
Mnaðarttankinn